Morgunblaðið - 05.07.1931, Side 7
MOKGTTNBLAÐIÐ
7
ltosinn endurskoðandi. Af hálfu
1. S. í. sitja í stjórninni Jens Grnð-
björnsson og Erlendur Pjetursson,
kosnir í fyrra til 2 ára, en endur-
skoðandi Guðm. Kr. Guðmunds-
son gjaldkeri sambandsins.
5. íslensk met. Þessi íþráttaaf-
rek hafá verið staðfest sem met:
1000 st. hlaup: Geir Gígja (K. R.),
2 mín. 39. sek.,< sett í Kaupmanna-
böfn 16. maí 1930. 1500 st. -ooð-
blaup (800 X 400 X 200 X 100)
Giímufjelagið Ármann, 3 mín. 47
sek., 17. júní 1930. — Kúluvarp
(betri hendi) Þorsteinn Einars-
son (Á) 11,85 st. 6. sept. 1930. —
50 st. sund, frjáls aðferð: Jón D.
Jónsson (Æ) 31,6 sek. 14. sept.
1930. 100 st. bringusund: Þórður
Guðinundsson (Æ.) 1. mín. ,34.2
sek., 14. sept. 1930. 400 st. bringu-
sund saml. '7 mín. 10.8 sek., 27. júlí
1930 4X50 st. boðsund: Glímufje-
lagið Ármann 2 mín. 15.6 sek. 13.
.iúlí 1930.
6. Löfi og’ reg’lug'erðir. Stjórnin
staðfesti „Reglugerð um Knatt-
spyrnubikar Norðlendinga“. sem
íþróttaráð Ákureyrar hafði samið.
Eimleikareglur I. S. í. voru end-
urskoðaðar og fjölritaða-r og send-
•ar fjelögunum; reglur fvrir ís-
lenska glímu voru sjerprentaðar.
7. íþróttaráð og nefndir. Á ár-
inu hafa þessar nefndir og ráð
verið skipuð: Iþróttaráð Akur-
■eyrar skipað (til 3 ára) þessum
Mönnum: Axel Krist.jánsson form.,
Ármann Dalmannsson, Magnús
Pjetursson, Páll Einarsson og
■Snorri Sigfússon. — Varamenn:
Gunnar Schram, Ólafur Magnús-
son og Tómas Björnsson. —
Sjerstök nefnd var skipuð til
bess að velja hæfa dómara á leik-
tuót og prófa þá, og eiga sæti í
benni, Ólafur Sveinsson formað-
ur, Guðm. Ólafsson, Helgi Jóns-
son, Jón J. Kaldal og Stefán
U.jörnsson. Þá var skipuð önnur
nefnd til þess að velja hæfa
sunddómaira og prófa þá, þeir Er-
lingur Pálsson formaður, Eirík-
ur Magnússon og Þórarinn Magn-
ússon. f skautasvellsnefnd Reykja-
víkur voru skipaðir Kjartan Ól-
afsson, formaður, Páll Þórðarson
og Sveinn Helgason. Loks var skip
uð Ólympíunefnd, sem þeir eiga
sæti í: Sigurjón Pjetursson for-
maður, Jens Guðbjörnsson, Kjart-
an Þorvarðsson, Kristján Gests-
son og Þorsteinn Seh. Thorsteins-
son. Þá hefir stjórnin gert ráð-
stafanir til þess að skipað yrði
sjerstakt fþróttaráð fyrir Þingsyj-
arsýslur, en tillögur frá sambands-
fjelögunum í Þingeyjarsýslum eru
ókomnar.
8. Fjárhagur og sjóðir. Ríkis-
sjóðsstyrkurinn var 1931: 6000
krónur. 43 sambandsfjelög hafa
greitt í skatt 695 kr. Aðrar tekj-
ur kr. 942.98. Rekstrarkostnaður
sambandsins var kr. 990.06. Styrk-
ir til sambandsf.jelaganna liafa
numið 1200 kr., sbr. síðar 12. lið.
Greitt vegna Iþróttablaðsins kr.
1275.52. 1 sjóði kr. 4627.56. Skuld
við sjóð Styrktarfjelaga I. S. I. kr.
3265.07. S.jóður Styrktarfjelaga I.
S. I. er nú kr. 5537.52 (hefir auk-
ist um kr. 600.92). Utanfararsjóð-
ur í. S. í. kr.2026.7o (í^ukning kr.
86.11). Ólympíusjóðurinn kr.
827.67 (aukning kr. 35.64). Bygg-
ingarsjóður Skautafjelags Reykja-
víkur kr. 114.22 og íþróttaskóla-
s.jóður í. S. I. er kr. 104.l‘5. Að
Öðru leyti vísast til reikninga sam-
bandsins.
9. ínróttamót voru háð mörg
víðsvegar um land. Um þessi mót
befir st.jórnin fengið skýrslur: Al-
bingishátíðarmót 1. S. I., sem hófst
17. júní 1930. íbróttamót U. M. F.
Geisla og Reykhverfings 17. júní
1930. Innanf jelagssundmót sund-
Lelagsins Ægis í sept. og okt.
1930, Einmenningskeppni um Fim-
leikabikar 1. S. I. 1930 og 1931.
Kepni um Farandbikar Oslo Turn-
forening 1931. Víðavangshlaup
íþróttafjelags Reykjavíkur 1. sum-
ardag 1931. Er Ijóst af liessu yfir-
liti, að sambandsfjelögin vanrækja
öijög þá skyldu sína að senda
'stjóminni skýrslur um mót þau.
sem haldin eru, og vill stjórnin
beina því til fjelaganna að bæta
úr þessu framvegis.
10. Framkvæmdanefnd Alþing-
ishátíðarinnar tilkynti I. S. I.
með brjefi 30. júlí s. 1. að hún gæfi
sambandinu þá 100 fimleikabún-
inga, sem notaðir voru í fimleika-
hópsýningunni á Þingvöllum 1930.
Enn fremur gaf nefndin samband-
inu fánastöng með hátíðarmerkinu
í greyptu, ásamt tilheyrandi burð-
arbelti, í þakklætisskyni fyrir að-
stoð og undirbúning sambands-
stjórnarinnar við íþróttasýning-
arnar á Alþingishátíðinni á Þing-
völlum. Fimleikabúningarnir voru
seldir.
11. Slysasjóður íþróttamanna í
Reykjavik. Þessir menn hafa feng-
ið sjúkrastyrk: Halldór Árnason
(Val) 62 kr., Stefán Björnsson
(Á) 60 kr., Ragnar Pjetursson
(K. R.) 168 kr., Þorsteinn Gísla-
son (K. R.) 50 kr., Þórir Kjart-
ansson (Víking) 120 kr„ Dag-
bjartur Bjamason (Á.) 150 kr„
Jón Þ. Einarsson (K. R.) 100 kr„
Marínó Norðkvist (K. R.) 42 kr„
Gunnar Einarsson (K. R.) 35 kr.
— Slysasjóðurinn er nú kr.
2365.77; hefir aukist um kr.
105.46.
12. Styrkveitingar. í|)róttafje-
laginu Stefnir á Suðureyri voru
veittar 200 kr. til íþróttanám-
skeiðs. íþróttafjelaginu Höfrungi
á Þingeyri 300 kr. til útbreiðslu
sunds, fimleika og glímu á Vest-
fjörðum en það fje er ógreitt enn-
þá. Enn fremur voru veittar 1000
kr. vegna íþróttakenslu Everts
Nilssons, sjá nánar undir 17. lið.
13. Sundlaugarnar í Reykjavík.
Hitaleiðslan iir 1)vottalaugunum í
Sundlaugarnar bilaði í nóv. síð-
astliðnum. Sundkennararnir fóru
þess á leit við stjórnina að stuðla
að því, að leiðslan kæmist sem
fyrst í lag. Stjórnin átti tal við
borgarstjóra, bæjarverkfræðing
og bæjarfulltrúa, um þetta mál og
ýmsar aðrar endurbætur á Sund-
laugunum, sem vjer óskum, að
verði starfræktar áfram, þótt
Sundhöllin í Reykjavík taki til
starfa. Var vikist vel undir, og
hitaleiðslan lagfærð ásamt ýmsum
smá-endurbótum. En rnargt er þó
ógert þar inn frá, sem framkvæma
þarf, ef þessi heilsulind höfuð-
s.taðarins á að ná tilgangi sínum.
14. Sundskálinn í Örfirisey. Eins
og undanfarin ár hefir Sundfje-
lagi Reykjavíkur verið falin gæsla
og rekstur skálans nú í sumar.
Sundskálavörður ihefir verið ráð-
inn frá 20. þ. m.
15. Fjelagaskrá og skírteini.
S'nemma á starfsárinu skrifaði
stjórnin öllum sambandsfjelögun-
um ítarlegt brjef um nauðsyn þess,
að fjelögin sendu, auk ársskýrsln-
anna, meðlimaskrár sínar, svo að
unt yrði framvegis að gefa hverj-
um íþróttamanni sjerstakt fjelags-
skírteini, er gæfi lionum rjett til
þess að keppa á öllum leikmótum
hjer á landi og erlendis. ef svo ber
undir. Aðeins fá fjelög hafa enn
sent. þessa skýrslu, en mjög *rið-
andi er, að fjelögin vanræki það
ekki, því að úr þessu fer að vérða
nauðsynlegt að skrásetja alla í-
þróttamenn landsins. Mörgum
kann að þykja þetta éitt af fram-
tíðarmálunum, sem ekki sje mjög
aðkallandi en þó að svo sje að
sumu leyti, þá hefir þetta mjög
mikla þýðingu fyrir fjelögin sjálf
fyrst og fremst, því að skírteini
mundu þeir einir fá, sem stæðu í
skilum við fjela'g sitt og enn feng-
ist 1)á yfirlit um, hve margir
iþróttamenn og íþróttameyjar eru
í landinu. Þá hefir sambands-
stjórnin beint. því til fjelaganna
að senda framvegis ljósmyndir með
leikmótsskýrslum sínum, þar sein
hægt er. Mundi það hafa talsverða
býðihgu í framtíðinni, því að
marp'ar ljósmyndir greina skýrar
frá atburðum en frásagnir. þótt
góðar sjeu. Þessi fjelög hafa sent'
meðlimaskrár: Sundfjelagið Ægir,
Rvk„ Knattspyrnufjelag Akureyr-
ar, Knattspyrnuf jelagið Hörður,
Isafirði, U. M. F. Ársól í Eyja-
GLstaáa/f'
SJXirVIRKT
i3V Bezti eiginleiki ^
FLIK=FLAKS
• er, að það bleikir þvottinn
við suðuna, án þess að Xá
skemma hann á nokk- ÍA
urn hátt. /1
K Ábyrgzt, að laustV*
sé við klór.
I. Brynjólfsson & Kvaran.
J
fjarðarsýslu, U. M. F. Mývetninga,
U. M. F. Reyldiverfinga og U. M.
F. Geisli, öll í Suður-Þingeyjar-
sýslu. — Meðlimaskrár knatt-
spyrnufjelaganna í Reykjavík eru
hjá Knattspyrnuráði Reykjavíkur.
16. Mót og námsskeið. Um alla
verðlaunagripi sambandsins hefir
verið keppt á starfsárinu og virð-
ist þátttaka í íþróttamótum yfir-
leitt vera að aukast þótt ekki sje
það á öllurn- sviðum. Skíðanám-
slteið var haldið síðastliðinn vet-
ur á Siglufirði fyrir forgöngu
Skíðafjelags Siglufjarðar. Var
fenginn norskur skíðakennari
Helge Torvö, og kendi hann skíða-
stökk. og slriðagöngu með góðum
árangri. Ollum sambandsfjelögum
var heimil þátttaka í námsskeið-
inu; kenslan var ókevpis en því
miður hafa ekki nærri nógu marg-
ir iiotað þetta ágæta tækifæri.
Lokaskýrsla um námskeiðið er
enn ókomin.
17. Albingishátíðarmótið og
undirbúningur þess. Eins og
kunnugt er frá síðasta aðalfundi
var mikill halli á mótinu og komu
hins sænsfca íþróttakennara E.
Nilssons^ Fjelögin sem að mótinu
stóðu, Ármann, I. R. og K. R.
fóru þess á leit við I. S. 1., að það
tæki þátt í greiðslu kostnaðarins
við komu íþróttakennarans, þar
sem mikill halli var á mótinu, en
við því var ekki búist. og öll fje-
lög innan sambandsins liefðu átt
kost á að njóta kenslunnar. En
kostnaðurinn við kenslu E. Nils-
sons nam 4000 kr. Af framan-
greindum ástæðum og eins vegna
þess, að sjerstakt íþróttanáms-
skeið var haldið fyrir kennara í
íþróttum, að tilhlutún stjómar I.
S. I„ samþykti stjórnin að greiða
f.jórðung kostnaðar eða kr.
1000.00.
18. Erlend íþróttasambönd. Á
þessu starfsári hafa verið óvenju-
lega mikil brjcýaskifti við ýms er-
lend íþróttasambönd og fjelög um
margskonar mál. Sambandinu barst
boðsbrjef frá framkvæmdastjóm
norræna baðþingsins um að senda.
fulltrúa á þingið, sem hófst 12.
júní í Osló. Var Vilhjálmur Fin-
sen ritsjóri fenginn til þess að
sækja þingið fyrir vora hönd. ’og
mun hánn senda skýrslu um það.
Alþjóðasamband knattspymu-
manna (F. I. F. A.) lækkaði ár-
gjald í. S. I. íir 50 dollurum í 5,
eftir ítrekaðar beiðnir. Reynt var
að fá að láni íþróttakvikmyndir,
en heppnaðist ekki að þessu sinni.
19. Ólymníuleikarnir í Los Ang-
eles 1932. 25. sept, 1928 skrifaði
stjórnin framkvæmdanefndinni í
Los Angeles brjef og fór þess á
leit, að leyft væri að sýna íslenska
glímu á leikunum. — Síðan hefir
ESSERT CLAESSEM
iiæstarjettarmálaflutningsmaður.
Skrifstofa: Hafnarstræti 5.
8ími 871. Viðtalstími 10—12 f. h.
stjórnin átt brjefaskifti við fram-
kvæmdanefndina, og eram vjer
með skipun Ólympíunefndar hjer
á landi búnir að uppfylla öll
skilyrði til þátttöku í leikunum,
svo sem aðrar þjóðir. Hinsvegar
fjekkst því ekki framgengt, að
íslensk glíma yrði sýnd. Stjómin
grenslaðist eftir um kostnað við
þátttöku í Ólympíuleikunum. og
virðist ekki mega gera ráð fyrir
minni kostnaði en 2500 kr. á hvern
mann, sem hjeðan færi. Virðist
því frágangs sök fyrir oss að taka
þátt í mótinu, og ætti heldur að
leggjia áherslu á að taka þátt í
næstu Ólympíuleikum á eftir, sem
væntanlega verða haldnir í Norð-
urálfu. _
20. Ýmislegt. Með hverju ári
sem líður aukast störf sambands-
ins. Ef svo heldur áfram, sem
vonandi er og liorfur á, hlýtur
að. því að reka, að sambandið
verði að hafa hjer opna skrifstofu,
til þess að greiða götu íþróttamál-
efnanna. I sambandi við slíka
skrifstofu þyrfti að vera lesstofa
og bókasafn. Þetta myndi kosta
talgvert fje, en fjelögin yrðu þá
að rækja betur skyldur sínar við
sambandið en þau hafa gert, sum
hver, hingað til, enda er þess dð
vænta, að svo verði. Myndi slík
skrifstofa og lessto.fa ekki síður
ganga sambandsfjelögum utan
'Revkjavíkur, enda eru sulnir fje-
lagsmenn margra eða flestra
þeirra um tíma hjer í bæ, við nám
eða vinnu. — Knattspyrnufjelög-
unum í Reykjavík var boðið síð-
ast liðið sumar til Færeyja, til
þess að þreyta knattspyrpu. Tókst
þessi fyrsta utanför knattspyrnu-
manna ágætlega og var þeim mik-
ill sómi sýndur í Færeyjum. Far-
arstjóri Erlendur P.jetursson
skrifaði nákvæma skýrslu um
förina, sem var gefin út í bókar-
formi og send öllum sambands-
fjelögum.
Þótt starf stjórnarinnar hafi
verið umsvifaminna en síðastliðið
starfsár, vegna íþróttasýninganna
á Þingvöllum, þá má af ýmsu
marka, ;>ð íþróttahreyfingunni
vex fylgi dag frá degi, áhugi fyr-
ir líkamsíþróttum er að verða al-
memiari en áður úti um sveitim-
ar og fleiri íþróttanámsskeið hafa
verið haldin en áður. íþróttasýn-
ingamar á Alþingishátíðinni virð-
ast, hafa áorkað miklu í þessa átt,
því að þá hafa margir menn
Fyrirliggjandi
HeyvlDnnTjelar:
Sláttuvjelar „Mac Cormick“
Rakstrarvjelar „Mac Cormiek“
Snúningsvjelar.
Rakstrar- og snúningsvjelar,
sambyggðar.
Ojólknrfjelag Heykjavíknr.
Pakkhúsdeildin.
kynnst íþróttum í fyrsta sinni af
eigin sjón. Þó er tómlæti manna
gagnvart íþróttastefnunni enn þá
allt of mikið, og engin von er til
þess, að íþróttamálin komist í við-
unandi horf, fyr en líkamsíþrótt-
ir verða skyldunémsg’rein í öllum
skólum. landsins. Að því marki ber
oss að sjálfsögðu að keppa.
Reykjavík, 21. júní 1931.
Ben G. Waage. Kjartan Þorvarðs-
son, Guðm. Kr. ;Guðmundsson.
Pjetur Sigurðsson. Magnús Ste-
fánsson.
t
Þorbiörg Friðriksdðttir.
Eftir langa og þunga sjúkdóms-
legu andaðist á Landsspítalanum
þ. 18. júní Þorbjörg Friðriksdótt-
ir kenslukona við barnaskólann
í Reykjavík. Foreldrar hennar,
skipstjóri Friðrik Símonarson og
kona 'hans Guðrún Ólafsdóttir
bjuggu í Barðastrandarsýslu og
ólst Þorbjörg upp hjá þeim fram
yfir fermingaraldur, þá fór hún
til Thorsteinssonshjónanna á
Bíldudal og var þar þangað til
hún fór á Kvennaskólann á Ytri-
ey og var liún þar við nám 2
vetur.
Síðan liafði hún skóla á Isa-
firði fyrir ungar stúlkur í nokkur
ár, en löngunin til meiri mentun-
ar og að sjá sig um í heiminum
varð til þess, að hún fór til
Kaupmannahafnar, þar sem hún
stundaði nám tveggja ára tíma.
Sjeistaklega lagði hún stund á
hannyrðir bæði á Kunstflidskólan-
um og líka í einkatímum. Sömu-
leiðis var hún á keniiaraskóla til