Morgunblaðið - 11.03.1927, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
| ®00011333301!
I Hugl^singadagtók
Vídskiftí.
Nukkrir sjómenn óska.st til róðra.
Trpii!. á»Hverfisgötn 06 A, frá kl. 12
• tit 1 í dag.
FaJlegt uppsett hundsskinn til söln,
ódýrt. A. S. f. vísar á.
Boskilde Hnsholdningsskole Har-
aldshorg — Statsanerkendt. — Nyt
Kursus beg. 4. Maj. Program sendes.
Anna Bramsager Nielsen.
rtsprungin blóm fást á Amt-
mannsstíg 5. Sími 141 og á Yest-
urgötu 19 (send heim ef óskað
<er). Sími 19.
Glóaldin, góð og ódýr, seldur Tó-
kbakshúsið, Austurstræti 17.
j=j Tapað. — Fundið. sa
Trjekassi, merktur með brjefspjaldi:
Astríður pórðardóttir, Hofða, Akur-
eyri, týndist í fyrradag á veginum
milli Kolviðarhóls og Reykjavíkur.
Pinnandi er beðinn að skila honum,
annaðhvort á VesturgÖtu 38, til Páis
Einarssonar, hæstarjettardómara, eða
að Kolviðarhóli.
X
Altaf
mikið úrval af ódýrum
Ljerefftum
Tvisttauum
SmAvörum
$
X
X
Verslun
| Egill lacobsen.
JOÖÖOQOQOOtXSOi
S í m a r :
24 verslunin.
23 Poulsen.
27 Fossbérg.
Klapparstíg 29,
Vfalareimar,
mékil verdlækkun.
Maður fellur útbyrðis. Aðfaranótt
9. þ. m. koín það slys fyrir á vjel-
bátnUm „Gullfoss" úr Keflavík, að
maður datt útbyrðis og varð honum
ekki náð. Hann hjet Bragi Jónsson,
ættaður að norðan, en hafði verið bú-
settur tvö síðustu árin í Kef'lavík
hjá móður sinni, ekkju. Hann var
ungur maður, um tvítugsaldur.
10 ára söngstjóraafmæli á Jón
Halldórsson ríkisfjehirðir í dag. —
Ætlar flokkur sá, er haiui hefir altaf
stjórnað og gert hinn ágætasta, að
láta til sín heyra í kvöld og á sunnu-
daginii. Jón Halldórsson hefir unnið
mikið og gott verk í þágu sönglistar
og sönglífs í landinu. Plokkur hans
hefir sungið, þegar sjerstaklega hefir
þurft að vanda til söngs, svo sem vi'ð
konungskomuna 1921. En mesta af-
rek flokksins or þó Noregsför hans
í fyrra. þau ummæli, sein hann fjekk
þá og stjórnandi hans, hjá ágætustu
söngdómurum Norðmanna, sýna það,
að flokknum hefir verið stjórnað af
smekk og dugnaði og öbifandi áhnga.
Eftir sönginn í .kvöld ætla fjelagar
karlakórsins að halda söngstjóranum
samsæti á Hótel Island og votta hou-
um með því þakklæti fyrir langt og
óeigingjamt starf í þágu flokksins.
Kaupsanmingar milli útgerðarmanpa
og verkakvennafjelagsins Framsókn
strönduðu á þriðjudaginn var. pór hel:
ir staði'ð um þau mál í 3. mánaða
tíma. Yinnustöðvun hefir engin orðið
Nafnið á Kola-„krananum“. Nefnd
þeirri, sem átti að dæma um besta
nafnið, er fundið væri á Kola-„kran-
ann“, hefir borist um 115 brjef, og
má telja sennilegt, að í einhverju
þeirra sje faíið gott heiti á ferlíkið.
Nefndin hefir ekki felt neinn úrsknrð
enn, eða látið neitt uppi um nöfniu.
Eriksen, harmonikusniliingurinn og
bróðir Heúry sem hjer var í fyrra
hafði harmonikuskemtun hjer í gær
og var þar fult hús. Gerðu áhgyrendy
ur óvenjulega góðan róm að skemtmi
inni. Eriksen ætlar að skemta í Hafn-
arfirði í kvöld kl. 8%. Verður sú
skemtun í Bíó-húsinu.
Dr. Kort K. Kortsen heldur æf-
ingu í dönsku í háskólanum í dag
kl. 6—7. Ókeypis aðgangur.
Lyra fór hjeðan í gærkvöldi til
útlanda. Meðal farþega þangað voru
Benedikt Jónasson verkfræðingur og
Jón Árnason framkvæmdarstj. Til
Vestmánnaeyja fóru Baldvin Björns-
son gullsmiður og frú hans, Aina
Sæinundsdóttir og fleiri.
Dánarlregii.
| Aðfaranótt ]iriðjudags 8. þ. m.
andaðist ungfrú (fuðrún Sigurðar-
■ dóttir, dóttir Sigurðar bónda Jóns-
sonar í Ilrepphóktm í Ytrihrepp.
'ilún var fædd 4. júní 1887 á sama
stað og sania lieimili, sem nú geym-
iir iiana látna. Ilún fór aldrei úr
Iföðurgarði til dvalar annarsstaðar.
i
alt hennar starf og öll hennar um-
liugsun var í þágu æskulieimilisins.
1 kar liafði lnin notið uniliyggju
góðra foreldra og þar sýndi hún
öðrum sömu ástúð og timhyggju til
1 dauðadag.s. Hún var gædd öllum
þeim kostum, sem eru prýði heim-
Sílöarnet
útvegar
Heildv. fiarðars Gfsiascnar.
Rottu-rækt.
iliselskrar, góðrar konu. Hún var
glaðlynd og l.júfmannleg í allri
umgengni,' enda óvenjulega vel
þokkuð af öllum þeim, sem liöfðu
af benni nokkur kynni. Eftir frá-
fall móður sinnar hafði hún að
inikki leyti á liendi húsinóðurstörf-
in og rækti þaU með fylstu alúð og
umhyggjusemi og ræktarsemi við"
minningu góðrar móður.
Fyrir fáum árum tók liún van-
lieilsu þá, sem nú hefir orðið bana-
mein hennar. Enginn er til frá-
sagnar’ um það, hversu þung sú
raun varð, ekki aðeins veikindin,
lieldur líka hitt að hafa hug og
vilja til starfa en þverrandi mátt.
En hún bar það, sém á hana var'
lagt, með hugprýöi og æðrnleysi til
liinstu stundar.
J. Ó.
G E N G I Ð
Sterlingspund...............' 22.15
Danskar kr....................121.57
Norskar kr....................118.59
Sænskar kr................... 122.06
Dollar...................... 4.563^
Frankar........................ . . 18.05
Gyl'lini........................•. 108.32
Mörk............................183.21
Fátt mun jafn eftirsótt í heirni
þessum og grávara. Hefir svo lengi
veriÓ. Og þeim mun dýrari er hún
sem sjaldgæfari eru dýrin, er hún
fæst af. Hitt skiftir minna máli
hvort skinnin eru falleg.
Dýrasta grávara nú á tímum evn
skinnin af Chinchilla-rottmmi. Lítið
Jskinn kostar mörg hundruð krónur,
Jog kápa úr slíkum skinnum tugi
þúsunda króna. petta er eðlilegt,
j vegna þess hve erfitt er að ná í
skinnin. Rottutegund þessi er hvergi
nema í Andesfjöllum Suður-Ameríku,
■ og hún liefst við í 12—19 þús. fet.i
hæð. Veiðimenn þar syðra leggja
. mikla stund á að veiða rottur þessar
og árið 1898 voru flutt út frá Cliile
' 32.000 tylftir af skinnum. pá kost-
! aði hvert þeirra ekki nema um 1
krónu, en nú eru þau seld á 450
krónur eða meira.
Californíubúi nokkur, Chapman að
nafni, hefir nú gert tilraun til að
koma á hjá sjer Chinchilla-rotturækt.
Flntti hann 25 rottur til Los Angeles
og vonar hann að liann muni eiga
3000 eftir 4 ár.
| pnð var eigi litlum . erfiðleikum
. bundið að koma á þessu fyrirtæki.
Fyrst þurfti nú að ná í rotturnar,
j og það veittist tiltölulega auðveldast.
: En vegna þess, að þær eru vanar
: Ijettu lofti og kulda, mátti eigi flytja
i þær heina leið til ákvörðunarstaðar.
! Fyrst voru þær því fluttar niður í 11
þús. feta hæð og voru geymdar þar
u ín hríð. Síðan voru þær fluttar
1000 feturn neðar og svo smám sam-
an um set þannig, þangað til meim
voguðu að flytja þær norður. Vorii
þær fluttar á skipi og hafðar í kæli-
rúmi þess. Ferðalagið stóð í 40 .dagn
og margii' .dýrafræðingar voru með,
t.il þess að gæta cottanna. Tvær dráp-
ust á leiðinni, en hin'ar komust heilu
höldnu til Los Angeles. þar eru þa>r
geymdar á daginn í skála nokkrum.
Er þar gætt alls þrifnaðar og eins
þess, að loftið sje hæfilega kalt. Á
kvöldín er þeim stíað sundur og er
hver þeirra höfð í cementkassa og
er þar sífelt jafn hiti. Eigandinn býst
við því, að rotturnar muni smám
Biblinr.
Bihlía, stór útgáfa, í Ijereftsbandi.
Verð kr. 10.00. Biblía, stór útgáfa í
slsinnbandi, gylt snið. Verð kr. 20.00.
Biblía, stór útgáfa, í linu skinnbandi,
gylt snið. Verð kr. 25.00. Vasabiblía,
í ljereftsbandi. Verð kr. 5.00. Vasa-
biblía, í linu ljereftshandi, gylt snið.
Verð kr. 7.00. Vasabiblía, í linu skinn
bar.di, gylt snið. Verð kr. 10.00. —
Nýja testamentið með Davíðssálmum,
í ljereftsbandi, gylt snið. Verð kr.
3.50. Nýja testamentið með Davíðs
sálmum, í linu skinnhandi, gylt snið.
Verð kr. 6.00.
Bðkaverslun
Sigiðsar Eymundssonar.
> Þvottapottar íyi irliggjand
; Verð frá 110 króuum.
| H. Einarsson S Funk. _
saman venjast, loftslaginu í Los
Angeles og hýst við að geta grætt
stórfje. á þeim, enda þótt miklu hafi
verið til kostnað.
---—------------------
Landssí m a st j ó r astaðan.
'Eftir því, sem Mhl. hefir frjett,
er það talið fullvíst, að eftirmaður-
Forbergs landssímastjóra verði Gísli
J. Ólafson stöðvarstjóri. Mun það
vera mjög eindreginn vilji meðíit
starfsmanna landssímans, að hann
hljóti stöðuna.
—------
HÆTTULEGIR MENN
á vörina til þess að fara ekki að gráta. pegar Kornelín
þagnaði, var öll feimni lians horfin.
— Hann hefir alla tíð verið góður sonnr, sagði hánn,
Drottinn minn, þjer hefðttð átt að sjá hann lítinn dreng.
Jeg gætti hans sjálfur á nóttinni, mjer finst jeg sjá haiin
í vöggunni, og jeg fann lítinn, mjúkan munn við andlit
mitt. «g væri jeg ekki nógu fljótur að gefa honum að
drekka — þá varð liann heldur móðgaður. Og "eins og hnnn
gat hlegið! pvílíkur klukkuhreinn hlátur; þó jeg hefði ver-
ið að dauða kominn, mundi jeg hafa oi*ðið frískur á sam.i
aágnabliki, ef jeg hefði heyrt hann hljóma. Og svo þegar
hann sta'kkaði, hve augu hans nrðu gáfuleg. pau hafa vald
vfir manni, þau augu. Hver getur hugsað nokkuð ljótt,
þegar horft er í svo sakleysisleg augu. Við tveir voruia
ot'urlítil veröld, sólglitrandi veröld! — — Ojá — síðiin
hefir nú ýmislegt verið nppi á teningnum. Jeg ætlaði að
"já um, að hann fengi það, sem mig skorti. Hann hefði
fengið það alt saman með yður, ungfrú Kornelía. En það
brást. — — —
pegar Kornelía bjóst til að fara, mælti Holt:
— Má jeg hafa þá von, að sjá yður aftur, þó ekki
væri neiría einu sinni ?
— Jeg skal koma eins fljótt og jeg get.
— Já, jíig s.je, að þjer ernð heldur ekki heilbrigðai'.
— Nei---------.
f næsta herbergi hitti Kornelía Katrínu.
— Guð hlessi yður fyrir það, að þjer lítið til Holts,
sagði Katrín. Honum líður-svo illa, og jeg get ekki verið •
honnm til neinnar gleði.
K'ornelía settist, henni fanst hún þurfa að vera vin-
gjarri'Ieg við þessa konu, sein hún hafði dæmt svo harc
einu sinni.
— Jeg 'veit, sagði húu, að enginn getur hetur hjúkrað
Holt en þjer. Knútur hefir sagt mjer, hve góðar þjer linf-
ið verið við föður hans frá því fyrsta.
Katrín fór strax að gráta. Hún þráði einhvern, sew
hún gat talað við af einlægni. Og hún hóf máls á sögu
sinni, og í henni var Knútur ágætastur allra. „pegar hanu
sagði þú við mig, rjeði jeg mjer ekki fyrir gleði,“ sagði
hún.
Kornelía kom riú á hverjum degi til Holts. pó var
það erfiðara og erfiðara með hverjum deginum sem leið,
að ganga upp stigana. Einn daginn kom hún ekki. Holt
varð órólegur og sendi Katrínu niður í hús Vík. Kornelía
var veik. Frá þeim degi beið Holt árangurslanst. Kornelía
s.teig ekki frarnar úr rekkju.
pað er vordag einn, litlu fyrir laufgunartíma trjánna.
Sólin var lágt á lofti. Kirkjuklnkkunum var hringt. pegar
allir eru önnuin kafnir, hljómar skyndilega þessi þunglynd-
islegi söngur yfir bænum og tilkynnir, að dauðinn hati
héimsótt eitthvert húsið. Og það sjes't strax, að það er
hjá Vík. par stendur líkvagninn með tveim liestum’ fyriry
sveipnðum svörtu klæði.
Líkfylgdin leggur á stað frá húsinu, tveir prestar er.r
í fararhroddi. Lítil börn og aðrir forvitnir hæjarbúai
fylgja á eftir.
Ferðamaður einn gengur fram hjá kirkjugarðinum u'n
leið og líkfylgdin snýr inn í hann, Hann staðnæmist, verð-
ur hissa og gengur svo inn á eftir. ,
Meðal þoirra, eem voru í likfylgdinni var Pjetm'
Straumur. Hann var nú orðinn nokkru feitari, en var jafit
hjartur yfirlitum og áður og augun voru jafn hrein, þé ná
væru þau döggvuð tárum. pegar búið var að moka ofan í
gröfina, var hönd lögð þjett á herðar hans. Bakvið lianu
stóð Knútur Holt.
Kirkjugarðurinn var nú tæmdur af fólki. peir stóði*
tveir einir við gröfina. peir höfðu ekki mælt orð frá vör-
um vinirnir.
—Kemur þú loksins, sagði Pjetur. '
— Til þess að fylgja henni til grafar.
— pú vissir það ekki.
— Nei.
peir gengu burt úr kirkjugarðinum. peir skildu stuttia
*