Morgunblaðið - 19.01.1929, Blaðsíða 3
3
MORGUNBLAÐIÐ
Stofnandi: Vilh. Finsen.
ETtgefandi: Fjeiag- i Reykjavlk.
Ritstjðrar: Jðn Kjartansson.
Valt.ýr Stefánsson.
Auglýsingastjóri: E. Hafberg.
Skrifstofa Austurstræti 8.
Slml nr. 500.
Auglýsingaskrifstofa nr. 700.
Heimasímar:
Jðn Kjartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
Askriftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á mánuBl.
Utanlands kr. 2.50 - ——
I lausasölu 10 aura elntaklB.
Erlendar sfmfregnir.
Khöfn, PB. 17. jan. Meðt. 18. jan.
Kelloggs-sáttmáliim.
Frá Washing'ton er símað: Old-
ungadeild þjóðþingsins hefir stað-
Æest ófriðarbannssamning Kelloggs
:með öllum atkvæðum á móti einu.
Borah skýrði samninginn Jtannig,
.að samningurinri heimili varnar-
stríð, en hvert ríki hafi sjálft rjett
til þess að ákveða hvað það álíti
•sjálfsvörn.
Hinn yfirvofandi ófriður.
Prá Berlín er símað: Breska
tímaritið Review of Review’s hefir
birt leyniskýrslu frá Oroener, her-
málaráðherra Þjóðverja til þýsku
Stjórnarinnar um hlutverk her-
•skipaflota Þjóðverja.
Heldur Groener því fram í
•skýrslunni, að varnarleysi Þjóð-
Verja mnni leiða til þess, að ná-
grannaríkin ráðist á Þýsltal. Minti
bann á í þessu sambandi hvernig
Pólverjar tóku Vilna, Lithauen og
Memel. Telur hann það ekki vera
neitt leyndarinál, að Pólverjar á-
girnist Austur-Prússland. Ráðist
Pólverjar inn í landið, þá sje það
blutverk þýska flotans að flytja
hermenn til Austur-Prússlands.
Einnig sje það hlutverk flotans
;að vemda hlutleysi Þýskalands, ef
til ófriðar dregur á milli stórveld-
;anna. Groener bendir á deiliirnar
milli ítalíu og Júgó-Slafíu, Eng-
lands og Rússlands, Englands
og Frakklands annarsvegar og
Bandaríkjanna hinsvegar. Kveður
'Groener það aðeins tímaspursmál
hvenær þessar deilur leiði til ó-
fi’iðar.
Stórslys á sjó.
Prá Hong Kong er símað: Kín-
Verskt farþegaskip Hisinwah, rakst
á sker nálægt Hong Kong og sökk.
Sjötíu var bjargað en sennilega
bafa. liðlega þrjú hundruð manns
farist.
Málari látinn.
Prá Osló er símað: Málarinn
Gerhard Murithe -er látinn.
Khöfn, 18. janú'ar PB.
Bylting í Afghanistan.
Frá Loiidon er símað: Tilkynt
hefir verið opinberlega, að Bat-
Schasakoa, foringi uppreistar-
riianna í Afghanistán, hafi hertek-
ið Kábul, að undanteknum litlum
hastala í miðhluta borgarinnar.
Prá Moskva er símað til Ritzau-
^jettastofunnar, að Inayatullah
Wi afsalað sjer konungdómi, en
■^atschasakoa tekið sjer konungs-
hafn.
Bát hvolfir
viö Vestmannaeyjar.
Fyrír framúrskarandi snarræði
skipherrans og skipverja á „Þór“
tókst að bjarga fjórum mönnum
frá druknun.
(Samkvæmt símtali við
Vestmannaeyjar í gær).
jDronning Alexandrine1’ kom til
Vestmannaeyja í gærmorgun; var
ofsarok á austan, svo skipið lagð-
ist við Eiðið. Oddg eir Priðriks-
son formaður, ættaður rir Mýrdal,
fór við fjórða mann út frá Eiðinu
á smábát, til þess að sækja fólk
út í „Dr. Alexandrine“. Hepnaðist
vel ein ferð. Ætlaði hann svo að
reyna aðra ferð, en ,þegar báturinn
var kominn skamt frá landi, reið
harður stormsveipur yfir bátinn
svo að hann tókst á loft og tví-
hvolfdi. Menn voru staddir í sandi,
en bátur var þar enginn. Sigurjón
Jónsson bílstjórakennari var
þarna. staddur með bíl og ók hann
nú þegar til bæjarins, til þess
að reyna að koma kalli (loftleið-
ina) til „Dr. Alexandrine“, eða
varðskiþsins „Þórs“. En um leið
og byrjað er að kalla. til „Þórs“
sjest hvar skotið er út báti frá
honurn og róið sem aftók þangað
sem slysið varð. Hafði skipherr-
ann á „Þór“, Friðrik Ólafsson,
tekið eftir slysinu og ljet skjóta
út báti; sjálfur stýrði hann bátn-
um, en með honum voru þrír skips-
menn af ,,Þór.“ Fyrir framúr-
skárandi snarræði og dugnað
tókst þeim ,,Þórs“-mönnum að
bjarga Oddgeir og fjelögum hans
og flytja þá alla í land. Hengu
þéir við bátinn þegar „Þórs“-
menn komu að. Oddgeir meidd-
ist nokkuð, fór úr liði á öxl og
slasaðist eitthvað meira, en þó
ekki hættulega. Hinum leið vel.
Mikill fögnuður var í landi
þegar „Þórs“-menn lentu með
hina sjóhröktu menn, enda tókst
giftusamlega. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem björgunarskipið
„Þór“ og hans menn verða Eyj-
arskeggjum að góðu liði.
Austan rok vaf í Eyjum í all-
an gærdag og ómögulegt að af-
greiða „Dr. Alexandrine“. Eru um
100 farþegar um borð í skipinu
er ætla í latíd í Eyjum og auk þess
á talsvert af vörum að fara þar
í land.
Þakkarskeyti frá bátsmönnum.
í gærkvöldi barst Mbl. svohljóð-
andi skeyti frá Vestmannaeyjum:
Við undirritaðir þökkum af
hjarta, Friðrik skipherra Ólafssyni
á björgunarskipinu Þór og skip-
verjum hans fyrir snarræði og
dugnað að bjarga okkur fjórum úr
sjávarháska, sem við komumst í í
dag fyrir Eiðinu, og óskum þess
af alhug, að þeim megi heppnast
þetta sem oftast hjer eftir eins og
í þetta sinn og svo mörgum sinn-
um áður.
Kelloggssáttmálinn staðfestur
\ í U. S. A.
t U’á Washingtón er símað:
°°lidge forseti skrifaði í gær
. ófriðarbannssamning Kell-
í viðurvist varaforsetans, ráð-
IPlranna 0g Öldungadeildar Þjóð-
Jingsins
Vestmannaeyjum 18. janúar 1929.
Sigurður Árnason
Jón Árnason.
Oddgeir Friðriksson
Ingvar Þórólfsson.
—• ••••
MORGUNBLAÐIÐ
t
lön Biarni Matthíasson
bóndi að Auðkúlu í Arnarfirði
varð bráðkvaddur á ferð milli
bæja síðastl. þriðjudag 15. þ. m.
Hann var albróðir Páls heitins
Matthíassonar skipstjóra hjer í
bæ. Jón heitinn var dligandi bóndi
drengur ágætur og vinsæll í smni
sveit.
Hann lætur eftir sig konu og
fimm börn, og er mikill harmur að
þeim kveðinn við fráfall hans.
——
Frá Hæstarjetti.
Talsvert eftirtektarvert mál var
fyrir Hæstarjetti í gær. Var deilt
um það hvort haldsrjettur í bát
vegna viðgerðarkostnaðar hjeldi
sínu fulla gildi gagnvart eldra
veðrjetti. Hafði skipasmíðastöð
Magnúsar Guðmundssonar hjer í
bænum tekið mótorbát til við-
gerðar, en viðgerðarkostnaðinn,
um 7500 krónur, fekk stöðin eigi
greiddan. Fór hún þá í mál við
eigandann, Markús Jónsson bryta,
fekk dóm fyrir kröfunni, og ljet
síðan gera fjárnám í bátnum og
selja. hann á nauðungaruppboði.
Varð eigandi skipasmíðastöðvar-
innar hæstbjóðandi í bátinn fyrir
2000 kr. Krafðist hann að fá afsal
fyrir bátnum án þess að hann
greiddi uppboðsandvirðið, og
bygði þá kröfu á því að hann ætti
haldsrjett fyrir viðgerðarkostnað-
inum; krafðist liann að uppboðs-
andvirðið yrði látið ganga upp í
viðgerðarkostnaðinn. — Þessari
kröfu mótmæltu veðhafar; töldu
að þeirra. rjettur ætti að ganga
fyrir og mótmæltu haldsrjettinum.
Kom þetta deiluatriði til úrskurð-
ar í uppboðsrjettinum. En úrskurð
urinn varð á þá leið, að kröfur
veðhafa voru ekki teknar til
greina. Þessum lirskurði áfrýjaði
1. veðhafi til Hæstarjettar. Theo-
dór Líndal cand. jur. sótti málið í
Hæstarjetti fyrir veðhafa, og vár
það prófmál hans, en fyrir skipa-
smíðastöðina mætti Sveinbjöfn
Jónsson hrm. ÍJrskurður Hæsta-
rjettar kemur á mánudag.
Bæjarstjúrn arkos ning
á Akureyri.
Kkurevri, FB. 18 janúar.
Bæjarstjórnarkosning fór fram
lijer í dag. Á kjörskrá eru 1849.
Kosningarrjettar síns neytt.u ca.
1350. Af þeim, sem eru á kjörskrá
hafa allmargir dáið eða flutst
burtu og var kosningin því alveg
óvenjulega vel sótt. —- Talning at-
kvæða hefst kl. 9 og mun verða
lokið laúst fyrir miðnætti.
—---------------
Úr verstOðvunum.
Sandgerði (1.—15. jan.): Afli
160 skpd. stórf., 10 smáf. og 44
ýsa, samt. 214 skpd. Veiðina stund
uðu 4 vjelbátar stæri’i en 12 smál.
og 9 vjelbátar 12 smál. og minni,
þar af 3 „tryllubátar“. Góðar g.æft
1 ir, Afli afar tregur.
1
Allur tilbúinn Kven- og Barna-
fatnaður er nú seldur undantekn-
ingarlaust með einstöku tækifæris-
verði:
Vetrarkápur kvenna með 40°j0 afsl.
Vetrarkápnr barua —
Kvenkjðlar
Telpnkjúlar
Drengjafðt
Regnslðg barna
Regnkápnr knua og barna
20% -
l5°[o --
20% --
'ja virði
% virði
'|2 virði
Verslun Egill lacobsen.
Bát.
Stórt tveggjamannafar eða lítið fjögramannafar óskast keypt.
Upplýsingar hjá
Lofti Loftssyni. -- Sfmi 323.
TllkyDning.
^ Frá síðastl. áramðtnm höinm við yfirtekið
"^Bergens Notforretning
[og heldnr firma þetta áfram stðrfnm í
sambandi við okkar firma.
O. Nilssen & Sön A.s.
Ðergens Notforretning.
Bergen.
Páll Stefánsson og lósef Húnfjðrð
Kveða í Rárnbáð i kvðld kl. 0.
Húsið opnað klukkan 7y2.
Aðgöngumiðar verða seldir í dag hjá Eymundsen og í Bárunni
frá kl. 6J4 og kosta 1 lirónu.
Akranes (1.—15. jan.): Afli 567
skpd. stórf., 48 smáf. og 46 ýsa.,
samt. 661 skpd. Veiðina stunduðu
1 línugufuskip, 8 vjelbátar stærri
en 12 smál. og 4 vjelbátar 12 smál.
og minni. Afli dágóður, en afla-
fengur bátanna misjafn. Góðar
gæftir.
Fiskifjelag íslands.
»
Skóhlífar
i afarstóru úrvali.
Karla frá 4.75.
Kvenna — 3.75,
Barna — 2.50,
Kventáhlífar á 1,50.
Hvannbergsbræðnr.
Kristileg samkoma verður í frí-
kirkjunni annað kvöld (sunnudag)
ki. Sþý. Sigurður Sveinbjörnsson
talar.