Morgunblaðið - 01.03.1919, Side 1

Morgunblaðið - 01.03.1919, Side 1
laugardsg 8. srpngr 1 tuara 1919 108 íðlnblftft Ritstjómarsími nr. 500 Ritstjóri: Vilhjálimir Pineen ÍR&fnldnrprantsmiðj# Aígrtiðiihuím! ar. 50® Ameríksk veiðiaðferð. Til þess að geta sent sem allva mest af kjöti til Evrópu, heiir matvæfaráðsmaður Bandaríkjanna skorað á þjóðina að hafa fisk sem allra mest til manneldis. Og nú vxll svo vel tii, að í Kyrrahafinu úir og grúir af alls konar fiskum með- fram ströndmni. En sæljónin eru þar vargar í véurn, því að þessi stóru dýr eru svo gráðug, að þau geta etið þunga sinn á hverjum degi. Og þarna er slíkur aragrúi a£ þeim, að þau i\vra að miklum mun fiskveiðarnar og Bandaríkjamenn, sem ekki láta sér alt fyrir brjósti brenna, hafa því afráðið að reyna að útrýma þeim. Á myndinni hér að ofan sjást fyrst sæljón, sem ýmist sleikja sól- skinið á ströndinni eða svamla í flæðarrnálinu. Þegar þessum dýr- um hefir verið útrýmt, búast Ame- ríkumenn við miklu meiri fiskveið- urn, og þá er um að gera, að færa sér það í nyt á sem hagkvæmastan hátt. í því skyni hefir Vestur-Sví- inn Lybeck kapteinn fundið upp nýja tegund veiðiskipa, og sjást myndir af þeim hér — önnur af hlið og liin a£ framstafni. Skipið er líkast fljótandi vei’ksmiðju, en hef- ir gin eins og hvalur og gleypir alt., sem fyrir verður. Allir þeir fiskar, sem berast inn í þetta gin, sogast með dælu upp á þilfar skips- ins og eru þeir jafnharðan að- greindir og að þeim gert. Tvær sögur Geysileg ósköp af erlendum sög- um hafa verið þýdd og gefin út á SbI. tungu. Á síðustu áratugum hafa slíkar ritsmíðar hlaðist að hvaðan- sefa, svo mjög, að þær hafa borið höfuð og lierðar yfir aðrar bók- hientir — að líkamsvexti. Engin útgáfa borgar sig jafn vel °g útgáfa sögubóka, því að þær fcaupir öll alþýða xnanna. Þær eru nautnalyf, líkar víni og tóbaki að því, að löngun í meira vex við nautnina. Sögurnar geta líka haft í sér fólgið eitur það, er verkar á sálina á svipaðan hátt og alkohol og nikotiu á líkamann. Má nefna „Alfred Dreyfus“ og „Hinn ótta- legi leyndardómur“ sem dæmi þeirra sagna, sem eitri eru þruixgn- ar. En meginþorri almennings er ekki röksýnn á bókinentir, því mið- ur, og varast ekki óþverrann. íslcndingar — og hver síí þjóð, er veitir erlendum straumum inn í bókmentir sínar — á úr að velja mestöllu því, er ritað hefir verið á mannamáli, illu og góðu. Virðist því einsætt, að ekki skuli krjúpa að skólpreununum sér til svölunar, heldur þeim lindum, er hreinastar eru og heilnæmastar. Að minsta kosti má telja það bíræfni að þýða og gefa út skaðlegan óþverra, ekki sízt af því, að jafn auðvelt mun vera að ná í meðallags-bókakost, og afbragðsrit erix alls ekki tor- fengin. (Þau eru að vísu dýrari í útgáfu, því að þau þola ekki tvílit- an pappír og vesturheimskt blaða- mál!) Þá er enginn efi á því, að „skáldsögurnar“ hafa ómælis-mikil áhrif á hugsanir maniia og gerðir. Liggur því mikið við, að sögurnar hafi að geyma göfugar og goðar hugsanir og veki hlýjar tilfinning- ar. Má telja, að sögur þær, er það gera, eigi fullan rétt. á sér, þó að þær hafi ekki stórfelt. listagildi til að bei*a. — Pyrir skömmu bárust mér í hend- ur tvær nýútkomnar sögur, þýdd- ar, og var þess óskað, að eg segðí

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.