Morgunblaðið - 06.08.1929, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 06.08.1929, Qupperneq 2
 M O R G U N B L A Ð i t) Biðjið um Colman’s Fæst allstaðar. ■0 Híssko M.&'é&.WiL&'&JM.'&B.S.l L'arneolejeaideling. Grundl j prahti'Ií c' tccre'isK Undersisn na I alt husligt Arbejde nq Barnepleje. SKoien udridet - Cen.traioartne ooeralt - Nyt Kursus begynder 4. Nooember og 4. MaJ. p is '15 Kr mdl. - Projram sendes. - Statsundersteittelse kan szjes Telí Sora 10? c.q 442 E. Vestergaard, Uorstanderlnde. Drengur nm fermmgu óskast stras. A. Obenbanpt. 99 Iu memoriam. ti Sðpnr er mýkja, styrkja og hreinsa hörnudiö og gefa þvi yndislegan mjallhvítan litarhátt, — fást frá 35 anrnm stykkið í Uerslið við Vikar. — Vöfur við vægu verði. — Nóttina milli 11. og 12. jiilí, and- aðist hinn ágæti vinur minn, Kon- ráð R. Konráðsson á hörmulegan hátt. Hann og Sigríður kona hans dvöldu enn einu sinni á heimili okkar. 1 21 ár hafði vinátta okkar staðið. Jeg hefi með ágætri leið- sögu hans sjeð fegtirð ættlands hans og jeg kyntist þá ættjarð- arást hans. Hann hefir síðan feng- ið tækifæri til að kynnast mínu ættlandi og hann lærði að virða það og elska á sama hátt og jeg. Jeg átti aidrei dýrmætari og betri vin, engan sem betur sýndi þakk- læti, jafnvel fyrir smágreiða. Lífs- gleði hans og þróttur kendu mjer að sjá skrítnar hliðar á ýmsu, jafn vel þótt alvarlegt væri, og jafn vel á dauðastundinni sýndi liið þjáða andlit hans dálítið af hinni einkennilegu góðlátu gleði. Annar aðaldráttur skapgerða*? hans var hin óslökkvandi ást hans á föðurlandi sínu. Þess vegna mun liann verða grafinn á ættjörð sinni. Guð blessi minning hans og huggi vini hans og ættingja. Hvíl í friði, vinur! Bremen í júlí 1929. Emil Sonnemann. • I Snndskýlnr, Snndbolir, Snndbettnr, fjölbreytt úrval í Verslun gill lacobsen. mi !ios liíliirs reynist best. Baldursgötu 14. Simi 73. Pjetur Jónsson söngvari skemti sjúldingum á Vífilsstöðum með .söng hinn 1. þ. m., og var almenn hrifning og þakka sjúklingar hon- )um kærlega fyrir komuna. Ernir. Jeg var staddur vestur í Barða- strandarsýslu, er jeg las grein Nielsens á Eyrarbakka ur ernina. Þar hjelt hann því fram, að á öllu landinu mundu vera 6—7 arnar- hreiðnr, brýndi fyrir mönnum prýði þeirra, og hver þjóðarósómi það væri, ef þeim væri útrýmt, líkt og geirfuglinum. Jeg fór hringinn í kringum Vest- firði, og frjetti til 14 arnarhreiðra nú í vor. Jeg veit því með vissu, að þau eru til muna fleiri á öllu landinu, en hr. Nielsen telur, og stafar það vitanlega af únógum kunnugleika hjá honum. Margir bera þungan hug til össu. Einstaklingar þurfa oft að fóðra hana á lömbum og æðar- fugli, og þeim þykir fóðrið dýrt. Hvort rjett sje vegna þjóðarmetn- aðar að friða hana, skal jeg láta ósagt, en sje það rjett, er rjett að heildin horgi þeim einstaklinigum, sem árlega verða fyrir skakka- föllum af völdum hennar, en mega ekki að gera, af því hún er friðuð. Eða hvað mundu amarvinirnir láta hana drepa mörg lömh fyrir sjer — sín eigin lömb — án þess að fara að áreita hana með skot- um? Þegar næst verður rætt um fram lenging á friðunartíma arnarinnar, ei sjálfsagt — ef rjett þykir að friða hana — að láta heildina — ríkissjóð — borga þeim einstak- lingum, sem hennar vegna bíða tjón á einn eða annan hátt. Þetta vildi jeg biðja vini össu að athuga. 27.-7. 1929. Páll Zophóníasson. Fjársöinnn til kirkjubygging-ar í Borgarnesi. í ráði er að reisa kirkju í Borg- arnesi, og er þegar hafinn undir- búningur þar efra í þessu skyni. Merkur maður þar efra skrifar Mbl. brjef viðvíkjandi kirkjubygg- ingu þessari og þykir sjálfsagt að !áta kafla úr því komast fyrir al- menningssjónir. — Brjefritaranum farast orð á þessa leið: „Borgarnes er nú oi'ðið allstórt þorp, rúml. 400 íbúar, og fólki fjölgar ört, því atvinnulífið er þar í mikilli framför, samgöngur að batna til lands O'g sjávar og ferðamannastraumur mjög mikill. Nú er hafnargerðin langt komin, boginn nndir brúnni fullsteyptur og byrjað á gangpöllunum; jafn- framt er unnið að uppfyllingunni við efri enda Brákareyjar. Búast menn við að hefja hjer útgerð, þegar bryggjan er fullgerð og tek- in til notkunar. Allmörg hús eru í smíðum, og nú stendur til að skipuleggja byggingu þorpsins. — Kirkjnna hugsa menn helst að reisa þar sem hæst ber, ög gnæfir bún þar yfir og mundi sjást langt að. Borgarkirkja er löngu alt of lítil, bygð 1880, þegar engin bygð var til í Borgarnesi. Er mælt, að t. d. við jarðarför síra Einars sál. I'Yiðgeirssonar hafi ekki komist inn fjórði hluti viðstaddra, og við fermingu í vor urðu foreldrar sumra fermingarbarnanna að standa utan kirkjudyra. Er mikil hreyfing í Borgarnesi um að byggja þar nýja kirkju, en láta I’orgarkirkju þó standa óhreyfða, og halda henni við, þar sem á Borg hafði verið bygð 4. fyrsta liirkja á Islandi. Er þegar tekið að safna fje til kirkjunnar; hefir safnast æði hátt á 2. þúsund kr., nær eingöngu með samskotum í Borgarnesi og áheitum. En það segir samt lítið, og er nefnd sú, er fyrir fjársöfnuninni stendur, mjög áhugasöm um að safna til kirkjunnar sem víðast og á sem flestan hátt. Ein leiðin er sú, að fá Morgunblaðið í lið með sjer til að hera þá fregn til lesenda sinna, að vel reynist áheit á Borgarnes- kirkju, og eru allmargar' sögur þegar til um það, hve vel hún hafi orðið við. Okkur finst ekki frá- leitt, að ýmsir Reykvíkingar, sem minningar hafa úr Borgarfirði, annaðhvort frá dvöl þar eða ferða lagi, mundu vilja láta Borgames- kirkju njóta áheita sinna og reyria, hvort hún reynist ekki happa- sæl.“ Morgunblaðið veitir fúslega mót töku áheitum og gjöfum til kirkj- unnar. Alþinaissjððnr Björn Bjarnarson, hreppstjóri í Grafarholti, hefir fyrir skömmu — í umboði nokkurra manna — sent út brjef um stofnun „Alþingis sjóðs“. í skipulagsskrá segir, að „Al])ingissjóður“ sje stofnaður til minningar um 1000 ára afmæli Al- þingis og eru stofnendur þeir, sem fje leggja til sjóðsins árin 1929— 1930, en styrkjendur þeir, er síðar efla hann með tillögum eða gjöf- um. Sjóðurinn skal ávaxtaður í að- aldeild Söfnnnarsjóðs og má aldrei skerða höfuðstólinn. Allir vextir skulu lagðir við höfuðstólinn þar til sjóðurinil er orðinn ein miljón krórnur, en eftir það „má Alþingi verja hálfum vöxtunum árlega til styrktar eða framkvæmdar stofn- un eða fyrirtæki, sem þingið ákveð ur þess verðugt“. í brjefi því sem Björn Bjarnar- son í Grafarholtj hefir sent út, segir m. a. svo: „Nokkurir fyrverandi og núver- andi alþingismemn og fleiri hafa orðið sammála um, að gangast fyi*- ir myndun sjóðs í minningu 1000 ára afmælis Alþingis, er nefnist „Alþingissjóðui*“, og erþessvænst, að þjer munuð einnig vilja fylla þann flokk. Það mun verða alment viður- kent, að eigi sæmi að láta þenna einstæða merkisatburð svo hjá líða, að eigi sje stofnað til varan- legrar miruningar um hann, og er sjóði þessum ætlað að verða slíkt ævarandi minningarmerki. Er vísir til sjóðsins þegar lagðurinn i Söfn- unarsjóðinn með skilmálum þeim, er meðfylgjandi skipulagsslcrá' á- kveður. Skipulagsskráin er fáþætt. — Væmt er almennrar hluttöku í stofnún sjóðsins, eftir lundarlagi xnanna, efnum og ástæðum, og sje hver sjálfráður livort hann vill greiða tillag eitt skifti, eða árstil- lag um ákveðinn eða óákveðinn tíma. — Hluttaka sje öllum frjáls. Gera má ráð fyrir, að veglyndir menn og þjóðræknir muni fram- vegis vilja efla sjóðinn, og meðal annars að það verði föst venja, að alþingismenn greiði honum tillag,- a. m. k. hvert sinn er þeir hljóta kosningu. Hyggilegast mun að láta Alþingi óhundið af skipulagsskrárákvæð- um um það, til hverra stofnana eða framkvæmda útborgunarhluta vaxtanna skuli varið. Nú höfum vjer máske ekki hugboð um það, er kann að þykja miklu skifta fyr ir hag og sórna lands og þjóðar og þess verðugt, að vera styrkt eða framkvæmt af slíkum sjóði. En því verður að treysta, að ætíð verði það einungis hin virðuleg- ustu viðfangsefni“. Vafalaust verða margir til þess að taka þátt í sjóðsstofnun þessari, og þess vænst að þátttaka verði sem almennust. Tillög skulu send forstjóra Söfnunarsjóðs, síra Vil- hjálmi Briem. Brúarfoss kom liingað á sunnu- dagsmorgun. Farþegai' voru: Carl Proppé O'g frú, Bjarni Snæbjöi'ris- son læknir og frú, Magnús Thor- steinsson útibússtjóri og frú, frú Ingibjörg Pjetursdóttir, frú Jóh. Pjetursdóttir, Gunnar Priðfinns- son, Jóhanna Friðfinnsdóttir og fjöldi annara farþega, þar á rneðal margir útlendingar. P» l.s. islond fer í kvöld klukkan 6 til Isa- fjarðar, Siglufjarðar og Ak- ureyrar. Þaðan sömu leiði til baka. Farþegar sæki farseðla fyr- ir hádegi í dag. Tekið á móti vörum til há- degis í dag. 6.S. Bðlnla fer annað kvöld klukkan 8 til Leith (um Vestmannaeyj- ar og Thorshavn). C. Zimsen. nmungar! Grammofón- plötur, Nótur. Ekkert sumarleyfi án ferðafóns. Allar tegunðir. Verð frá 55 kr. Hljóðfærahúsið. Ferðajakkar og Buxur. Sportsokkar og Vefjur. Sportskyrtur, ljósar og dökkar. Ferðahúfur. Svefnpokar. Bakpokar. „Primus“-hitunartæki. ódýr og hentug. „Meta“ eldiviður er ómissandi. Ferða-Áttavitar afar þægilegir o. fl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.