Morgunblaðið - 21.06.1930, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐTÐ
o
^ftcrguttblafcti
Otgeí.: H.Í. Árvakur, Reykjavlk
Rltstjórar: Jón Kjartansson.
Valtýr Stefánsson.
Rltstjórn og afgrjiBsla:
Austurstrætl 8. — ðlmi 500.
Aufclýsingastjóri: B. Hafberfc.
AuKlýsingaskrifstofa:
Austurstræti 17. — Slmi 700.
Hel naslmar:
Jón Kjartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
B. Hafberg nr. 770.
Askriftafcjald:
Innanlands kr. 2.00 á mánuBi.
Utanlands kr. 2.50 á mánuSl.
í lausasölu 10 aura eintaklB,
20 aura metS Lesbók.
Eelendar sfmfregnir.
V axtalækkun.
London (UP). 20. júní. FB.
Berlín: Ríkisbankinn hefir
lækkað forvexti um 1/2% í 4%.
New York- Federal Reserve
bankinn hefir lækkað forvexti
um 1/6% í 214%.
Þingkosningar.
Montreal: Þingkosningar hafa
farið fram í New Brunswick.
Kosnir voru 29 íhaldsmenn, 17
frjálslyndir, óvíst um úrslit í
tveimur kjördæmum. '
Baxter forsætisráðherra og
flestir fylgismenn hans á síðasta
þingi voru kosnir með miklum
atkvæðamun. Frjálslyndir bættu
við sig 6 þingsætum,
Leiðtogi stjórnarandstæðinga
í þinginu, Wendell Jones, beið
úsigur í koSningunum.
Stórtjón í Rússlandi.
Moskva: Hræðilegt óveður
skall á í Muzenetzhjeraði. —
Mörg þorp hafa lagst í eyði,
þúsundir eru heimilislausir og
allmargir menn hafa beðið
fcana.
Byrd kominn heim.
New York: Byrd pólfari og
fjelagar hans úr Suðurpólsleið-
angrinum, 76 alls, eru hingað
komnir. Viðtökur svo hátíðleg-
ar, að engin dæmi eru til, nema
þegar Lindbergh kom að af-
loknu hinu fræga Atlantshafs-
flugi sínu.
New York: Byrd hefir sagt
í viðtali við blaðamenn, að hann
hafi helgað Bandaríkjunum hin
áður ókunnu lönd, er hann
flaug yfir í Suðurpólshöfum, og
í nafni Bandaríkjanna gert
kröfu til þess, að umráðarjett-
ur ríkjanna yfir þessum löndum
væri viðurkendur. Kvað Byrd
kolanámur svo auðugar þar
syðra, að nægja muni öllum
heimi um langt skeið.
TVIontcalm seinkaði meir en ráð
var fyrir gert og kom það ekki
fyr en um miðnætti. Fóru Ægir
og Öðinn á móti því iit á flóa um
7 leytið í gær og fylgdu því til
hafnar. Borgarstjóri og Karlakór
K. F. U. M. fóru með Magna um
borð þegar skipið var lagst við
feStar. Voru farþegar ekki komnir
í land í nótt þegar blaðið fór í
pressuna og verða því nánari fregn
ir af móttökunni að bíða morgun-
dagsins.
Athygli skal vakin á því að guðs-
þjónustu fer fram í dómkirkjunni
kl. 10 árd. í stað kl. 11.
Zeppelln kemur ekki.
Friedrichshafen: Tilkynt hef-
ir verið, að ekki verði af Zeppe-
linfluginu til Islands, vegna
þess, hve fáir hafa beðið um
far. —
Kosningalrjettir.
Það gengur orðið treglega ’að fá
kosningafrjettir utan af landi. V
gær barst blaðinu fre'gnir úr 5
hreppum í Múlasýslum samtals 245
atkvæði. Er þá ófrjett úr 5 hrepp-
um þar syðra.
Ur Þingeyjarsýslum hefir engin
ábyggileg fullnaðartala komið enn-
þá. En heyrst hefir, að í S.-Þing-
eyjarsýslu hafi verið greidd sam-
tals um 1000 atkv. og um 335 í N,-
Þingeyjarsýslu. Ef tölur þe'ssar eru
nærri sanni, mun heildartalan á
öllu landinu vera orðin nál. 22500
atkv., og er þó ófrjett úr nokkrum
hreppum í Barðastrandas., Snæ-
fellsness., Borgarfjarðars. og Ár-
nessýslu. Heildartalan verður sermi
lega nálægt 23 þús.
Kvennatjaldið
á ÞingvðUnm.
Konum, sem ætla til Þing-
valla yfir Alþingishátíðina,
þykja það eflaust góð tíðindi,
að á einhverjum besta staðn-
um þar eystra, á fallegri flöt
undir hraunbrúninni, rjett við
veginn, hægra megin, andspæn-
is þar sem konungshúsið var,
rjett beint niður undan fossin-
um, verður stórt tjald útbúið
sjerstaklega í því skyni, að kon-
ur geti átt þar innhlaup, hvort
heldur þær vilja sitja þar í næði
og tala við kunningja sína, fá
sjer hressingu og hvíld eða
snyrta sig til. Tjaldið verður út-
búið sem best eru föng á með
þetta fyrir augum, og eru að því
hin mestu þægindi bæði fyrir
þær, sem nærri búa, en þó eink-
anlega fyrir allan þorra manna,
sem náttstað hefir alllangt
fjarri hátíðarsvæðinu. Verður
hægt að fá ódýrar veitingar, t.
d. skyr og rjóma, kaffi, te og
aðra drykki, heita og kalda. —
Nokkur hluti tjaldsins er útbú-
inn með þvottatækjum, og líka
munu konur geta fengið geymslu
á smávegis farangri, sem þægi-
legt er að geta haft með sjer úr
náttstaðnum niður á sjálfanÞing
völl, eða þægilegt fyrir þær sem
aðeins dvelja á Þingvelli dag-
langt.
Bandalag kvenna hefir tekið
tjald þetta á leigu og útbýr það.
Tjaldleigan er dýr og allur til-
kostnaður, en þetta er gert í því
skyni, að auka á þægindi þeirra,
sem á Þingvöll koma. Væri það
vel hugsað af konum að hjálpa
um eitthvað, sem kæmi sjer vel
að fá, til dæmis til veitinganna.
Hugsið eftir því, góðu húsfreyj-
ur, þegar þið farið að baka í
nestið, og stingið einni auka-
köku í ofninn. Sendið hana svo
niður í Búnaðarfjelagshús, þar
verður tekið með þökkum á móti
því, sem þið látið af hendi rakna,
á mánudaginn og þriðjudaginn
klukkan 1—6.
•••« «•••
Islenskir fánar
f öllnm stærðnm. Athngið að fá yðnr HÁTÍÐ iRFÁNANN í tíma.
1
Innanbæ|armenn I
Dtanbæfarmenn I
:!
Klæðist fallegum fötum og frökkum með góðu sniði
Rykfrakkar
Karlmannafðt
Verð kr. 45.00—120.00
Allar stærðir.
Verð við allra hæfi.
Falleg efni, gott snið.
Unglingaföt Drengjaföt Hattar Manchetskyrtur Húfur
Golftreyjur
á börn og fullorðna.
Mjög fjölbreytt úrval.
Seljum einnig:
allar tegundir af
Álnavöru.
Greiðið eigi að óþörfu of hátt verð, en komið því fyrst eða síðast til
okkar áður en þjer festið kaup.
Manohester.
Laugaveg 40.
Sími 894.
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
•-•
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •"
• •
• •
C••••••••
••••••••••••
•••••••••••••••••••••••••••
••••••••••••••••••••••••«
•«•••••••••••••••••••••••••••••§••••§••••••
••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••t«»
• ••
• • •
Iþróttamótið
í gærkvöldi var kept í 110 m.
grindahlaupi, þrístökki, kringlu-
kasti, kappgöngu, 800 m. hlaupi og
10000 m. hlaupi. Úrslit urðu þau:
Grindahlaup 110 m. (3 þáttt.):
1. verðl. Stefáu Bjarnason (Á) á
19,6 sek. 2. verðl. Thor Cortes (K
R) 22,3 sek. 3. keppandinn var
Ingvar Ólafsson (KR) á 19,7 sek.,
Ingvar feldi þrjár grindur í hlaup
inu og fyrirgerði því rjetti sínnm
ti! verðlauna. Tími Stefáns er met,
en verður ekki staðfest af því að
hann feldi tvær grindur í hlaupinu.
Þrístökk (4 þátttakendur):
1. verðl. Reidar Sörensen (IR)
12,62 m. 2. verðl. Sigurður Ólafs-
son (KR) 12,47 m. 3. verðl. Grímur
Grímsson (Á) 12,37 m. Metið er
12,87 m.
Kringlukast (4 þátttakendur):
1. verðl. Þorgeir Jónsson 35,18
m 2. verðl. Sigurður Ingvarsson
(Á) 31,75 m. 3. verðl. Trausti Har-
aldsson (KR) 29,37 m. Metið ek
38,58 m.
5000 m. kappganga (3 þáttt.):
1. verðl. Hanknr Einarsson (K
R) 28 mín 26,6 sek. 2. verðl. Jó-
hannes Zoega (KR) 30 mín. 40,4
sek. 3. verðl. Magnús Magnússon
(KR) 03 mín. 4,7 sek. Metið er
27 mín. 25 sek.
800 m. hlaup (6 þátttakendur):
1. verðl. Jóhanni Jóhannesson
(Á) 2 mín 9,8 se'k. 2. verðl. Ólafur
Guðmnndsson (KR) 2 mín. 14,4
selc. 3. verðl. Stefán Gíslason (K
R) 2 mín. 17,4 sek.
10000 m. hlaup (3 þátttakendur):
1. verðl. Bjarni Ólafsson (D) 35
mín. 52, 9 sek. 2. verðl. Magnús
Guðbjörnsson (KR) 36 mín. 55,5
sek. 3. verðl. Sigurður Runólfsson
(KR) 37 mín. 26,8 sek. Metið er
34 mín 13,8 sek.
ÐagMk.
□ Edda 59306246—1 H & v. st.
Veðrið (föstudagskvöld kl. 5):
Lægðin helst ennþá því nær á
sömu slóðum SSY af Reykjanesi og
veldur SA-átt og rigningu sunnan
lands. Yfir N-Grænlandi er há-
þrýstisvæði, sem heldur færist suð-
ur á bóginn og veldur NA-golu á
Vestfj. en snörpum A-vindi á Rauf
arhöfn. Sennil. ek A-hvassviðri úti
fyrir öllu N-landi. Það er mjög
tvísýnt ennþá hvort N-áttin mnni
ná sjer um alt landið, eftir síðustu
fregnum virðist alt eins líklegt að
SA-veðráttan haldist.
Veðurútlit í Rvík í dag: A- og
NA-kaldi. Skýjað loft og dálítil
rigning.
Messur: 1 dómkirkjunni á morg-
un kl. 10 f. h. síra Friðrilc Hall-
grímsson. Kl. 5 síra Magnús Magn-
ússon.
í fríkirkjunni á morgun kl. 5,
síra Árni Sigurðsson.
Alþingishátíðanefndin. Starfs-
fólk við bifreiðaafgreiðslu um Al-
þingishátíðina mæti til viðtals á
Ökuskrifstofxmni í húsi Mjólkur-
fjelagsins kl. 9—11 í kvöld.
Fótstallurinn undir styttu Jónas-
ar Hallgrímssonar lie'fir verið lag-
færður.
Togarnir Sviði og Gulltoppur
fóru í gær á veiðar út á Faxaflóa.
Frá höfninni. í gær kom skipið
„British Pluck“ með olíu til B. P.
Fisktökuskipið Bro kom um sama
leyti. Goðafoss fór vestur og norð-
ur um land á hádegi í gær.
Reykvíkingar og aðkomumenn,
munið happdrætti stúdenta.
Á æjarstjómarfundi £ fyrradag
var samþ. að veita öllum verka-
mönnum bæjarins frí með fullum
lannum einn dag um Alþingishá-
tíðina.
Nýja Bíó sýnir í kvöld hina á-
gætu norsku kvikmynd, Laila, í
síðasta sinn.
Happdrætti Skipstjórafjelagsins
Öldunnar. Um það var dre'gið í gær
kl. 5 hjá lögmanni og komu upp
þessi númer: 1. Essex-bíll 7495.
2. 600 kr. í peningum 5273. 3.
Gullúr (400 kr. virði) 9889.
Erlendum blaðamönnum sem
hingað koma um hátíðina verður
fenginn bústaður á Hótel ísland
og í Kvennaskólanum.