Morgunblaðið - 13.01.1919, Qupperneq 1
Mánudag
13
jan 1919
H0R6DNBLABID
6. argan gr
61
tðlnblað
ísafoldarprentsmiðja
Afgreiðslusími nr. 500
Ritstjórnarsími nr. 500
Ritstjóri: Villijálmur Finsen
Eidur i skipi
f fyrri nótt kom upp eldvj’ '
ídanska seglskipinu „J. M. Niel-
sen“, sem liggur hér á höfninni við
Örfiriseyjargarðinn. Er það ætlun
manna, að kviknað hafi út frá ofni
í káetu skipstjóra. Sjálfur var hann
ekki um borð, en hásetar höfðu
lagt í ofninn og síðan gengið til
svefns.
Varðmenn í eynni urðu fyrst var-
ir við eldinn, en þá var káetan
mikið brunnin og margt’ af því, sem
þar var inni. Tókst von bráðar að
slökkva eldinn, með tilstyrk skip-
verja af öðrum seglskipum, er þar
ytra liggja.
Fullv8ldið,
Sem kunnugt er, gengu sam-
bandslögin í gildi 1. desbr. f. á.
Varð þá um leið að ákveða, að
sumu til bráðabirgða, ýms útgjöld,
er því voru samfara að koma full-
veldinu á laggirnar. ETefir forsætis-
ráðherra látið oss í té eftirfarandi
upplýsingar um það, er þegar er
framkvæmt í þessu af hálfu stjórn-
arinnar.
1. Til konungs og konungsættar
var ákveðið að greiða 50 þús.
kr. á ári.
2. Til utanríkismálanna kr. 12 þús.
á ári.
3. Til skrifstofuhalds ' í Ivaup-
mannahöfn kr. 12 þús. á ári
,eða alls til þessara mála kr. 74
þús. á ári.
Af formlegum atriðum má nefna,
að í íslenzkum ríkisskjölum svo og
lögum, er konungur gefur út eða
staðfestir, á að standa „Vér Chr. X.
o. s. frv. konungur íslands og Dan-
merkur o. s. frv., og í dönskum af-
greiðslum verður titillinn: konung-
ur Danmerkur og Islands. Úrskurð-
ar um uppburð íslandsmála í rík-
isráðinu var feldur tir gildi 30. nóv.
f. á.
Þá hefir utanríkisstjórnin danska
9. desbr. f. á. tilkynt erlendum
ríkjum:
a ð danska stjórnin eftir efni
sambandslaganna frá 30. nóvbr. f.
á. hafi viðurkent Island fullvalda
ríki,
a ð Danmörk og ísland séu í sam-
bandi um einn og sama konung,
a ð nöfn beggja ríkjanna séu
tekin í heiti konungs,
a ð Danmörk fari með ntanríkis-
mál íslands í umboði þess,
að Island lýsi ævarandi hlut-
4eysi sínu, og
a ð stjórnarfáni íslands, klofinn
fáni, sé blár feldur með rauðum
krossi innan í hvítum krossi, að
verzlunarfáninn sé eins óklofinn, og
að ísland hafi engan gunnfána.
(,,Frón“.)
ÞjéðféSagsgildi refsinga
í sakamálalöggjöf Breta var alt
fratn að árinu 1837 lögð liflátsheqn•
in$ við því að stela 5 skildinga
(shilling) virði í búðum eða 40
skíldinga virði í einkahíbýlum, sömu-
le ðis við sauðaþjófnaði og innbrots-
þjófnaði.
Síðan hefir réttarmeðvitund margra
breyzt svo, að flestum mun þykja
ótriilegt, og stór blöskra, að slík
býsn skoli hafa verið í lögum fyrir
rútnum 80 árum í siðuðu landi.
En þótt ekki eigum vér nein
þessu lík ósköp í refsilöggjöf vorri,
er hún eigi að síðursvo úrelt orðin
og gagnstæð hugmyndum vorra daga,
að á fáum sviðum þjóðfélag skipun-
ar vorrar mun meiri þörf á gagn-
gerðum ogstórbreytingumhreinsunar-
tilþrifum en í hegningarlöggjöfinni.
í nýjasta leikriti Guðmundar
Kamban er hegninga-kerfið ríkjandi
tekið röggsamlega tii bænar og á
það ráðist með andagift og röskleik.
Aðalpersónan í leikritinu segir t.
d. á einum stað:
»Það er að eins til einn glæpur.
Hann heitir: heguing«.
Öfgarl Svo munu flestir dæma.
En talsvert er þó satt í þessu; ef
menn íhuga vandlega á annan bóg-
inn, hve bláþráðskendur er gróðinn
eða gagnið, sem þjóðfélagið hefir af
framkvæmd hegningar, og á hinn
bóginn, hve oft það vill verða
svo um einstaklinginn, að fjarri
fer því, að hegningín betri hann.
Hún stælir hann miklu oftar til
fjandskapar gegn þjóðfélaginu og
forherðir hann, sem kallað er.
Sú mun reynslan vera, að þvi
strangari sem refsilöggjöfin er í landi,
því tiðara er um • sakamenn, sem
brjóta í bág við lögin aftur og aftur.
Vér skulum benda á nýlegt dærni
úr vorum eigin refsingakreddu-annál-
um, sem vér búumst við að flestir
líti svo á, að vel sanni, hve brýn
nauðsyn er á endurskoðun.
Miður nokkur er sakaður um að
að hafa kveikt í húsi f því skyni
að leggja undir sig brunabóta-fjárhæð-
ina. Málið gengur sinn gang alla
leið til hæstaréttar. Maðurinn hefir
aldrei játað þetta á sig, en hann
er dæmdur eftir likum. Og dóm-
urinn hljóðar um 18 mánaða fan%-
elsi
Málið stendur talsvert á þriðja ár.
Brennimerking á manninum og önn-
ur óþægindi, svo ekki sé ríkar orð-
að, jafn lengi. Eigi að siður brýst
maðurinn því að vinna vel fyrir
fjölskyídu sinni, gerir það mjög
sómasamlega.
Að hann yfirleitt fær leyfi til að
vinna fyrir fjölskyidunni, meðan á
málina stendur, er því að þakka,
að menn voru til, honum óviðkom-
andi, sem ábyrgðust nærveru hans
að viðlagðri allmikilli fjárfúlgu, af
því að þeim blöskraði sú frámuna-
lega óhæfa, sem löggjöfin gerir ráð
fyrir, að loka slikan mann inni í
gæsluvarðhaldi, meðan á málinu
stæði, en föiskyldan færi á vonar-
vöi.
Svo fellur dómurinn: átján mán-
aða fangelsisvist — dæmt á líkum.
Þá er reynd náðunarieiðin, í sam-
bandi við þann gleði atburð, að Is-
land er að verða fullvalda ríki.
Meðmæii fylgja frá mörgum þiog-
mönnum og öðrum máismetandi
mönnum. En niðurstaðan verður:
synjun. Astæðurnar, að þvi er sagt
er, þær, að hæstiréttur hafi eigi get-
mælt með henni.
Hér skai það látið liggja milli
hluta, hvort maðurinn er i raun og
veru sekur eða eigi. Um það get-
um vér eigi dæmt.
En vér spyrjum:
Hvaða akkur er þjóðfélaginu í því,
að þessi maður, þótt sekur væri,
sé innilokaður í fangelsl í 18 mán-
uði — og fjölskylda hans, kona og
börn, fyrir bragðið lendi á vonarvöl
— lendi á sveitinni?
Nýít rit.
Hlin. Ársrit Sambands norðlenzkra
kvenna, II. árg. — Ritstjóri: Ilall-
dóra Bjarnadóttir.
Fyrsti árgangur þessa rits kom út
í fyrra og þótti bæði fróðlegnr og
skemtilegur. Þó er þessi árgangur enn
fjölbreyttari og fróðlegri og til stór-
sæmdar fyrir útgefendurna. Eg efast
ekki um, að ritið fljúgi út, enda er
söluverðið ekki nema ein króna, sem
má heita gjafverð, þegar það er borið
sarnan við aðrar bækur og tímarit, sem
nú koma út.
í ritinu er meðal annars skrifað um
heilbrigðismál, heimilisiðnað, og garð-
yrkju, og margt og margt fleira til
gagns og eliðbeiningar fyrir almenn-
ing. Þá má nefna fyrirlestur eftir frú
Aðalbjörgu Sigurðardóttur, gullfailegt
erindi. Annars þýðir ekkert að telja
«PP ritgerðirnar, menn eiga að lesa
ritið, og enginn, sem kaupir það, mun
sjá eftir krónunni, sem fyrir það
gengur.
Páll Jónsson Árdal.
Trolle & Rothe h.f.
Brnnatryggingar.
Sjó- og striðsYáíryggmgaF
Talsimi: 235.
Sjótjóns-ermdrekstur og
skipaflntnmgar*
Talsiml,j42©.
Blaut sápa. Stangasápa.
Sóiskinssápa.
Þvottaduft. Skurepulver,
hjá
O. Amundasyni,
Sími 49. Laugavegi 22 A.
ÐAQBOK
Eiðaskóiinn. Þar hefir síra Ásmund-
ur Guðmundsson í Stykkishólmi verið
skipaður skólastjóri.
Bæjarstjórnarkosningar fara fram á
AkurejTÍ um eða eftir 20. þ. mán. Er
mikið kapp lagt á það af verkamanna
hálfu, að koma sínum fulltrúum að.
Hefir Verkamannafélag Akureyrar í
því skyni gengið í kosningasamband
við Kaupfélag Eyfirðinga. Verður
sennilega eigi kosið um fleiri lista 'en
tvo. $
Seglskip strandaði hjá Svalbarðseyri
fyrir nokkru. Var það eitt af skipum
þeim, sem flytja átti síld til Svíþjóðar.
Vélskipið Harry fer héðan til Vest-
mannaeyja á morgun.
Holgeir Wiehe byrjar aftnr fyrir-
lestra sína í kvöld.
Ókeypis lækningar byrja aftur 4
þriðjudaginn, í Kirkjustræti 12.
Ónákvæmni nokkur var í frásögn-
inni um kauphækkun prentara, hér í
blaðinu í gær. Næturvinna er nú helm-
ingi dýrari en dagvinna, helgidaga-
vinna 40% dýrari og eftirvinna 30%
dýrari. Er þetta tekið hér fram vegna
þess, að sumir hafa skilið frásögnina
á annan veg.