Morgunblaðið - 24.03.1919, Síða 1

Morgunblaðið - 24.03.1919, Síða 1
MáíUKÍag 24 anarz 1919 6t argangr 131. tolublað Bitstjómarsími m. 500 Ritstjóri Vilhjiiimir ís«loMarp?«nfeu»iSj% Mgiratf*i.«avái3 ií#§ Erl. símfregnir. (Frá fréitaritara Morgunblaðsins). Khöfn, 22. marz. Frá Wien er símaS, a8 þess sé krafist, að Karl kefsari afsali keis- aratign siími fyrir fult og alt og yerði á hrott úr ríkiuu. Bretakon- ungur hefir hoðið honum að setjast að í Englandi. Khöfn, 23. marz. Frá París er símað, að ítalska friðarnefndin liafi tilkynt að hún gangi af friðarráðstefnunni nema því að eins að ítalir fái Fiume. Gengi erlendrar myntar. 100 krónur sænskar kr. 106.50 100 krónur norskar — 102.25 Sterlingspund — 18.30 Dollar — 4.00 Úr icftinu. London, 21. marz. Ensku verkföllin. Kolanefndin hefir lagt fram til- iögur sínar og von er um að sam- komulag náist um þær við náinu- mennina. V erkamanna-þingmenn, og þar á meðal foring'jar námu- mauna, eru þeirrar skoðunar, og' einn mikilsmetinn fulltrúi námu- manna á þingi, hefir lýst því yíir, að í þeim tillögum séu uppfyltar kröfur námumanna, sem þeir hafi barist fyrir í þrjátíu ár, sem sé, að námurnar verði ríkiseign (natio- nalization of). Hann kveðst vona, að það tækist að £á námumeun til að fallast á þær. Lloyd Georges forsætisráðlierra komst svo að orði, við blaðainann í París, að hann skildi ekki þá menn, sem hvatt gætu til ofbeldis- verka, þegar slík tilboð væru fyr- ir hendi. Tillögurnar sýndu ein- lægan vilja til að leysa svo tir mál- inu, að öllum mætti vel líka. Allenby. Allenby bershöfðingi, sem nú er í'ariíjQ áleiðis til Egyptalands, hefir gefið skýrslu um, úr hvaða lönd- Um» austan Miðjarðarhafs, Bretar X&upirðu góöan hlut, mtusdu hvar þú fékst hann. Sigurjdn Pétumon. 1" Elska litli drengarinn okkar, Nicolai Hartvig Höberg Peter- sen, andaðist á heimiii okkar 19. þ. m. Jarðarförin fer fram þriðjudag 25. marz kl. 2 frá Dómkirkj- unni. Kristín og P. Petersen. Jarðarför Katrínar sál. dóttar minnar, fer fram frá Dóm- kirkjunni, miðvikudaginn 26. þ. ro. kl. 1 e. h. Asthildur Thorsteinsson, geti nú dregið her siim, en það er helzt úr Syriu og Armeniu. Blöðin liafa það eftir Allenby, að járnbrautarlestir geti uú farið ferða sinna milli Kairo og Kon- stantinopel. Ferðamenn, sem ekki vilja fara sjóvegimi yfir Miðjarð- arhafið, geta því komist til Egypta- lands landveg alla leið frá Ostend. Astandið í Egyptalandi er talið alvarlegt, og brýn nauðsyn á, að grípa þar í taumana. Frá Þýzkalandi. Óháðir jafnaðarmenn og íhalds- menn í þýzka þinginu gera Sheide- mannsstjórninni svo erfitt fyrir, að henni er orðið mjög hætt. Eink- um eru þeir óháðu hættulegir, og sagt er, að þeir hafi tekið hönd- mn saman við Spartacnsmenn, um að koma öllum völdum í hendur hermanna- og verkamannaráðanna. Bolshvíkingar og Frakkar berjast. Franska setuliðið í Nikolajeff, við Svartahafið, varð að hörfa þaðan eftir snarpa orustu, og komst sjóleiðis til Odessa. Talið er að 5000 Bolshvíkingar hafi fallið í þeirri viðureign. Hlutleysingjarnir á friðar- fundinum. Þjóðahandalagsnefnd friðarráð- stefnimnar hefir setið á fundum úieð fulltrúum Svissa, Svía, Dana, Hollendinga og Spánverja, til þess að heyra tillögur þær, sem þeir kynnu að hafa fram að bera, til endurbóta á fyrirkomulagi banda- lagsins. Þýzku skipin í Chile. Chile-blöð segja, að stjórnin þar ætli bráðlega að afhenda Banda- ríkjunum 84 þýzk gufu- og segl- skip, sem legið hafa þar í höfn- um.' Skip þessi verða flest xtotuð til matvælaflutniuga til Norður- álfunnar. Fáninn. Kaupirðu góðan hhit, þé mundu hvar þú fékat hann Sigurjön Pétursson. Ný.verið fékk eg bréf frá kunn- ingja mínum, sem, er hann skrif- aði hréfið, var staddur á Lagos Bay í Portúgal. Bréfið endar svo, „þú lætur eng- an sjá“, en þar eð mér virðist. svo, sem sá kaíli þess, sem eg stelst til að birta, komi fleirum við en mér einum og í þeirri von að kunningi minn fyrirgefi mér þetta og sjái það, að slíkt atriði ekki má lig'gja hjá einum eða tveim mönnum, þá set eg hér kafla úr bréfinu, svo hann komi fyrir almennings sjónir: „.... Yið þurfum að fá fána voi'n seni fyrst inn í hina alþjóða signalbók; hún er í hverju útlenzku skipi, á hverri signalstöð 0. v.; það væri sá fljótasti og rétt- asti máti að tilkynna hinn xiýja fána út á við. Beiðni um slíkt send- ist til Board of Trade eða í gegnum utanríkisstjórnina til hinnar ensku, en Board of Trade kemur þessu í fi'amkvæmd. í samhandi við þetta væri ekki úr vegi að fá nokkur íslenzk staðanöfu sett í signalbókina, bæði bæjanöfn- in og heiti hinna helztu kauptúna, auk heita á ýmsu með ströndum fram og nöfn á helztu fiskiverum. Fyrir heila þjóð og sérstaklega þar sem um stórt land er að ræða, er hlægilegt að sjá bau nöfn í sign- albókinni, sem tákna eiga helztu viðkomustaði skipa á íslandi og hin nauðsynlegustu leiðarörnefui. Kaupirðu góðan hlut, þá jnundu hvar þú fékst hann. Sigurjdn Pétursaon. í Norsk Signalbog frá 1914 stend- ur svo: Island, Reykjavik, Sveins- eyri, Talknafjord, Dyrefjord, Ö- fjord, Hólar, Seydisfjord. Þetta er alt. Skyldu erlendir farmenn vita mikið um Iandið okkar af þessum skýringum. Að sliaðlausu mætti sleppa úr 2—3 nöfnum af hinum umgetnu, eru þá eftir 5 nöfn í hók- inni, senx nota má. Þess er að gæta, að í bók þess- ari eru tjilgréind 11111 200 nöfn frá nyrsta odda Noregs til Bergen, en alls um 350. Svíþjóð er með 220 nöfn og Daxxmörk með 215. ITvert af þess'um nöfnum hefir einkennis- hókstafi í signalbókinni og þau þavf ekki að stafa, sem bæði er tímatöf og getur misskilist. Eg tel víst, að þótt Island fengi um 100 nöfn sett inn í bókina‘ að það ekki að eins fengist, heldur að því yrði tekið með þakklæti. Nú mun ekki líða langt þangað til Dan- mörk lætur gefa ixt nýja signalbók,. enda mesti hörgull á þeim nú orðið. Væri því hentugur tími til þess að þetta verði athugað heima, ef ekki er þegar bxiið að því. ■ Eftirfylgjandi staðir fin'st mér að ætti að komast inn í bókina: ísland, Reykjavík, Akranes, Borgarnes, Búðir, Öndverðarnes, Breiðifjörður, Ólafsvík, Grxindar- fjörður, Stykkishólmur, Hvamms- fjörður, Gilsfjörður, Flatey (á Breiðafirði), Látrabjarg, Látraröst, Patreksfjörðui’, Tálknafjörður,Arn- arf jörður, Bíldudalur, Dýraf jörður, Þingeyri, Önundarfjörður, Súg- andafjörðxír, ísafjarðardjúp, Bol- ungarvík, ísáfjörður, Hesteyi'i, Að- alvík, Hornhöfn, Húnaflói, Norður- fjörður, Reykjai’fjörður, Hólmavík, Borðeyri, Hvammstangi, Blönduós, Skagasti’önd, Skagatá, Skagaf.jörð- vxr, Sauðárkrókur, Siglnfjörður, Eyjafjörður, Akureyri, Skjálfanda- flói, Flatey ( á Skjálfanda), Gríms- ey, Húsavík, Mánaeyjar, Axarf jörð- ur, Kópasker, Melrakkaslétta,Rau£- arhöfn, Þistilf jörður, Þórshöfn, Langaxies, Bakkafjörður, Héraðs- flói, Borgarfjörður, Seyðisfjörður, Dalatá, Mjóifjörður, Norðfjörðnr (á Austurlandi), Gerpir, Skrviður, Eskifjörðvvr, Reyðarfjörður, Fá- skrúðsfjörður,Stöðvarfjörður,HvaI- bakur (sker), Djúpivogur, Eystra-. horn, Vestrahorn, Mýrabugt,Horna- fjörður, Ingólfshöfði, Meðallands- bugt, Vík, Portlxyid, Vestmanna- eyjar, Eyrarbakkabugt, Stokkseyri, Eyrarhakki, Þorlákshöfn, Grxnda- v,k, Geirfuglasker, Eldey, Reykja- nesröst, Reykjanes, Faxaflói, Kefla- vík, Hafnarfjörður, Grótta.“ Legg eg svo þennan kafla hréfs- ins undir dóm almennings, þ. í mér fiivst hann varða svo marga. í það KaupirBu góBan hlut, þ& mundu hvar |ú fékst hann* Sigurjón Pétursson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.