Morgunblaðið - 07.04.1929, Qupperneq 3
s
3jftorgttstMato^
•tofn&ndl: Vllb. Flnaen.
Dtsafnndi: FJelas ( Reykjarlk.
JUtatJðrar: Jðn KJartanaaon.
Valtýr Stefánaaon.
Au*l#alngaatjörl: E. Hafber*.
■krifatofa Auatnratraeti I.
■taU nr. 10«.
Aualýalnsraakrlfatofa nr. 700.
Helmaalmar:
Jðn KJartanaaon nr. 74S.
Valtýr Stefánaaon nr. ltSO.
B. Hafbers nr. 770.
Vakrlf ta* Jald:
Innanlanda kr. S.00 á aaánoBL
Utanlanda kr. S.60 • ——<
7 lauaaaölu 10 aura elntaklV.
Eriendar sfmfregnír.
Khöfn, FB. 5. apríl.
Varað við gróðabralli.
Frá Wasihhgton er símað : For-
wtjórar Federal' Re-serve' bankanná
komu saman á fund lijer í gær til
jþess að ræða erfiðleika, sein mikið
gróðabrall á kauphöllinni í New
Tork hefir valdið á peningamarkr
aðinum. Margir óttast, að gróða-
brallið muni enda með stórkost-
legu hruni, sem fái alvarlegar fjár-
hagslegar afíeiðingar. — Federal
Reserve hafði margsinnis varað við
gróðabrallinu.
í-ítt . . .. ..... i . ■■ .1
Khöfn FB Ö. apríl.
Styrjöldin í Xína.
Frá Shanghai er símað: Tilkynt
hefir verið opinberlega að her
Nanking-stjórnarinnar liafi tekið
Hankow herskildi, án þess að
nokkur mótspyrna væri veitt.
Xandráð jafnaðarmaama í Litauen.
Frá Berlín er símað: Lögreglan
5 Litauen hefir aftur í gær látið
fara fram liúsrannsókn hjá sósíal-
istum. Nokkur hundruð sósíalistar
voru handteknir. Lögreglan ver
handtökurnar með því, að húsrann
sóknirnar liafi leitt það í ljós, að
sósíalistar hafi staðið í sambandi
við uppreisnarforingja nokkurn
Pletskaitas að nafni,. og látið út-
hluta blaði hans, en stjórnin hafði
foannað útkomu þess.
Stöðvun gróðabralls.
Frá Washington er símað: —
‘Stjórn Federal Reserve bankanna
hefir samþykt nýja áskorun til
hankanna um að takmarka lánveit-
ihgar til gróðabrálls. Verði bank-
árnir ekki við áskoruninni segist
bankastjórnin hafa ráð í hendi
sjer til að neyða bankana til þess
^ð veita eigi verslunarián og hætta
hllum lánveitingum til gróða-
bralls.
Kosningabaráttan
byrjuð í Englandi.
Frá London er símað til Kaup-
Fannahafnarbiaðsins „Social'-
T\
JJemokraten“ : Artlmr Henderson
^1eíir haldið ræðu og sagði hann
1,1 • a., að ef verkamenn myndi
^kjórn, að aflolcnum kosningunum,
ætli þeir sjer að draga úr her-
hiálaútgjöldum Bretlands að miki-
hm mun, kalla saman alþjóðlegan
Hfvopnunarfund og viðurltenna
’aðstjórnina rússneskn, gegn því
Hð hún heiti því, að gera engar til-
^aunir til undirróðursstarfsemi í
i'etiandi og nvlendunum.
MORGUNBLAÐTÐ
New York búar eru álitnir allra
manna vandlátastir á bifreiðar.
Strax og NASH „400“ komu á markaðinn, tóku
íbúar Risa-borgarinnar fegins hendi því nýjasta
og besta á sviði bifreiðaframleiðslunnar.
Um alla Ameríku, um allan heim, hafa þessir
bílar vakið aðdáun fýrir yfirburði, styrkleik og
fegurð.
Bygðir fyrir þá, sera eru vanir, og viíja ekki nema
það besta, og keyptir af þeim, fara NASH „400“
alstaðiar sigurför.
NAS W '4#«r
Umboðsmaður fyrir NASH MOTORS
Sigurþór Jónsson,
Reykjavík.
Umræðufundur um þióðfjelagsmái.
Fjelag ungra jafnaðarmanna og stjórnmálafjelagið
„Heimdallur“ halda sameiginlegan umræðufund í LVarð-
arhúsinu sunnudaginn 7. apríl kl. 2 e. h. Fjelagsmenn úr
báðum fjelögunum hafa einir aðgang að fundinum.
Fjelag ungra jafnaðarmanna. Stjórnmálafjel. Heimdalhir.
Sorglegt slys.
Tveir efnismenn drukkna.
Hinn 4. þessa mánaðar drukkn-
uðu tveir piltar frá Flögu í Skaft-
ártungu, Sveinn, sonur hjónanna
þar, Vigfúsar Gunnarssonar og
Sigríðar Sveinsdóttur, og Páll Sig-
urðsson, systursonur húsfreyju. —
Voru þeir báðir um tvítugsaldur
og einstakir efnismenn.
Menn vita ekki glögt með hverj-
um hætti slysið hefir orðið. Þeir
voru að stunda veiðiskap í Eld-
vatni, skamt frá Flögu. Er algengt
að silungsveiði sje stunduð þar,
bæði í reknet og ádrátt og vaðið
ineð netin. En Eldvatnið breytir
sjer stöðugt þarna, grefur hylji
og ála og hleður upp eyrum sitt
á hvað.
Seinast þegar frjettist var lík
Sveins ófundið, en lík Páls hafði
fundist suður í Kúðafljóti.
Þeir frændurnir voru systra-
synir þeirra Páls Sveinssonar
Mentaskólakennara og Gísla
Sveiussonar sýslumanns í Vík.
Horizel *. Reuter.
Þriðji konsert.
Þeir eru orðnir þrír, hljómleik-
ar lians á fimm dögum, svo að
þaðgetur ekki heitk'i að hann
iiggi á liði sínu. Húsfylli var að
vísu ekki síðastl. föstudagskvöld,
en það hygg jeg, að hafi verið
heklur til bóta, að sumu leyti. Svo
virtist undirrituðnm að minsta
kosti, sem strengjahreiinurinn væri
með rnoiri ágætum en fyrsta skift-
ið — eigi síst í C-moll-sónötu
Griegs. Var ánægjulegt mjög að
heyra hana, bæði fyrir þá sök, að
v. Reuter og Haeser voru sámtaka
um að flytja hana prýðilega, og
líka vegna þess, að hún kemnr í
blettum við taugar í okkur Norð-
urlandabúum, sem eru jafnvel ó-
suortiiar af mikilfenglegri lista-
verltum suðlægari landa. — Vita
mátti, að slíkur kunnáttumaður,
sem v. Reuter er, mundi ná tök-
um á Fiðlukonsert í D-dúr eftir
Tsehaikowsky. í þeirri tónsmíð er
gnægð „tekniskra" þrauta, sem
hann leikur sjer að? eins og kunn-
ugt er. Canzonettuna flutti hann
innilega, blátt áfram mjög og án
allrar væmni og síðasta kaflann
af miklum eldmóði. — í lokaþætt-
inum voru Romanze í G-dúr eftir
Beethoven, Siciliano og Rigaudon
eftir Francoeur-Kreislar (ljúffeng-
ur rjettur afarfallega fram reidd-
nr) og La Campanella eftir Paga-
nini. Yfir tók aukalagið: Air (á
G-streng) eftir Baeh. Það var að
vísu ekki nýung, en mátti þó kail-
ast „nýtt“ í framsetningu von
Reuters, því að jafntiginn og stór-
feldur („monumental“) fiðluleik-
ur er mjög sjaldgæfur.
Sigf. E.
Farsóttir og manndauði
í Reykjavík.
Vikuna 17.—23. mars.
(f svigum tölur næstu viku á
undan).
Hálsbólga 40 (46). kvefsótt 46
(43), inflúensa 51 (60), kvef-
hmgnabólga 5 (1), Lungnabólga
(taksótt) 1 (1), Mislingar 24 (31),
iðrakvef 13 (11), gigtsótt 5 (0),
lilaupabóla 3 (4), umferðargula 5
(3). — Mannslát 9 (5).
Vikuna 24.—30. mars.
Hálsbólga 49 (49), kvefsótt 41
(46), inflúensa 25 (51), kvef-
lungnabólga 5 (5), Lungnabólga
(taksótt) 2 (1)^ mislingar 13 (24),
iðrakvef 13 (13), gigtsótt 2 (5),
hlaupabóla 3 (3), umferðargula 3
(5). — Mannslát 3 (9).
5. apríl 1929.
G. B.
Dagbðk.
□ Edda 5929497=5
I.O.O.F.3= 110488
Dýrtíðin. Ekki minkar dýrtíðin,
enda er ekki við því að búast, þar
sem stjórnin gengur á undan í því
að halda henni við. f seinustu Hag-
tíðindum má sjá það, að lífsfram-
færslukostnáður hefir ekker't lækk-
að hjer í Reykjavík í marsmánuði.
Eru nú nauðsynjavörur til jafnað-
ar 113% hærri heldur en í stríðs-
byrjim. Er verðhækkun á innlend-
um vörum þó mun meiri heldur en
á hinum útlendu, en það stafar aft
ur af því, hvað öll framleiðsla er
hjer óguðlega dýr.
Dánarfregn. í gærmorgun ijetst
frú Sigurlaug Sigurgeirsdóttir,
kona Guðmundar Bergssonar póst-
meistara.
Nýja gistihúsið. Byggingu þess
miðar nú óðum áfram, svo að sjá
má mun á því á hverjum degi. Ný-
lega voru boðnar út raflagnir
í hiísinu og koniu nokkur tilboð.
Hið liæsta var 15 þús. kr„ en hið
lægsta á 3,500 krónur. Var það frá
bræðrunum Ormssonum og var því
tekið.
80 ára afmæli átti Sigurður Er-
lendsson fyrverandi bóksali í gær.
Hann á heima á Elliheimilinu
Grund.
Nýr þýskur konsúll. Innan
skamms er væntanlegur hingað
þýskur „generalkonsúll“ í staðinn
fvrir dr. Schellhorn. Heitir hann
í reiherr von Uiigeíter og liefir áð-
tu' verið aðalræðismaður Þjóðverja"
bæði í New Orleans og í Seattie í
Bandaríkjunum.
GuQnindur hnku
flytur erindi um
Daða Halldörsson
og
Ragnheiði Brynjölfsdúttur
í Nýja Bió í dag
kl. 31/* rjettstundis.
Aðgöngumiðar á kr. 1.50 við
innganginn.
,Skúfslækurc
í Villingaholtshreppi er til sölu
og laus úr ábúð í vor. — Verð
sanngjarnt. — Bor gun arskilrtálar
mjög góðir. Semja þarf sem allra
fyrst við
Jónas H. Jónsson.