Alþýðublaðið - 06.02.1929, Síða 3
ALÞYÐUBLAÐIÐ
3
Hveitifc&fð,
Maísmlol,
Helll maís.
Kven-veski alls kon-
ar seld á iitsöin í
dag og næstu daga,
verð frá akr. 1,25.
Mikið af barnatösk-
um frá kr. 0,40.
HljéðfærsMsið.
stjóri í islandsbanka. Fyrir pað
starf hefir hann fengið 40 000,00
á ári, eða e. t. v. meiia. Sjálf-
sagt vinnur hann ekki á helgi-
dögum í bankáiruum. Munu því
vinnudagar hans ekki vera fleiri
en 300 á ári. ÞaÖ verða 133J38
á dag. Auk pess hafa slíkir herr-
ar, sem þessi, ávalt einhverjar
aukatekjur, og hlýtur liann pví
að öllu þessu athuguðu að vera
maður stórríkur. Hygg ég því,
að ekki sé of hátt reiknað að
gera tekjur • hans af atvinnu og
eignum 191,00 á dag 300 daga
ársins. (Hann vinnur fráleitt á
helgidogum eins og t. d. sjó-
mennirnir.) Hefir hann þá sömu
tekjur á dng og má/irtðarkaup
sjómannanna var. Auðvitað er
það þjóðin öll, almenningur,
sem verður að greiða honum
þetta háa kaup, því að eftir því,
sem kostnaður bankanna er meiri,
verða þeir auðvitað að heimta
hærri vexti. Þá er ekki verið að
tala um, að bankarnir (þ. e. þjóð-
félagið) þolí eldii þetta háa kaup-
gjald, eins og þegar um útgerð-
ina er að ræða.
Það er kaldhæðhi örlaganna, að
menn eins og Claessen bankastj.
skuli þurfa að taka til máls í
kaupdeilu um jafn smánarlegt
kaup og sjómanna (þar sem helm-
ingurinn fer oft í húsaleiguna
eina í þessari húsaleiguokurs-
borg). Annars eru það fleiri inn-
an Eimskipafélagsstjórnarinnar,
sem væri það hollara sjálfra sín
vegna að hlaupa ekki á sig,
,fiafa ekki hátt‘‘ í verkalýðs-
kaupdeilum, því flestir munu
þeir úr býtum bera digra fjár-
sjóði, já, svo digra, að mönn-
um verður ósjálfrátt á að spyrja,
hvort þjóðin þoli tii lengdar að
gjalda þeim „þetta - háa kaup“.
En svo við víkjum þá aftur að
tiltæki EimskjpafélagS'Stjórnarinn-
ar, að ætla sér að stöðva alian
flotann. Mun þá nokkur sá „níð-
ingur“ (Moggamál) vera til með-
al hluthafa Eimskipafélagsins.
sem að því athuguðu afræður að
endurkjósa núverandi stjóm,
nema stjórnarherrarnir sjálfir?
Ég bara spyr. Aðalfundur Eim-
skipafélagsins svarar. En á þeim
fundi ættu allir hluthafamir að
hafa hugfast þetta tiltæki meiri
hluta nú verandi stjórnar félags-
ins.
5. 5.
fhaldið á biðiIsbuxuRum.
Eitt aðalmálgagn íhaldsins,
„Morgunjb]aðið“, var nýlega að
ráðleggja okkur verkamönnum og
sjómönmum, að láta ekki jafn-
aðarmemn hafa atkvæði okkar viS
kosningar framvegis. Mér skilst,
að íhaldið muni sjálft þiggja þau.
Það hefir lengi álitið oss ein-
falda.
Nýlega gat „Morgunblaðið“
þess, að þeir íhaldsforingjarnir
vildu gjarmam gjaLda verkalýðn-
um gott kaup.
— Þeir tala fagurt, en hyggja
flátt.
Verkin sína merkin; þegar deilt
hefir verið um kaup. verkalýðsins,
þá hefi ég aldrei heyrt nokkurn í-
haldsflokksmann vera með kaup-
hækkun eða bættum kjörum
verkafólksáns á nokkum hátt.
Verkalýðurimn veit það, að
Eggert Claessen, sem hefir a.
m. k. tvö ■ þúsund kr. á mánuðf,
vildi ekki borga sjómönnunum
tvö hundruð krónur á mónuði.
— Svona er réttlæti íhaldsins.
En íhaldsstjórn Eimskipafélags-
ins varð að slaka til — fyrir
réttlætismeðvitund meiri hluta ís-
lenzku þjóðarinnar.
Síðan hrópar íhaldið: „Verka-
menn og sjómenn, kjósið oss!“
— Eða með öðrum orðum: Kyss-
ið á kúgarans vönd.
Hugsjónamenn sjá lengra en
flestir íhaldsmenn. — Þannig sá
eitt okkar mesta þjóðskáld, Ein-
ar Benediktsson, að:
hin
kúgaða stétt hristir klafann og
sér, hún er voldug og sterk.“
Verkamndw.
Úr Borgarnesi.
I FB. í* febr.
Lungnadreþ í sauðfé hefir valid-
ið miklum, skaða á nokkram bæj-
um niður við sjóinn á Mýrunum.
Bezt útsöluverð er áreiðanieoa í
Branns-V er zlnn.
Vetrarfrakkar frá 25,00, alfatnaður frá 29,00, 'unglingaföt
fyrirVs virði, Nankinsjakkar frá 3,60, vinnubuxur nú frá
kr. 5,00, rönd. vinnuskyrtur frá 3,50, sjómannateppi frá
1,80, efni í manchettskyrtur frá 3,90.
Mikið af ódýrum bindum.
Allir í Brauns-Verzlun.
í Krossnesi fórast 20—30 kindur
úr pestinni og aö Álftárósi (næsta
bæ við Krossnes) var féð farið
að hrynja náður úr henni. Á
Jörfa í Kolbeinsstaðahreppi voru
farnar um 40 kindur úr þessari
pest. Búnaðarfélag íslands hefi r
sent þá dr. Lotz á Hvanneyri og
Ásgeir dýralækni Ólafsson í
Borgarnesi vestur í hreppa tii
þess að rannsaka veikina. Ýms-
ir fjárkvillar aðrir hafa stungið
sér niður í héraðinu, en ekktil
valdið teljandi skaða.
Mikili ræktunaráhugi er í hér-
aðinu. Er á mörgum bæjum verið
að ræsa fram og búa undir ný-
rækt í vor í stórum stíl. Bún-
arfélag Stafholtstungna. aatlar að
fá sér dráttarvél og Búnaðarsam-
band Borgarfjarðar hefir í hyggju
að bæta við sig annari dráttarvél.
Eriesid sínflske^ti*
Khöfn, FB„ 5. febr.
Uppreistln á Spáni.
Kúgun og frelsisbarátta.
Frá Berlin er símað: Sam-
kvæmt skeytum, sem þýzk blöð
birta um uppreistina á Spáni, er
bersýnilega um lýðveldishreyf-
ingu að ræða í landinu. 1 Valen-
cia voru ákafir bardagar, áður en
herliði stjórnarinnar tókst að bæla
niður uppreistina. Félkt all-
margir menn í bardögunMm. Upp-
reistarmenn gerðu tilraunir tiil
þess að bjarga Guerrera úr fang-
elsinu, en það tókst þeim ekki.
Hefir Guerrera verið fluttlur á
herskipi frá Valencia, en ókunn-
ugt er um, hvert farið hefir ver-
ið með hann. — Rivera hefir
gefið út margar tilskipanir út af
uppreistinni, þar á meðal um
stofnun sérstaks dómstóls, þar
sem tekin verða fyrir öll mál,
sem talin eru stamda í sambandi
við hana. Dómum þessa dóöxstóls
verður ekki hægt að áfrýja. Enn
fremur hefir stjórnin skipað svo
fyrir, að blöðin skuli skyldug til
þess að láta stjómina fá umráð
yfir hálfri s’íðu í hverju blaði
daglega, er hún krefst þess, tií
birtingar stjó rnarti 1 kynnin ga. —
Stjórnin hefir og tiLkynt, að hún
muni setja af þá embættismenn,
sem berir verða að fjandskap í
hennar garð. — Félagsskapurinn
„Union patriotica“, sem Rivera
stofnaði í Líkingu við félagsskap
ítalskra svartliða, hefir verið
viðurkendur að nokkru leyti sem
opinber stofnun. Hlutverk þessara
félaga er að útvega stjórnimni
ýmsar upplýsingar, sem henni
megi að gagni koma. — Hernað-
arástandi hefir veiið lýst yfir í
spænskum bæjum.
Frá París er símað: Frakknesk
blöð eru þeirrar skoðunar, að
Rivera hafi að eins unnið bráða-
birgðasigur. Mörg blaðanna ætla,
þar á meðal „Jouraal des De-
bats“, að dagar Rivera-stjórnar-
innar séu bráðum taldir. Segja
blöð þessi, að byltmgarandi breið-
ist út um alt landið, einnig á;
meðal sjó'liðsjns. Uppreistín sé
ekki eingöngu herna öa rhreyfimg,
fjöldi borgara, jafnaðarmenn,
vinstrimenn og íhaldsmenn standi
á bak við hana. Verkamannaráð
hafa verið stofnuð i mörgum
bæjum.