Morgunblaðið - 21.01.1919, Page 1

Morgunblaðið - 21.01.1919, Page 1
Tekj uBkattyrinn Samkvæmt hinum nýju lögum um tekjuskatt, liækkar hann nú mikið á þeim, sem hæstar hafa tekjurnar. Er það algild regla um allan lieim, að skattar hækki mikið eftir því sem tekjurnar eru hærri, og er það eigi nema sanngjarnt.. Aftur á móti er mönnum AÚðast hvar gert að skyldu, að skýra skattanefndum frá tekjum síuum „upp á æru og samvizku' ‘, en hér þurfa menn eklti að gera það, fremur en þeim sjálfum sýnist. Verður því skattanefnd að renna blint í sjóinn — á æ 11 a tekjur manna af handahófi og gera þeim ■ svo skatt samkvæmt þeirri áætlun. Má nærri geta, að slíltt getur aldrei nákvæmt orðið. Gerði það að vísu ekki svo mikið til meðan tekjur manna voru lægri og skatturinn af þeim lágur. En nú er öðru máli að gegna, þegar árstekjur einstakra Ímanna nema hundruðum þúsunda króua. Þetta áætlunarfyrirkomuiag cr ó- hafandi. Það má þó búast við því, að skattanefndin áætli tekjurnar svo ríflegar hjá hverjum manni, að hún sé þess nokkurn vegiim full- viss, að þær hafi ekki verið mikið meiri. Þó er það hvergi nærri alt af, að húu áætli tekjurnar eins háar og þær hafa verið — og það er ■ einmitt þ e 11 a, sem veldur því að menn eru tregir á að gefa upp tekjur sínar. Þeir búar.t við að græða á því, að þegja um þær. En Íhinir, sem órétti þykjast beittir, kæra auðvitað og fá skatt sinn lækkaðan — og svo er það búið. Höfum vér og sannfrétt, að all- margar kærur út af hinni nýju tekjuskattskrá. séu þegar komnar fram. Tekjuskráin hefir eun eigi verið lögð saman, en fæsta mun grmia, hvað hækkmiin er 'gífurleg, saman- borið við það, sem áður var. Allur tekjuskattur hér í Reykiavík nam kr. 26810.75 árið 1915. Var !:ann miðaður við tekjur manna árið 1913, eða síðasta friðarárið. En nú eiga fjórir menn, hver um sig, að gjalda hærri tekjuskatt heldm- en þessari npnhœð nemur. Hver mundi hafa trúað því fyrir fjórum árum? StýíimanRaskólinn. Eitt af því, sem gera þarf og það sem fyrst, er að breyta fyrir- komulagi á kenslu og prófum við stýrimannaskólann. Eins cg hann er sóttur nú, sem væri hann gagnfræðaskóli, þar sem nemendur fá aðgang-eftir vild, sem gjörsneyddir eru þeirri nauðsyn- Iegu þekkingu, sem stýrimanni ber að liafa, og ætla sér þó að aflolmu prófi að taka að sér yfirmensku á skipum, mun endirinn verða sá, að hvert það skip, er hér ræður menn, á ekki völ á öðru en stýrimönnum í hásetaklefann. Sé það íslenzkt skip, veldur slíkt agaleysi, þar sem hver einstakur þykist jafn snjall yfirmönnum og leiðarreikningur fer fram bæði aftur j og fram í. Séu það erlend skip, sem ráða hér háseta, og stýrimenn héðan ráðist sem slíkir, þá er mjög leitt, skyldu hinir prófuðu menn reynast það lé- legir hásetar, að það væri lineysa fvrir sjómannastétt þessa lands og alla landsmenn í heild sinni; en sú verður afleiðingin, geti peir ekki sýrit sig duglega og djarfa há- seta, því útlendingar eiga ilt með að skilja, að stýrimenn hafi eigi þann kost til að bera. Hjá þeim er gangurinn sá, að fvrst er að kunna hásetaverk, áðnr en hugsað er til yfirmensku, en hér fer þetta í öfuga átt, þannig, að fyrst er verið á duggu, þer sem ekkert f æ s t lært, svo er tekið próf við rkólann, síðan reynt að ná í einhver réttindi og síðan er farið að reyna að kynna sér eitthvað, sem háseti þarf að kunna. Þessi gangur er eigi að eins hlægilegur, heldur er hann skaðlegur. í fyrsta lagi er hann skaðlegur nemendum s.jálf- um og í óðru lagi getur ráðning manna, sem ekki kunna almenna. vinnu, haft ýms óþægindi í för með sér fyrir eigendur, vátryggjendur og fleiri. Sú skonnorta, sem fimm menn e.ru ráðnir á til að sigla milli landa, veröur að komast leiðar siunar með þessum fimm mönnum. Meiri vinnukraft þarf ekki, en hann má heldur ekki vera minni. Þess vegna má enginn, þegar á sjóiun er kom- ið, draga sig í hlé. Hásetinn verð- ur að kunna sitt ætlunarverk, við- vaningur (Letmatros) sitt og drengur (Jungmaður) sitt, og gamalt máltæki er það, að í orða- bók sjómanna eigi setningin „é g get ekki‘‘ hvergi að finnast. Tala skipverja kemur til greina þegar framgjald skips er ákveðið; þess vegna verður hver og einn skipsmanna að kunna það verk, sem hann ræðst til að vinna á skip- inu, því eigendur leggja enga aukamenn til. Á íslenzkn fiskiskipunum, og ef- laust annara landa fiskiskipum, hefir ]mð frá byrjun gengið svo til, að það sem einn ekki getur, það er annar látinn gera, og þykir náttúrlegt, en þegar 'ú—6 meun af 25 gera öll sjómamiaverk. á kútter og eigi er hægt að £á fleiri til vinnu vegna vankunnáttu og kæruleysis, þá er komið of mikið af svo góðn, enda afleiðingin sjáanleg þann dag í dag, þar sem sú hngmynd ríkir, að það sem eg get ekki, ]iað gerir hinn. Þetta getur verið gott og blessað þangað til kemur að því, að e g er stýrimaðnr, sem ekkert kanri, en h i n n er máske v i ð- vaningur á skipinu, hann kann það sem hann á að kumm. og liann á að gera fyrir mig það verk, sem eg á að ábyrgjast að sé vel og vand- lega gert, því eg kann það ekki, þá er mi kominn öfugsnúður á línuna og hann veröur að lag’a. Þ r j ú p r ó f v i ð s k ó 1 a n n álít eg hið eina ráð til að berjast gegn þeim hugsunarhætti, að öllu sé óhætt, að þetta og hitt sé full- gott, að alt komi í hendi o. s. frv. Það verður einhvern veginn að koma í veg fyrir það, að menn ráð- ist á (einkum erlend) skip sem stýrimenn og séu sendir í land aft- ur eftir fáa daga sem óliæfir; slík vanvirða má ekki eiga sér stað ög sízt nú, þegar íslendingar sjálfir fara að flytja vörur á íslenzkum skipum milli landa. Sé vilji manna frásneiddur því að vilja læra það sem atvinnuvegur krefst að knnn- að sé, þá verða lögin að taka í strenginn. Hið eina ráð til þess að kippa einhverju hér í lag álít eg það, að á skólanum verði haldin þrjú próf, sem þeir, er millilandasiglingar ætla að stunda, verða að leysa af hendi: 1. annarsstýrimaunspróf, 2. yfirstýrimannspróf, 3. skipstjórapróf, þannig, að enginn gæti tekið yfir- stýrimannspróf, nema sá sem sann- að gæti, að hann hefði siglt annar- stýrimaður í eitt ár, og enginn gengið upp til skipstjóraprófs, nema sá er siglt hefði fyrstistýri- maður eitt ár. Með þessu móti ynn- ist það smátt og smátt, að menn færu að vanda sig og sjá þörfina til þess. Það er engin ástæða til að troðfylla skólann vetur eftir vetur, því landinu er drýgra, að eiga 10 góða stýrimenn, sem kent geta skipshöfnum sínum verk og skips- siði, en 100 stýrimenn, sem þurfa að fá tilsögn og leiðheiningar hjá hásetum þeirn, sem þeir taka að sér að segja til verka, því eins og strik- inu er haldið nú, fer alt í öfuga átt. — Fiskiskipstjóraprófið sé eins og nú er. Skólatímann þarf að lengja hér og tvö þurfa prófin að vera á skólamisseri hverju. Það getur orð- ið peningasparnaður fyrir marga og að mörgu leyti aðgengilegra. Kaup kennaranna má ekki skera við nogl sér, því það verða menn að muna, að kenslan er örðug og umfangsmikil og skóli þessi undir- býr menn, sem eiga að verða fram- kvæmdarstjórar við aðalatvinnu- rekstur landsins (bæði fiskveiðar og vöruflutning), og þá menn, sem á erlendum höfnum eiga að halda uppi heiðri og virðingu þessa lands, sem eiga að fara svo með hin ís- lenzku skip, að þau mótmæli því orði, sem á okkur liggur, að við séum sóðar. Áhrif og álit skólans verða mest og bezt, þegar hann fer að senda frá sér yfirmenn, sem frá prófborð- inu geta fari á skip sem stýrjmenn og sýna sig þar starfinu vaxna. Þá er skólinn orðinn það sem hann á að vera. Reykjhvík, 19. janúar 1919. Sveinbjörn Egilson. DAGBOK "| Stúdentafélagiö heldur fnnd í kveld kl. í), í Iðnó, uppi. Prófessor Sig. Nor- dal segir frá Háskólanum í Oxfoid. Smjörlíkisverksmiðja liefir nú verið sett á stofn hér í bæ og er tekin til starfa. Hefir hún bækistöð sína í hús- um Sláturfélags Suðurlands. Hún er rekin af hlutaielagi, sem nefnist „Smjörlílrisgerðin í fíeykjavík‘ ‘. Dagsbrúnarmenn, sem eru í vinnu lijá bæjarstjórn, eru kvaddir á fund í kvöld til þess að ræöa um kaupgjald- ið í sambandi við þær uinræður, er fóru fram á síðasta bæjarstjórnarfundi um það efni. Myndir frá Kötlugosinu, teknar austur í Mýrdal meðan gosið var sem !JKaupirðu góðan hlut, :'þá mundu hvar þú fékst hann. Sigurjón Pétursson. Kaupirðu góðan hlut, þá mundu hvar þú fékst hann. Sigurjón Pétursson. Kaupirðu góðan hlut, þá mundu hvar þú fékst hann. Sigurjón Pétursson. Kaupirðu góðan hlut, þá mundu hvar þú fékst hann. Sigurjón Pétursson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.