Morgunblaðið - 16.08.1925, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 16.08.1925, Blaðsíða 8
8 MORCUNBLAÐIÐ Vitið þið hvað PIX ei*‘ þótt skinnið sje skafið“. Kleó- patra skapaði móð og skifti um ibúning daglega. Ifún mun þó hafa fundið hjá sjer þá -Iífsköllun að vera það, sem H. K. Laxness kall- ar „barneignavjel“, engu síður en frú Xanþippa. Um þá miklu bú- konu sagði maður hennar: Hún gefur mjer börn, en hænurnar gefa mjer egg. Iíann var eins og kunnugt er erkislóði, og matmeira að sitja hjá og hjala viö Aspasíu en sækja vatn í pottinn fyrirkonu sína. „Xanþippa átti Sókrates, sú fjekk nóg af honum“. Snoðkollur kvenna er engin nýj ung. Einu sinni fundu rómversk- ar konur upp á því, að skella af sjer hárinu. 0g eftir miðja 19. öld varð þetta tíska í Ameríku. Flest- ar íslenskar konur, sem fóru til Ameríku á árunum 1880—1890, snoðkliptu sig, þegar þær komu vestur. Jeg hefi sjeð fjórar íslensk ar konur snoðkliptar, sem komu frá Ameríku, nokkru fyrir síðustu aldamót. Jeg hygg því, að snoð-J kollur kvenna sje engin nýjung í hinum „malbikaða lieimi“, þótt ó- skaplega mikið sje ritaö og rætt um þetta fyrirbæri í malbikuðu löndunum, eftir því sem H. K. L. segir. Það lítur út fyrir að mennirnir sjeu að verða að andleg iim dægurflugum, og hættir að muna liðna tímann. Þeir muna ekki stundinni lengur, að fátt er nýtt undir sólunni, Undarlegt er það, hve karlmenn hafa oft. borið hreldan hug vegna itískuháttu kvenna. Kannast ekki margir við ,,sóninn“ lijá Kató, Karlamagnúsi, Guðmundi Berg- , þórssyni, Bjarna á Siglunesi o. s. frv. Guðmundur orti „Skautaljóð- in“ frægu. Hann hæddist mjög að fiöfuðbúningi kvenna, t. d. faldin- um. Út af því reis mikil ljóða- deila. Bjarni orti um tískubúning kvenna. Þar er þetta: „Ó hvað mín sæmd og rausn upp rís / með röndótta svuntu úr Paradís / og herðaklút himneskan, ' gulldregin er á hornum hans / horfa munu piltar á þann“. Þessu svaraði lcvennagidlið Sigurður Breiðfjörð. Þetta er 2. hendingin iir svari lians: „— .-------Þær lirósa sjer fcetur hreinlátar, en hinar ódáms- kindurnar' ‘. Annars má geta þess, að oft hafa það verið karlmennirnir, sem hafa kent konum nýja tískuhætti. Þeir eru líka hjegómagjarnir og tískudáendur eins og þær. Þótt það sje nokkuð á annan veg og yfirleitt minna beri á þessu smá- sálareðli hjá þeim. Það voru ekki ' konur, sem fundu upp á því fyrst að vera öðruvísi klæddar en karl- . menn. Oft hefir líka kirkjan og ríkisvaldið skipað á um sumt í i fcúningi kvenna suður í löndum ; og það síðar haft smitandi áhrif 1 frá landi til lands. Hygnar og liag sýnar konur á íslandi í fornöld vildu heldur ganga í setgeirabrók- nm en í opnum buxum, sem eru heilsuspillandi og ófagrar. En karl mennirnir hafa víst ekki kunnað því vel. Það var sem sje sett í lög af karlmönmun, að það skyldi metin skilnaðarsök milli lijóna, ef kona „skerst í setgeirabrók“. Lúð vík 14., með því nafni, kendi hirð konum sínum að ganga í silkisokk um og hafa á fótum skó, með 10 þumlunga háum hælum. Hann klæddi þær líka í út.þöndu skíðis- pilsin, sem voru 4 álnir í þvermál. með löngum silkislóða. Einnig skip aði hann stúlkunum við hirð:na að taka upp þann enska tískuhátt, að hafa hárið strokið upp í álnar- háa strýtu utanum þar til gerða höfuðgrind. Með þessum hárbún- aöi gátu þær illa legið eða sofið. En þetta þótti fínt. Og heldur vilja sumir deyja, jafnvel úr hungri, eða glata nafni sínu, en að yfirgefa tískuna eða móðinn. Eitthvert ástarvælu skáldið ‘fann upp á því að syngja kven- mannsmittinu dæmalaust lof. Það var því lengi móðins hjá konum I að vera mittisgrannar. Þær lögðu mikiar þrautir á líkamann til þess •að gera hann vanskapaðan. Karl- mennirnir smíöuðu lífstykkisteina svo konur gætu reirt sig saman og fengið líkan vöxt og sum skor- dýrin. Skáldin sungu sí og æ um „grönn“ eða „mjó“ mitti. Því hærra sem ljet í skáldunum um ,,mittin“ og þeir góndu meira á þau, þess fastara reirðu stúlkurn ar lífstykkið um sig. Nú, þegar þær eru hættar þassari heilsudrep- andi heimsku, þá taka karlmenn- irnir upp lífstykkin og reira sam an á sjer miðjuna! Margt fleira hafa konur lært af karlmönnum, sem þær eru svo ávítaðar fyrir, t d. að drekka vín, reykja o. s. frv. Það mun satt vérá, sem skáld ið kvað: „Guð hefir skapað. vífin veik, en veikari menn þau gerðu“ Jeg hygg, að mest af tískutildri kvenna stafi af því, að þær vilja þóknast karlmönnunum sem best. Þær hafa tekið eftir því, að þegar einhver kjmsystir þeirra fær sjer búning með nýrri gerð, þótt af- káralegur sje og ófagur, þá hæn- ast margir ungu mennirnir mest að henni. Þá kemur afbrýðissemin og samkepnisandinn vaknar. Ef ungir menn í borginni gerðu til dæmis einskonar verkfall í nokkra rnánuði þannig, að þeir sætu aldr- ei hjá, gengi með nje hjöluöu við snoðkliptar „tískudætur", þá mundu allir kvenlegir snoðkollar! líða undir lok og allar meyjari verða hárprúðar. Tískan þarf nærj ingu, eins og margt annað í ver- öldinni. Vilji þeir eigi kannast við hana, sem hún er uppalin til að þjóna, þá veslast hún upp. Miklu umburðarlyndari eru kon ur en karlmenn, þegar um tísku er að ræða. Þær hafa aldrei ávítað karlmennina, svo vitaö sje, þótt þeir hafi á ýmsum tímum búið sig afkáralega og skift oft um tísku af lítilli hagsýni eða skynsemd. Karlmennimir hafa t. d. ýmist fc-aft hár niður á herðar, verið stuttkliptir um evru, krúnurak- aðir eða liaft 10 marka „parruk“ (hárkollur) á höfðinu. Þeir hafa ýmist verið alskeggjaðir eins og Adam, með vangaskegg, slcegg- kraga, hökutopp, yfirskegg, „ensk an topp“ á efri vör undan nös- i-num, eða þá skegglausir eins og Njáll. Máttur skeggtískunnar er ,nú svo magnaður, að jafnvel karl- ar á áttræðisaldri tæta af sjer alt skeggið, svo kerlingar þeirra þekkja þá ekki lengur.Konur hafa ttkið öllum þessum skeggtísku- þvltingum með þögn og þolin- mæði. En karlmennirnir hafa kveinað og barið sjer á brjóst, jþvenær sem ltonur dyttuðu eitt- hvað að hárbúnaði sínum eða tóku upp nýtt snið á fötum sín- pm, ef ske kynni að þær stæðu betur að vígi í vissri samkeppni við kynsystur sínar. Verið þið rólegir piltar, sem saknið silltimjúku, löngu kvenlokk anna. Þeir koma aftur. Það sem einu sinni hefir verið yndi og augnagaman manna, kemur aftur, bótt það glatist um tíma. Þegar allar stúlkur og konur verða snoð kliptar, eldri og yngri, þá kemur einhver Messalína fram fyrir augu pHtanna með lokka og hár- prúð, eins og ITallgerður og Hrefna. S. Þ. Frá Dal í Dalsfirði, Viðbót við frásögn Sveins Jóns- sonar um daginn. Brjef Einars Baldvins Guðmunds- sonar frá Hraunum, er hann sknf- j igna fyrir ákveðið verð, þegar þarf hann mjer til samferðár heim til sín,- úr því leið mín lægi norður um, til þess að sjá bygð þá, er hinir fyrstu landnámsmenn íslands hefðu búið í, áður þeir gerðust íslendingar. Norðmenn álíta nefni- lega, að Dalir hafi heitið „Fjalir“ í fornöld, og þeir Ingólfur og Hjörleifur átt þar heimili, áður þeir fóru að byggja ísland, og hjeldu Dalamenn, þó mest fyrir forgöngu jungfrúar Vonens, mikla veislu hjá sjer í minningu þess, þegar þjóðhátíðin var hjá oss, og skutu saman fje fyrir uppdrætti af sveitinni, er sendast skyldi ís- landi að gjöf, eins og getið mun hafa verið um í blöðum hjá oss heima. Samskot þessi urðu þá að- eins 1200 kr., en þar eð málarinn vildi hafa 2000 krónur fyrir mynd ina, eftir þeirri hugmynd, sem fyrir var ætluð, var fjeð sett á vöxtu og framkvæmdinni skotið á frest. Sagði jungfrú Vonen mjer, að fjeð væri nú þegar fengið og myndi því bráðum farið til að mála myndina og hún send til ís- lands. Jeg dvaldi 2 daga ií Dölum, og fjekk þar, að sumu leyti sýnis- horn af sveitasiðum Norðmanna, en jeg ætla- ekki að þreyta þol- inmæði þína með öðru um þá, en lítilli frásögu um bóndabrúðkaup, er jeg sá þar. Jeg reikaði þar um tímanlega dags, til að litast um, ásamt fjórum heldri mönnum, er einnig voru gestkomandi í Dölum, og bar okkur þá að húsi einu, er ung hjónaefni voru að týgja sig í: okkur var jafnskjótt boðið inn. Var verið að búa brúðurina í hið norska brúðarskraut, sem er sjer- staklegur þjóðbúningur, er einn eða fleiri í bygðarlaginu eiga og VeB^ðlækkpn á fremköllun og kópíéringu Sportvöruhús Reykjavíkur. (Einar Björi &son ) Húsmseður! Allir vilja hafa kökurnar sem bestar, en til þess þarf að hafa gott hveiti. Þið ættuð því allar að kaupa það í versi. ÞÖRF, Hverfisgötu 56, því þá verðið þið vissar um að fá kökurnar ykkar verulega hvítar og góðar. i maPi 24 versfccæiiL 23 Potd*«n, 27 ?o««btirf KlApparstíg 29. , Málnin líeggfóðup. Nýkomnar miklar birgðir. Höf- um afar fjölbreytt úrval. Einnig: Loftpappír, hvítan, Maskínupappír Panelpappa, —*- Striga. H.f. Hfli St Ljós. aði úr Noregi 1878. i á að halda. Þessi skrautbúningur er fyrst og fremst einskonar mött- Hjer á dögunum hittum vjer ^ ujj yj?jr jiergar 0g brjóst, alsettur Svein Jónsson, og sagði hann þá: málmskjöldum og víravirkis- frá því, að nýlega hefði hann rek-; sjírailji. um hálsinn silfurkeðja og ið sig á í Andvara frá 1879, brjef t negan j henni þrjvi nisti, er hanga frá Noregi. Höfundur þeirra er ofan fyrir brjóstin. um mittið Einar B. Guðmundsson frá Hraun- um, faðir Páls Einarssonar hæsta- rjettardómara og þeirra systkina. Var Einar heitinn í Noregi árið 1878 til þess að kynna sjer ýmis- belti, er mjer virtist svipað eins og á skrautbúningi vorum. Það sem verulegast er þó við búning þennan, er þó hin mikla brúðar- kóróna, algjörð úr glæstum málmi legt er að fiskiveiðum lýtur. Kom | (játúni eða „yltu sijfri) með llang. hann þá að Dal í Firðafylki a | laufum ajt { kring að ofan. heimili Nikku \ onen. Hana hefir j Undaii henni fjellu ýmislega lit því mismint gömlu«konuna, að hún borðabönd niður að mitti og milli hafi aldrei hitt íslending nema þeirra sast hár brúðarinnar ófljett Felixsoninn. En hún er líka 89 að falla uiður um herðarnar. Alt- ara- af var leikið á hljóðfæri (violin) Brjef E. B. G. kemur svo mikið og (jansað! og þegar brúðurin var við sögu Sveins, að vjer birtum albuin, tók hinn leiknasti af pilt- það hjer alt, eins og það var prent að í Andvara. Álasundi 28. desbr. 1878. Jeg gerði krók á leið mína hing- að frá Björgvin, og fór inn í Dali í Firðafylki. Þar búa systkin tvö, er heita Jóhann og Nikka Vonen, unum hana fram á leiksviðið og stje dans með henni, með hægð og gætni samt, svo brúðarskrautið færi ekki :í óreglu. Ekki var gleymt að veita; einn maður gekk um með stóra ölkönnu í annari hendi og ölkollu í hinni, og veitti , liverjum er liafa vildi. Máttum bæði ógift. Hann er hermaður og: .* , , - ,ivið aukagestirnir til að drekka byssusmiður, en hun styrir par í , , ~ . , J , sina kolluna hver; var það oi o- Dölum kvennaskóla,sem er i miklu I ., ,,,. , ,. ’ j svilnð, sem og sja matti a hmu áliti, svo heldri menn senda þang- ’ , v. * 7 hyra og fjoruga viðmoti sumra að dætur sínar víðsveþar að úr landinu, þó flestar frá Björgvin. Voru námsstúlkurnar 40 í skóla þessum, þegar jeg kom þar. Sögðu allir þessa jungfrú Vonen mjög mentaða konu. Hún kann töluvert í íslensku, var vel heima í forn- sögum vorum og yfir höfuð að tala hrifin fyrir öllu íslensku, að mjer virtist svo. Jeg kyntist Jó- hanni Vonen í Björgvin, og bauð brúðkaupsgestanna. Þegar brúður- in hafði sýnt leikfimi sína í dans- inum, var innan skamms gengið til kirkju, og fylgdi því engin við- höfn önnur en sú, að hljóðfæra- leikarinn sýndi leikfimi sína alla leið að sálarhliðinu og ljek þar þangað til allur hópurinn var kom inn í kirkju. Þar varð býsna löng bið eftir prestinura, en undireins og hann kom, gekk söngmaður íkór- dyr og söng þar einsamall vers- ið: „Fyrsta brúður“, o. s. frv. á norsku. Að því búnu leiddust brúð hjónin að grátunum og stóðu þar meðan vígslan fór fram; síðan var sungið eitt vers eftir. Var þá hiuni andlegu athöfn lokið, en byrjað aftur að skemta sjer í veislusaln- um, er jeg nú ekki sá á; en af þvú að sjá einn boðsmanna halda heim til sín um daginn gat jeg ráðið, að vel hefði verið veitt. Mjer var sagt, að bændabrúðkaup í Noregi stæði jafnaðarlegast í 3 daga þeg- ar efnað fólk ætti í hlut, en þessi veisla átti ekki að vera lengur en daginn, og hjelt allur hópurinn á tveimur bátum úr Dölum rjett fyrir rökkrið heim til brúðhjón- anna, með leikarann og fiðlu hans syngjandi í öðrum stafni á stærri bátnum en brúðhjónin í hinum, og ætlaði þar að nota kvöldið efir föngum til að skemta sjer. Síðara daginn sem jeg var f Dölum, var afmæli yngisfrúar Vonens, og hjelt hún þá stóreflis veislu með miklum viðhafnar og kaupstaðarblæ; en á eftir veisl- 'unni var leikinn sjónarleikur : (nefndur „Abekatten“) og var umbúnaður til þess hjer um bil sá sami sem á leikhúsum. Stóð hann liðugar tvær klukkustundir og var j hin besta skemtun. Leikararnir ' voru skólastúlkur og fengu þær góðan orðstír fyrir frammistöðu sína. Þótti mjer slíkt bera vott um rausn þessa fólks (Vonens) að kosta til hans jafnframt veisl- unni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.