Morgunblaðið - 06.09.1923, Blaðsíða 2
AUKGliN KLA91V
Höfum fyrirliggjandi:
HandsápuPy
Knistalsápuy
Stangasápuy
Blegsóday
Sóda mulinn,
ylli toc skurepulver
Slitlir r einhápur
og
fyrir karimenn og unglinga
nýkomið í
Bpauns vepslun
Aðalstræti 9.
og alt Nýjatestamentið á 126 önn-
ur mál, fyrir tilstilli fjelagsins.
Að sjálfsögðu hugsar fjelagið
jafnframt um að allar þessar b'ibl-
íur, testamenti og guðspjöll, safn-
ist ekki saman í bókhlöður. Það
hefir sjerstaka biblíusala víða um
beim, og víðast hvar eru kristni-
boðar sjálfboðaliðar í þeim efnum.
.Árið 1920—21 ljet fjelagið þannig
af hendi 8,655,781 biblíurit, var
það um 140 þús. meira en árið
áður, í þeim hóp voru 801,766
heilar biblíur og 727,307 Nýja-
testamenti, hitt alt einstök rit.
Langmest fór til Kína, um þrjár
miljónir, til Indlands og Ceylon
fóru 1,725,000 eintök, til Japan
og Kína 700,000 og heima í Eng-
lfindi seldust 809,000 eintök. —
Tekjur fjelagsins (1920—21) voru
375,528 sterlingspund, en útgjöld
447,183. Rekstrarhafllinn var svo
únikill að annaðhvort var að gera:
draga saman seglin, eða auka
tekjumar stórum. „TJtlitið er svo
alvarlegt í heiminum“, sagði fje-
lagið, „að fyrri leiðin er ófær,
og því voru tekjurnar auknar ineð
s.tálfvilja gjöfum um 75,000 stpd.
En jafnframt var hækkað verð á
enskum biblíum að stórum mun.
Évrir ófriðinn kostaði ódýrasta
enska biblían ekki nema hálfan
shi'lling/ (4*5 aura) en nú kostar
sama útgáfa 2 shillings.
Fjelagið gefur og út blindra
raanna biblíur á ýmsum málum
með upphæklcuðu punktaletri, sem
lesa má með fingrunum. Ensk
biblía með því letri er í 39 bind-
um, sem alls eru 5456 blaðsíður
og þarf fyrir þau 2 metra og
25 eentimetra langa bókahillu —
Hvert bindi kostar fjelagið að
meðaltali sex og hálfan shilling,
en er selt fyrir iy2 shilling. —
Hver blindur maður í Englandi
getur fengið eitt bindi ókeypr’s,
ef meðmæli sóknarprests hans
fylgja beiðni hans.
Árið 1921—22 var enn bætt við
12 nýjum tungumálum, sem e*.k-
ert áttu áður af biblíunni. Eitt
þeirra mála töluðu ekki nema um
1500 manns, en þeir fengu samt
Jóhannesarguðspjall á sitt mál.
Tekjur fjelagsins liðið ár voru
394,230, en útgjöld 382,265 ster-
lingspund. Fjelagið hefir alls
látið af hendi, (selt og gefiðþ
síðan það var stofnað 328,059,861
biblíur og biblíurit.
S.G.
-----o-----
t
trt MjHflr.
Síðdegis í gær andaðist á heim-
ili sínu hjer í bænum frú María
Ólafsdóttir, ekkja Björns Guð-
mundssonar kaupmanns, 78 ára að
aldri, mikilhæf kona og vel met-
in. Yerður ihennar nánar minst
síðar.
Erl. símfr^gnir
frá frjettaritara Morgimblaðafau
Khöfn, 5. sept.
Hörmungarnar í Japan.
Talá dauðra í Japan af afleið-
ingum jarðskjálftanna, er nú tal-
in vera 500.000. Fjárhagslegur
skaði áætlaður um 1000 milj.. stpd.
Þjóðbandalagið að klofna.
Þjóðbandalagið er að því komið
að klofna. Fulltrúar Norðurlanda,
Belga og Eystrasaltslandanna,
bóta að fara frá Genf.
Skáldsöguverðlaun Gyldendals
Rithöfundinum Anker Larsen
hafa verið veittar þær 70.000 kr.,
sem Gyldendals-forlag hjet þeim í
fyrra, er1 skrifaði besta skáldsögu.
-------o-------
Frá ömsurn hliðum.
Eftir Hvíting.
Durgur — Ratatöskur.
Durgur ..Alþ.bl.“ skrifaði fyrir
nokkru í blað sitt tilraun til lýs-
ingar á mjer, og sýndi mjer þann
sóma, að líkja mjer við vitra og
og stórfenglega skepnu. Bendir
það til þess, að jeg sje stórkost-
legur í augum hans, minsta kosti
ekki neitt smámenni, og vil jeg
engan véginn mótmæla því áliti
X>
Umboðsmenn:
I. Brynjólfsson & Kvaran.
hans. Mjer þykir lofið gott —
e::ns og öðrum dauðlegum mönn-
um. Ennfremur mátti skilja það
á grein hans, að j'eg væri Jón
Björnsson blaðamaður. Jeg hefi
heldur ekkert á móti því, að
hann álíti mig vera þann mann
— skal hvorki játa því nje neita.
Mjer fellur flest vel í geð, sem
r. B. skrifar. En jafngott er, að
Durgur vaði enn í villu og
svima um mitt rjetta nafn, og
mun jeg því ekki að svo stöddu
flíka því hvorki við hann nje
aðra.
En hver er Durgur?
,,Æ sjer gjöf til gjalda“.
Durgur befir reynt að lýsa mjer.
Ekki er nema sanngjamt, að jeg
reyni að gera honum sömu skil
— og það því fremur, sem hann
er ekki ó'kunnur lesendum blað-
anna hjer undir þessu nafni.
Durg verður ekki líkt við neitt
stórhveli. Til þess er hann of
lítilmótlegur'. Allar lífsverur,
sem nú eru á jörðu, eru honum
æðri. Maðkurinn í moldinni, ví-
umar í fiskinum, Pærilúsin á
fjenu, skelfiskurinn í fjöruborð-
inu, marglittan í sjónum, jafn-
vel reikult, rótlaust þangið —
alt er þetta honum meira, þótt
smátt sje og ekki ofarlega sett
í tignarstiga náttúrunnar. Þó er
Durgur skapaður í mannsmynd.
En maðurinn er metinn eftir því,
hvert 'er gildi bans fyrir samtíð
cg framtíð. En giláí Durgs er
minna en ekki neitt — það er
neikvætt. Aumustu og vesælustu
vemr jarðarinnar em honuim því
æðri. Vegna þess, að annar mæli-
kvarði er lagður á gildi þeirra
en mannsins.
Jeg sagði, að Durgur væri
skapaður í mannsmynd. Því mið-
U" — fyrir okkur hina mennina.
F,n myndin er þessi: Hann er lít-
ill, væskilslegur, fattvaxinn,
herðakúptur, hálsmjór, svart-
hærður, höfuðljótur, strískeggj-
aður, andlitsmagur. Hann minnir
á hvolp, sem flækst hefir um
allar sveitir landsins og aldrei
fengið hundsfylli. En þó er ekki
►
hægt að líkja honum við svo
trygt og viturt dýr. Það væri
að sýna því mikið órjettlæti.
Ekki má þó skiljast svo við
þessa lýsingu, að ekki verði
fundin líking með Durg og ein-
hverri skepnu í jörð eða á. Jeg
vil sýna honum sömu kurteisi
og hann sýndi mjer. En þá verð-
ur að láta það nægja, að líking-
in nái aðeins til innrætisins, en
ekki til útlitsins.
Jeg sagði áður, að allar lífs-
verar, sem væru nú á jorðu,
væru honum :eðri. En í goða-
fræði forfeðra vorra er sagt frá
íkoma einum, er Ratatöskur
Niuðsynlegar bakur
ávalt fyrirliggjandi á skrifstofu vorri, og hafa
nú verið settar niður i verði.
Þjónustubækur prestakalla:
Helgisiðabók (Hanöbók presta),
Prestþjónustubók (íDinisterialbók),
Sóknarmannatal (Sálnaregistur),
Fæðingar og skírnarvottorð, í blokkum á 50 stk. /
j
Skipa-dagbœkur:
Leiðarbók, Leiðarbókaruppkast,
Vjelaöagbók, Vjelaðagbókaruppkast,
Leiðarbókarhefti (f. Stvrimannaskólanemenður).
Einkunnabœkur:
Fyrir barnaskóla og kvennaskóla,
— gagnfræðaðeilð Mentaskólans,
— lærðómsðeilð Mentaskólans.
Reikningsbækur sparisjóða:
Aðalsjóðbók, Dagbók bókara, Innheimtubók,
Innstæðubók, Lánabók, Skulöbinðingabók,
Sjóðbók fyrir innlög, Víxilbók.
ísafoldarprentsmiðja h.f. II1
hjet. Sá bar róg milli róta og
lims asksins Yggdrasils — milli
amarinnar í toppnum og drek-
aus við rótina. Innræti Durgs
er samskonar og Ratatösks —
hann ber róg milli allra greina
þjóðarmeiðsins, æsir og elur á
sundrung og tvístringi, hleypur
eins og Ratatöskur með óvjldar-
orð milli þeirra, sem við rætur
meiðsins búa og hinna, sem haf-
ast við í liminu. Að rægja var
iífsstarf íkornans. Að sundra og
ósætta er lífsstarf Durgs. Innræt-
ið er náskylt.
Þannig er Durgur.
-------o-----
iilsuMjp huenna.
Nýlega er komin hjer út bók,
sem heitir Heilsufræði ungra
kvenna, eftir norska konu, —
Kristiane Skjerve. En þýðandinn
er ungfr. Dýrleif Arnadóttir cand.
phil. Á íslensku hefir ekki áður
vtrið til samskonar rit, eða heilsu-
fræði, sem sjerstaklega væri ætl-
uð konum og hefir þó áhugi
manna á ýmsum heilsufræðilegum
efnum farið vaxandi á síðari ár-
um og þekking manna aukist þar,
sjálfsagt ekki síst fyrir áhrif frá
heilsufræði Steingríms Matthías-
sonar og riti Guðmundar Hann-
essonar og nokkuð aúkinnar skóla-
kenslu í þessum efnum. Annars
befir menn greint nokkuð á um
það, hvernig, eða að hve miklu
leyti ætti að skrifa um eða kenna
í skólum sum at.riði þessara mála,
einkum þau, er að kynferðismál-
um lúta. Þýðandi þessa rits tek-
ur fram sína skoðun á þessum
efnurn í eftirmála bókarinnar, þá
sem sje, „að hispurslaus fræðsla
um kynferðismálin'1 sje öflng
yörn gegn þeim mannfjelagsmein-
um, sem kynferðismálin, eða van-
þekking á þeiim, og kynsjúkdómar
ýrnsir hafi valdið. Út frá þessu
sjónarmiði er bókin líka skrifuð.
En hún hefir í upphafslandi sínu,
Noregi, náð miklum vinsældum,
var verðlaunuð þar af bandalagi
kvenna, sem besta rit á þessu
s\ iði. En það er svo, eins og Guð-
mundUr Thoroddsen segir í for-
málanum fyrir íslensku þýðing-
unni, að „á erlendum málum eru
til fjöldamargar bækur um þetta
efni, en mikill meiri hluti þeirra
e:- með því marki brendur, að
segja aðeins undan og ofan af
og taka svo á efninu, sem það
væri einhver leyndardómnr, er
ekki mætti tala hátt um, og
margar þeirra svo, að best er að
vera laus við þær“.
Efni þessarar bókar er í stuttu
máli þetta: Þróun og æxlun jurta
og dýra. Kynfæri mannsins.Æsku-
skeiðið. Iíjónabandið. Meðgöngu-
tíminn. Fæðing og sængurlega.
Næring hvítvoðungsins og fóstur.
Kynsjúkdómar. TJppeldi og um-
sjá æskulýðsins. Erfðir.
Það má vel vera, að sumir imis-
brúki að einhverju leyti slíkarbæk
ur, eða að þær nái ekki altaf til-
gangi sínnm, eins og mótstöðu-
menn náinnar fræðslu í kynferðis-
m&luim halda fram. En þegar
rjett er á haldið ætti ekki að
vera hætta á slíkn, heldur þvert
á móti. Og með þessu riti hefir
verið valiun góður leiðarvísir (þó
altaf þurfi auðvitað að leita lækn-
isráða líka) og þó snmsstaðar
kenni óviðfeldins máls, er bókin
yfirleitt vandvirknislega og hisp-
urslaust þýdd.
Frú Smitt.