Morgunblaðið - 18.01.1919, Page 1
6. argai' gr
Xaugardag
18
{an. 1919
66
tölutolfví
Ritstjómarsími nr. 500
Ritstjóri: Yilhjálnmr Finsen
ísafoldarprentsmiðja
Afgreiðslnjsími nr. 500
Nýr íátækrafulltrúi.
Erl simfregnir.
Frá fréttaritara Morgunblaðsins
, Khöfn, 16. jan.
Konungur
heimsæKir
Island.
Það ci' búist við því, að Kristján
10. konungur vor muni takast ferð
á hendur til íslands í júlímánuði í
sumar.
Liebknecht
skotinn.
Herrétturinn í Berlín hefir dæmt
Iáebknecht til (lauða og hefir hann
vcrið skotinn.
Hersveitir stjórnarinnar ganga
með oddi og egg- að því að gjöreyða
Sþartacus-flokknum í Berlín.
Blöðin í Berlín eru farin að
koma út aftur.
Maximalistar á friðarfundinum.
Bretar og Bandaríkjamenn vþlja
leyfa Maximalistum í Rússlandi
að senda fulltrúa á friðarfundinn.
BæjarstiorRarkosrijng
í Vestmannaeyjum.
Vestmannaeyjmn, í gærmorgun.
Hér fóru fram í gær fyrstu bæj-
. arstjórnarkosningar í sögu Vest-
mannaeyja. Höfðu eyjaskegg'jar
•lengi þráð það að fá bæjarstjúrn,
enda var mikið kapp í þeim við
þessar kosningar, eins og’ bezt. má
sjá á því, að sjö listar komu fram
og 556 menn af 864, sem á kjör-
skra voru, ueyttu kosniiigarréttar
síns.
Efstir á listunum. voru þessir
nienn:
A-listi: Jóhann Jósefssou kaupm.
B-listi: Jón Einarsson kaupm.
C-listi: Gísli Johusen konsúll.
Kaupirðu góðan hlut,
þá mundu hvar þú fékst hann.
Sigurjón Pétursson.
D-list.i: Karl Bjarnason.
E-listi: Jón Hinriksson verzl.stj.
F-listi: Jón Hinriksson verzl.stj.
G-listi: A. F. Petersen símstjóri.
f
Taluingu atkvæða var okki lok-
ið fyr en kl. 12 á miðnætti. Var þá
sýnt hverjir listarnir mundu koma
mönnum að, en nafnaröð mun lík-
lega breytast eitthvað og verður
)vví enn eigi nm það sagt með vissu,
hverjir kosnir eru.
Atkvæði féllu þannig á listana:
A-listi fékk 131 atkv.
B-listi — 31 —
O-listi -— 163 —
D-listi — 22 —
E-listi — 114 —
F-listi — 25 —
G-listi — 15 —
A-listi kemur að 3 mönnum, C-
listi fjórmn og E-listi tveimur. Hin-
ir ehgum. Ónýt urðu 55 atkvæði,
þar af 20 á C-lista einum.
Bæjarsijórnarfuadur
16. þ. mán.
—
Sigurður Jónsson stýrði fundi.
Er það þriðji fundurinn, sem haim
stjórnar í fjærveru forsefa, Sighv.
og varaforseta, Ben. Sveinssonar,
er ekki hefir mætt.
G-eymsluskúr
úr steini var samþ. að leyfa G.
Zoega kaupm. að byggja á lóð hans
við Tryggvagötu. Aður hafði hon-
um verið synjað uni að byg'gja þar
úr timbri og járni.
Veiðirétt í Elliðaánum
næsta sumar var ákveðið að bjóða
út bæði í Bretlandi og innanlands,
og skyldu tilboðin vera komin til
borgarstjóra fyrir 15. apríl.
Dýrtíðarkol.
lTm 117 toun eru enn eftir af'
dýrtíðarkolum síðan í fyrra. Samþ.
llð selja þau fyrir 160 kv. tonnið í
50 kg. skömtum (á 8 kr. 50 aur.
hvern), en engri einstakri fjöl-
skyldu þó selt meira en 200 kg.
I sanibandi við það skýrði borg-
arstjóri frá því, að ekkert ákveðið
tilboð hafi enn fengist um kola-
farm fyrir bæinn, sem auglýst hafi
verið eftir, að öðru leyti en því,
að í sambandi við kaup á gaskolum,
væri ákveðið að fá 600 tonn af
kolum, et' hægt verður að fá þau
með sama skipi.
Kaupirðu góðan hlut,
þá mundu hvar þú fékst hann.
Sigurjón Pétursson.
J stað Jóhannesar sál. Magnússon-
ar, var samþ. að skipa Jón Jóhann-
esson ökumann, Laugavegi 69, fyr-
ir fátækrafulltrúa, samkvæmt til-
lögu fátækranefndar.
Farsóttasjúkrahús.
Lesið var bréf frá héraðslækni
Jóni llj. Sigurðssyni viðvíkjandi
vankvæðum á einangrun sjúklinga,
er fengju taugaveild, skarlatssótt,
barnaveiki og' aðra smitandi sjúk-
dóma. Franski spítalinn, er undan-
farið hafi verið notaður fyrir þessa
sjúklinga, muni ekki fáanlegur
lengur, því Frakkar komi til með
að þurfa háns sjálfir, og þær 2
stofúr á lofti Landakotsspítalans,
er hafðar hafi verið fyrir tauga-
veika, væru óuógar og óhentugar.
Fyrir það skorar hann á bæjar-
stjórnina að koma upp faisótta-
sjúkrahúsi fyrir bæinn á næsta
sumri. Því án þess mun tæplega
hægt að fylgja fyrirskipunum laga
um einangrun smitnæmra sjúk-
dóma.
Var sárnþ. að skipa þriggja
manna nefnd til að íliuga og koma
fram með tillögur í þessu málJ, og
í hana kosnir: borgarstjóri, Ágúst
Jósefsson og Þorv. Þorvarðsson.
Kola-einokunin
Kolaverðið hefir nýlega verið
lækkað um 23 af hundraði hjá
Landsverzluninni og H.f. Kol og
Salt. Rétt á eftir var reglugerð um
innfiutning á vöruin til landsins
numin úr gildi og dýrtíðarráðstaf-
anahelmildin notuð til þess að
lcoma á ríkiseinokun A kolum.
Alt eru þetta tíðindi svo mikils-
verð, að ókurteisi væri að taka
þeim með þögn, og að sumu leyti
svo athugaverð, að órétt væri að
láta þau fara fyrir ofan garð og
neðan og beiðast eigi skýringa.
Það er erfitt óviðkomandi mönn-
um stjórninni að fá svo greinilegar
upplýsingar um kolasölumálið, að
hægt sé að gera sér glöggar hug-
myndir um það, eins og það er.
„Tíminn“, málgagn atvinnumála-
ráðherrans, hefir þó verið svo vel-
viijaður landslýðnum að flytja
upplýsingar „frá fyrstu heudi* ‘, að
því er sjá má í blaðinu sjálfu, og
eru þær auðvitað góð heimild, )>að
sem þær ná. En þær ná ekki nógu
langt.
Kaupirðu góðan hlut,
þá mundu hvar þú fékst hann.
Sigurjón Pétursson.
Eftir upplýsingum „Tímans“ á
verð á enskum kolum kojnnuin
hingað, að hafa verið kr. 321.20 pi*.
tonu, að meðaltali fyrir 16 skips-
farma, en söluverð kr. 325.00, og
eftir því álagningin kr. 3.80 á smá-
lest. Tilfærir blaðið þessar tölur til
þess að ósanna iunmæli „Vísis“ um
það, að gífurlega hafa verið lagt á
kolin. Blaðið getui' þess um leið, að
„Kol og Salt“ hafi eigi séð sér fært
að sel ja kol þessu verði (svona lágu
verði!), og því fært saman kví-
arnar.
Vér skulum eigi draga í efa sann-
leiltsgikli ýmsra lofsamlegra um-
mæla stjórnarblaðsins um dugnað
og ráðdeild landsverzlunarforstjór-
aima. En leyfilegt mun þó að spyrja
hverju það sæti, að kolin hafa orð-
ið oss svo miklu dýrari en Dönum
og Norðmönnum. Vegalengdin er
að vísu önnur og samningarnir
ekki eins, sem þeir hafa við Breta
og við. en verðmunurinn gerir þó
miklu meira en vega þetta upp. Og
ummæli „Tímáns“ um „Kol og
Salt“ eru ekkert hrós félaginu, ef
sönn eru. En sú hugsun flökrai*
víst að mörgum, að eigi sé það a£
Iandsverzlunarsamkeppninni einni
saman. sem „Kol og Salt“ hefir
fært saman kvíarnar, heldur ef til
vill af hinu, að ekki hefir verið
notað nema lítið brot af venjulegri
kolaeyðslu síðustu árin, vegna dýr-
leikans. Og ekki óeðlilegt að það
Iiafi haft áhrif á viðskiftaveltu
stærstu kolaverzlunarínjiar í land-
inu. Nýr keppinautur þarf ekki að
koma þar til greina.
En fyrst sannvirði kola þeirra,
sem laiidsverzlunin á nú, er yfir
32þ kr., þá mun hallinn, sem verð-
ur á sölu kolanna, eiga að vinnast
upp á þeim kolum, sem hún kaupir
hér eftir, og þess vegna er gripið
til einokunarinnar, því landsverzl-
unin hefði beðið tjón af frjálsri
samkeppni. Einokunin þurfti ekki
að koma á óvart, því stefna stjórn-
arinnar í verzlunarmálum liefir
seilst í þá áttina frá öndverðu, Og
það er i’ull ástæða til að ætla, að
livenær sem verðfall verður á vöru-
tegund, sem landsverzlimin befir
birgðir af, þá komi ríkiseinokun á
þeirri vöru, svo leng'i sem núver-
andi stjórn fer með völdin.
Einokunarleiðin er ein leiðin a£
mörgum til þess, að bjarga lands-
verzluninni frá hruni. En ýmsir
þeir,. sem veitt hafa athygli
verzhmarrekstri landstjórnarinnar,
myndu fremur hafa óskað þess, að
honum lyki með ófriðnum, eu að
landsmemi fengju einokun í upp-
Kaupirðu góðan hlut,
þá mundu hvar þú fékst hann.
Sigurjón Pétursson.
■