Morgunblaðið - 16.02.1929, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Saumavjelar,
stfguar og handsnúnar.
Heildv. Garðars Gíslasonar.
lillisíi;
HugWsingadagbðk E
S VllhkifU.
ISU - -Jf ----- ii iim 111 iii
Fegurstir Túlipanar fást á Vest-
nrgötu 19. Sími 19.
Útsprungnir túlipanar, nokkrar
tegundir af Kaktusplöntum og
Hyasintur til sölu. Hellusundi 6.
Hitamestu steamkolin ávalt
fyrirliggjandi í kolaverslun Ólafs
Ólafssonar. Sími 596.
g| Húsnæði, g
Herbergi til leigu á besta stað í
bænum, ágæt fyrir 1 eða 2 þing-
menn. Húsgögn, hiti, ljós og hrein-
gerning fylgir. Upplýsingar í síma
226 og 210.
Herbergi í nýju steinhúsi við
miðbæinn til leigu nú þegar. —
Nokkuð af húsgögnum getur fylgt
ef óskað er. A. S. í. vísar á.
að hrinda málinu sem fyrst
framkvæmd, enda þótt viðurkent
sje, að ríkissjóði beri að leggja
þeunan veg. Líkur sýnast til að
þetta- vegarmál verði sótt fast,
enda þótt vegurinn verði dýr og
langan tíma ársins undir snjó.
Munu andstæðingar þessa vegar
óspart mintir á hina frægu brú
yfir Fúlalæk og beðnir að bera
saman umferðarþörfina á báðum
leiðunum. Því skal ekki að leyna,
að margir álíta að fengnu fjár-
magni væri til annars betur varið
á Seyðisfirði en að byrja á því að
brúa Fjarðarheiði. En hinu ber
ekki að neita að geisimikil sam
göngu- og menningarbót yrði það
ef bílferðasamband næðist milli
Seyðisfjarðar og Hjeraðs, þótt
ekki væri nema sumarmánuðina.
Sveitunum yrði það til hins mesta
gagns, því að markaður opnaðist
þá fyrir afurðir þeirra bæði í
kaupstaðnum sjálfum og þó eink
urn til skipa.
Annars ber ekki að neita því, að
framtíð Seyðisfjarðar byggist eink
um á útvegi og verslun við skip
enda þótt skilyrði sjeu einnig fyrir
ýmiskonar iðurekstur með raf
magni.
Ókuuuugir menn tala oft um
það, að Norðfjörður muni líklega
verða höfuðstaðurinn austanlands
af því sá kaupstaður er nú orðinn
fólksflestur. En það er sama og að
vænta þess að Siglufjörður verði
höfuðstaður norðanlands. Á Norð
firði eru aðeins skilyrði góð til fisk
veiða, en höfn mikið lakari en
Seyðisfirði. Og það sem sker úr um
höfuðstaðarmöguleika er það, að
Norðfjörður er mjög útúrskotinn
og sambandslaus sumar og vetur
við hið mikla uppland, Hjeraðið.
Af því sem áður er sagt rná sjá
að Seyðisfjörður hefir staðist ýms-
ar eldraunir og haldið velli samt
og þar með sannað að hann hefir
þrátt fyrir alt öll aðalskilyrðin
sem höfuðstaður eystra.
Staðhættir Austurlands, einkum
til sjávarins, hafa valdið dreifingu
allra krafta og af því hefir hlotist
samtakaleysi, sem hefir hamlað
þeim framförum sem annars hefðu
getað orðið.
Með því að styrkja Seyðisfjörð
í þeirri framsóknarviðleitni, sem
nú er að vakna þar, mundi þing
og stjórn geta unnið heilum lands
fjórðungi hið mesta gagn og gefið
honum þá þungamiðju sem hann
nauðsynlega þarf að hafa til þess
að geta sameinað krafta sína
þann hátt, sem fjelagsmenning nú-
tímans krefur.
H.
Dagbðk.
Messur á morgun, í dómkirkj-
unni kl. 11 síra Friðrik Hallgríms-
son; kl .5 síra Bjarni Jónsson.
í fríkirkjunni í Rvík kl. 2, síra
Árni Sigurðsson.
í fríkirkjunni í Hafnarfirði kl.
2, síra Ólafur ólafsson.
Hjálpræðisherinn. Samkomur á
morgtin: Helgunarsamkoma ld. 11
árd., sunnudagaskóli kl. 2 e. -h.,
hjálpræðisherinu ld. 8 síðd. Frú
Stabskaptein B. Jóhannesson talar.
Hornaflokkurinn og strengjasveit-
in aðstoðar. Allir velkomnir!
Til fátæku hjónanna frá Ásu og
Inga 10 kr., N. N. 5 kr.
Til Strandarkirkju frá G. Þ. 5
kr., Manna 42 kr.
Bifreiðarislys. Laust eftir hádegi
í gær varð lítil stúlka undir flutn-
ingabifreið á gatnamótum Ingólfs-
strætis og Bankastrætis og lær-
brotnaði á báðunt fótum. Stúlkan
var samstundis flutt á lækninga-
stofu Ólafs Helgasonar, og batt
hann um brotin. Síðan var stúlk-
an flutt á sjúkrahús og fæturnir
settir í gips; leið henni eftir öllum
vonum í gærkvöldi.
Varðskipið „Fylla“ kom hingað
í fyrrinótt til ]iess að annast land-
helgisgæslu. Yfirmaður á Fyllu er
nú v. Hude.
„Óðinn“ tekur togara. í fyrra-
kvöld kom Óðinn hingað með ensk
an tog'ara, St. Brelade frá Hull,
er hann liafði tekið í landlielgi við
Öndverðanes. Dómur var upp kveð
inn í máli skipstjórans í gær og
hlaut hann 12500 kr. sekt og afli
og veiðarfæri gert upptækt.
Mentaskólanum lokað. 1 gær
vantaði 70 nemendur í Mentaskól-
ann vegna inflúensunnar og var
þá afráðið að loka skólanum fyrst
um sinn til næstkomandi miðviku-
dags. Þessir 70, sem fjarverandi
voru í gær, eru ekki allir veikir;
margir þeirra eru á heimili, þar
sem inflúensa er, en eins og menn
muna, bannaði heilbrigðisstjórnin
þeim að sækja skóla.
Steinþór Guðmundsson, skóla-
stjóri barnaskólans á Akureyri
(ekki í 6. bekk þó!), er staddur
hjer í bænum um þessar mundir.
Mun hafa komið með Óðni.
Þingskrifarapróf var háð 11. þ.
m. Gengu 12 manns undir prófið,
og hlutu þessir hæstar einkunnir:
Sigurður Ólason 0,85, Ólafur Svein
björnsson 0,67, Kristján Guðlaugs-
son 0,60, Sverrir Kristjánsson 0,44,
Björn Halldórsson 0,41.
Frá New York koma í þessum
mánuði Emile Walters málari og
kona hans Thorstína Jackson. Þau
ætla að vera hjer kvrt um tíma.
Trúlofun. Ungfrú María Pjeturs-
dóttir og Níels Pálsson rakari í
Hafnarfirði.
Nýi basarinn er fluttur í Aust-
urstræti 7, þar sem áður var versl-
un Henningsens.
Kolaskip nýkomið til kolaversl-
unar Guðna Einarssonar & Einars.
Kappróðrarhorn fslands er til
sýhis í dag í búðarglugga "versl.
Áfram, Laugav. 18. Þetta fallega
og sjerkennilega horn gaf Olíu-
verslun íslands h.f. í. S. 1. síðastl.
sumar, en það var ekki tilbnið
fyr frá hendi listamannanna: Rík-
arðs og Finns Jónssona. Um horn-
ið var kept 29. júlí sl. og vann þá
róðrarflokkur Hjalta Jónssonar
framkvæmdarstjóra. Yerður hon-
um afhent hornið á fundi Sund-
fjel. Reykjavíkur á morgun kl. 4
í Kaupþingssalnum, og eru allir
velkomnir þangað, sem áliuga
liafa á sundi og róðri.
Leiðrjetting. Hr. Sigurjón Ólafs-
son virðist hafa lesið yfirlýsingu
mína gagnvart launadeilunni nokk
uð fljótfærnislega. Jeg hefi hvergi
sagt, að iúð loftskeytamenn ætlnð-
um ekki áð fara fram á launa-
hækltun; aðeins tekið fram, að við
höfum enga kaupkröfu gert, og að
það mál hafi ekki verið rætt nema
á einkafundum fjelagsins.
Hvað viðvíknr heimsókn minni
til Sigurjóns, þá hlýtur hann að
muna, að jeg fór til hans í per-
sónulegum erindagjörðmn. en eklci
á vegum Fjelags íslenskra loft-
skeytamanna.
Rvík, 15. febr. 1929.
A. Guðmundsson,
formaður F. I. L.
47 dagar ern í dag liðnir síðan
Sigurjón Ólafsson & Co. gáfu út
tilkynninguna frægu, þar sem sjó-
mönnum var fyrirskipað að ganga
á land af togurum jafnskjótt og
slcipin kæmu í höfn.
Saumastof an „Dyngja* ‘ hefir
sýningu á hannyrðum sínum í
verslunargluggum Jóns Björnsson-
ar & Co. í Bankastræti, í dag og
næstu daga.
Búnaðarþingið. Fundir eru þar
daglega fyrripartinn frá kl. 10—
12. Þessi mál eru á dagskrá í dag:
Styrkur til garðyrkjunáms erlend-
is, bimaðarmálafundur 1930, bygg-
ingar úr samanþjöppuðum leir
(moldsteypa); tillögur sauðfjár-
ræktarráðunauts um misjafnan
burðartíma á ám.
Verðandi nr. 9. Kynningar- og
skemtisamkoma í kvöld kl. 8y2 í
Goodtemplarahúsinu. Aðeins fyrir
fjelaga stúkunnar og ókeypis fyrir
alla, sem greiða eða hafa greitt
áfallið ársfj.gjald. Fjármálaritarar
verða til viðtals. Mýndasýning og
margt til skemtunar.
Fjelaganefndin.
Próf. Johs. Velden heldur síðari
fyrirlestur sinn um eðli tónlistar
annað kvöld kl. 8y2 í Varðarsaln-
um.
„Drabbarl".
alla nóttina. Hann hafði brotið
heilanm nm framtíðina, er honum
fanst alt annað en efnileg. Hann
var að hugsa um hvort hann ætti
að smía heim í fyrri fátækt, eða
taka á móti tilboðinu frá þessum
manni, er segðist vera faðir hans.
Hann var með öllu óráðinn þegar
Crispin ávarpaði hann.
— Jocelyn, sagði hann í auð-
mjúkum tón, jeg kem til baka til
Marleigh hallar eftir klukkutíma
til þess að efna loforð mitt frá í
gær. Mjer er það ekki ljóst, hvern-
ig jeg á að fara að því, — en jeg
mun standa við orð mín, Jeg hefi
fengið mjer skíp til að sigla á
hjeðan og eftir eápa þrjá, fjóra
daga verð jeg kominn af stað til
Frakklands með konuefnið þitt.
Crispin staldraði við. Hann átti
auðsjáanlega von á svari, en Ken-
neth mælti ekki orð. Hann horfði
í gaupnir sjer, og hlustaði á það,
sem faðir hans sagði.
— Þú getur ekki haft neitt á
móti fyrirætlun minni. Jeg mun
gefa þjer fullkomna uppbót á öllu
því, er jeg hefi gert á hluta þinn.
Þú verður að fara hjeðan nú þeg-
ar og til London. Þar verður þú
að komast á skip til Calais, og
bíða eftir mjer þar í gistihúsinu
„Sólarljósið“. Ertu því samþykk-
ur, Jocelyn?
Var nú auðsjeð, að Jocelyn tók
ákvörðun sína. En það var líka
auðsjeð á honum, að honum var ó-
geðfelt að eiga samneyti við
Crispin.
— Mjer er nauðugur einn kost-
ur, herra minn, sagði hann, og
þess vegna segi jeg já. Ef að þjer
efnið loforð yðar, þá skal jeg við-
nrkenna, að jeg hefi fengið fullar
sárahætur; og bið yður velvirðing-
ar á því, að jeg efaðist um orð
yðar í gærkvöldi. Jeg mun bíða
yðar í Calais.
Crispin stundi þungan. Hann
átti auðsjáaulega von á öðru svari.
Eitt augnablik datt honum í hug,
að rjettast væri að láta þennan
blessaða son sinn sigla sinn sjó —
og fara til fjandans. En honuni
snerist hngur í sömu andránni.
— Jeg skal ekki svíkja þig,
sagði liahn fremur kuldalega. Áttu
fyrir fargjaldinu?
Drengurinn varð skömmustuleg-
ur á svipinn, því hann skammaðist
sín fyrir að hafa eytt því nær öllu
því fje, sem hann fjekk hjá Ash-
lurnum. Crispin sá hvar fiskur lá
undir steini. Hann lagði pyngju
á borðið og sagði:
— Hjerna eru 50 gullpeningar.
Þeir ættu að nægja þjer. Vertu
sæll. Við sjáumst í Calais.
Og með það gekk Crispin rak-
leitt út úr herberginu, án þess að
gefa drengnum tækifæri til þess
að þakka honum fyrir.
Rjett á eftir var Crispin kom-
inn á hestbak og lagði af stað
enn einu sinni — norður á bóginn.
Eftir þriggja tíma reið var hann
kominn til Newport. Fyrir utan
veitingahúsið „Hrafninn“ var
ferðavagn. Crispin ljet ekki svo
lítið að líta á vagninn.
Oft getur eitt augnablik, augna-
tillit, handtak, hreyfing^ orðið á-
hrifaríkt fyrir alla framtíð manns.
Ef Crispin" hefði þarna um morg-
uninn litið á vagninn, þá hefði
hann sjeð þar merki Ashburna. Og
Og liefði hann staðnæmst þar, þá
hefði alt annað beðið hans, en raun
varð á, framtíð hans orðið alt
önnur.
23. kapítuli.
Jósef gat ekki stilt sig um að
fara til London. Hann hafði eng-
an frið í sínum beinum. Hann
þurfti að fá fulla vissu um, 'að
Crispin hefði lent í gildru þeirri,
er fyrir hann var lögð, svo hann
gæti framvegis verið óímltur fyr-
ir árásum á sig frá hans sendi, og
hann hefði framvegis óátalið full
umráð yfir Marleigh. Til þess að
ganga úr skugga um þetta, lagði
Jósef á stað daginn eftir að Cris-
pin fór.
Cynthia varð steini lostin, er
hún kom á fætur um morguninn,
og sá þess vegsummerki, að alt
hefði verið í uppnámi í húsinu um
nóttina. Kenneth farinn, hafði rok-
ið á stað alt í einu um miðja
nótt, án þess að minnast einu orði
á það kvöldið áður. Faðir hennar
í rúminu, særður og með hita. —
Vinnufólkið lasið, syfjað, úttaug-
ag gægsnislegt. í skálanum var alt
Obels
mnnntóbak
er best.
Trjevðrnr,
alskonar seljast með lægsta mark-
aðsverði cif. á allar íslenskar
hafnir, af fjölskrúðugum birgðum
í Halmstad í Svíþjóð. — Biðjið
um tilboð.
A,B. GUNNAR PERSSON,
Halmstad. Sverige.
Ódýrt.
Kex frá 75 aurum, margar teg-
undir, brauð og kökur, allskonar,
íslensk egg, smjör á 2,10, tólg,
ostar frá 0,75, Pylsur.
Versl. Fillinn.
Laugaveg r9. — Sírni 1551.
Sv. Jónsson ft Ge
Kirkjustræti • b. Stmij 4S$,
iHlunið
nýja veggfóðrinu.
Daglega
nýlagað kjðtdeig og fiskdeig,
reykt kestabjúga og reykt
vínarbjúga í kjðtbúðinni Von
Simi 1448.
Ver kfæri:
Koparplötur,
Koparstangir,
Vjelareimar,
Boltar.
Vald Poulsen.
1 bæjarkeyrsln
hefir B. S. R. 5 og 7 manna-drose-
íur. — Studebaker eru bfla bestir.
Hvergi ódýrari bæjarkeyrsla e»
hjá B. S. R.
FerSir til Vífilsstaða og HafK-
arfjarðar með Studebakerdros**
íum, alla daga, á hverjum klukkm
tíma. — Ferðif austur í Fljótshfl*
þegar veður og færð leyfir.
Bifreiðastöð Reykjavíbur.
Afgreiðslusímar 715 og 716..