Morgunblaðið - 16.01.1929, Qupperneq 3
3
MORGUNBLAÐIÐ
Stofnandi: Vilh. Pinsen.
tltgefandi: Pjelag 1 Reykjavlk.
Ritstjórar: Jðn Kjartansson.
Valtýr Stefánsson.
Auglýsingastjóri: E. Hafberg.
Skrifstofa Austurstrætl 8.
Simi nr. 500.
Auglýsingaskrifstofa nr. 700.
Heimaslmar:
Jðn Kjartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
Askriftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á mánuOi.
Utanlands kr. 2.60 - ——
t lausasölu 10 aura elntaktO.
trlendar,símffegnir.
Khöfn, PB. 15. jan.
Þýska; skaðabótamálið.
Prá París er símað : Tillkynt hef
•tr verið opinberlega, að auðmaður-
tfin P. Morgan og forstjóri Federal
Reserve bankans, Owen Yaung,
''■'trði fulltrúar Bandaríkjanna í
öefnd þeirri, sem bráðlega kemur
samaii til þess að ræða hvernig
leyst verði úr þýska skaðabóta-
öiálinu.
Sjálfstjórnarmenn í Blsass.
Sjálfstjórnarmaðurinn Sturmel
nefir verið kosinn þingmaður við
^ukakosningu í Blsass, í staðinn
fyrir sjálfstjórnarmanninn Kicklin
í'rakkneska þingið hafði úrskurð-
■uð kosningu íticklins ógilda vegna
tess að hann hafði verið dæmdur
fyrir • landráð. Mörg fraklmesku
blaðanna eru þeirrar skoðunar, að
það hafi verið óheppilegt, að fraklt
tteska stjórnin neitaði að gefa
fticklin upp sakir. Ætla þau, að
Heitunin hafi leitt það af sjer, að
sjálfstjórnarmenn í Elsass hafi
fiKrst í aukana.
Alræðisstjórnin í Jugo-Slafiu.
Prá Belgrad er símað: Alræðis-
stjórnin kveðst ætla að leggja að-
^láherslu á að koma fjármálum
ríkisins í Sem best hoi*f. A að
koma á samræmilegri löggjöf í
°bu landinu, koma umboðsstjórn-
inni í g'ott iag fitrýma spillingu
a meðal embættismanna. Sivko-
"viteh hefir falið amtmönnunum að
safna skýrslum um starfrækslu
embættismanna, því tilgangur
iennar er að setja af óþarfa og
"duglitla embættismenn.
GengíQ.
^terlingspund ............... 22.15
ffanskar kr.............. 121.84
fiorskar kr. .............. 121.84
^ffinskar kr.................122.23
ffyllini .................. 183.79
^ollar ....................... 4.57
TVankar ................... 17.97
^förk ..................... 108.62
Sjómannakveöjur.
15. jan. 1929. PB.
T'arnir til Bnglands. Vellíðan
Kærar kveðjur til vina og
Vandamanna.
Skipshöfnin á Karlsefni.
Aflafrjettir. Þessir línuveiðarar
aafa komið af veiðum undanfarna
^aga; Sigríður ,Eljan og Ármann.
Áflinn um 70 sltpd. á skip.
,Tregur afli síðustu daga.
m « > K G l! N BLAÐIÐ
Þjóðnytingin.
Boðorðið er: Jarðirnar af bændum, togarana af útgerð-
armönnum og verslunina af kaupmönnum
og kaupf jelögum!
I.
Það er alkunnugt að Alþýðu-
flokkurinn hefir þjóðnýtinguna á
stefnuskrá sinni. Bn með „þjóð-
nýtingu“ meinar flokkurinn það,
að ríkið og sveitarfjelögin eigi og
starfræki öll framleiðslutæki. —
Sósíalistar vilja gerbreyta *því
þjóðskipulagi sem nú er ríkjandi.
Þeir vilja draga allan atvinnu-
rekstur úr höndum einstakling-
anna yfir í hendur ríkis eða
heildarinnar. Ríkið á að eiga og
starfrækja útgerð alla, verslun og
búskap og* yfir höfuð alt, sem til
framleiðslunnar heyrir. Binstak-
lingarnir mega ekki sjálfir eiga
framíéiðslutækin nje starfrækja
þau á sinn kostnað; þeir eiga að
vera þjónar ríkisvaldsins og* verð-
ur því athafnafrelsi þeirra háð
margskonar takmörkunum.
Þessi þjóðnýtingarstefna sósíal-
ista er aðalboðorð þeirra. — Þeir
vilja umturna þjóðskipulagmu og
byggja nýtt á grundvelli þessarar
nýju stefnu.
/
n.
Það eru fá ár síðan sósíalista-
stefnan barst hingað til landsins.
Hefir áhrifa frá henni því gætt
fremur lítið fram til síðustu ára.
Að vísu hafa nú í nokkur ár ver-
ið flutt frumvörp á Alþingi, þar
sem farið hefir verið fram á að
þjóðnýta eitt og annað; aðallega
hefir þetta beinst að versluninni.
En menn liafa skoðað frumvörp
þessi sem einskonar skyldukvöð,
er hvíldu á þing-m. Alþýðuflokks-
ins, eins og til þess að sýnast.
Menn hafa ekki getað ímyndað
sjer að það væri alvara stjórn-
málaflokks, að vilja nú fara að
rígskorða verslun landsmanna í
hlekki einokunar og kúgunar.
En viðburðir síðustu tíma bénda
til þessj að nokkur alvara sje bak
við þenna leik þeirra sósíaíista.
Hingað til- hafa. sósíalistar farið
fremur dult með þjóðnýtingar-
kenningar sínar, þegar bændur
hafa hlustað á. Binkum hafa þeir
forðast að nefna þjóðnýtingu
sambandi við jarðirnar og búskap
bænda.
En í haust var grímunni kastað
til fulls. Hinn raunverulegi faðir
sósíalistastefnunnar hjer á lándi,
Jónas Jónsson dómsmálaráðherra,
tók tvo af foringjuni Alþýðu-
flokksins með sjer á landsmála-
fundi, er haldnir voru austur í
sveitum. Bar þar margt á góma
ems og títt er við slík tækifæri,
en það merkasta var það, að Har-
aldur Guðmundsson lýsti yfir því
fyrir hönd síns flokks, að Alþýðu-
flokkurinn vildi taka eignarrjett-
inn að jörðunum af íslenskum
bændum. Plokkurinn hefði þetta
eignarrán beinlínis á stefnuskrá
sinni og mundi vinna að framgangi
þess, sagði Haraldur.
Skömmu fyrir jól fór þessi sami
þingmaður vestur til Isafjarðar til
þess að halda þingmálafundi þar.
Landsstjórnin var svo hugulsöm
að lána honum annað varðskipið
til fararinnar. Á ísafirði hjelt
hann fyrirlestur um þjóðnýtingu.
Að því er vestanblað hermir, sagði
Haraldur í fyrirlestri þessum, að
„það væri fyrsta stefnuskrárat-
riði Alþj>ðuflokksins að þjóðnýta
jarðirnar — ábýli bændanna — og
ætti þjóðnýting þeirra að takast
á undan þjóðnýtingu verslunar og
sjávarútvegs, sem vera ætti í ann-
ari röð og komast í bjóðnýtingu
næst á eftir búum bændanna.“
Þegar Haraldur hafði lokið er-
iiidinu, kom varðskipið aftur til
Isafjarðar og flutti þingmanninn
hingað til Reykjavíkur.
Haraldur þessi er nú setstur við
skrifborð sitt í „alþýðuhúsinu“
svonefnda við Hverfisgötu. Þar
er hann að skrifa greinir í Al-
þýðublaðið, sem „gefið er út af
Alþýðuflokknum“. Daglega ber
hann þá kröfu fram með fjálgleik
miklum og stórum orðum, að tog-
ararnir verði „teknir“ af útgerð-
armönnum og þeir þjóðnýttir. —
Þeir skuli gerðir út á ábyrgð rík-
issjóðs, en sjómennirnir verði
þjónar ríkisins.
Þetta er boðorð þess flokks, sem
liefir líf núverandi stjórnar í hendi
sjer: Tökum jarðirnar af bændum,
togarana af útgerðarmönnum og
verslunina af kaupmönnum og
kaupfjelögxun!
m.
En á meðan þessu fer fram
skrifar forsætisráðherrann „leið-
ara“ í Tímann — að vísn undir
dulnefni — þar sem hann kemst
þannig að orði:
„Það er alkunnugt, að undan-
farin ár hafa hinir gætnari menn
ráðið stefnu Alþýðufloklrsins, þeir
menn sem feta í fótspor Jafnaðar-
mannaleiðtoganna á meginlandi
álfunnar* sem vilja keppa að því
að bæta kjör lýðsins og breyta
þjóðskipulaginu eftir löglegum
leiðum og með þróun.“ (Leturbr.
gerð hjer).
Þegar þessi ummæli forsætisráð-
herrans eru borin saman við at-
í/bafnir sósíalista, verður' ekki ann-
að sjeð en að forsætisráðherrann
álíti það fullkomlega tímabært að
„breyta þjóðskipulaginu“ á þann
hátt sem sósíalistar fara fram á.
Hann sje í raun og veru samþykk-
ui' því sem þessir „gætnu menn“,
er ráða stefnu Alþýðuflokksins
eru að prjedika. Hann sjái ekkert
við það að athuga, þótt menn
þessír heimti jarðirnar teknar af
bændum,togar'ana af útgerðarmönn
um og verslunina af kaupmönnum
og kaupfjelögum, því hjer sje að-
eins verið að vinna að breyting
á þjóðskipulaginu eftir „löglegum
leiðum og með þróun“.
Porsætisráðherrann talar nm
,lög*legar leiðir1 sem þessir „gætnu
menn“ í Alþýðuflokknum fari. —
Djá; heyrst liefir nú nefnt „hand-
aflið“ í þessu sambandi. Og víst
muna sunnlenskir bændur lýsingu
Haralds á þróun jafnaðarstefnunn-
ar. Hún yrði með tvennum hætti,
sagði Haraldur — annað hvort
smátt og smátt með breyttri lög-
gjöf eða með blóðugri byltingu!
Og Haraldur sag'ði meira. Hann
sagði, ao því harðari sem mót-
spyrnan væri, því nær stæði bylt-
ingin.
Þetía sagði nú þessi „gætni
maður“ við sunnlenska bændur í
haust.
Nú skyldi einhverjum bóndanum
eða útgerðarmanninum koma til
hugar, að „spyrna á móti“ þegar
taka á af þeim þeirra löglegu
eign.
Hvað þá?
Hinn „gætni maður“ í stjórn
AlþýðuflokksinS seg’ir að þá verði
bylting — blóðng bylting!
Er það þessi Breyting á þjóð-
slapulaginu sem forsætisráðherr-
ann kallar að fram fari eftir „lög-
legum leiðum og með þróun V ‘
Ásgeir Signrðsson
útnefndur af Bretakonungi, sem
aðalræðismaður.
Hann er sá eini aðalræðismaður
hins breska ríkis sem ekki er
Englendingur.
Lengi liefir almenningi verið
það kunnugt, að það er okkur Is-
lendingum hið mesta happ, að eiga
annan eins mann í ræðismanns-
stöðu Breta, eins og Ásgeir Sig-
urðsson. En það hafa menn ekki
vitað eins vel, hve mikils hann er
metinn meðal Breta sjálfra.
Breska stjórnin liefir nú veitt
honum ]iá sæmd, sem fátíð er, ef
ekki einsdæmi, þar sem liann liefir
nú fengið útnefning konungs og*
utanríkisráðherra, sem aðalræðis-
maður Breta á íslandi. Alls eru
rúmlega 30 breskir aðalræðis-
menn í heiminum, og eru þeir allir
Englendingar, nema Ásgeir Sig-
urðsson. Er það ekki lítill veg*s-
auki fyrir Ásgeir Sigurðsson, að
honum sliuli sá heiður veittur
emum, og skemtileg viðurkenning
fyrir okknr íslendinga, að Bretar
skuli meta þjóð vora svo mikils
að gera hjer undantekningu þessa.
Ásgeir Sigurðsson hefir gegnt
ræðismannsstörfum hjer í 21 ár.
Pyrstu árin voru störfin lítil,
en hafa farið mjög í vöxt liin
síðari ár. En hvort þau eru mikil
eða lítil er stefna og starfstilhög-
un Ásgeirs Sigurðssonar ávalt- á
eina leið, að miðla málum og jafna
öll misklíðarefni á þann liátt, sem
„gentlemönnum“ einum er lagið.
Munu auðfundin dæmi þess, að sú
stefna og* það starf Ásgeirs Sig-
urðssonar hefir komið okkur í góð-
ar þarfir.
Dagbók.
Veðrið (í gærkv. kl. 5) : Hæð
yfir íslandi en djúp lægð. yfir Dan
mörku á suður leið og* önnur lægð
alldjúpt suður af Hvarfi á Græn-
landi á hreyfingu norður eftír. —
Stilt veður hjer á landi en allhvass
SA-stormur á hafinu fyrir suðvest-
an land og 7—10 stiga hiti. Hins-
vegar er köld NA-átt fyrir austan
landið og um öll Norðurlönd. í
Danmörku er t. d. NA-livassviðri
méð snjókomu með 4—6 st. frosti.
Veðurútlit í dag: Vaxandi S-átt,
allhvass og* rigning með kvöldinu.
Bruni í Hafnarfirði. I fyrra
lívöld brann hús eitt í Hafnarfirði
að mestu, þó ltalla mætti að það
hengi uppi þegar tókst að slökkva
eldinn með vasklegri framgöngu
slökkviliðsins, sem hefir þó að
sögn eigi sem fullkomnust tælii.
Húsið var einlyft, eign Ól. Böðv-
arssonar. En vjelsmiðjan Hjeðinn
hafði þar sett útibú, skrifstofu og
vörugeymsluhús. Vörurnar eyði-
lögðust að mestu. Húsið var mjög
lágt vátrygt, og eins vörurnar.
Óvíst er um upptölc eldsins.
Menn voru þarna við vinnu þang-
að til kl. 9y2 um kvöldið. En kL
11 y% blossaði upp eldur í húsinu,
og er ókunnugt um mannaferðir
þar í millitíð. —
Hjónaefni. Ungfrú Ragnheiður
Þórðardóttir og Hergeir Elíasson
sjómaður, Túngötu 34. —
„Spanska veikin“ fyrir 50 árum.
í „lsafold“ 24. jan. 1879 segir svo
í brjefi frá Austfjörðum: „Kvef-
og taksótt geysar um allan Aust-
firðingafjórðung, og fjöldi manna
hefir farist úr sýki þeirri í haust,
einkum í Hjeraði og Austur-Skafta
fellssýslu. Síðast í f. m. frjetti jeg,
að dánir væri 11 manns í Nesjum
og 6 í Lóni á hausthöndlunartím-
anum“.
Samband starfsmanna ríkisins
er nú að safna skýrslum um hve
dýrt sje að lifa í landinu og aug-
lýsa hjer í blaðinu í dag eftir
búreikningum sem flestra.
Togaramir. Þessir togarar hafa
komið inn undanferna daga: Hilm-
ir, Ver, Sviði, Njörður og Draupn-
ir. Hafa hásetar hlýðnast vald-
boði Sigurjóns að ganga af skip-
unum.
Bannið ,í Bandaríkjunum. Um
það ætlar Sigurður Jónsson, stór-
templar að halda fyrirlestur í
kvöld í G.T.-húsinu.
Til Strandarkirkju frá XX 10
kr., V. í. 5 kr., S. G. kr. 2.50 N. N.
5 kr., B. J. 3 kr., G. 2 kr., H. 5
kr. K. J. 5 kr., enskum skipstjóra
afh. af Þorst. Jónssyni, Laufási,
Vestmannaeyjum £ 2—0—0, Sigga
5 kr., Ó. J. 2. kr. Kristínu Vigfús-
dóttur, Hafnarfirði 10 kr. N. 2 kr.
S. J. 5. kr.
Gjafir til Laugarvatnsskóla.
Gísli J. Johnsen, konsúll í Vest-
mannaeyjum hefir gefið skólanum
víðvarps-viðtæki og Ólafur Ó.
Lárusson, hjeraðslæknir í Vest-
mannaeyjum hefir gefið skólanum
smásjá.
„Armann og Vildis“ heitir ný
saga eftir Kristmann Guðmunds-
son, sem H. Aschelioug & Co, í
Oslo liefir gefið út. Bókarinnar
verður nánar getið síðar hjer í
blaðinu.
St. Bylgja hefir jólatrjesskemt-
un á föstudaginn (sjá augl.).
Jarðarför Jóns læknis Bjarna-
sonar fer fram í dag frá. dóm-
kirkjunni og hefst kl. 1.
ísfisksala. Þorgeir skorargeir
hefir selt afla sinn í Englandi fvr-
ir 623 sterlingspund. Arinbjörn