Morgunblaðið - 06.07.1933, Qupperneq 4
MO8GON8LÁ Í li
Smá-auglýsingar|
■umigify" srasmsaBaM«l
Glæný smálúða, ásamt mörgu
fleira. Símar 4456, 2098 og 4402.
Haflii Baldvinsson.
Nýr Silungur. Nordalsíshús. —
Sími 3007.___________________
Morgunblaðið fæst á Laugaveg
12. _________________________
MorgunfclaSið fæst keypt í Oafö
r/anur við Barónsstíg-
Lax fá að veiða, þeir sem búa
í Þrastalundi, á ca. 2 kílómetra
svæði, í Soginu, án endurgjalds.
Kjötfars úr nýju nautakjöti og
fiskfars heimatilbiiið fæst daglega
á Fríkirkjuvegi 3. Sími 3227. Sent
heim.
Hjartanlegar Dakklr
er mjer ljúft og skyit að votta
ölium þeim, er á einn eða annan
hátt glöddu mig á áttræðisaf-
mæli mínu 24. júní s.l., Og sjer-
staklega þakka jeg þá stórhöfð-
inglegu gjöf (útvarpsviðtæki) er
mjer þá barst frá einhverjum,
sem ekki hefir viljað láta nafns
síns getið, og með þessu vill ljetta
sem unt er min æfikjör þar sem
jeg sökum vanheilsu minnar hefi
ekki komist út af heimili mínu
í nær 15 ár.
Bið jeg góðan guð að blessa
alstaðar og ávalt öll fyrirtæki
slíkra velgerðarmanna minna.
Hólmfríður Magnúsdóttir.
Austurgötu 13, Hafnarfirði.
$v/\iiA
/MJÖR L1KÍ
hefir verið og er eingöngu
framleitt úr jurtaolíum off
auk þess blandað rjóma,
smjöri og- eggjarauðu. Þrír
bílar flytja bað daglega ný-
strokkað til kaupmanna bæj-
arins. Notið bað besta!
Biðjið um Svana - smjörlíki.
•#•••••••••••••••••••••<
f Smábarnafðt.
Í mikið nrval.
• Gott verð.
1 VOrnhúsið.
í brekkunni sunnan við Klepps-
veginn, á vegamótunum til Vatna-
garða stóð geysimikill mannfjöldi,
er bíll Balbo og forsætisráðherra
kom þangað. Laust mannfjöldinn
upp fagnaðarópi er Balbo bar þar
að. Hið sama endurtók sig hvað
eftir annað, er fjelagar hans komu
þangað í seinni bílum.
Balbo ráðherra gefur skýrslu
Balbo ók að Hótel Borg. Þar
gista og um 60 af fjelögum hans.
Er hann hafði skamma stund þar
verið, Ijet hann það boð út ganga,
að hann væri fús til að hafa tal af
blaðamönnum.
Blaðamenn erlendir og innlendir
gengu á fund hans. Þar lagði hann
fram svohljóðandi ferðaskýrslu:
Frjettastofa Stefani — Róm.
Veðurskeyti þau, sem í morgun
bárust yfirstjórn flugleiðangursins,
töldu örugt að draga myndi úr
lægðinni við strendur írlands og
að lægðin á leiðinni myndi hjaðna,
eri þó myndi iægðarmiðjan við
norðvesturströnd Grænlands hald-
ast. —
Af ótta við það að Verða veður-
teptir, ljet fararstjórinn kl. 11 eft-
ir Greenwieh-tíma bera þau boð til
áhafnanna að fara um borð í flug-
vjelarnar og leggja af stað, og
hófst brottförin kl. 11.45 með því
að flugdeild fararstjórans hóf sig
til flugs. Kl. 12.07 var allur flug-
flotinn kominn af stað og kom til
Bvíkur kl. 17.55, og hafði flogið
með meira en 245 km. meðalliraða
á klst.
Tvo fyrstu tíma flugsins var
bjart veður með hægum vindi úr
suðaustri, en á 3ja tímanum mættu
flugvjelarnar þokuhökkum, sem
náðu yfir nálega 350 km. svæði.
Flugvjelarnar flugu 150 km. yf-
ir sjálfri þokunni, en það sem eft-
ir var, eða 200 km., flugp þeir í
blindni, því að þokan rann þá
saman við skýin. Það sem eftir
var flugsins var veður óstöðugt,
sterkur vindur af suðvestri, stór-
sjór. rigning og lág ský. Af þess-
nm veðurskilyrðum leiddi, að
strendur íslands sáust ekki fyr en
flugvjelarnar voru yfir þeim. —
Þrátt fyrir allmikinn vind tók
lendingin ekki nema 15 mínútur.
Flugforinginn gerir ráð fyrir
nokkurra daga dvöl í Reykjávík
vegna slæms veðurútlits“.
Skýrsla þessi er fáorð og er hún
samin sem opinber tilkynning til
Stefani-frjettastofu. Ekkert er þar
sagt um álit Balho ráðh. á ferðinni.
En það leyndi sjer ekki, að hann
var ánægðnr með daginn. Hann
flýr frland vegna þess að hann
óttast að verða þar veðurteptur.
Flugsveit hans fær alskonar ílskn
veður, þoku, misvindi og storm.
Við suðurströnd íslands var í gær
vindhraði 80 km. á kLst. af suð-
vestri. En öllu reiðir vel af. Eng-
um hlekkist á. Flugvjelarnar1
halda svo til hópinn.
Vestmannaeyjar sá Balbo fyrst.
Dáðist hann að fegnrð þeirra úr
lofti sjeð.
/ Um kvöldið.
Og það sagði einn fjelaga hans
hlaðinu í gær, að í sínum hóp ljeti
Balbo í ljós ánægju sína yfir því
sem hann þegar hefði sjeð af ís-
Ienskum móttökum.
Er þeir ftalir vorn sestir að
kvöldverði að Hótel Borg í gær-
kvoldi, og Balbo ráðherra kom
þeirra síðastur inn í salinn stóð
,einn gestanna, sem eigi var í
ftala hóp, npp og stjórnaði fagn-
aðarhrópi fyrir Balho, ítalíu og
flugleiðangrinum., en flugmenn
svöruðu með einkennishrópi sínu.
Er það kallmerki flugstöðvarinn-
ar í Ortebello. Varð eigi annað
'sjeð á hinum ítölsku gestum, en
að þeir kynni vel við sig í hinum
íslenska höfuðstað í gærkvöldi.
Ekkert verður að sjálfsögðu sagt
um brottför flugsveitarinnar. En
svó mikið var víst, í gærkvöldi,
að eigi verður hugsað til hrott-
ferðar í dag.
T dag bíður ríkisstjórnin Balbo
ráðherra og öðrum foringjum flug
sveitarinnar í bílferð; en óvíst var
í gær- hvert verður farið. í kvöld
heldur forsætisráðherra þeim
veislu að heimili sínir.
Dagbók.
Veðrið (miðvikudagskv. kl. 5) :
Vindur er SV-lægur um alt lanú
með skúrum og 10—13 st. hita á
S- og V-landi. Á N- og A-landi
er víðast þurt og sumstaðar hjart
veður og- hiti alt að 15 st. Við
S-Grænland er ný lægð sem mun
valda S-lægri átt og nokkurri
rigningu á S- og V-landi á morgun.
Veðurútlit í Rvík í dag: S-kaldi.
Rigning öðru hvoru.
Háflóð í Rvík kl. 16.45.
Ægir 6. tbl. er nýkominn út.
Þar eru m. a. leiðbeiningar fiski-
matsmanna um fiskverkun, grein
eftir Sig. H. Pjetursson gerlafræð-
ing um rauða jarðslagann í salt-,
fiskinum o. m. fl.
Útvarpið í dag: 10.00 Veður-
fregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 16.00
Veðurfregnir. 19.30 Veðurfregnir.
19.40 Tilkynningar. Tónleikar.
20.00 Klukkusláttur. Grammófón-
tónleikar: Tschaikowsky: Fiðlu-
konsert í D-dilr. (Miseha Elman
og Symphoníuorkestrið í London,
Jolin Barbirolli). 20.30 Erindi um
skógræktarmál. (Hákon Bjama-
son). 21.Frjettir. 21.30 Tónleikar.
Bifreiðaskoðunin. í dag eiga að
koma til skoðunar bifreiðar og
bifhjól R E 201—250.
Þórólfur lagði á stað hjeðan í
gær, á síldveiðar.
Einar Einarsson hóndi að Garðs-
auka í Rangárvallasýslu, er stadd-
ur hjer í bænum. Hann segir, að
bændur þar eystra sje nýbyrjaðir
að slá, spretta sje ágæt og hey-
skaparhorfur góðar, ef nú skyldi
breyta um tíð.
Eggert Stefánsson sönsvari var
meðal farþega á Brúarfossi.
Goðafoss kom að norðan og vest
an í fyrradag. Meðal farþega voru
Árni Gíslason, Finnhogi R. Þor-
valdsson verkfræðingur, N. Mon-
herg, Halldór Guðmundsson, Stein
grímur Einarsson og frú, Ólafur
Pálsson, Sæmundur Stefánsson,
Guðm. Signrðsson, Magnús Ein-
arsson, Egill Egilsson, Halldór
Einarsson, Tngi Halldórsson, Jó-
hannes Hjálmarsson o. m. fl.
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
herað trúlofun sína á ísafirði
Anna Pálsdóttir frá Evrarhakka
og Ólafur Þorbergsson vjelstjóri
frá Bíldudal.
Fundnr yfirfiskimatsmanna var
nýlega haldinn hjer í Reykjavík,
en slíkur fundur hefir ekki verið
haldinn síðan 1931. Á fundinum
voru tekin fyrir ýmis mál, er
snerta fiskimat og fiskverkun og
var öllum fundarmönnum það
ljóst, að vjer íslendingar verðum
að leggja fram vora ítrustu krafta,
ef vjer eigum að standast sam-
kepni þá, sem nú er á heimsmárk-
aðnum, og vanda sem allra best
verkun fisksins. Þá voru samndar
leiðbeiningar fyrir fiskimatsmenn
til þess að reyna að samræma fisk-
matið um land alt. Enri fremur
vár samin reglugerð um merkingu
fiskumbúða og hefir hún nú feng-
ið staðfesting stjórnarinnar.
Knattspyrnukappleikur fór fram
síðastl. sunnudag á Akranesi. Kept
var tfm knattspyrnubikar Akra-
ness. Keppendur yoru: Knatt-
spyrnufjel. Akraness og Knaft-
spyrrmfjel. Kári. Knattspyrnufjel.
Akraness vann með 2:1 og er þar
með talið besta knattspyrnufjel.
Akraness. Dómari var Axel And-
rjesson. Um kvöldið hjeldu fje-
lögin dansleik í samkomuhúsi bæj-
arins og var þar saman komið á
annað hundrað manns. Kennari
Axel Andrjesson hjelt ræðu fyrir
minni knattspyrnuíþróttarinnar og
afhenti sigurvegurunum gripinn.
íþróttamótið 17. júní. Verðlaun
fyrir íþróttaafrekin þar verða af-
hent í kvöld kl. 10 í K. R.-húsinu.
Alt íþróttafólk er velkomið. Á
eftir verðiu' stiginn dans.
Ferðafjelag íslands efnir til
skemtiferðar austur á Heklu á
sunnudaginn kemur, og verður
lagt á stað á laugardaginn, ef
veðurútlit verður sæmilegt, og gist
um nóttina að Galtalæk. Þaðan
verður farið á hestum upp í hesta-
rjett á Heklu, en síðan gengið á
Heklutind og er það um 4 km.
vegur, en bratt nokkuð. Þyki
skygni af Heklu ekki gott á
sunnudagsmorgun verður riðið upp
með Þjórsá að austan að Þjófa-
fossi og Tröllkonuhlanpi. Vegna
hestaútvegunar verða. þátttakend-
ur að gefa sig fram fyrfr kl. 7 í
kvöld á afgreiðslu ,,Fálkans“.
Farþegar með Goðafoss frá Rvík
í gær til Hull og Hamborgar:
Emil Nielsen frkvstj., Egill Vil-
hjálmsson, Guðrún Sveinsdóttir,
Katrín Viðar, Aðalbjörg Sigurð-
ardóttir, Sigurhjörn Á. Gíslason,
Þóra Árnadóttir, Inga Hoffmann,
Sesselja Sigurðardóttir, P.jetur
Sigurjónsson.
35 Goodtemplarar fóru hjeðan
með Goðafossi í gærkvöldi til Vest
mannaeyja til að sitja Stórstúku-
þingið.
Sundkensla barna í Reykjavík.
Á fundi slcólanefndar 4. þ. m. var
lagt fram brjef leikfimiskennar-
anna Valdimars Sveinbjörnssonar
og Vígnis Andrjessonar um fyrir-
komulag sundkenslu skólabarna.
Samþykti skólanefnd að börnum
verði kent sund í flokkum á nám-
skeiðum, að kent verði 10 stundir
4 dag og hvert námskeið standi
3 vikur. Ennfremur samþykti
skólanefnd að mæla með því, að
Júlíus Magnússon verði settur
sundkennari við Miðbæjarskólann
frá 1. okt. n.k.
Skipafrjettir. Gullfbss er í Kaup
mannahöfn. Goðafoss fór til Hull
og Hamborgar í gærkvöld. Brúar-
foss er í Reykjavík. Lagarfoss fór
frá Kaupmannahöfn í fyrradag,
áleiðis til Leith. Dettifoss fór frá
Hull í fyrradag, áleiðis til Reykja
víkur. Selfoss er í Leith.
Noregsför skólanemenda. Að til-
hlutnn Norræna fjelagsins fara
hjeðan í lcvöld með „Lyra“ þessir
nemendur í skemtiför og námsför:
Ur Mentaskólanum: Ásta Helga-
dóttir, Birgir Guðmundsson, Björg
Ellingsen, Dagný Ellingsen, Ing-
unn Hermannsson, Jónas Pjeturs-
son, Jórunn Viðar, Katrín Ólafs-
dóttir, Ólafur Guðmundsson og
Pjetur Thorsteinsson. Frá Versl-
unars’kólannm: Betzy Petersen,
Martha M. Jóhannsdóttir, Sigríð-
Tfi Bsrgarfjarðar
cg Borgaroess
alla mánudaga os: fimtudaga..
Símar 1216 Ctvær línur).
„Ama“
Siatbra&ð. Pk. 0.50.
Þeir,
sem kaupa trúlofunarhringa
hjá Sigurþór verða altaf
ánægðir.
ur Pjetursdóttir, Stella Petersen:
og Þuríður Jóhannsdóttir. Frá
Gagnfræðaskóla Reykvíkinga: Ef-
einía Georgsdóttir, Hjördís Pjet-
ursdóttir, Magnús Helgason og
Ólafnr Georgsson. Frá Laugar-
vatnsskóla: Ragnhildur Stefáns-
son. Frá Landakotsskóla: Sigrid
Mogensen. Frá kvöldskóla: Ás-
laug Oddsdóttir, Gerda Höýdal og
Hulda Höydal. Frá Kvenria.sk-ólan-
Um: Tonny Múller. Fararstjórar
eru Arngrímur Kristjánsson kenn-
ari, Sigríður Magnúsdóttir kenslu.-
kona og Þórunn Magnúsdóttir.
Kvikmyndasalur Austurbæjar-
skólans. Skólanernd hefir samþykt
að fara þess á leit við hæjarráðr
að gerðar verði ráðstafanir til þess;
að koma kvikmyndasalnum í lag.
á þessn sumri.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir skrif
stofu í Varðarhúsinu við Kalk-
ofnsveg og er hún opin alla daga.
Þar liggur kjörskrá frammi og-
þar eru gefnar allar upplýsingar
er kosningarnar varða. Sími skrif-
tofunnar er 2339.
Siálfstæðiskjósendur utan af
'ándi, sem dvelja í bænum og eiga
kosningarrjett í öðrum kjördæm-
um, og búast, ekki við að verða
komnir heim fyrir kjördag, eru
’mintir um að kjósa lijer hjá lög-
manni og senda atkvæðin til við-
'unandi kjörstjóma tímanlega.
Geta þeir snúið sjer til skrifstofu
Sjálfstæðismanna í Varðarhúsinu
um upplýsingar þessu viðvíkjandL