Morgunblaðið - 15.04.1917, Blaðsíða 2
2
. MOKGUN’BLAÐIÐ
Eimskipafélagíð.
Það hefir verið fremur hljótt
um hlutafjársöfuun til Eimskipa-
félagsins upp á síðkastið, hvernig
sem á því stendur. Er þó langt
frá því, að safnast hafi öll upp-
hæðin, sem boðin var út. Eftir
upplýsingum, sem vér höfum afl-
að oss á skrifstofu félagsins, munu
vera komnar til félagsins um 340
þús. króna.
Jíetur raá ef duga skal!
Úr Flatey á Breiðafirðí er svo
skrifað nýlega, að þar hafi Guðm.
Bergsteinsson kaupm. safnað als
7675 kr., síðan Goðafoss strand-
aði. í hreppnum búa samtals 382
manns, og verða þvi 20 kr. að
meðaltali á hvern hreppsbúa. —■
Sjálfur hefir Guðmundur og hans
fólk keypt hluti fyrir 2000 kr.,
og hefir hann með því sýnt hug-
arfar sitt til félagsins. — Ætti
framkoma hans að verða hvatn-
ning fyrir aðra kaupmern lands-
ins til þess að leggja vel af
mörkum til þessa þarfa fyrir-
tækis.
Eimskipafélagið má til að fá
peninga — og það er skylda hvers
góðs íslendings að styðja það
eftir mætti.
Skrítinn her.
Lýðveldið San Marino sem aðeins
er 6i ferkilometer að stærð og telur
n þúsund íbúa liggur á milli ítölsku
héraðanna Ferii og Pesaro e Urbino.
Ersríkið undir vernd ítaliu ogfylgir
henni að málum. Þegar Ítalía sleit
friði við Austurríki, var San Marino
auðvitað fylgjandi og er það einnig
í stríði við Austurríkismenn. En sá
var munurinn að San Marino hefir
að forminu til verið í stríði við þá
í síðustu 50 ár.
Til þessa liggja þau drög að
þegar Italir og Austurríkismenn fyrir
mörgum árum áttu í höggi saman
fylgdi San Marino Ítalíu að málnm.
En er friður var saminn, gieymdist
alveg að !áta San Marino undirrita
friðarsamninga, og hefir ófriðurinn
því haldist að nafninu til þó engir
hafi verið bardagar né blóðsúthell-
ingar. Herinn er líka svo smávaxinn
að litlu mundi muna þó hann vildi
hafa sig frammi. I hernum eru 950
liðsmenn og 38 foringjar.
En þó er San Marino stórveldi
borið saman við Monaco. Þar er
allur herinn 7° tnenn og 5 foringjar.
Spilabankinn i Monte Carlo kostar
þennan mikla her að öllu leyti. Og
í Monaco er gott að vera hermaður.
Einkennisbúningarnir eru mjög skraut-
legir og herinn má aldrei fara út
fyrir landamærin til að berjast.
Hann er með öðrum orðum að eins
hafður til prýði.
Nýjar vðrur:
Siíkiborðar í siifsi
ljómandi fallegir og ódýrir.
Broderingar svissmsRar
feiknar úrval.
Svarí Siíki.
Skinnfjanzhar
kcirta og kvenna, margar tegundir.
Seinustu Musik-nýjungar
frá útlöndum komu með Gullfossi í Hljóöf'ærahús Reykjavíkur.
Opið til kl. 7. Horninu á Pósthússtr. og Templaras.
15=8 D ÁÖBOíiiN, csssr
Afmæli í dag:
Oktavia Smith, húsfrú.
GuSm. Guðmundsson, bakari.
S ó 1 a t u p p r á s kl. 6.0
Sólarlag kl. 8.56
Híf lóö l dag kl. 12.39
og í nótt kl. 1.3
Guðsþjónustur í dag, 1. sunnudag
eftir páska. (Guðspj.: Jesús kom að
luktum dyrum, Jóh. 20). í þjóð-
kirkjunni kl. 12 á hádegi síra Jóhann
Þorkelsson (ferming). Engin síðdegis
rmæsa. . híkkkjvuir Reykjavík
kl. 5 síðdegis s<ra Ól. 01.
Þinglesin afsöl
12. ap r í 1:
1. Elía8 Stefánsson selur 5. okt.
1914 Yilhjálmi Þorvaldssyni hús-
ið nr. 44 við Laugaveg fyrir
50.000 kr.
2. Jón Þorkelsson dr. selur 6. sept.
Eggert Jónssyni hús sitt á Hóla-
velli fyrir 25.500 kr.
3. Eggert Jónsson selur 22. f. m.
Holger Wiehe sama hús fyrir
26.000 kr.
4. Gissur Filippusson selur 14. f. m.
Halidóri Gunnlögssyni umboðssala
og Hans Petersen húsið nr. 20
við Vesturgötu fyrir 5.400 kr.
5. Þorsteinn Jónsson selur 30. sept.
f. á. Baldri Benediktssyni húsið
nr. 92 við Hverfisgötu fyrir
6000 kr.
6. Guðmundur Benjamínsson selur
9.» þ. m. Einari Gunnarssyni
»Söluturninn« fyrir 1200 kr..
7. Sveinn Jónsson selur 25. f. m.
Magnúsi Thorberg 1400 ferálna
lóð úr Holtastaðalóð fyrir 2000
krónur.
8. Áamundur Gestsson o. fl. selja
31. ágúst f. á. Elíasi Stefánssyni
svonefndan »Eymundsens-blett«
fyrir 18.000 kr.
9. Firmað O. Johnson & Kaaber og
Matth. Þórðarson selja 15. f. m.
h.f. Eggert Ólafssyni skipið
»Skjold« fyrir 45.000 kr.
10. Hjálmtýr Sigurðsson selur 2. þ. m.
Magnúsi Gunnarssyni húsið nr. 3
við Laufásveg fyrir 12.500 kr.
11. Jón Sigmundsson selur 24. f. m.
Guðna Þorsceinssyni húsið nr. 30
við Bergstaðastræti fyrir 10.000 kr.
12. Pótur P. DaníelsSon o. fl. selja
13. febr. þ. á. Birni Björnssyni
húsið nr. 41 við Laufásveg fyrir
5000 kr.
Alþýðnfræðsia. í kvöld flytur
Árni Pálsson bókavörður fyrirlestur í
Iðnó um Napoleon á St. Helena.
26 ára embættisafmæli átti
Klemenz Jónsson fyrv. landritari síðast
liðinn föstudag. Varð hann sýslumaður
í Eyjafirði árið 1892. Hefir hatin
jafnan verið atkvæðamikill og rögg-
samur embættismaður, en er nú »á
biðlaunum«, sem svo er kallað, þó enn
hafi hann fulla starfskrafta.
Jarðarför Jandshöfðingjans fór fram
frá dómkirkjunui í gær. Flutti sr.
Bjarni Jónsson húskveðjuna. Borgar-
stjóri og 5 bæjarfulltrúar báru kist-
una úr heimahúsum út í líkvagninn,
þeir Sighv. Bjarnason bankastjóri,
Kristján Guðmundsson verkstjóri, Þor-
varður Þorvarðsson prentsmiðjustjóri,
Sveinn Björnsson yfirdómslögmaður og
Jón Þorláksson verkfræðingur. Inn í
kirkjuna báru kistuna þeir skrifstofu-
stjórarnir Indriði Einarsson, Jón Her-
mannsson og Guðm. Sveinbjörnsson og
dómarar yfirdómsins þeir Kristján
Jónsson, Halldór Daníelsson og Eggert
Briem. Sr. Jóhanu Þorkelsson flutti
líkræðuna en út úr kirkjunni báru
kistuna þeir Klemenz Jónsson, Benedikt
Sveinsson, Hannes Hafstein, Kristinn
Daníelsson, Jón Jacobson og Eirikur
Briem.
Líkfylgdin var mjög fjölmenn og
fjöldi blómsveiga skreytti kistuna, sem
var hvít að lit.
Sr. Jón Thorsteinsson prestur á
Þingvöllum kom til bæjarins í fyrradag
til þess að vera viðstaddur jarðarför
landshöfðingjans.
Gaðm. Einarsson prestur í Ólafs-
vík hefir verið skipaður prófastur í
Snæfellsnessýslu.
Mannslát. Nýlátinn er Hafliði
Guðmundsson hreppstjóri á Siglufirði,
bróðir Þorsteins yfirfiskimatsmanns og
þeirra systkina. Var hann mesti dugn-
aðarmaður og vel látinn af öllum.
Barnaskólinn. Leikfimisprófdrengja
í 4.—8. bekk barnaskólans byrjar á
morgun og steudur yfir alla þessa
viku. Á sumardaginn fyrsta kl. D/g
verður leikfimissýning, þar sem »ein-
valaliðið« sýnir fimi sína. Má búast
við mikilli aðsókn áhorfenda, því að
leikfimi barna er æfinlega skemtileg.
Kennarinn er hr. Steindór Björnsson
frá Gröf.
Póstnr nokkur kom hingað á Gull-
fossi, bæði bróf og bögglar. Bjuggust
menn ekki við því, því að fullyrt hafði
verið að skipið fengi engan póst aS
flytja.
Islands Falk kvað vera á leiðinni
hingað, og hefði eiginlega átt að vera
kominn.
Skallagrímnr, Maí og Ingólfur
Arnarson eru nýkomnir inn með hlað-
Island fer að öllum líkindum ekki
til Danmerkur aftur. En áður en
skipið fór frá Kaupmanuahöfn, kom
til tals að það færi héðan til Ámeríku
°g er það undir því komið hvort
aamningar takast um farmgjöld og
hvort leyfi fæst til siglinga milli
Bandaríkjanna og Islands.
Kafbátalieruaðuriim,
Hinn 30. marz gáfu Þjóðverjar
út tilkynningu um það, hvað kafbát-
ar þeirra hefðu sökt mörgum skip-
um i febrúarmánuði, og er skýrslan
á þessa leið:
Alls var sökkt 368 kaupförum,
sem voru samtals 781.500 smálestir.
Af þeim voru 292 óvinakaupför,
sem sé 169 ensk, 47 frönsk, 28
ítölsk, 8 rússnesk, 4 belgisk, 2
portúgölsk og 1 japanskt. Um 33
skip verður eigi sagt með vissu,
hverrar þjóðar þau voru. Eu 20
þeirra voru að minsta kosti brezk,
og er því skipatjón Breta í febrúar-
mánuði um 500.000 smál. Af bin-
um 66 hlutlausu kaupförum, sem sökt
var, voru 38 norsk, 14 hollensk,
8 grisk, 7 sænsk, 5 spænsk, 3 ame
riksk og 1 peruviskt.
) ---------------------