Morgunblaðið - 23.01.1918, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
að ætla, að hér á landi geti fólk lif-
að eins og engin styrjöld geisaði í
heiminum. Ófriðurinn hefir gert vart
við sig hér eins og annarsstaðar, og
það eru engin þau stjórnarvöld til,
sem geta borið byrðar almennings
á tímum eins og þeim, sem nú standa
yfir.
Innbrot í Vestm.eyjum
Fréttaritari vor í Vestmannaeyjum
símaði oss í gær á þá leið, að brot-
ist hafi verið inn í búð Gunnars
konsúls Olafssonar í fyrrinótt.
Hafði þjófurinn, eða þjófarnir,
reynt að komast inn um glugga á
norðurhlið hússins og brotið þar eina
rúðu. En járngrindur voru fyrir inn-
an, svo þar varð ekki komist inn.
Síðan mun stór gluggi á húsinu hafa
verið brotinn og þar farið inn í búð-
ina. —
Eftir því sem séð verður við rann-
sókn, sem fram fór þegar um morg-
uninn, hefir verið stolið um 40—
45 pundum af súkkulaði, nokkru af
silki og töluverðu af nærfatnaði. —
Peninga mun þjófurinn ekki hafa
náð í.
Innbrot hefir einu sinni áður ver-
ið framið i vetur i Eyjunum og
þá stolið sprengiefni. Hefir eigi
komist upp enn hver stal þá, en það
er líklegt, að það muni takasi að
komast fyrir þetta hvorutveggii í
ekki stærri bæ en Vestmannaeyj am
Tveir smábrunar.
Brunaliðið var tvisvar kallað í gær
hér í bænum til þess að slökkva eld,
sem hafði komið upp. Á öðrum
staðnum, Lindargötu 14, hafði kvikn-
að eldur í mókompu, en það tókst
að slökkva hann mjög brátt, áður
en nokkurt verulegt tjón hafði orð-
ið af. —
A hinum staðnum, Bræðraborgar-
stíg 3 (húsið er við endann á Rán-
argötu), var verið að þíða vatnspipu,
og kviknaði þá í veggnum. Bruna-
liðið kom þegar á vettvang og slökti
eldinn. —
Dömuklæði
i peysufðt
og alt til þeirra, selur
Haftsinn.
Símfregn frá ísafirði í gær, herm-
ir það, að hafísinn sé landfastur alla
leið frá Melrakkasléttu að Geipi.
Vopnafjörður fullur af is. A Seyð-
isfirði voru smájakar, en lagís svo
mikill, að skip komast hvergi. Veður
var lygnt, heiðskírt loft, og 22 stiga
frost.
Samverjinn.
Hann er nú tekinn til starfa og
er auðséð að aðsóknin ætlar að verða
miklu meiri heldur en undanfarna
vetur. Fyrsta daginn komu hátt á
annað hundrað gestir og er það
helmingi meira heldur en fyrsta dag-
inn í fyrra.
Ennþá vantar Samverjann nokkr-
ar stúlkur til þess að ganga um
beina. Hefir það verið svo jafnan
fyrst í stað, en sjálfboðaliðar hafa
altaf gefið sig fram og vonandi að
svo verði enn. Þær stúlkur, sem
vildu leggja Samverjanum lið, eiga
að gefa sig fram við forstöðukonuna,
Guðlaugu Þórðardóttur. Hana er
jafnan að finna í G. T. húsinu fyrri
hluta dags.
Siglingar
til Vesturheims
höfnum þar vestra, og eigi getað
fengið kol. Meðan svo var ástatt,
var þýðingarlítið að fá útflutnings-
leyfi á vörum.
En nú kemur fregn nm það frá
Kaupmannahöfn, í simskeyti, sem
birtist hér í blaðinu, að hlutlaus
skip hafi fengið kol í Bandaríkjun-
um. Vænkast þá útlitið aftur.
Gullfoss á nú að leggja af stað
vestur um haf innan skams og
er vonandi, að við heimtum hann
fljótt heim aftur og að hin skipin
okkar geti bráðlega sótt þangað
vörur líka. Að minsta kosti er enn
of snemt að æðrast og örvænta um
það, að við getum fengið vörum frá
Ameríku. En þó riður okkur nú
meira á því en nokkru sinni fyr,
að hafa þar duglega og nýta fulltrúa.
Samband danskra blaða.
í aprílmánuði 1917 stofnuðu flest
blöð í Danmörku með sér félag, í
þeim tilgangi að koma á samningum
um kaup á pappír og öðru sem
nauðsynlegt er við blaðaútgáfu. í
sambandið gengu nær öll blöð í
Danmörku, nema jafnaðarmannablöð-
in, og þykir það undarlegt, að þau skuli
eigi vilja styrkja slíkan félagsskap.
A aðalfundi sambandsins, sem
haldinn var í desembermánuði, skýrði
stjórnin frá árangrinum. Það kom i
Ijós að blöðin höíðu komist að miklu
betri pappírskaupum, vegna þess að
þau gátu keypt mikið í einu og
sparnaður hafði þvi orðið mikill.
Það vakti að vonum óhug mik-
inn hér, þegar fregn koro um það,
að Bandaríkin leyfðu eigi framar
vöruútflutning til hlutlausra landa.
En í skeytum, sem um það bárust,
var það þó eitt atriði sem benti til
þess, að þetta mundi eigi nema
stundar-ákvæði. Það var sagt, að
þetta stæði í sambandi við flutninga
með járnbiautum í landinu. Gaf
það von um það, að amerikska her-
stjórnin hefði tekið allar járnbrautir
landsins i sínar þarfir, og meðan
á þvi stæði, væri eigi hægt að fá
neinar vörur vestra.
Hitt var iskyggilegra, hvað mikil
kolavandræði voru i Bandarikjunum.
Var svo sagt, að fjöldamörg hlutlaus
skip hefðu legið tímunum saman i
Flug-póstferðir.
Undirbúningi undir hinar fyrir-
huguðu flug-póstferðir milli Dan-
merkur-Noregs og Sviþjóðar miðar
vel áfram. . Menn þeir, sem fyrir
þessu hafa gengist, hafa nú útvegað
nægilegt fé til fyiirtækisins. Akveðn-
ir hafa verið lendingastaðir í borg-
unum og byrjað hefir verið á smíði
flugvélanna. Er ætlunin að þær,
auk póstsins, geti flutt einn farþega.
Gangi alt að óskum, verða komnar
á fastar flugferðir með póstflutning
að ári liðnu.
Eldgos I Vesuvius.
Brezk blöð flytja þá fregn frá
Rómaborg hinn 28. desember, að
ógurlegur eidur sé uppl, í Vesuvius.
Segir fregnin að bráðið hraunflóð
veltist niður snævi þaktar fjallshlíð-
arnar.
Bandarikin
stöðva
flatning til Rússlands.
Fregn kemur um það, að seint í
desembermánuði hafi Bandaríkin
stöðvað alla útflutninga til Rúss-
lands. Ameríkst gufuskip, er >Co-
lumbia* heitir, lá þá í Vladivostock,
með fullfermi af járnbrauta-efni, og
var þvi skipað að fara til Tokio í
Japan með farminn. Öllum skipum,
sem voru á leið frá Ameríku til
rússneskra hafna, var skipað að halda
til Japan, og skip, sem voru að
laka farm í Bandaríkjunum, voru
kyrsett.
Falleg gjef.
Sá Norðmanna, sem talið er að
grætt hafi mest á ófriðnum, er
Hannevig útgerðarmaður. Það er
sagt, að hann hafi grætt um 100
miljónir króna síðan ófriðurinn hófst.
Hannevig þessi er að láta reisa
stórt hús í miðri Kristjaníu. Ætlar
hann að nota það fyrir skrifstofur,
En í byggingunni ætlar hann einn-
ig að láta gera operusönghús, sem
rúmar 2000 áheyrendur. Þann
hluta hússins hefi,' hann gefið
Kristjanlu, gegn því að haldið verði
uppi »operuc-sýningum framvegis.
Hannevig er orðinn frægur mað-
ur fyrir þessa gjöf.
lAkajur norðvestanstormur geisaði
um norðurhluta Noregs 3. og 4.
janúar. Fjöldi skipa fórst og mjög
mörg hús skemdust, segja brezk
blöð.
Sokkar
i góðu úrvali
hjá