Morgunblaðið - 19.01.1929, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ
r
Nýk o ni i ð:
Ðlandað marmelaðí,
Svínafeiti,
Sallasykur.
N ý ý s a
fæst daglega hjá h.f. Sandgerði með sama lága verðinu á Norðurstíg
4. Sími 2343.
Á sama stað fæst frosið dilkakjöt.
FlÉiðviifilieiaiii.
Aðalfundur Flóaáveitufjelagsins 1929 verður halcb
inn í fundarhúsinu á Stokkseyri fimtudaginn 14. febrúar
n. k. og hefst kl. 1 e. h.
Auk dagskrár, eftir áveitulögunum, verða lagðar
fram tillögur um breytingu á samþyktum áveitufjelagsins,
um mjólkurbúið, á þá leið, að mjólkurbúið verði numið úr
sambandi við áveitufjelagið.
12. janúar 1929.
Fjelagsstjórnin.
Nýko
feikna birgðir ai öllnm teg. af niðnrsoðnnm ávöxtum.
Verðið mjög lágt.
Eggert Kristjánsson & Co.
Símar 1317 & 1400.
Best að auglýsa í Morgunblaðinu.
Hnífsðalsmálið.
Liðsbónin til Scotland Yard.
Binhverntíma gat Tíminn þess
— með töluverðum fjálgleik eins
og honum er títt — að farnar
hefðu verið nýjar leiðir við rann-
sókn Hnífsdalsmálsins, þar sem rit
hándarsýnishorn hefðu verið send
til Scotland Yard í London. Að
vísu var ekki um nýjar leiðir að
ræða þótt rithandarfræðingar væru
látnir athuga handskriftir í sam-
bandi við fölsunarmál. Br slíkt
algengt fyrirbrigði. En þar sem
hjer er enginn rithandarfræðingur
tii, verður að leita til erlendra
manna þegar slík mál ltoma fyrir.
Auðvitað var aðeins gott eitt
um það að segja, að rithandarsýn-
ishorn úr Hnífsdalsmálinu skyldu
vera send.til Scotland-Yard. En til
þess að gagn yrði að slíkri rann-
sókn þurfti vitanlega að leggja úr
lausnarefnin rjett fyrir hina er-
lendu sjerfræðinga. í*þessu máli
hefir það ekki verið gert —því
miður.
Hinn skipaði rannsóknardómari
i Iínífsdalsmálinu hefir eklti farið
dult með sína skoðun á málinu.
í raun og veru má segja að
dómur hans hafi verið upp kveð-
inn 27. des. 1927, þegar Tíminn
birti skýrsluna frægu iim Hnífs-
dalsmálið. Stjórnarblaðið „Dagur“
á Akureyri skýrði frá því að
skýrsla þessi hefði verið samin af
sjálfum rannsóknardómaranum. Á-
lit rithandarfræðings mundi því
sennilega engin áhrif hafa haft á
endanlegan dóm rannsóknardómar
ans. Dómur hans var upp kveðinn,
aðeins eftir að ákvarða refsing
h’inna ákærðu.
Hingað til hefir verið haldið
leyndu áliti hinna erlendu sjer-
fræðinga. En á mánudaginn var
hirtir annað stjórnarblaðið hjer
í bænum (Alþbl.) grein, þar sem
skýrt er frá því, að rithandar-
sjerfræðingur Scotland Yard hafi
lcomist að sömu niðurstöðu og
ránnsóknardómarinn, um fölsun-
ina. Segir hlaðið að sjerfræðing-
urinn hafi fullyrt, að hihir ákærðu
(Bggert og Hálfdán) og „engir
aðrir“ (leturbr. hjer) hafi falsað
seðlana.
Nú kynni einhverjum að leika
forvitni á að vita hvemig' rann-
sóknarefnið var lagt fyrir hinn
erlenda sjerfræðing. „Vörður laga,
rjettar og siðgæðis“ á Islandi,
dómsmálaráðherrann, sá um þenna
þátt rannsóknarinnar (í samráði
við dómarann?) Brjefið til Scot-
land Yard hljóðar svo í skjalþýð-
ingu:
„Eftir hinar almennu kosningar,
sem fram fórn hjer á landi 9. júlí
1927, komst sá grunur á, að nokkr-
ir atkvæðaseðlar hefðu verið fals-
aðir í einu kjördæmanna. Eftir
íslenskum lögum er hverjum kjós-
anda, sem býst við að verða að
heiman, það er utan kjördæmis
(sic) síns, á kosningadaginn, heim-
ilt að afhenda hreppstjóra atkvæði
sitt til geymslu. Aðferðin er' sú,
að kjósandinn fer inn í sjerstakt
herbergi, þar sem hann skrifar
á hvítan miða, sem til þess eru
ætlaðir (sic) nafn þess framþjóð-
anda, sem hann ætlar að kjósa.
Fölsun sú, sem hjer um ræðir, er
í því fólgin, að þessuin miðum
hefir verið skift fyrir aðra miða,
skrifaða ,af hreppstjóranum og
skrifara hans, og ef til vill einnig
af þriðja manni, sem fenginn hefir
verið til aðstoðar.............“
Eins og sjá má, er hjer ekkert
kukl á ferðmni. Að ófullrannsök-
uðu máli segir „vörður laga, rjett-
ar og siðgæðis“ á íslandi stofnun
erlends ríkis, „að þessum miðum
hefir verið skift fyrir aðra miða,
skrifaða af hreppstjóranum qg
skrifara hans, og ef til vill einn-
ig af þriðja manni, sem fenginn
hefir verið til aðstoðar.“
Með þessum forsendum eru svo
sendir ellefu atkvæðaseðlar og
ritahandarsýnishorn þeirra Jirýggja
manna, sem þannig er sagt að
fölsunina hafi framið, og síðan
spurt, hverja af seðlunum hver
þessara þriggja manna liafi fals-
aö, eða hverja af seðlunum verði
að álíta að enginn þeirra liafi
skrifað.
Yið umræddar ltosningar kusu
utan kjörstaða 101 kjósandi í N.-
fsafjarðarsýslu. Er því um 101
mann að ræða, auk hreppstjórans,
skrifara hans, og þriðja mannsins,
sem kunna áð hafa skrifað þessa
ellefu seðla. Og ’pess utan er alls
eigi grunlaust, að enn aðnr kunni
að liafa skrifað þá. En „vörður
laga, rjettar og siðgæðis“ á Is-
landi, segir trúnaðarstofnun eins
heimsveldisins, að þeir sjeu skrif-
aðir af hreppstjóranum, skrifara
hans, og ef til vill af ákveðnum
jþriðja manni. Samkvæmt jiessu
verður stofnunin að ganga að því
tvennu vísu, að þessir ellefu seðl-
ar sjeu falsaðir og að aðrir en
þrír greindir menn geti ekki verið
að fölsuninni valdir. Verkefni
stofnunarinnar takmarkast því inn
an þeirra vjebanda, Iiver þeirra
þriggja manna sje líklegastur til
að hafa ritað hvern um sig þeirra
ellefu seðla.
Dómsmálaráðherrann fekk svar
eins og um var beðið: Eggert á að
hafa falsað 9 atkvæði, en Hálf-
dán 2. Hínsvegar treysti rithand-
arfræðingurinn sjer ekki til að
heimfæra neinn seðil á nafn Jiriðja
mannsins, sem ákærður er, enda
fullvrðir dómsmálaráðherrann í
brjefi sínu ekkert um hans föls-
un; lætur nægja að segja : „ef til
vill“ hefir hann venð fenginn tíl
aðstoðar.
„Engir aðrir“ en hinir ákærðu
hafa falsað atkvæðin, hefir Al-
þýðublaðið eftir rithandarfræð-
ittgnum. Hinsvegar hefir blaðinu
láðst að geta þess, að rithandar-
fræðingnum var sagt, að aðeins
væri um þessa ákveðnu menn að
ræða. Aðrir kæmu þar ekki til
greina!
Kommgshjónm ferðast.
Samkv. tilkynningn frá sendi-
herra Dana, ætla konungur vor og
drotning að fara í opinbera heirn-
sókn til Spánarkonungs í Madrid.
Leggja þau á stað 6.—8. febrúar.
Að heimsókn þeirri lokinni fara
þau til Riviera óg dvelja í Cannes
fram á vorið, eins og þeirra er
siður.
llffih l Meq
Laugaveg 33.'
Alpahninrnar komnar aftnr.
Veggteppin marg eltirspnrðn
sömuleiðis.
Nýkomin kven-náttföt
og stórt úrval af
Undirfötnm og Golftreyjnm.
Gott steinhHS
óskast til kanps.
Tilboð merkt: „steinhús"
sendist A. S. í.
100
fataefni af ýmsum gerðum eru \
nýkomin. Alt alullarefni, mjög
falleg. Eiga að seljast strax fyrir
mjög lítið verð í útsölunni hjá
okkur, sem er byrjuð.
Klðpp, Langaveg28
RignkðDur
fyrir dömnr
hjá
S. Jðhannesdóttnr.
Austurstrceti 14.
(Beint á móti Landsbankanum).
Simí f887.
510
hinir alþektu
kvensilkisokkar
ern nú komnir aftnr.
iföruhúsið.
Hýkomið:
fallegt nrval af
Borsalino
Hðttnm.
»
j