Morgunblaðið - 15.05.1918, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
nn iFimiiiirii ■■iiiiiibi...i.iiíi ..mmm.........
+
Hér með tilkynnist að Erlendur Þorsteinsson frá Leirvogstungu
andaðist í nótt að heimili sínu, Lindarg. 36. larðarförin ákveðin
síðar- 14. maí 1918.
Steinunn Erlendsdóttir. Guðsteinn Jónsson.
——iMíivwwitraiiaiffaHWBB^w^Ma——bbwbE
Nýkomið í verzl. Goðaíoss:
* 8tofuspeglar og Smáspeglar, Hárgreiður, Hárburstar, Fataburstar
Naglaburstar, Tannburstar, Rakvélar og blöð í þær, Slipólar, Raksápa,
Tannpasta, Andlitscrém, Andlitspúður, Ilmvötn, Hármeðul, Peningabuddur
fyrir karla og konur, Myndarammar, Mikið af ódýrum Sápum.
Krlstín Meinholt. Sími 436.
Overland-bifreiftiD 8.E. 33
fæst ávalt til leigu í lengri og skemri ferðir,
fyrir sanngjarna borgun.
Gunnar O]aísson,
Sími 391. bifreiðarstjóri. Síml 391.
kl. 5 og höfðu þá nokkrir þing-
menn beðið um orðið.
Buðalokunin.
Allsherjarnefnd Ed. hefir komið
fram með álit sitt um frv. og er
það svo:
Nefndin ræður hæstvirtri deild til
að samþykkja frumvarpið með þeirri
breytingu, að lágmark sekta verði
sett 20 kr. og hámarkið 500 kr.
Nefndinni virðist ísjárvert að sam-
þykkja brtt. á þskj. 70 um að lög-
bjóða undanþágu um lokunartíma
tóbaksverzlana og sælgætis; telur
það skerðing á samþyktarvaldi því,
er bæjarstjórnum er veitt með lög-
unum.
Hins vegar þykir rétt að rýmka
samþyktarvald á þessu sviði í þá
átt, að stytta megi lokunartíma sér-
verzlana, gegn árgjaldi, er samþykt-
arvaldið ákveður.
Kolanám.
Bjargráðanefnd Ed. ber fram eft-
irfarandi tillögu til þingsályktunar
og hefir fjárveitinganefnd Ed. fallist
á hana fyrir sitt leyti;
Alþingi ályktar að beimila lands-
stjórninni að styrkja kolanám í
Gunnarsstaðagróf í Drangsnesslandi
við Steingrímsfjörð i Strandasýslu
með fjárframlagi úr landssjóði, er
nemi 10 kr. á hverja smálest not-
hæfra kola, sem framleidd verða
þar og seld á þessu ári, enda verði
kolin seld þeim mun ódýrari. Enn
fremur heimilast Strandasýslu námu-
réttindi landsins í Gunnarsstaða
gtóf ókeypis til ársloka 1919.
Láusheimild til flóabáta.
Samgöngumálanefnd Nd. bar fram
eftirfarandi þingsályktunartillögu og
er meirihluti fjárveitinganefndar Nd.
henni meðmæltur:
Alþingi ályktar að heimila lands-
stjórninni:
1. að hækka styrk þann, sem ákveð-
in er i gildandi fjárlögum til
, Langanessbáts, um alt að J2
þús. kr á ári, og gangi 1 eða 2
bátar frá Sauðárkróki til Seyðis-
fjarðar, með viðkomu í Grímsey,
er séu eigi minni til samans en
80 smálestir og haldi uppi ferð-
um til miðs nóvembers.
2. að lána alt að 90 þús. kr. til
kaupa á Húnaflóabát.
Elendínua hugsar aannarlega ekki
minna um dýrtíðina en aðrir. Eg
bað um dýrtíðarJán 1 vetur, en bölvuð
Btjórnin neitaði mór um það, en dag-
setningu og undirskrift vantaði á
svarbréfið, avo eg hefndi mín með
því að senda ráðherrunum nafnlaust
skammarbréf til baka. Jörundur
hugsar líka mikið um dýrtíðina, það
er að segja hafi hann ekki skrifað
hina löngu ræðu, sem hann hélt í
þinginu í fyrradag í hugsunarleysi.
Bæðan fylti fulla þingmannsbók (sem
Helgi Hjörvar útbýtti í deildinni í
þingbyrjun). Víst er það að hvorki
Jörundur né fjármálaráðherrann hafa
getað fundið nokkurt gott ráð við
dýrtíðinni. En eg, Elendínus Hákon-
arson, eg hefi fundið ráðið, og það
var fjármálaráðherranum að þakka.
þegar eg heyrði hanu lesa upp sög-
una um smjörverðið í Kaupmanna-
höfn, mjólkur >prfsana« og skinkju-
gjaldið og um útbýtiugu allra kort-
ana, hve henni væri haganlega fyrir-
komið, þá kom andinn yfir Elendinus.
Eg vil >innfæra> ræðukort fyrir þing-
menn. t hvert skifti sem þeir vilja
fá orðið, verða þeir að biðja mig nm
það, en ekki forsetann, því eg ætla
að >reddat mér út úr dýrtíðinni með
því að verða nokkurs konar Sig.
Björnsson þingræðu-seðla útbýtingar-
skrifstofunnar í Hegningarhúsinu.
Launin ákveð eg sjálfur 15 krónur á
dag eins og fossanefndin fær. —
þegar eg er orðinn skrifstofustjóri
á þessari skrifstofu, þá er mér sama
þó Pétur á Gautlöndum hrópi upp í
neðri deild að >allir séu komnir á
kúpuna«. Eg tóri þá um þidgtímann
að minsta kosti, þó auðvitað borgi
ritstjórinn mér bölvanlega fyrir þing-
setuna.
Eg opna seðlaskrifstofuna á morg
un og framvegis fær enginn orðið
nema hann fái sér miða hjá
ElendinuBÍ.
^ D A GBÖK ||
Nýr vélbátur komhingað fráDan-
mörku fyrir fáum dögum. Heitir
hann >Eaxi< og ber um 60 smálestir.
Eigendur Sigurjón Pétursson |kaupm.
o.fl.
Gangverð erlendrar myntar.
Bankar PÓBthÚB
Doll.U.S.A.&Canada 3,40 8,60
Franki franskur 60,00 62,00
Saensk króna ... 110,00 110,00
Norsk króna .„ 104,00 103,00
Sterllngspund ... 15,60 15,70
Mark ... ... 65 00 67,00
Holl. Florin ...
Afli þilskipamia. þilskip H. P.
Duus haf aflað sem hér segir J
Asa .. 62 þús.
Valtýr . 62 —
Seagull ... • .. 50 —
Sæborg ... 45V2 -
Keflavík ... ... 39 —
Sigurfari ... 2?V, -
Þrjú frönsk fiskiskip komu hingað
í fyrrakvöld.
Saltskip kom hingað í fyrradag
til >KoI & Saltt.
Hjúskapnr. 11. þ. mán. gaf sfra
Ólafur Ólafsson fríkirkjuprestur sam-
an í hjónaband uugfrú . Jóhönnu
Símonardóttur frá Hellum í Hafnar-
firði og Benedikt þorsteinsson frá
Akureyri, fyrrum útvegsmann á
Austfjörðum.
Slys. það sorglega slys vildi til
í Sundlaugunum í fyrradag að 10
ára gamall drengur, Hafliði Björnsson,
druknaði þar. |Hann var ósyndur
og varð enginn þess var, þá er hann
fór ofan í laugina. Náðist hann þó
áður en hann hafði legið lengi í vatn-
inu og voru reyndar við hann lífg-
Solríkí herbergi
með húsgcgnum, utantil í bænumr
óskar aðkomandi um mánaðartíma.
Tilboð merkt 50, sendist afgr.
blaðsins fyrir kl. 7 í dag.
Æaupsfíapur
Handvagn til sölu hjá Sveini
Jónssyni, Hæðarenda Seltjarnarnesi.
^ zXapað ^
Tapast hefir silkisvunta (svartdrop-
ótt) í Mið- eða Vestuibænum. Skfl-
ist á Vesturgötu 20, niðri.
unartilraunir, en þær báru engan
árngur.
Sterling kom hingað í gærkvöldi
úr hringferð. Fjöldi fólks kom með
skipinu.
Yrsa, seglskip, er nýlega farið héð-
an með fiskfarm til Spánar. Eigi
mun skipið þó hafa verið fullfermt,
en átt að taka viðbót af fiski í Eær-
eyjum.
Svar til hr. J, Kr. J.
í 63. tölublaði >Morgunblaðsins«
þ. á. birtist grein með fyrirsögn
»DufansdaIsnáman« eftir J. Kr. J.
Hann minnistá í þeirri grein, aðstúlka
sú, er gegndi matreiðslustörfum þar,.
hafi verið ófullkomin til þess starfs.
Vér ucdirritaðir, sem unnum I kola-
námu Þernudals um stma leyti og
J- Kr. J. mótmælum þvi. Hennar
rétti vitnisburður er, að hun hafði
altaf til mat á réttum tíma, og vel
til búinn. Og einnig þurkaði hún
vot klæði okkar, sem þó ekki stóð
í hennar verkahring. Þeir menn
sem unnu að kclanámunni, eru nú
komnir víðsvegar út um land. Við
biðjum þá hina sömu menn, að
láta stúlkuna njóta sannmælis. Við
gátum búist við að heyra eitthvað
óviðjeldið frá J. Kr. J., þvi nokkrum
af okkur er minnisstætt er hann
gekk um gólf í Þernudalshúsi, með
húfuna á höfðinn, er kvöldlestrar
fóru frarn, og er vel liklegt að um-
rædd grein hafi þá verið i fæðingu.
Bíldudal, 12. febrúar 1918.
Guðm.Atason, Valditn. Guðbjartson,
Gunnar Kristjánss., Finnb. Krist|ánss.,.
Eiríkur Jóhannsson, Ólafur Kriátjánss.,
Jón Magnússon.
Ath.: Grein þessi hefir legið
hjá verkstjóra kolanámunnar til þessa
tíma, og hefir þar af leiðandi ekki •
getað birst fyrr.
G. A.
I