Morgunblaðið - 10.07.1917, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
skipun nefndar til íhugunar sjálf-
stæðismálum landsins.
Flutt af 10 þingmönnum, úr
öllum flokkum.
Forseti ákvað eina umræðu og
fer hún fram í dag (10. júlí).
Tillaga til þingsályktunar um
umsjón á landssjóðsvöru úti um
land.
Forseti ákvað eina umræðu,
sem fer fram í dag.
Símfregnir.
Siglafirði í gær.
Súlan kom til Siglufjarðar á há-
degi á sunnudaginn beina leið frá
Reykjavík.
Hingað kom fyrir helgina síld-
veiðaskipið »Hurra« frá Noregi. Eng-
in önnur norsk eða sænsk skip eru
væntanleg hingað í sumar til síld-
veiða. Norðmenn og Svíar, sem
tunnur og salt áttu hér, hafa verið
að selja birgðir sínar. Hefir verð
tunnanna verið 18 kr. tómar, en 39
kr. saltfyltar. En verðið er nú tölu-
vert hærra.
Mokafli af fiski hefir verið hér
undanfarið. En nú er róðrum lokið
að mestu vegua salt og steinolíu-
leysis.
Síldin er komin hér útifyrir, en
það er eigi enn farið að veiða hana.
DACBOK
Afar-ódýr kven-reiðfataefni
Verð frá 4.75—6.50
I Vöruhúsinu.
m
Wolff & Arvé’s
LeYerpostei g
i ’/t 0(1 pd. dósum er
bezt — Heimtið það
Harðfiskur
pr, 5 kg. kr. 7.50
hjá
Jes Zimsen
til hinn n/i sæsími sem leggja á til
Eyjanna, kemur hingað til lands.
Brunarústirnar við Austurstreeti eru
í slæmu ástandi nú — sama ástaud
inu og þær hafa verið í síSan í fyrra.
Kjallararnir eru fullir af úldr.u vatni
og svo megn er fylan, aS varla er
gangandi þar fram hjá. Því í ósköp
unum lætur lögreglan ekki ausa kjali-
araun og steypa fyrir holræsagötin?
Þetta er bænum til háborinnar
skammar.
Stjórnarráðshúsinn er nú veriS aS
breyta. Það er eins og alt annaS í
þessum bæ — orðið of lítiS. Vand-
ræði með að koma öllu fyrir, sem þar
þarf að vera.
Ráðgert er að byggja kvist úr steini
á austurþakið, af sömu gerð og er að
vestanverðu. Þá verður og íbúð dyra-
varðar tekin og heuni breytt í skrif-
stofu og skjalasafn. Munu verða i
skrifstofuherbergi á loftinu, auk skjala-
safnsins, og líklega mun einn ráðherr-
anna hafa skrifstofu sína þar. íbúð
fyrir dyravörðinn hefir verið gerð í
geymsluhúsinu fyrir austan stjórnar-
ráðsbygginguna. —
Hveuær skyldi annars stjórnarráð Is-
lands eignast sæmilegan bústað, hús,
sem vér gætum verið stoltir af? Vór
verðum víst orðnir gráhærðir flestir
þegar það verður.
Dagskrá neðri deiidar í dag (10.
júlí) kl. 1.
1. Frv. um breyting á lögum um
skfpun læknishóraða; 1. umr,
2. Till. til þingsál. um skipun nefnd-
ar til íhugunar sjálfstæðismálum
landsins; ein umr.
3. Tili. til þingsál. um umsjón á lands-
sjóðsvöru úti um laud; ein umr.
(Tíll. fer í þá átt, að sveitastjórn-
um seu falin öll afskifti og afhend-
ing á landssjóðsvöru, sem sýslu-
menn hafa nú).'
T al simar Alþ i n g i s:
854 þingmannasími. Uni þetta numer
þurfa þeir að biðja, er œtla að
ná tali af þingmönnum í Alþingis-
húsinu i sima.
411 skjalaafgreiðsla.
61 skrifstofa.
Stanley, leiguskip Andrósar Guð-
mundssonar í Leith, er nykomið til
Ísafjarðar, hlaðið tunnum og salti.
Botnvðrpungarnir eru nú í óðaönn
að búa sig til síldveiða, þeir sem hana
ætla að stunda í sumar. Munu þeir
flestir fara hóðan um miðjan mánðinn,
Hjúskapnr. Gefin voru svman í
hjónaband 5. þ. mán. af síra Bjarna
Jónssyni: Stefán G. Thorgrímsson og
Ásgeröur P. Þorgilsdóttir.
Simasamband við Vestmannaeyjar
komst aftur á eftir hádegi í fyrradag.
Fóru þeir Landsímastjórinn og síma-
verkfræðingurinn þangað fyrir nokkr-
um dögum og fluttu með sér sæsím-
ann, sem notaöur hefir verið yfir sund-
ið til ■ Viðeyjar. Hefði auðvitað rnátt
nota hann til viðgerðarinnar þegar f
stað eftir að síminn slitnaði, og vitum
vór ekki hversvegna beðið var svo
lengi með að gera þessa tilraun til
bráðabirgðaviðgerðar.
Vestmannaeyjar hafa verið símasam-
bandslausar síðan 23. mar/, f vetur. Er
óskandi að sambandið haldist þangað
Ferðalag Böngfélagsins 17. júní aust-
ur yfir fjall í fyrradag, gekk ágætlega.
Þeir fóru austur í fjórum bifreiðum og
hóldu áætlunina nákvæmlega. Þótti
fólki eystra mikið koma til söngs
þeirra félaga.
Tjörnaeskolin. Geir Zoega kaup-
maður keypti um daginn eina smálest
af Tjörnneskolum og eiua smálest af
brezkum skipakolum, til þess að láta
reyna þau samtfmis vlð lifrarbræðslu-
stöð sfna f Orfirisey. Á nákvæmlega
sama tíma var kveikt undir 2 lifrar-
pottum, sem taka 3 tunnur hver. Á
öðrum staðnum voru Tjörnneskolin
notuð, á hinum brezku kolin. Kveikt
var upp með spítum, svo sem venja
er. Arangurinn varð sá, að það sauð
15 mfnútum fyr í þeim pottinum sem
Tjörnneskolin hituðu undir. — Kolin
loga lengi og eru hitamikil, en loginn
ekki eins hár og af brezku kolunum.
Töluvert gjall skilja þau eftir.
Það er ekki nokkrum vafa undirorp-
ið, að kolin úr Tjörnnesnámunni reyn-
ast ágætlega. Er það gleðilegt að
laudsstjórnin skuli hafa ráðist í það að
láta vinna þau. Þau verða mikið ódýr-
ari en erlend kol og geta orSiö til
mikils sparnaðar í vetur.
Bigurjóu Markúason sýslum. í Vík
í M/rdal er kominn til bæjarins. Enn-
fremur Gnunl. Þorsteinseon á Kiðja-
bergi.
Dagakrá efri deildar f dag kl. 1:
Frv. um breyting á fasteignamats-
lögum; 1. umr. Flm. Guðj. Guðl. —
(Aðalefnið er að gera mun á skatthæð
af jörðum og jarðarhúsum. 150 kr. f
mat8veröi jarða eru taldar til íbúðar-
skatts jafngilda 1 hundr. á landsvfsu,
en 300 kr. f matsverði húsa, sem jörðu
fylgja eða eru eign jarðeiganda. Hús
leiguliði eða annar en jarðeigandi eru
undanþegnir skatti. Sömuleiðis verð
jarðarhúsa, sem fer fram úr helmingl
af matsverði jarðarinnar. Laun mats
manna hækki úr 5 kr. á dag upp í 7).
Síldveiðaskip P. A. Ólafssonar kon-
súls er nýkom'S inn til Tálknafjarðar,
og hafði fengið um 700 seli. Um sama
leyti og skip þetta hólt og heimleiðis
af veiöistöðvum norður f íshafi sel-
veiðaskip Póturs Thorsteinssonar, Skúm-
ur. Hafði það aflaö um 1000 seli, og
er væntanlegt hingað á hverri stundu.
' .. ■ ■ —
Hitt og þetta.
Dr. Addiðon
sem verið hefir hergagnaráðherra
Breta, hefir nú látið af því starfi og
verið tekinn í hermálaráðuneytið.
Starf þess hefir aukist afskaplega
síðustn mánuðina og verður dr. Addi-
son nú hergagnaráðanautur þess.
..... ■ g&acaa".... ......
H.P. Duus
A-deild
Hafnarstræti.
Nýkomið:
Alkíæði, Cheviot, Alpakka
Ciepon í blúsur og kjóla.
Brunnel, Flauel Molskin
Nankin, Tvisttau,
Léreft, einbreið og tvibreið.
Flönel,
‘Gólfteppi, Rúmteppi,
Ullarteppi.
Regnkápur, Bórðteppi,
Höfuðsjöl.
Silkibönd, Möbeltau, Flauelsbönd.
Legg-
hlífar
hinar góðkunnu teg., svartar og
og brúnar, hærri og lægri,
nýkomnar
í Bkóverzlun
Larus G. Lúðvígsson.
Áfgreiðsla ,Sanítasr
er á Smiðjustíg 11.
Simi 190.
Skósmila-
áhóld
notuð, óskast keypt.
Menn snúi sér til
Páls Einarssonar,
skrifstofu ísafoldar.
JSeiga ^
Búð óskast til leigu frá 1. okt,
næstk. A. v. á.
2 piltar óska eftir 2 smáum eða
1 einu stóru herbergi frá 1. okt., í
miðbænum. R. v. á.
•IP Æaupssfiapur j?
Lipur handvagn, nýr eða brúkað-
ur, óskast til kaups nú þegar. R.v.á,