Morgunblaðið - 20.08.1932, Blaðsíða 4
4
Verslxtnin „Pam“ hefir mjög
faLLegt hörljereft í kaffidúka,
breidd 1.40 cm_____________________
Siltmgnr, Iax, stórlúða. Símar:
1456 og 2098. Hafliði Baldvinsson
Vel verkaður harðfiskur er til
sölu á Grettisgötu 20. Verð 1.10
pr. kg. ■ . .
Café Höfn selur meiri mat, 6-
dýrari, betri, fjölbreyttari og
fljótar afgreiddan en annars stað-
ar.
laopið smSðrbraui
I X. 1.-USÍBB I B68tl
« SBUVÍaiilB.
S(Bd 118«.
Ööldin f Prússlandl.
Á rúmum mánuði hafa
þar verið drepnir 72
menn, en 500 særðir. —
Innanríkissáðuneytið í Prúss-
landi hefir látið gera skýrslu um
upphlaupin í Prússlandi á tímabil-
inu frá 1. júní til 20. júlí — en
þar er Berlin ekki talin með. Á
þessum tíma hafa verið gerðar 322
árásir í landinu, og í þeim skærum
hafa 72 menn verið drepnir, en
497 hafa særst hættulega. 203 sinn-
um voru kommúnistar valdir að
þessum óspektum, 75 sinnum voru
það Nazistar og 21 sinni þjóðfána-
menn.
BlaðiS „Völkischer Beobachter“
segir frá því, að 800 Nazistar hafi
verið særðir og 59 drepnir á tíma-
bilinu frá 1. janúar og fram að
miðjum júlí.
▼11 karapa
notaiaH blcjobíl
•Tilboð auðkent „Bíll“, er tilgreini
▼eriS og tegund og svo frv., sendist
'A'. S. í. fyrir 24. þ. m.
Dllkakjöl.
Lækkað verð.
Lifor og Hjörtu.
Ný svið og íslenskar
Gulrófur, Rúllupylsur
50 aura y2 kg.
■atarverslBB
Sveias ÞorkelssoBar.
Sími 1969.
4 oiaona bíll
(8 skatthesta), lítið keyrður,
í^góðu standi, til sölu.
Uvplýsingar í síma 1280.
Amatördelld
F. A. Tkiele.
Filmur, sem eru afhendar
fyrir kl. 10 að morgni, eru
jafnaðarlega tilbúnar kl. 6
að kvöldi.
Öll vinna framkvæmd með
nýjum áhöldum frá KO-
DAK, af útlærðum mynda-
smið.
FramköIIun. — Kopiering. —
Stækkun.
Haupmenn!
er lang útbreiddasta blaðlð
til sveita og við sjó, utan
Reykjavikur og um hverfi*
hennar, og er því besta
auglýsingablaðið á þessum
slóðum.
Dagbók.
VeðriC í gær: Lægðin, sem var
yfir Grænlandshafi í gær, er nú
komin austur fyrir land og veldur
N-átt um alt land, víða allhvassri.
Veður er þurt og bjart sunnan-
lands, en á N- og A-landi er rign-
ing. Hiti er þar 5—7 stig, en 10
—13 stig syðra. Loftþrýsting er
orðin há yfir Grænlandshafi, svo
að útlit er fyrir að N-áttin haldist
a.m.k. á morgun.
I Veðurútlit í dag: N-kaldi. —
Bjartviðri.
Messað á morgun:
í Þjóðkirkjuuni í Hafnarfirði
kl. V/i- Síra Garðar Þorsteinsson.
Skipafrjettir. Gullfoss er í Höfn
— Goðafoss er á leið út. — Brúar-
foss fór hjeðan í gærkvöldi vest-
ur og norður, fer líklega alla leið
til Akureyrar. — Lagarfoss var
á Akureyri í gær. — Dettifoss
mun hafá komið til Vestmanna-
eyja í nótt, væntanlegur hingað
1 um kl. 4 í dag. — Selfoss er á
Ieið til Hamborgar.
Brúin á Þverá verður vígð á
morgun. Verður þar mikil við-
höfn. Athöfnin hefst með guðs-
þjónustu á miðdegi og prjedikar
síra Erlendur Þórðarson í Odda.
Því næst setur Björgvin Vigfús-
son sýslumaður hátíðina, en Þor-
steinn Briem samgöngumálaráðh.
vígir brúna og opnar hana til
umferðar. — Á eftir verða flutt
„Brúarljóð“, sem Þorsteinn Gísla-
son hefir orkt. Þingmenn Rang-
æinga Jón Ólafsson og Sveinbjörn
Högnason halda ræður. Ennfrem-
ur síra Jón Skagan á Bergþórs-
hvoli og Páll Zophoniasson, og
eflaust verða ræðumenn fleiri. —
Söngflokkur K. F. U. M.
í Reykjavík, annast söng-
inn. Fjöldi fólks hjeðan úr bæn-
um mun fara austur þangað og
sjálfsagt fjölmenna sýslubúar, og
menn úr nálægum sýslum.
Frá höfninni- Fisktökuskipið
„Eros“ er nýfarið hjeðan til þess
að taka fisk á höfnum út um
land fyrir „SÖlusamband íslenskra
framleiðenda“. — Dronning Alex-
andrina kom í gær að norðan og
vestan. — Vb. Víkingur fór hjeð-
an í gærkvöldi með olíufarm til
Vestfjarða og Norðurlands.
Síldin. Verð á síldinni er nú
farið að lækka aftur, vegna þess
hvað mikið hefir verið saltað síð-
an tunnurnar komu.
Tennismót. 1 kvöld verður tví-
menniskepni um meistaratign í
tennisleik. í kvöld hefst og inn-
anfjelagskepni K. R. í tennis-
*leik.
MORG UNBLAÐIÐ
Skordýrarænnsóknir. Þeir Geir
Gígja og Pálmi Jósefsson hafa að
undanförnu verið austur í Austur-
Skaftafellssýslu við skordýrarann-
sóknir. Tíðarfar hefir ekki verið
hagstætt, og hafa votviðri tafið
rannsóknirnar.
Strandferðiraar. Esja var á
Hofsós í gær. — Súðin fer
í hringferð vestur og norður um
land hinn 3. september.
Lítil laxveiði hefir verið í Laxá
í Suður-Þingeyjarsýslu í sumar,
en laxgengd í ár hjer sunnan
lands alveg óvenjulega mikil.
Óþurkasamt hefir verið í Suður
Þingeyjarsýslu að undanförnu og
hafa hey hrakist hjá bændum. —
Vestar, t. d. í Skagafirði, hefir
verið ágæt heyskapartíð og eins
austar, svo sem í Núpasveit og
Vopnafirði.
Islensk vínber. Á Reykjum í
Mosfellssveit hefir hinum ötula
garðyrkjumanni, Fresenius, eftir
tveggja árastarf ogtilraunir, tek-
ist að fullrækta vínber, tvær teg-
undir, blá vínber og græn. Eru
berin nú fullþroskuð og mun upp-
skeran verða 40—50 kg. — í Hress
ingarskálanum voru ber þessi seld
í gærkvöldi og þóttu ágæt. Er
þetta í fyrsta sinn að íslensk vín-
ber koma á markaðinn. Hressing-
arskálinn hefir trygt sjer alla
framleiðsluna handa gestum sín-
um.
Frú Guðný Jónsdóttir frá Litla
Bakka á Akranesi, nú á Lokastíg
9. er sjötíu og fimm ára í dag.
Sjö íþróttamenn frá Vestmanna
eyjum koma hingað með Dettifossi
í dag, til þess að keppa á Meist-
aramóti Í.S.Í., sem hefst í kvöld.
Það eru þeir Karl Vilmundsson,
Árni Guðmundsson, Þórarinn Gnð-
mundsson, Aðalsteinn Gunnlaugs-
son, Lárus Ásvaldsson, Óskar
Valdason og Daníel Loftsson. —
Tveir íþróttamenn úr Eyjum eru
hjer fyrir, þeir Karl Sigurhansson
og Gísli Finnsson, svo að níu
Vestmanneyingar taka þátt í
Meistaramótinu. Er það Vestmann-
eyjum til hróðurs hve margir góð-
ir íþróttamenn koma þaðan á
helstu íþróttamótin, og er það jafn
framt glæsilegur vottur um það,
hve mikill íþróttaáhugi er meðal
Vestmanneyinga. Þeir gera jafn-
vel Reykvíkingum skömm til, því
að nú á þessu Meistaramóti verð-
ur fjórði hver maður Vestmann-
eyingur.
Farþegar vofu margir með Brú-
arfossi, er hann fór hjeðan í gær-
kvöldi vestnr og norður. — Meðal
þeirra var síra Sigurður Haukdal
og frú, Fr. Nathan stór-
kaupmaður, Sigurmundur Sigurðs-
son læknir og frú. Flestir farþegar
á eina höfn fóru til Flateyjar, eðá
11 alls, 9 fóru til Patreksfjarðar,
3 til Stykkishólms, 3 til ísafjarð-
ar og færri á aðrir hafnir. <
Helene Jónsson, dóttir Jóhanns
skipherra á Óðni, hefir verið eitt
ár í Kaupmannahöfn við nám á
„Ballet“, „PIastik“ og nýtísku
dönsum. Kennarar hennar eru
Balletmester Oarlsen, Balletdans-
erinde Hullström og Balletdanser-
inde Elna Jörgen-Jensen við kgl.
leikhiisið. Ungfrúin siglir í kvöld
með Dronning Alexandrine til
framhaldsnáms.
Sundsýning fór fram í sundlaug
Akureyrar sunnudaginn 7. þ. mán.
í tiíefni af því að þá voru liðin
25 ár síðan Lárus J. Rist fór hið
fræga sund sitt yfir Eyjafjörð. —
Lárns tók sjálfur sátt í sundsýn-
ingunni, þrátt fýríi; þáð áð )
hafði verið lasinn undanfama daga
af kvefi og hitasótt. Steypti hann
sjer í laugina 'í öllum fötum og
Frosnir sanðahryggir
afbragðs kjöt, fæst í dag á 40 aura y2 kg.
Ný verðlækkun á dilkakiöti.
MATARBÚÐIN, Laugaveg 42. Sími 812.
MATARDEILDIN, Hafnarstræti 5. Sími 211.
KJÖTBÚÐIN, Týsgötu 1. Sími 1685.
Nýtt! NýttS
Nú er Hvammstangadilkakiötið
nýslátrað, komið aftur á markaðinn. Það er það besta kjöt, er
flyst á reykvískan markað. — Einnig nýtt
Kálfakjöt og Tryppakjöt. Vínarpylsur. Miðdagspylsur o. fL ■
ÁVALT BEST HJÁ ,
BmdiU B. BiAiuIsmi t Co.
Sími 1769. Vesturgötu 16.
NýH dilkakjðt
•I Grawnetl er altaf að bekka.
■atarrerglaa Ttaasar Jiassanar,
Laugaveg 2.
Sími 212.
Laugaveg 32. Bræðraborgarstíg 16.
Sími 2112. Sími 2125.
SkemtlhltDriiD
Grfmur Geitskór Þingvallavatni, áætlunarferðir daglega;
kl. iy2, frá Þingvöllum til Sandeyjar og víðar á öðrum
tímum eftir samkomulagi. — Upplýsingar á símstöðinni
/
í Valhöll og um borð.
sjóklæðum þar utan yfir, og
klæddi sig úr hverri spjör í kaf-
inu, nema nærskyrtunni, sem varð
svo þröng þegar hún blotnaði, að
hann fekk ekki losnað við hana.
Útvarpið í dag: 10.00 Veður-
fregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 16.00
Veðurfregnir. 19.30 Veðurfregnir.
19.40 Tónleikar (Útvarpstríóið).
20.00 Klukkusláttur. Grammófón-
tónleikar: Symphonia nr. 8, eftir
Beethoven. 20.30 Frjettir. Danslög
til kl. 24.
Eggert Guðmundsson listmálari
fer utan í kvöld til Kaupmanna-
hafnar og ætlar að halda þar
áfram námi í andlitsmyndagerð
(olía og pastel). Jafnframt ætlar
hann að halda áfram táknmynda-
gerð. Eggert hefir dvalið á Þing-
völlum í sumar og málað þar 25
myndir, þar af tvær stórar eftir
beiðni Englendinga, aðra af Þing-
völlum, hina af Skjaldbreið.
Prestafjelagsdeild Austurlands
heldur þessa' dagana aðalfund í
Norðfirði.
Kappleiknum er átti að vera í
gærkvöldi milli Fram og K. R„
var frestað vegna veðurs.
Dilkaslátnr
fæst nú flesta
virka daga. ..
Sláturfjelagið.
Fljðtir nnI
Nýslátrað dilkakjöt, ódýrast Is.
bænum. Lifur og hjörtu, sviðina
svið. Hangikjöt. Salt dilkakjöfr„
íslenskar Gulrófur.
Sendið eða símið.
Allir í
Biðrninn,
Bergstaðastræti 35. Sími 1091.
Htkomið:
íslenskar kartöflnr..
íslenskar gulrófnr. -
Rabarbari. ——-
Kærasti: Þ.ú varst þá á grímu-
dansleiknum í nótt!
Kærasta: Það er lygi! Hvernig
fórstu að komast að því?
iswmm
Laugaveg 08. Sími 2388«