Morgunblaðið - 26.06.1918, Page 2
2
MORGrUNBLAÐIÐ
Allskonar blaðaplöntur.
komu með Botniu.
Til sýnis ki. x—4.
María Hansen,
Bankastr. 14. Sími 587^
ErL simfregnir.
(Frá fréttaritara Morganhl.).
Khöfn, 24. júni.
Her Austurríkismanna er á hröð-
um flótta fyrir austan Piave. ítalir
reka flóttann.
Algerðu aðflutningsbanni hefir ver-
ið komið á i Finnlandi.
Khöfn, 24. júní.
Austurríkska stjórnin hefir sagt
af sér og búist við því að ungverska
stjórnin muni gera slíkt hið sama.
Piave-áin er í vexti og er hætta
á því að hún muni einangra her-
sveitir Austurríkismannna, sem yfir
hana eru komnar.
Danskir jafnaðarmenn
og sambandsmálið.
Samtal við
Ólaf Friðriksson ritstjóra.
Morgunblaðið hitti Ólaf Friðriks-
son að máli í gær og leitaði fregna
hjá honum um það hverja afstöðu
jafnaðarmenn mundu taka i sam-
bandsmálinu. En eins og kunnugt
er fór Ólafur utan fyrir skemstu,
sendur af alþýðusambandi íslands til
þess að hafa áhrif á danska jafnaðar-
menn i fánamálinu. Kynti hann
sér vel hver er afstaða þeirra og
sagði hann frá á þessa leið:
— Ef danskir jafnaðarmenn mættu
einir ráða, þá er enginn efi á því,
að þeir mundu þegar i stað verða
við fánakröfunni og veita okkur
fánann. En nú er það ekki fána-
málið eitt sem um er að ræða,
heldur alt sambandsmálið og horfir
þá við á annan hátt. Koma þá ýms
atriði til greina sem eru fánamálinu
óviðkomandi og get eg eigi glögg-
lega sagt frá því hverjar kröfur
danskir jafnaðarmenn muni gera eða
hve langt þeir muni teygja sig til
samkomulags. Því þess verðum við
jafnan að minnast, að þótt þeir séu
jafnaðarmenn, þá eru þeir lika Danir
og hljóta því að líta á málið með
dönskum augum. Hygg eg t. d.
að þeir muni vilja að fæðingjaréttur
og utanríkismál verði sameiginleg,
hið siðara vegna þess, að Danir
munu óttast að Islendingar geti
komið sér í vanda ef til vill í stríð
Nokk rar kÝr
óskast keyptar
Eggert ] órssson
Bröttugötu 3 B. Sími 602.
ari litlu þjóð, sem enn talar næstum
sömu tungu, sem forfeður vorir töl-
uðu fyrir þúsund árum, og vaið-
veitt hefir ómetanlega andans fjár-
sjóðu.
Daumörk má að minsta kosti ekki
vera örsök þess, og hiun hættuleg-
asti tími til slíks skilnaðar muudi
einm:tt vera nú meðan heimsstyrj-
Tvistur!
öldin geisar*.
ÐAOðOK
>
ágætur maskinutvistur fæst i Veiðarfæraverzl.
Liverpool.
ef eigi sé farið með utanríkismálin
i sameiningu.
Annars má greinilega sjá afstöðu
danskra jafnaðarmanna á, ritstjórnar-
grein um ísland, sem birtist i
>Social-Demokraten« daginn sem eg
fór frá Kaupmannahöfn og vísa eg
því að öðru leyti til hennar. En þess
skal eg láta getið, að eg hygg að
þeim mönnum skjöplaðist, sem hyggja
það, að Danir munn ganga að
hreinu konungssambandi. Aftur á
móti munu danskir jafnaðarmenn
eigi setja sig upp á móti skilnaði,
ef það skyldi koma i ljós við al-
menna atkvæðagreiðslu hér, að það
sé vilji íslendinga.
— En hvernig virtist yður önnur
Norðurlönd taka í málið?
— Um það get eg ekki dæmt,
nema eftir norskum og sænskum
blöðum því að til hvorugs landsins
kom eg. En það virtist svo, að
þótt þau vildu unna íslandi fulls
réttar, þá væru þau sammála um
það, að varhugavert væri fyrir ísland
ef deilan skyldi draga til skilnaðar
við Danmörk og töldu að það mundi
veikja Norðurlönd yfirleitt.
Annars er vcnandi að í samning-
um þeim sem nú eiga að fara að
byrja, geti allir Islendingar orðið á
eitt sáttir um að halda einarðlega
fram réttmætum kröfum vorum, og
þó á þann hátt að það þurfi ekki
að leiða til neins er síðar þarf að
yðra.
— Hvernig hyggið þér að Borg-
bjerg muni vera við að semja?
— Agætur. Hann er viðurkend-
ur, af mótstöðumönnum sinum, sem
ágætur samvinnumaður í nefndum
og óþreytandi í því að finna altaf
nýjar leiðir til samkomulags. Og
mér er það kunnugt, að hann mun
gera sitt ítrasta til þess, að hinum
sendimönnunum ólöstuðum, að sendi-
förin leiði til einhvers árangurs.
í grein þeirri, sem hér hefir ver-
ið vitnað til, segir svo:
(Social-Demokraten, 14. júní).
»Hverju geta svo hægrimenn á-
orkað -- sér eða landinu til gagns —
með því að sitja hjá öllu þessu og
neita að taka þátt i samningunum?
Landið getur að eins beðið tjón af
því og aðstaða Danmerkur veikst.
Ef afstaða hægrimanna á hér eftir
sem hingað til að koma í ljós í rit-
gerðum hr. Foss og blaðs hans, þá
byggist hún á því, »frjálslyndi«, sem
jafnaðarmenn geta ekki fallist á, þó
að þeir viðurkenni fyllilega kenn-
inguna um rétt þjóðanna til þess
að ákveða stöðu sina.
Hægrimenn segja sem svo: Ef
Danmörk getur ekki fyrirfram kom-
ið öllu því fram, sem íhaldsmenn,
eða nokkur hluti þeirra, telur æski-
legt, þá láturn Isladnd heldur fara sinna
Jerða. Látum þá heldur bresta en
bogna, fyr í dag en á morgun.
Og þetta er sagt mitt í ófriðn-
um.
En hvernig gæti það samrýmst
sannri hlutleysisstefnu, ef Danmörk
hefðist ekkert að til að hindra skiln-
að, en svo kynni að fara — sem
sænskt blað bendir á — að ísland
kæmist uudir öflugri yfirráð — eða
yfirráð hinnar voldugustu þjóðar.
Heimsveldin berjast í tveim flokk-
um um áhrif og hag sinn lengst í
norðri, við Murmans-strönd, Spitz-
bergen og norðurhluta Atlanzhafs.
Enginn veit hver ber hærra skjöld.
En vér höfum aldrei getað skilið,
hvers vegna íslendingum ætti að
vegna betur ef þeir lenti undir áhrif
auðvalds og heimsveldis einhverrar
stórþjóðar, heldur en að búa saman
við litla, friðsama þjóð, andvíga her-
búnaði og langt komna í menning.
Vér efumst um, að þjóð, fámenn-
ari en íbúar Friðriksbergs, sé þess
megnug, að stofna einangrað ríki,
þó að landið sjálft sé þrefalt stærra
en Danmörk. — Og vér höfum jafn-
an haldið því fram, að fullkomin
þjóðleg sjálfstjórn væri samrýman-
leg ríkistengslum náskyldrar þjóðar.
»Smáríkja stofnun« er ihaldsarfur
en ekki nútima hugsjón. Svo mjög
sem vér börðumst fyrir sölu Vest-
indisku svertingja-eyjanna — a^ því
að sambandið við Danmörk var
óeðlilegt og engum til gagns — svo
mjög mundi það verða oss til harms,
ef hið þúsund ára gamla band ætti
að bresta, sem tengt hefir oss þess-
Aðali'nndur Bláturfélagsins hófat í
gær og verður að líkindum lokið í
dag. Fundinn sækja fulltrúar úr
mörgum sýslum.
Túnblettir hér í bænum eru sum-
ir orðnir sláandi, en hvergi getur heit-
ið að sláttur sé byrjaður.
Slökkviiiðsæfing var haldin við
hús Nathan & Olsens í fyrrakvöld og
þyrptist þangað múgur og marg-
menni.
Björgvin, vélarbátur, fer til Isa-
fjarðar kl. 4 i dag.
Gestir í bænum: síra Sigurgeir
Sigurðsson og frú hans frá Isafirði.
Oddnr Gnðmnndsson kaupmaðnr
frá,BoIungarvik, hefir flutt sig hingað
búferlum og ætlar að reka hér verzl-
un.
Ársfnndnr hins íslenzka keunara-
félags hefst í dag kl. 4.
Verzlnn seld. Verzlunarfalltrúi
h.f. Örum & Wulff, Júlíus Guð-
mundsson, hefir selt Stefáni Guð-
johnsen verziun félagsins á Húsavík
með útibúum Og öllu tilheyrandi, en
peirri verzlun hefir Guðjohnsen veitt
forstöðu i mörg undanfarin ár.
Síðustu símfregnir.
Kaupmannahöfn 25. júní.
ítalir hafa náð aftur öllum þeim
hergögnum, sem þeir höfðu mist
og mörgum þýðingarmiklum stöðv-
um. Þeir hafa tekið marga fanga.
Koehlmann hefir komið fram með
ný friðartilboð. Er þar tekið fram
að ófriðurinn sé í fyrsta lagi Rússum
að kenna og þá Frökkum og Bret-
um. Það sé óhugsandi að ófriðnum
verði til lykta ráðið með vopnum.
í janúar er ráð gert að i^/a milj-
ón Ameríkumanna verði komnir til
vígvallanna.