Morgunblaðið - 05.11.1929, Qupperneq 2
M 11 ,» V. > h i A ‘
%
). Steffensens Fabrikker, Haupm.hdfn.
Seljum beint til kaupmanna:
PYLSUR allskonar,
FLESK, saltað og reykt,
RÚLLUSKINKUR,
LIFRARKÆFU í dósum,
GRÍSAHLAUP, UXATUNGUR o. fl.
Ymsar stærstu matvöruverslanir borgarinnar kaupa
eingöngu ofanskráðar vörur frá þessari verksmiðju.
Ú t s a 1 a.
Ný sambönd.
Þar sem jeg opnaði mjer í sumar ný sambönd í
manchettskyrtum og herraslifsum, sel jeg eldri birgíir,
sem jeg nú hefi, með mjög miklum afslætti.
Föt, fataefni í stóru úrvali, treflar, millifatapeysur
(Poollowers), mjög ódýrt.
Athugið verðií og vörurnar.
Andrjes Andrjesson.
Laugaveg 3.
yndisala.
Mikill afsláttur.
Manchettskyrtur, flibbar, bindi, hattar, enskar húf-
ur, drengja-skinnhúfur, matrósahúfur, ísgarnstreflar hvít-
ir og mislitir, veski, buddur, vasahnífar, axlabönd o. m. fl.
Vetrarfrakkar, ýmsir litir, tilbúnir eftir fáa klukku-
tíma. —
Notið tækifærið og gerið góð kaup.
V. SCHRAM.
Frakkastíg 16. Sími 2256.
Hétel Hekla.
DANSLEIK AR. SKEMTANIR.
Þau fjelög eða þeir' einstaklingar, sem ætla að tryggja sjer
veislusalina til hátíðahalda eða dansleika í vetur, geri svo vel að
tala við undirritaðan fyrir 10. þ. m. Enn eru nokkrir laugardagar
lausir, Hljóxnsveitin biður þess getið, að hún sje fús á að spila fyr-
ir þá, sc'm hjer hafa skemtanir, en vegna mikillar eftirspurnar verði
slíkt einnig að ákveðast fyrir 10. þ. m.
G. K. Guðmundsson.
Ljósmyndastofa Sigr. Zoega & Go.
opin virka daga kl. 10—6, helga daga 1—4.
Myndatökur á öðrum tíma, ef óskað er.
ATH. Mikil verðlækkun á stækkuðum myndum. Hvergi vandaðri
vinna. 011 amatörvinna fljótt og vel af hendi leyst.
Sendið auglýsingar tfmanlega.
'i'
Páll Sjarnason
lögfræðingur.
Hann ljest í gærmorgun eftir
stutta legu. — Banameinið var
lungnabólga.
Páll Bjarnason.
Hann var sonur Bjarna pró-
fasts Pálssonar í Steinnesi, fædd-
ui að Steinnesi 13. jiilí 1890, og
varð því aðeins 39 ára að aldri.
Hann lauk stúdentsprófi 1912 og
innritaðist síðan í lagadeild Há-
skólans og tók embættispróf sum-
arið 1916. Varð hann fyrst lög-
fræðisráðanautur hjá Garðari stór-
kaupmanni. Gíslasyni, síðan full-
trúi bæjarfógetans í Reykjavík.
En eftir það, að hann ljet af því
starfi rak hann lögfræðisstörf
fyrir eigin reikning, var um tima
í fjelagi við Lárus Jóhanne'sson
hrm., en seinustu árin hafði hann
lögfræðisskrifstofu í fjelagi við
Gísla bróður sinn.
,Dáinn, horfinn — harmafregn!‘,
mælti Jónas er hann frjetti lát
besta vinar síns. Fregnin varð
honum slíkt reiðarslag, að hann
gat ekkert annað sagt. En í þess-
um fáu orðum felst hinn djúpi
og' einlægi harmur út af missi vin-
arins. Og líkt hefir sumum farið,
er þeir frjettu hið sviple'ga frá-
fall Páls Bjarnasonar, að harmur-
inn hefir níst svo hjörtu þeirra, að
þeir hafa hvorki mátt mæla nje
gráta.
Páll var einhver sá allra besti
maður, sem jeg hefi kynst, um
æfina. Hann var svo hjartagóður,
að hann mátti ekkert aumt sjá.
Hann var svo, að tæki hann trygð
við einhvern, þá varð hann aldrei
„fyrri að flaumslitum“. Og ætíð
hugsaði hann um það fyrst hvað
rjett væri, og fylgdi því fast
fram, hvað se'm aðrir sögðu. —
Sannleiksleit var honum meðfædd
og hann misti aldrei sjónar á því,
að sannleikurinn er sagna bestur,
og hverjum manni er skylt að
reyna að vita rjett, heldur en
hyggja rangt. Hann var í einu
orði sagt góður maður, og „þar
sem góðir menrt fara, þar eru guðs
vegir“, segir skáldið.
Páll var einlægur trúmaður. en
fór dult með það. Var honum síst
lagið að vera með innilegustu til-
finningar sínar á vörunum, enda
var hann yfirleitt dulur í skapi
og sagði engum allan liug, nema þá
einkavinum sínum. Þektu hann því
fáir til fulls, en vegna dagfars-
prýði sinnar og mannkosta átti
liann marga vini.
Hjer er manninum rjett lýst,
ecda mundi mjer ekki detta í hug'
að bera oflof á hann látinn. Það
mundi hann síst af öllu hafa
viljað.---
Svo kveð jeg þig með orðum
skáldsins:
Plýt þjer, vinur, í fegri heim!
Krjúptu að fótum friðarboðans,
fljúgðu á vængjum morgunroðans
meira að starfa guðs um geim.
Á.
Esperautórit.
Esperantó-sýningin í glugganum
í Bókaverslun Þór. B. Þorláksson-
a]■ gefur að vísu ófullkomna mynd
af útbreiðslu og notkun málsins,
enda liefði til þess þurft miklu
meira rúm heldur e'n er í litlum
búðarglugga. En það er samt vel
þess vert að líta í gluggann og
það getur verið fróðlegt fyrir þá,
sem lítið vita um esperantó. Þar
má sjá úrval (reyndar of lítið)
af blöðum, sem gefin eru út á
esperantó vísvegar um heim, jafn
vel austur í Japan og Filipseyjum.
Sum blöðin fjalla mest um málið
sjálft og útbreiðslu þess, en önnur
ræða ýms sjerstök áhugamál svo
sem trúmálablöð ýmiskonar, jafn-
aðarmannablöð, skólablöð, e'ða
blöð um uppeldismál, vísindi, bók-
mentir o. s. frv. Um ýmsar borgir
hafa verið gefnar út á esperantó
leiðbeiningar fyrir ferðamenn með
myndum, ýmist örfá hlöð (gird
folio) eða dálítil kver (girdlib-
reto) og ern fáein sýnishorn af
þeim í glugganum. Af bókurn á
esperantó be'r auðvitað langmest á
þýðingunum. Auk bibliunnar og
æfintýra Andersen og Grimms má
sjá í glugganum þýðingar á ritum
eftir Virgil, Shakespeare, Goethe,
Shiller, Heine, Moliere, Voltaire,
Ibsen, Strindberg og ýmsa fleiri
he'imsfræga snillinga. Ennfremur
eru nokkur yfirlitsrit um bókment-
ir einstakra landa. Af slíkum rit-
um ber mest á „Kataluna Anto-
logio“. Það er stærðarbók með
þýddum sýnishornum af bókment-
um skráðum á katalónsku frá
elstu tímum til vorra daga. En
auk þess eru aðrar svipaðar bæk-
ur minni, svo sem sýnishorn af
belgískum bókmentum, pólskum,
litaviskum, o. fl. Einkum eru það
smáþjóðir eða þær, er rita á mál-
um, sem eru lítt aðgengileg stór-
þjóðunum, sem nota sjer þannig
esperantó til þess að gera bók-
mentir sínar kunnar öðrum þjóð-
um. Loks eru nokkur frumsamin
rit á esperantó, fyrst og fremst
frumsamin- rit dr. ZamCnhofs í
einu bindi, ennfremur saga esper-
antó í 2 bindum eftir dr. Privat,
æfisaga Zamenhofs, nokkrar skáld-
sögur frumsamdar á esperantó og
Ijóðmæli orkt á því, rit um einstök
lönd eða þjóðir (Ástralíu, Rúss-
land, Búlgaríu o. fl.) o. s. frv.
Af þessari litlu gluggasýningu
má því sjá, að töluvert, hefir verið
ritað a esperantó, eUda fer bóka-
útgáfa á esperantó hraðvaxandi.
Ennþá
er lítið eitt óselt af hinum
ódýru og góðu
niðursuðuglösum.
TlfflF/INÐl
; Laugaveg 63. — Sími 2393.
i
i
i. Riomabússmjör
0 g
E q U
nýkomið.
WW' Hakkur hundruð.
Laglegir Diskar 25 til 45 aura
stykkið. Postulínsbollapör 40—60
aura. Steikarpönnur frá 1,75. Olíu-
brúsar með gjafverði. Flautukatl-
ar og margar aðrar vörur verða
seldar ódýrt næstu daga gegn
staðgreiðslu.
MATV ÖRUBÚÐIN
GRETTISGÖTU 57.
Sími 1295.
Þnrkaður saltfisknr
25 aura % kg., sykursaltað spað-
kjöt 70 aura, nýtt kálfskjöt 50
aura, hangikjöt 1,10, hvítkál 25
aura, gulrófur 10 aura, kartöflur
15 aura.
KJÖTBÚÐIN GRETTISGÖTJU 57
Sími 875.
Yfirfræðslumálastjórinn. „Dag-
ur“, annað stjórnarblaðið á Ak-
ureyri, skýrir frá því, að Sigurður
Einarsson sje skipaður til þess að
hafa eftirlit með æðri ríkisskólum,
en jafnframt muni hann vinna
eitthvað á skrifstofu Ásgeirs Ás-
geirssonar fræðslumálastjóra. —
Bendir þessi frásögn blaðsins til
þess, að Sigurður eigi einnig að
hafa eftirlit með barnaskólum.
Kaup síldarfólksins. Mælt er, að
Síldareinkasalan muni innan
skamms greiða 5 kr. á tunnu í við-
bót við þær 5 kr., e'r' hún hafði áð-
ur greitt. Kemur það sjer vel fyrir
verkafólkið sem stundaði síldar-
vinnu í sumar, því margt af því
hefir lítið fengið ennþá fyrir sum-
arvinnuna.