Morgunblaðið - 21.06.1930, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
í slandsglíman 1930 (Fyrrl hlnti)
verður háð á íþróttavellinum laugardaginn 21. júní kl. 8y2 síðd. Kept verður um Glímubelti í. S. í., handhafi Sig-
urður Thorarensen (Á). Einnig verður kept um Stefnuhornið, handhafi þess er Jörgen Þorbergsson (Á).
Keppendur eru: Sigurður Thorarensen (Á), Jörgen Þorbergsson (Á), Georg Þorsteinsson (Á), Lárus Salómonsson
(Á), Ólafur Jónsson (Á), Dagbjartur Bjarnason(Á), Þorsteinn Kristjánsson (Á), Tómas Guðmundsson (KR), Hall-
grímur Oddsson (KR), Ólafur Þorleifsson (KR), Óskar Einarsson (KR), Sigurjón Hallvarðsson (KR), Valdimar
Valdimarsson (GR), Ágúst Kristjánsson (GR), Viggó Jónss. (GR), Loó Sveinss. (GR) Viggó Nathanaelss. (ÍH).
Allir verða að fara út á völl og fylgjast með hver verður glímukongur íslands 1930.
Aðgöngumiðar kosta, sæti 1.50, pallstæði 1,25, almenn stæði 1,00 og barnamiðar 50 aura.
Glíurafjelagið Ármann.
Kveníimleikafiokkur Akureyringa sýnir í Hafnarfirði í kvöld kl. 8’
Háliðarblað
Morgnnblaðsies.
Stærsta blað sem út hefir verið
gefið á íslandi. 84 bls. í Morgun-
blaðsbroti með á þriðja hundrað
mjmdum.
Hátíðarblað Morgunblaðsins
er 74 tölusettar blaðsíður, auk
þess 6 síður ótölusettar og kápa,
alls 84 blaðsíður í venjulegu
Morgunblaðsbroti. Er það því
stærsta Ulað, sem nokkru sinni
hefir verið út gefið á íslandi. —
Kápan er litprentuð og framan
á henni málverk frá Þingvöllum,
eftir Kristínu Jónsdóttur mál-
ara, og er það málað sjerstak-
lega fyrir þetta hátíðarblað.
1 blaðinu eru greinar eftir
marga helstu rithöfunda vora og
vísindamenn, og er þar saga Al-
þingis frá öndverðu, rituð af
þremur mönnum. Eggert Briem
frá Viðey skrifar um Alþing
hið forna, og lýsir þar merkilega
skipun þess í öndverðu, og þrem
ur merkustu breytingum, sem
urðu á skipun þess þangað til
landið gekk Noregskonungi á
hönd. Einar Amórsson prófessor
ri'tar sögu Alþingis 1271—1874
og Sigurður Eggerz álpm. ritar
sögu sjálfstæðisbaráttunnar. Dr.
Ágúst H. Bjamason prófessor
ritar um Háskólann og Jón Ó-
feigsson yfirkennari um skóla-
mál Islands yfirleitt. — Garðar
Gíslason stórkaupmaður skrifar
ágrip af verslunarsögu Islands
frá öndverðu. Gísli J. Ólafson
landsímastjóri skrifar um Lands
síma Islands. Ólafur Gíslason
framkvæmdastjóri um sjávarút-
veginn. Valtýr Stefánsson rit-
stjóri um landbúnaðinn. Dr. Sig-
vrður Nordal ritar um Alþing
hið forna og íslenska menningu.
Einar Ól. Sveinsson mag. ritar
um íslenskar bókmentir síðari
alda. HaVLdór Hermannsson pró-
fessor ritar um einkenni íslend-
inga. Benedikt G. Waage, forseti
í. S. 1. ritar um íþróttir. Guð-
mundur Bergsson fyrv. póst-
meistari ritar um póstrekstur.
Helgi H. Eiríksson verkfræðing-
ur ritar um íslenskan iðnað. —'
Steingrimur Jónsson rafmagns-
stjóri ritar um vatnsafl á Islandi
Pjetur Halldórsson bæjarfulltrúi,
skrifar um Reykjavík. Dr. Alex-!
ander Jóhannesson ritar um flug
mál Islands og útvarp.
Allar eru greinar þessar með
fjölda myuda. Ennfremur eru
myndir af öllum þingmönnunum,1
sem nú eiga sæti á Alþlngi.
I>á er þar útdráttur úr þeim
þremur hátíðarljóðum, sem verð-
laun fengu og myndir af höfund-
um þeirra, þeim Davíð Stefáns-
syni, Einari Benediktssyni og
Jóhannesi úr Kötlum.
Ennfremur eru birtar ræður
þeirra Þorsteins Ingólfssonar og
Hrafns Hængssonar, sem þeir
eiga að flytja á leiksýningunni
á Þingvöllum, og fylgja myndir,
af þeim eins og þeir verða þar
■búnir.
Margar greinir aðrar eru í
blaðinu, þar á meðal um helstu
firmu hjer í bæ og í Háfnar-
firði.
/ blaðinu er alls á þriðja
hundrað mynda, þar á meðal
fjölda mörg línurit, sem lýsa þró
unarsögu landsins betur en lang-
ar greinir geta gert. — Trúum
vjer ekki öðru en að lesendum
þyki línuritin merkileg, þegar
þeir athuga. þau, og að þau opna
þeim alveg nýtt útsýni yfir sögu
landsins og þjóðarhagi.
Yfirleitt hefir ritstjórn blaðs-
ins verið þannig hagað, að það
gæfi mönnum sem besta hug-
mynd um stofnun Alþingis og
þróunarsögu þess, og jafnframt
að það brygði ljósi yfir nokkra
helstu þætti þjóðlífsins — at-
vinnuvegi og þjóðmenningu.
Hefir verið reynt, svo sem
föng eru á, að lýsa hinu stutta
framfaraskeiði þjóðarinnar og
hvernig umhorfs er í landinu nú,
þegar vjer höldum hátíðlegt
1000 ára afmæli Alþingis vors.
íslandssilman
hefst í kvöld
á íþróttavellinum.
Góðiim gestam skal vel fagna.
Vestir-íslendingádigirlnn
verður haldinn á „ÁLAFOSSI“ n. k. sunnudag 22. júní og hefst kl. 3 sd.
1. Hátíðin sett.
i 2. Prjedikun, síra Friðrik Hallgrímsson. Sunginn einsöngur, Friðarins guð, og sálm-
ar fyrir og eftir prjedikun. |
3. Minni Vestur-íslendinga, ræða herra bókavörður Árni Pálsson. Sungið kvæði, sem
ort hefir verið til Vestur-íslendinga.
4. Ræða; Dr. Brandsson, fulltrúi Canada.
5. Ræða: Síra Jónas A. .Sigurðsson form. Þjóðræknisfjel. íslendinga í Winnipeg.
HLJE:
6. Gengið að sundlaug, þar verður sundknattleikur „Water-Polo“, ýms sund sýnd:
Bringusund, Crawl, Hliðarsund, Baksund, Dýfingar o .m. fl. Bestu sundmenn Is-
lands hafa lofað aðsoð sinni. Drengir synda og dýfa — frá íþróttaskólanum á Ála-
fossi. —
HLJE.
KI. 7 sd.:
7. Leikfimi, hinar frægu Akureyrarstúlkur K. A., undir stjórn Hermanns Stefánsson-
ar leikfimiskennara. ,
8. Fulltrúa U. S. A. og Canada fagnað. '
9. —10. Minningarathöfn um fyrstu ráðherra íslendinga vestan hafs og austan. —
Sungin kvæði — við hvorn. —
11. Skrautsýning „Tabelo“ — Villfjálimir Stefánsson í norðurhöfum. Sungið nýtt kvæðí
12. Skrautsýning — Ingólfur Amarson á Arnarhóli 874. — Sungið Lýsti sól. —
13. ó, guð vors lands.
Karlakór Reykjavíkur aðstoðar með söng allan daginn, undir stjórn Sig Þórðarsonar.
Frjálsar skemtanir.
Þetta verður stærsta útiskemtun sem haldin hefir verið hjer í mörg ár. — Dýrindis
landslag — myndir hafa verið málaðar á leiksviðið, af íslenskum listamönnum. Til alls
vel vandað, til heiðurs okkar góðu gestum, — er þarna verða staddir. —
Aðgangur fyrir fullorðna kr. 2.00, börn frítt.
Eins og getið var um í blað-
inu í gær, hefst Islandsglíman í
kvöld á Iþróttavellinum, en úr-
slitaglíman verður háð á Þing-
völlum.
Þessi tvískifting glímunnar
stafar af því, hve margir glímu
menn keppa, en tímí er naumt
afskamtaður á Þingvöllum
Má vel vera að glíman verði
skemtilegri í augum Islendinga
fyrir vikið, því að eftir kvöldið
í kvöld, má ef til vill að nokkru
leyti sjá, hverjir fræknastir
muni reynast og bestir glímu-
menn. Ætti því glíman á Þing-
völlum að verða enn meira
,,spennandi“ en ella.
Hjer koma fram allir bestu
glímumenn landsins, eins og sjá
má á skrá þeirri, l3em birt var
í blaðinu í gær.
Dómsmálaráðherrann sektað-
ur fyrir meiðyrði. Eins og skýrt
hefir verið frá hjer í blaðinu,
höfðuðu tveir læknar, þeir Bjarni
Snæbjörnsson og Matthías Ein-
arsson mál gegn Jónasi Jónssyni
dómsmálaráðherra fyrir meið-
yrði og dylgjur í grein er birtist
í Tímanum um læknamálið. —
Lögmaðurinn í Reykjavík kvað
upp dóm í þessum málum þann
19. þ. m. og var dómsmálaráð-
herra dæmdur í sekt í báðum mál
unum, í máli Bjarna 120 kr.
sekt (til vara 6 daga fangelsi)
og í máli Matthíasar 60 kr. sekt
(til vara 3 daga fangelsi).
Á leikafmæli Friðfinns Guðjóns-
sonar í gær færðu nokkrir vinir
hans honum að gjöf gullbúinn
göngustaf.
Hópsýíiingarmenn. Munið að
sækja fimleikabúninginn í kvöld
kl. 10 í íþróttahús K. R. við Tjörn
ina. Gleymið ekki Þingvallaförinni
í fyrramálið kl. 8.
R. M. S. „Brltannia
ftft
is leaving Reykjavík for Glasgow on 5th July. A few pas-
sengers can be booked. Fare inclusive of food £ 10.10.0.
Excelent accommodation. Early reservations should be
made. Please apply to:
fieír H. Zoega.
Agent for:
Cunard Steam Ship Company Limited and Anchor Line.
Mnnið A. S. 1.