Morgunblaðið - 11.09.1934, Blaðsíða 2
2
M O R G U N B T ' l) 1 £)'
m
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk.
Rltstjörar: J6n Kjartansson,
Valtýr Stefánsson.
Rltstjðrn og afgrelSsla:
Austurstrætl 8. — Slml 1600.
Auglýsingastjóri: E. Hafberg.
Auglýsingaskrif stofa:
Austurstræti 17. — Sími 3700.
Heimaslmar:
Jðn KJartansson nr. 3742.
Valtýr Stefánsson nr. 4220.
Árni Óla nr. 3045.
E. Hafberg nr. 3770.
Áskriftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á mánuSi.
Utanlands kr. 2.50 á mánuöl
í lausasölu 10 aura eintakiS.
20 aura með Eesbök.
Afurðasölumálið.
. Blöð rauðliða stagast mgög á
því, að Morgunblaðið sje andvíg't
samtökum framleiðenda um hags-
.munamál sín, svo sem um sölu af-
urða sinna.
Allar eru þær fullyrðingar
gripnar úr lausu lofti.
Aldrei hefir blaðið vikið að því
einu orði, að óeðlilegt væri að
framleiðendur bindust samtökum
um hagsmunamál sín. Eins og á-
standið ér nú í landinu, þar sem
hver hagsmunaflokkur rís af öðr-
um, er eðlilegt að framleiðendur
bindist sínum samtökum um sína
hagsmuni. Aðrir menn ákveða t.
d. kaupgjald það, sem þeim er
gert að gréiða. Af því er sú, af-
leiðing eðlileg', að þeir fái ráð-
rúm og tækifæri til þess að
tryggja sjer sem besta afkomu,
sem besta sölu á afurðum sínum.
Þeir þurfa verð fyrir vör-
una, er samsvarar framleiðslu
kostnaði, sín laun fyrir sitt erfiði,
engu síður en daglaunamaðurinn,
sem að framleiðslunni vinnur.
Er ekki nema gott, að sósíalistar
viðurkenni þetta í verki.
, En þar méð er það ekki sagt,
að hver þau lagaboð, sem hægt
er að nefna því nafni, að þau
ákveði „skipulag“ afurðasölunn-
ar, komi því til leiðar, að þess-
um grundvallarskilyrðum sje
fullnægt.
Því, eins og' almenningi nú er
kunnugt, eru þau bráða,birgðalög
um afurðasölu, er stjórnin hefir
gefið út þess eðlis,
að þau gefa stjórn eða meira og
minna stjórnskipuðum nefndum
ráðsmenskuvald yfir afurðum
bændanna og afurðaverði.
Því er það gersamlega undir
framkvæmdum þeirra komið,
hvort framleiðendur geta við þau
unað.
Fyrsti „árangurinn“ af „skipu-
lagi“ kjötsölunnar lofar t. d. ekki
góðu, þar sem sú varð raun á, að
kjötverðlag’snefnd ákvað heild-
söluverð kjötsins svo hátt, að það
lokaði fyrir þá sölu sem undan-
farin ár hefir gefið bændum
hæsta verðið.
Nú er eftir að vita, hvernig vald
höfunum tekst að efna loforð sín í
mjólkursölúmálinu, og láta neyt-
endur fá 8 aurum lægra mjólkur-
verð, en framleiðendur 8 aurum
hærra.
Uerkfallið ágerist.
Kglliðir skiDSbmní.
Bráðabli'gðalogin
tam mftllksirsllliaiMt
Fföldi Knaiinss faras#. o
(kuiiiai' UEii sfórfélda gfæpi.j 1 iflloi 1
London, 10. sept. FÚ.
Verkfallinu í Bandaríkjunum
linnir ekki enn, heldur munu
hafa bætst við tölu verkfalls-
manna. Tilraunir eru sífelt gerð-
ar til þess að koma á sættum, en
eru enn árangurslausar.
í útvarpsfregn frá London á
laugardaginn, er frá því skýrt, að
stórt farþegaskip, Marrow Castle,
hafi brunnið þá um dag’inn.
Ökipið var á leið milli New
York og Hawana. ,
Með skipinu voru 318 farþegar
en 250 manna skipshofn.
Þegar eldsins varð vart, var
skipið 20 mílur suður af vitaskip-
inu Seotland. ,
Eklurinn breiddist ilt um skipið
með óskiljanlegum hraða.
Farþegar flestir voru í fasta-
svefni, og gátu skipverjar ekki
vakið farþega öðru vísi en svo, að
þeir hlupu eftir göngum skipsins.
og brutu rúður í hurðum farþega-
klefanna, ,
Rjett áður en eldurinn braust
út, hafði skipstjórinn orðið bráð-
kvaddur. Talið að hjartaslág hafi
orðið honum að bana.
Skip þustu að úr öllum áttum
er neyðamerkin heyrðust frá skip-
inu.
Á laugardaginn var það mjög
óvíst hve margir höfðu bjargast
úr hinu brennandi skipi. ,
Marg'ir farþegar héntu sjer í
sjóinn. Erfitt var að koma við
björgunarbátum, vegna þess, að
svo mikið eldhaf var við hljeborða
skipsins.
Hjón, sem voru farþegar björg-
úðust á sundi til lands. Þau höfðu
björgunarhringi. Þau voru 6 klst.
í sjó, nær dauða en lífi er þau
kömú til lands.
Skipbroismenn koma til
New York.
Berlín 10. sept. F.Ú.
f gær kom skip til New York með
150 af þeim, sem björguðust af
skipinu Morrow Castle, er brann
í hafi.
Geysimikill mannf^öldi liafði
safnast saman við höfnina, er
skipbrotsmennirnir gengu á land,
og kváðu við á hafnarbakanum
kveinstafir þeirra, er eig’i fundu
ættingja sína meðal þeirra e*'
bjargast höfðu.
Eimskipafjelagið, er átti Mor-
row Castle hefir gefið út skýrslu
um slysið, en ekkert er sagt þar
að svo stöddu um orsakimar til
slySsins, nje hvort nokkur sjer-
stakur eig'i sök á því, að það varð
svona stórkostlegt.
60 lík fundin.
London 8. sept. F.Ú.
Sextíu lík hafa nú fundist,
þeirra sem fórust með eimskipinu
Morrow Castle. En 70 eru þó eftir,
sem engin vitneskja er fengin um,
og líklegast talið, að þeir hafi
flestir farist.
Sjópróf út af slysínu.
New York 10. sept. F.B.
Sjópróf út af Morrow Castle
skiptapanum byrjar sennilega í
dag.
Verður þar fyrst og fremst
tekið til athugunar hvort það hafi
við nokkuð að styðjast, að kveikt
hafi verið í skipinu. í öðru lagi
•verður rannsakað hvernig á því
stendur, að fleiri skipverjum en
farþegúm var bjargað. Einnig
verður lögð mikil áhersla á að leiða
í ljós, hvort nokkuð grunsamlegt
hafi verið í sambandi við fráfall
skipstjórans, en hann ljest stuttu
áður en éldurinn kom upp.
Einnig verður í’annsakað hvern
ig á því stendur, að vjelarnar
biluðu, en samkvæmt þeim upp-
lýsingum, sem fyrir hendi eru
kom eldurinn upp á einu efri þil-
fai-a skipsins. Loks verður reynt
að komast að hvernig á því stend-
ur, að eldurinn barst svq óðfluga
um skipið, sem raun varð á, og
hvers vegna dráttur varð á útsend-
ingum neyðarmerkjanna.
United Press.
Síðustu fregnir:
Skipverjar segja kveikt
í skipinu.
London, 10. sept. FÚ.
Rjettarhöld út af skipsbrun-
anum í Morrow Castle standa nú
yfir.
Ýmsir skipverjar hafa borið
það, að eldurinn hafi komið upp
af manna völdum.
Þeir segja, að 27. ágúst, hafi
þess orðið vart að eldur var í
lestinni, og hafði verið borin
þangað olía. En þá var eldurinn
slökktur.
Nú telja þeir, að eldurinn hafi
komið upp í bókasafni skipsins.
Þar hafði nýlega verið gengið
um, þegar eldurinn gaus upp, og
ekki orðið vart við neitt.
Telja þeiri ]pví ‘líklegt að eld-
fim efni hafi verið borin þar að,
þótt einnig sje hugsanlegt, áð
kviknað hafi út frá vindlingi.
Samt telja þeir ólíklegra að svo
sje, vegna þess hve fljótt eldur-
inn gaus upp, og hve óðfluga
hann breiddist út.
Skipsflakið brennur enn og
hefir ekki verið unt að komast
um borð.
Tekist hefir að þekkja 80 lík,
sem fundist, hafa úr skipinu, en
60 vantar enn, bæði farþega og
skipsmenn.
137 vantar.
New York, 10. sept. FB.
Ward-línan hefir birt endur-
skoðaðan lista ,yfir þá, sem fór-
ust er Morrow Castle brann. —
Samkvæmt honum fórust eða
vantar 137 menn, en á skipinu
voru 318 farþegar og 240 skip-
Verjar. — Sjópróf út af slysinu
hófust í dag.
United Press.
•— ■ ——•—■»
Blöðin eiga að
vera frfáls.
London, 10. sept. FÚ.
Ársfundur enskra blaða-
manna hófst í dag í Blackpost.
Á fundinum er m. a. rætt um
ástand frjettaflutnings í heimin-
um nú. Fundurinn átaldi þá jám
hörðu ritskoðun, sem nú færi
fram í Þýskalandi, og samþykti
ályktun um það, að blöðin ættu
að vera frjáls.
Nýir kaupendur að Morgunblað-
inu fá blaðið ókeypia tál næ«t-
komandi mánaðamóta.
JafsifraKnf sskýrir Alþýðnblaffilf
fra werÖlagsbreylingMfiKft.
í gær gengu bráðabirgðalög-
in um „skipulagningu“ mjólkur-
sölunnar í gildi. Eru þau í aðal-
atriðum eins og áður hefir ver-
ið skýrt frá, um verðjöfnunar-
skatt, sölumiðstöðvar, verðlags-
nefndir og allsherjar mjólkur-
sölunejmd.
Jafnframt því, sem Alþýðu-
blaðið birtir öll lögin, skýrir
blaðið frá því, að útsöluverð
mjólkur hjer í bænum lækki um
7—8 aura líter nú innan skams.
En útborgun til framleiðenda
eigi að hækka að sama skapi,
um 7—8 aura.
Gott er að eiga á góðu von,
geta framleiðendur sagt, sem
éiga að njóta verðhækkunar, og
neytendur, sem eiga að njóta
verðlækkunar.
Að verðjöfnunarskatturinn og
annað fyrirkomulag á mjólkur-
sölunni eyðiieggi kúabú Reyk-
víkinga, er mál, sem ekki virðist
koma núverandi landsstjórn við.
Hún ætlast e. t. v. til, að Reyk-
víkingar, sem hafa lífsframfæri
sitt af búrekstri og mjólkursölu,
eigi að hlakka til þess að bæta*t
í atvinnuleysingjahópinn.
En meðal annara orða:
Ætlaði núverandi landsstjórn
ekki, með nýjum ,,skipulögum“
að afnema atvinnuleysið í
skyndi?
Benes gerir upp reikning
Þjóðabandalagsins.
Benes.
London, 10. sept. FÚ.
Ársfúndur Þjóðabandalagsins
hófst í dag og var Benes kosinn
forseti. Setningarræða hans sner
ist um úrlausnarefni þau, sem
framundan eru í heiminum, og
afstöðu Þjóðabandalagsins til
þeirra. Benes sagði, að heims-
kreppa væri nú í hugsjónum, sið-
gæði, trú, viðskiftamálum, þjóð-
fjelagsmálum og í innanlands-
málum þjóðanna og milliríkja-
málum. I heiminum er nú al-
menn óvissa á öllum sviðum um
það, sem fram undan er.
Svo sneri Benes sjer að því, að
gera upp reikninga Þjóðabanda-
lagsins. Tapsmegin á þeim reikn
ingi taldi hann úrsögn Japana
og Þjóðverja úr bandalaginu,
stríðið í Suður-Ameríku, við-
sjárnar í Austur-Asíu og það, að
afvopnunarráðstefnan hefði mis
hepnast.
En tekjumegin taldi hann það,
að Bandaríkin hefðu nálgast
bandalagið meira en áður, og að
horfur væru á því, að Sovét-
Rússland gengi í það, Hann
sagði, að engin von gæti verið
um það, að Þjóðabandalagið
nyti sín, eða að heilbrigt ástand
kæmist á í heiminum fyr en full
samvinna væri komin á milli
þessara þjóða og bandalagsins.
Tekjumegin taldi hann einnig
það, sem hlutast hefði verið til
um frið í Suður-Ameríku og
samninga um samvinnu í Aust-
ur-Evrópu.
íkviknun
í Siglufirði.
Slökkviliðinu tókst að
kæfa eldinn áður en
verulegt tjón varð að.
Siglufirði, mánudag..
(Einkaskeyti til Morgunblaðsins).
Eldur kviknaði um kl. hálfsjö
í morgun í kaffihúsinu Brúarfossi.
Kviknað hafði út frá rafmagns-
lögn á hanabjálkalofti.
Fólk bjó í kjallara hússins og
var alt sofandi, en aðkomustúlka
sá reykjareim leggja upp um mæn
irinn, og' vakti fólkið. ,
Slökkviliðið var þegar kvatt á
vettvang. Hafði eldurinn þá ekki
gripið um sig og tókst bráðlega
að slökkva lxann. Urðxx skemdir
litlar.
Norskir leiðangrar.
koma heim frá Austur-
Grænlandi.
Oslo, 10. sept. FB.
Hoel docent er farinn til Ála-
sunds til þess að taka móti leið-
angursmönnum þeim, sem þang-
að eru nú væntanlegir frá Aust-
ur-Grænlandi. Eru það Ingstade
Tollefssens, Giævers og „Arkt-
isk Næringsliv“ leiðangrarnir,
sem um er að ræða. Ellefu Norð-
menn hafa vetursetu á norsku
stöðvunum í Austur-Grænlandi.
Otto keisaraefni í Ósló.
Oslo, 10. sept. FB.
Otto erkihertogi af Habsburg
er nýkominn til Ósló og gistir á
Grand Hotel undir nafninu von
Bahr hertogi.
\