Morgunblaðið - 16.05.1917, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
léC. c?. ÍDuus cfl~óailó, %3Co)narsírœíi í
iReiðtataefni, Fataeíni, Cheviot, Alpakka, PrjónavörurJ
ISilki í svuntur og slitsi, Regnkápur, Smávörur og m. fl|
Jarðarfor föður mins Þorkeils Hafldórs-
sonar frá Þormððsdal, er ákveðin föstu-
daginn 18. þ. m. og hefst með húskveðju
frá heimili mínu, Hverfisgötu 80, kl. II1/*
fyrir hádegi.
Ósk hins látna var, að engir kranzar
yrðu látnir á kistnna.
Reykjavik 14. mai 1917.
ðuðrán Þorkelisdóttir.
Það tilkynnist bérmeð vtnum og vanda-
möonum, að okkar hjartkæra dóttir, Svein-
dis, andaðist að beimtli okkar, Lindargötu
nr. 2, f dag.
Reykjavik 14. mai 1917.
Ingitjðrg Gunnarsdóttir,
Ebeaecer Helgason.
Ungling'ur
til mjólkurkeyrslu
frá Lágafelli til Reykjavíkur óskas
ntí þegar.
Uppl. á Hverfisgötu 49.
1. F, U. W.
Valur æjing í kvöld kl. hálf-
niu síðd. Fjöimennið dugiega
Erl. simfregnir.
frá fréttaritara Isaf. og Morgunbl.).
K.höfn 14. maí.
Bretar hata tekið Bulle-
court og skotg/rafir I»jóð-
verja á 1000 metra svæði
hjá vegiaum milli Arras
og Cambrai.
JÞjóðverjar tilkynna að
flugvélaárás hafi verið
gerð á Zeebriigge.
Belgum, sem fluttir haia
verið til Þýzkalauds, verð-
ur gefið heimfararleyfi í
júnímánuði.
Þjóðverjar viðurkenna að
þeir hafimist lOkílómetra
svæði hjá Roeux og 700
hertekna menn.
Þjóðverjar hafa gert ár-
angurslaus áhlaup hjá Cra-
onne.
K.höfn 15. maí.
Níu brezkar flugvéiar
tóku þátt i árásinni á Zee-
hriigge. Zeppelins-lofttar-
ið 22“ var skotið niður.
Gutchkoff flota og her-
málaráðherra Rússa hefir
sagt af sér.
«sss> »■.> a ta s o h, i n e:
Afmæli i dag:
Holga Árnadwttir, húsfrú.
Jórunn IforSmann, ekkjufrú.
Eiías Stefánason, útgerSarmaíur.
Ricíhard Torfason, bankabókari.
Sólarapprás kl. 4.16
Sólarlag kl. 10.36
Háf lóB f dag kl. 4.M
og í nóH kl. 4.16
íþróttaæfingar í kvöld:
Væringjar kl. 61/,— lxj2
Fram jun. — 7^/j— 9
Reykjav. jun. — 7*/2— 9
Knabtsp.fól. Rvfk — 9 —IOV2
Are kom hingað i gær frá Englandi,
með kol, salt og tunnur til Elíasar
Stefánssonar, útgerðarmanns. Enginn
póstur kom með skipinu.
Nýmæli. >Tíminn< flytur hugvekju
um' það, að stofnaður verði sjóður og
goldnar úr honum mannbætur fyrir
hvern íslenzkan fiskimann, sem drukn-
ar. Og ætlanin er að féð til sjóðsins
verði tekið í fiskitolli. — — Satt er
það, að athugavert hefir það verið hve
margir menn hafa árlega farið í sjóinn
hór við land, en sem betur fer, mun
sjóslysum heldur fækka, og aðallega
fækkað síöan fleyturnar bötnuðu. ÞÓ
er það eun þungur skattur sem sjórinn
heiiatir af okkur árlega. Sjálfum okk-
ur er að miklu leyti um að kenna, eða
er það ekki hastarlegt, að fæstir sjó-
menn geta fleytt sér á sundi — kunna
ekki sundtökin? Og fjöldi manna
druknar árlega vegna þess. Það er
sfzt ástæða til þess að amast við mann-
bótunum, en hitt ætti að liggja nær,
að reyna að koma í veg fyrir þáð að
menn drukni, því að mannslífið er í
raun og veru óbætanlegt. Það þyrfti
að gera sund að skyldunámsgrein í
skólunum óg þegar aibr íslendingar
eru syndir, þá munum við sjá það
að fækkar druknunum.
Gullfoss kom til Halifax á sunnu-
daginn. Ofrótt hvenær hann muni hafa
farið þaðan.
Kanpendur Morgunblaðsins, þeir er
flutt hafa búferlum, en eigi tilkynt
það enn, eru beðnir að gera það hið
allra fyrsta.
Flóra var á Akureyri í gær.
Ný skóverzlnn verður opnuð í dag
á Vesturgötu 12.
Gefin saman í gærkvöldi jungfrú
Guðrún Sigfríður Guðmundsdóttir frá
Hrafnhóli og Einar E. Sæmundsen
skógvörður. — Morgunblaðið óskar
hjónunum til hamingju.
Seðlaúthlntnnin. Engum vöru-
seðlum verður úthlutað á morguu.
Þeir, sem þá áttu að fá brauðmiða
geta sótt þá í dag eða á föstudaginn.
Skemtnn hefir íþróttafólagið á
íþróttavellinum á morgnn, ef veður
layfir.
Lagarfoss fór frá Blönduósi í gær
síðdegis, áleiðis til Hólmavíkur. Þaðan
fer hann til tsafjarðarj og svo beint
hinga?.
Messað á morgun í Fríkirkjunni í
Hafnarfirði kl. 12 á hádegi (Ól. Ól.).
í frík. í Reykjavík kl. 5 síðd. (Ól. Ól.).
Sðluturninn. Guðmundur Benja-
mínsson hefir selt Söluturninn Einari
Gunnarssyni og er nú hættur að verzla
þar. Jafnframt hættir sendisveinastöð-
in að starfa fyrst um sinn.
Bóíusetning. I dag kl. 5—7J verða
börn úr Austurbænum bólusett í barna-
skólahúsinu.
Til Djúpavíkur við Reykjarfjörð
sendi hr. Elías Stefánsson í fyrradag
botnvörpuskip sitt, er íslendingur kall*
ast, með efni í bryggju, sem hann ætl-
ar að gera þar, og fólk til þess aö
koma henni upp. Skipið fer svo til
Akureyrar og sækir þangað efni í hús,
sem hr. E. S. lætur reisa i Djúpavik,
þar sem hann hefir síldarstöð handa
nokkrum skipa sinna eftirleiðis. Sömu-
leiðis verður kolabarkurinn stóri, sem
hór liggur á höfninni, fluttur þangað
norður, og mun aðal »stöðin« verða í
honum, enda er nú verið að innrótta
skipið til þess.
Lóð undir stöðina hefir hr. E. S.
tekið á leigu til 40 ára hjá Guðmundi
lögmanni Hannessyni.
Messað á morgun (uppstigningardag)
í dórokirkjunni kl. 12 síra Jóh. Þor-
kelsson og kl. 5. síra Bjarni Jónsson.
Kolasparnaður.
Það er nauðsynlegt að sparlega
sé farið með kolin og eigi eytt
meiru af þeim en nauðsynlega þarf.
En það er vist óhætt að fullyrða,
að eigi sé farið svo sparlega með
þau eins og hægt er. Það værr t. d.
mikill kolasparnaður, ef bakarar
bökuðu brauð sín að eins annan-
hvorn dag, og bökuðu þá tvisvar, í
stað þess að nú baka þeir að eins
einu sinni á dag (rúgbrauð) og mik-
ill hiti^fer til ónýtis hjá þeim sum-
um hverjum. Þessu væri hægt að
koma á nú, sökum þess að bökur-
um hefir hvort sem er verið bana.
að að baka »kökur« og sætabrauð,
en nægilega mikið af rúgbrauðum
er hægt að baka, þótt öðrum hvor-
um degi væri slept úr, en hitinn
notaður á hagkvæmari hátt en áður.
Er þessu slegið hér fram til athug-
unar fyrir alla málsaðilja.
Kreppir að.
Það eru engin takmörk fyrir þvf,
hvað hernaðurinn getur þröngvað
kosti okkar íslendinga. Það vitum við
vel. Og við vituui líka hvar hættan
er mest — að við getum eigi feng-
ið nauðsynjavörur keyptar.
Eitt hið merkilegasta, sem komið
hefir í erlendum skeytum þessa síð-
ustu daga, og mest snertir okkur,
er sú ráðstöfun Bandaríkjanna, að
skipa alLherjar eftirlitsmann mcð
matvælum. Það er sýnt, að við
verðum að leita til Ameríku um
það að fá vörur, og þess vegna
verðum. við þá sjálfsagt lika að gefa
skýislu um það, hvernig ástandið sé
hér í landi. Og sú skýrsla verður
að ganga í gegnum matvælanefnd
þá sem skipuð verður í Evrópu
(Englandi?). En það er hætt við
því, að slíkar krókaleiðir flýti eigi
fyrir þvi, að við fáum þær vörur
er við megum ekki án vera. Og
svo er viðbúið, að bannað verði í
Bandan'kjunum að selja ýmsar vörur
Út úr landinu, nema því að eins að
þær eigi að fara til bandamanna.
Hlutlausu þjóðimar verða að sjálf-
sögðu látnar sitja á hakanum. Hver
er sjálfum sér næstur og verði mat-
vælaþurð í heiminum, þá verðá hlut-
lausu ríkin að bjarga sér eins og
bezt gengur.
Við getum framleitt allmikinu
mat í landinu sjálfu, og líklega nóg
til þess að geta haldið í okkur lífinu.
En margar vörur verðutn við að fá
frá útlöndum, t. d. kornmat, sykur,
steinolíu, salt og kol. Og til þess
að geta feugið þessar vörur, verðum
við áreiðanlega að semja við Banda-
ríkin, og það heldur fyr en síðar.
Þau biunar ekkert um það þótt þau
selji okkur þann kornmat, sem við
þurfum. Það er svo hverfandi lítið.
En svo gæti þó farið, að við fengj-
um eigi neitt, ef það væri dregið
þangað til komið er í ótíma, að gera
viðskiftasamning. fsland verður að
hafa viðskiftaráðunaut í Bandaríkjun-
um eigi síður en í Englandi. Hann
verður að vera fulltrúi okkar i öll-
um samningum við Bandaríkjastjórn.
Helzt þyrfti að senda nokkra menn
vfestur um haf fyrst, til þess að leggja
samning?grundvöllinn, eins og gert
var, þegar samið var við Breta sið-
ast, því að betur sjá augu en auga.
Og annað verður eigi séð, en að nú
séu siðusu forvöð til þessa, ef vel á
að fara. Við skulum ekki minnast:
á það, að Damr hjálpi okkur. Við