Morgunblaðið - 03.04.1918, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
DAG BOK
Oangyerð erlendrar myntar,
Banbar Doll. U.S.A. &Canada 3,50 Póathúi 3,60
Franki franskur 62,00 6200
Sænsk króna ... 109,00 110,00
Norsk króna ... 104,00 106,50
Sterliugspund ... 16,00 16,20
Mark 6800 ...
Holl. Florin ... ••• ... 1.37
AuBturr. krÓDa... • • • • ... ...
Hjónaafni. Jungfrá f>órfríður Jóns-
dóttir og Sveinn Ó, Guðmundsson,
márari, Frakkastíg 11, opinberuðu
trálofun sína 31. marz.
Jungfrá Bjarnveig Guðjónsdóttir frá
ÖrlygBhöfn og Guðmundur f>orláks-
son frá Korpálfsstöðum í Mosfells-
sveit.
Jungfrá Asta Jónsdóttir Bræðra-
borgarstíg 23 og |>orsteinu Arnason
vélstjóri Bánargötu 24.
Fiskafli er ná ágætur hér vestur
á Sviði og hafa menn fengið frá 40
og alt að 100 króna hlut á dag þeg-
ar bezt hefir aflast. Enda fara ná
flestar fleytur á sjó.
fiilskipin hafa aflað prýðilega. Val-
týr og Ása eru nýkominn til hafnar,
Valtýr með 16 þásund (hafði áður
aflað 8l/2 þásund) og Asa með 14
þásund (hafði áður aflað 10 þásund).
|>á kom og Sæborgin inn fyrir nokkru
með láUj, þásund og Seagull með
10 þásun<l.
f Vestmannaeyjum er mokafli og
eins er góður afli sagður á Eyrar-
bakka og Stokkseyri,
Bæjarsfminn. Svo sem menn
vita og flestir hafa haft óþægindi af,
er bæjarsíminn aðeins opinn3stund-
ir á sólarhring á stórhátfðum, ájóla-
dag, nýársdag, páskadag og hvítn-
sunnudag. f>etta er alveg ótækt, þvf
að vitanlega þurfa menn að nota síma
þá daga engu síður en aðra daga.
f>að verður að takast skýrt fram, að
sfminn er til fyrir notendur, en þeir
ekki fyrir sfmann. Ef vel ætti að
vera, ætti sfminn að vera opinn all-
an sólarhringinn, en þó eigi sé tek-
ið svo djápt f árinni, þá eru vfst all-
ir sammála um það, að það er mein-
ingarlaust að loka sfmanum á stór-
hátfðum allan daginn.
Fyrirlestrar Háskólans. Prófes-
sor dr. phil. Agást H'. Bjarnason
byrjar aftur fyrirlestra sfna um soc-
ialismann, sögu hans, kenningar og
framtfðarhorfur í kvöld kl. 7—8. □
Ýmir kom inn til Gafnarfjarðar
á páskadaginn með fullfermi af fiski
eftir þriggja daga átiveru. þangað
er og Vfðir einnig kominn með full-
fermi.
Lagarfoss er nu á Eyjafirði.
Sigurður I. fór um daginn til Borg-
arness með póst og farþega í stað
Ingólfs.
Acorn kom inn til Hafnarfjarðar
1 gær með 12 þás af þorski, fult
Bkip.
Dmboðssala á Siglnflrði.
Ungur kaupmaður á Siglufirði er fús á að taka vörur til umboðs-
sölu næsta sumar, af kaupmönnum eða heildsölum, gegn lágum ómaks-
launum. Meðrræti eða ábyrgðarmenn, ef óskað er. Tilhoð merkt »Um-
boðssala*, sendist ritstj. Morgunblaðsins.
Stálfjallsnáman.
Um 30 hraustir og duglegir verkamenn geta fengið atvinnu við kola-
gröft i Stálfjalli.
Verkamenn þeir, sem s!ðastliðið ár unnu í Stálfjdli, ganga fyrir, ef
þeir gefa sig fram í dag eða á morgun.
Nánari upplýsingar hjá
0. Benjamínssyni,
(hús Nathan & Olsens)
Viðtalstimi kl. 5 — 7.
Skógarviður.
Þeir, sem óska eftir skógarviði í sumar, eru beðnir að senda mér
skriflega pöntun. Verðið er kr. 2.65 á bagga = 30 kg.
Túngötu 20.
Skógræktarstjórinn.
Spitzbergen.
Eins og getið hefir verið 1 skeyt-
um hér i blaðinu, urðu Bretar vond-
ir út af þvf, að i friðarsamningi
Rússa og Þjóðverja var sérstaklega
minst á Spitzbergen. Rússar þótt-
ust áður hafa kröfur til nokknrs
hluta af eyjunum, en i friðarsamn-
ingunum var það tekið fram, að
seinna skySdi úirætt um Spitzbergen-
málið.
En út af tilkynningu Breta hafa
Þjóðverjar gefið út svolátandi til-
kynningu i eegnum »Norddeutsche
Allgemeine Zeitung*.
Þótt friðarsamningarnir séu svo
glögglega orðaðir, að ekki verður
um vilst, hafa Bretar notað þá, eins
og áður, til þess að æsa heiminn
upp á móti Þjóðvejum. í samn-
ingnum er það ljóslega tekið fram,
að Þýzkaland vill ekki útiloka neina
af þeim, sem sinna hagsmuna eiga
að gæta, frá því að taka þátt i
ákvörðunum um eyjarnar. Þjóðverj-
ar héldu þessu sama fram á ráð-
stefnu þeirri, er haldin var i Kristi-
aniu skömmu áður en ófriðurinn
hófst, og létu þá kröfu falla niður
eingöngu vegna mótspyrnu Rússa.
En á ráðstefnunni stóðu Rússar ein-
ir sér með landvinninga-kröfur sín-
ar. En það sem Bretum þótti þá
rétt, telja þeir nú alveg óverjandi
framkomu af Þjóðverjum.
Wolffs fréttastofa segir svo um
ritstjórnargrein »Times« og grein
frá ritara »Northern Exploration
Company*:
— Yfirráðskröfur Breta á Spitz-
bergen geta eigi komið til greina
vegna þess, að allar þær þjóðir, er
tóku þátt i Spitzbergenfundinum —
þar með talið England — viður-
kendu Spitzbergen sem »Terra
nullius« (engis eign). Með þvi að
halda fast við samning þann, er
gerður var, halda Þjóðverjar fram
réttindum Norðmanna og Svía, þvi
að ef Spitzbergen væri í höndum
Breta eða Rússa, mundi það vera
sem reitt sverð að höfði Norður-
landa.
Um hagsmuni Breta á Spitzbergen
er það að segja, að áður en striðið
höfst, voru þeir minni heldur en
hagsmunir Þjóðverja. En um þau
lönd, er Bretar hafa lagt undir sig
i striðinu, sagði Robert Cecil það
um daginn, að það væri mjög vafa-
samt, hvort Bretar gætu haldið
landvinningum sinum eftir striðið.
Á þessu sézt bezt ósamræmið, sem
kemur fram i kröfum þeirra.
Móvinsla í Danmörk.
Danska þingið hefir haft til með-
ferðar lög um það, að stjórnin taki
10500 hektara af landi í Store og
*
Lille Vildmose sunnan og norðan
Limafjarðar. A þessu svæði er griðar-
mikil mótekja og er mólagið viða
alt að 5 metra þykt og mórinn
ágætur. Er gert ráð fyrir þvi að slík
gnægð af mó sé þarna, að það jafn-
gildi 25 milj. smál. af steinkolum
og ef það reynist rétt, þá er það
sama sem 8 ára eldsneytisbirgðir
handa Danmörk.
Er það i ráði að rannsaka þetta
nú alt til hlítar, áður en fram-
kvæmdir eru byrjaðar, síðan að gera
afveituskurði í mýrunum og skip-
genga skurði, svo að hægt sé að
taka móinn þar sem hann er graf-
inn upp og flytja hann á skipum
út i Limafjörð og Kattegat. Er bú-
ist við þ.í að undirbúningskostnað
ur muni nema 8/4 miljón króna.
Roosevelt
hættnlega veikur.
Siðustu erlend blöð (12. og 1?.
maiz) geta um það, að Roosevelt,
fyrverandi forseti Bandarikjanna liggi
mjög sjúkur á sjúkrahúsi og læknar
búist við að verða að gera á hon-
um holskurð allhættulegan.
Roosevelt er sá maðurinn i Banda-
rikjunum, sem mest og bezt hefir
barist fyrir þvi, að Bandaríkin segðo
Þjóðverjum strið á hendur, og það
alveg frá þvi augnabliki, að hann
heyrði um innrás þeirra i Belgiu.
Það er enginn vafi á þvi, að banda-
menn eiga Roosevelt mjög mikla
aðstoð að þakka, þvi að hann ritaði
hverja hvatninga-greinina á eftir
annari, og þaut úr einni borginni i
aðra til þess að halda fyrirlestra um
ófriðinn og skyldu Bandarikjanna
gagnvart bandamönnum. Og þegar
friðslit urðu, bauð hann sjálfan sig
sem herforingja og alla syni sina
til herþjónustu.
Flugpöstferðir.
Það litur svo út sem Ameríku-
menn ætli að verða fyrstir í því að
koma á flugpóstferðum. En svo
sem kunnugt er, hafa fleiri þjóðir
haft hug á þvi að koma þeim á,
bæði Danir, Sviar og Þjóðverjar.
Til danskra blaða er símað frá
New York, að Bandaiikjapóststjórn-
in sé að undirbúa flugpóstferðir
milli New York og Washington um
Philadelphia. Eiga ferðimar að hefj-
ast í maimánuði og 5 flugvélar aÖ
vera kcyptar til að annast þær.
Þing Bandarikjanna hefir veitt 100
þús. dollara til flugvélakaupa. Hver
flugvél á að flytja 300 ensk pund
af pósti og geta flogið 300 milur
án þess að lenda. En hraði þeirra
á klukkustund verður 100 enskar
milur. Burðargjald biéfa er ákveðið
25 cent.
........ G&ÍrmS*.—... ■ ■