Morgunblaðið - 11.01.1919, Qupperneq 1
‘Laugardag
it
lan 1919
6. argangr
59.
tSlubiaffi
Ritstjórnarsími nr. 500
Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen
ísafoldarprentsmiðja
Afgreiðslusími nr. 500
Úr loftinu
London, 10. jan.
Frá Be
Stjórnin ber hærra hlut,
Símskeyti frá Berlín henda til
þess, aS stjórn Eberts hafi borið
hærra i hlut í viðskiftunum við
Maximalista, eftir harða viðureign.
Varðlið Eichhorns, lögreglustjóra
Maximalista, alls 3000 menn, hefir
hlaupið frá honum og gengið í lið
með stjórninni. Setuliðið í Berlín,
sem til þessa hefir setið hlutlaust
hjá, hefir einnig gengið í lið með
stjórninní. Hefir nú borgarfriði
verið komið á að nokkru leyt; aft-
ur, eftir því sem sagt er í skeyti
frá Berlín til Kaupmannahafnar.
„Spartacus-flokkurinn hefir beðið
fullkominn ósigur. Hersveitir
stjómarinnar hafa tekið allar op-
inberar byggingar og þúsundir af
herliði hennar streyma daglega til
horgarinnar,“ segir enn fremur í
skeytinu.
Á miðvikudaginn var barist af
enn meiri ákefð heldur en daginn
áður og mannfall varð meira. Var
sérstaklega barist ákaft um járn-
brautastöðvarnar, en þær eru nú
aliar á valdi stjórnarinnar og járn-
hrautaferðir teknar upp aftur.
Maximalistar náðu valdi á vatns-
veitu borgarinnar og mikill hluti
hennar var því vatnslaus.
Ebert hefir gefið út tilkynnin'gu
þar sem svo er að orði komist:
„Stjórnin er nú að gera ráðstaf-
anir til þess að kveða niður þess-
ar óspektir og koma í veg fyrir
það, að þær komi nokkuru sinni
fyrir framvegis.“
Vopnahlésskilmálunum
ekki fullnægt.
Það skort.ir mikið á það, að Þjóð-
verjar hafi enn afhent öll þau her-
gögn og vagna, sem þeir áttu að
afhenda bandamönnum innan mán-
aðar frá því er vopnahlé var samið.
Tyrkir ekki af baki dottnir.
Tyrkir þeir, sem eru í Arabíu,.
hafa valdið nókkrum vandræðum,
01 eð því að neita nð gefasf upp,
byrjar í dag á nokkrum vörutegundum, V. d. Tvisttau, Léreft, Flóne!,
Rifstau, A'paca, Motgunkjólaefni, Si!kibútax? o fl.
Verzíun
Inqibjargar Jcíjmon,
samkvæmt vopnahléssamningunum.
Talsvert öflugur her, sem er undir
forystu Fachri pasha, er enn í Me-
dina undir vopnum.
Bandamenn hafa tilkynt tyrk-
nesku stjóminni, að ef setulið þetta
gefist eigi upp þegar í stað, þá
muni þeir sprengja í loft upp vígin
hjá Hellusundi.
Dobrudscha.
Bandamenn hafa lagt Dobrud-
seha undir sig, en það hérað fengu
Búlgarar með friðarsamningunum
í Búkarest. Verður friðarráðstefn-
unni geymt það, að úrskurða, hvað
um landið eigi að verða-
í Rússlandi.
Það hefir nú verið ákveðið, að
senda eigi meira af brezku her-
liði til Rússlands, nema verkfræð-
ingasveitir, eftir því sem þurfa
þykir. í novðanverðu Rússlandi, á
Murmansströnd og Archangel-hér-
aði, ala Bretar nú önn fyrir 100,000
Rússum. Bandaríkin hjálpa þeim til
>ss :tð standast, kostnaðinji.
Sliksl h klé
Reg’ítíg'Tð o.m ÍBnflotiiing
teld flr 'gHdi
Frá deginum í gær er feld úr
gildi reglugerð Stjómarráðsins um
það, að ínenn þurfi að sækja um og
fá innflutningsleyfi, áður en þeir
geti fengið vörur frá. útlöndum.
Jafnframt mun þá innflutnings-
uefnd lögð niður, því að þar með
er starfsemi hennar lokið.
Gróðrarstöðí
fi
hjá Rauðavatni.
Það er svo um mörg fyrirtæki
hér um slóðir, að þegar nokkuð
líður frá því, að þau komust á fót,
eru þau meira eða. minna vanrækt,
og með vanrækslunni er miklu erf-
iði og' peningum á glæ kastað, þótt
annars hefði komið að gagni,
Svo er um gróðrarstöðina hjá
Rauðavatni.
Það var að vísu furðu fávíslegt
þegar í upphafi, að ætla að rækta
skóg þar á hrjóstugum og blásnum
melum. Enda kom það fljótt í ljós,
að skógur vildi illa þrífast þar. Þó
vantaði ekki viðleitnina fyrst í stað
og allur kostnaður við þessa gróðr-
arstöð er orðinn gífurlega mikill.
En svo er eins og árar hafi verið
lagðar í bát einmitt þegar plönt-
urnar voru að ná sér. Síðustu tvö
árin hefir ekkert verið mmið í
gróðrarstöðinni og mikið efamál,
hvort nokkurt eftirlit hefir verið
haft með girðingunni umhvcrfis
hana. En hafi eitthvað eftirlit ver-
ið haft með henni, þá hefir það
verið slæmt, því að í sumar var fult
af sauðfé og geitum inni í gróðrai'-
stöðinni og má nærri geta, hverj-
ar búsif jar það hefir gert nýg'ræð-
ingnum. Frá þessu var þá skýrt hér
í blaðinu, en eigi vitum vér livort
nokkur gangskör hefir verið að því
ger, að friða gróðrarstöðina. Að
minsta kosti er eigi svo að sjá.
í fyrradag áttum vér tal við
mann, sem kom ofan úr Mosfells-
sveit og hann sag'ði svo frá, að nú
væri fult af stóði í gróðarstöðinni.
Á því sést, að vanhirðan er svo
mikil, að hin ágæta girðing, sem
áður var um gróðarstöðina, ev nú
ekki lengur gripheld. Talsverður
snjór og áfrerar eru í Mosfellssveit
-— í gróðarstöðinni sem annarstað-
ar — og' sagði þessi maður, að um
leið og' hann hefði farið fram hjá,
hefði hann séð stóðið bíta skóg-
plönturnar, því að annað hefði eigi
staðið upp úr snjónum.
Þess verður að krefjast, þótt illa
væri til stofnað að hafa skógrækt
á þessum stað, að margra ára starf
sé eigi ónýtt með eintómum trassa-
skap. Yilji menn eig'i gróðursetja
fleiri hríslur þarna, þá má það þó
ekki minna vera, en að þær sem
fyrir eru, og sumar eru farnar að
þroskast noltkuð, séu friðaðar og
gróðrarstöðin eigi höfð fyrir afrétt.
Yiðhald á girðiugunni ætti eigi að
kosta of fjár, ef þess væri alt af
gætt, að gera við hana á vorin, því
aðalskemdirnar hlýtur hún af snjó.
Jk €2 Et €> M
" X*
Messað á morgun í Fríkirkjunni í
Reykjavík kl. 2 síðd. (Har. Níelsson)
og- kl. 5 síðd. (Ól. Ól.).
Vínland, hinn nýi botnvörpungur,
kom hingað í fymnótt.
Nýtt ættarnafn. Börn Friðriks Theo-
dórs Ólafssonar kaupmanns á Borð-
eyri, Ólafur trésmiður í Revkjavík,
Guðmundur bóndi í Stórholti, Páll
bóndi á Fögrubrekku, Pétur kaupfé-
lagsstjóri á Blönduósi, Elín, ekkja á
Blönduósi, Hendrik Elís verzlunarstjóri
á Borðeyri, Fi ntdiogi verzlnnarmaður
á Blönduósi og Lára, símamær á Borð-
eyri, hafa tekið sér ættarnafnið Theo-
dórs.
Frá höfninni. Vélskipið Mínerva,
sem lá hér við bryggju, átti að toga
út á höfn í gær og var 'til þess feng-
inn dráttarbátur H.f. Kol og Salt.
Tókst það eigi fimlegar en svo, að það
gleymdist að leysa siglukaðal, sem
bnndinn var í bryggjuna, og er drátt-
arbáturinn fór á stað, hélt kaðallinn,
en siglan brotnaði.
Ágætur fiskafli er nú hér á báta,
þegar á sjó gefur, og er það óvanalegt
um þetta leyti árs. X miðvikudaginn
fengu sumir 40 króna hlut.
Gripdeildir eru alt af að fara í vöxt
hér í bænum, og kveður nú einkum
ramt að því, að hnuplað sé þvottí og
fatnaði. A einum stað var nýlega farið
inn í hús að kvöldlagi, meðan alt.
heimafólk var á fótum, og þar lmupl-
að kodda úr rúmi og sæng úr öðru. —
Lögreglan hafði upp á þjófmua. og
sængurfötin fann lnín um borð í mót-
orbát hér á höfninni.
Mannslát. Nýlega lézt. á ísafirði
Stefán Ólafsson, fyrrum kaupmaður
þar á staðnum. Hann var með elztu
borgurum kanpstaðarins.
Bæjarstjórnarkosningar eiga að far:»
fram í Vestmannaeyjum hinn 16. þ.
mán. Er sagt að all-mikill kosninga-
hiti hafi að nndanförnu verið í Eyja-<
skeggjum.
-—