Morgunblaðið - 09.02.1935, Qupperneq 3
Laugardaginn 9. febr. 1935.
MORGUNBL'AÐIÐ
3
Glundroði í fjármálum
Bandaríkjanna
ef stjórnin tapar „gullmálinu“.
KAUPMANNAHÓFN 1 GÆR.
EINKASKBYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS
Beðið er með mikilli eftir-
væntingu eftir hæstarjettar-
dómnum í svonefndu gullmáli
við Hæstarjett Bandaríkjanna.
Er búist við dóminum í síð-
asta lagi á mánudag, en ef til
vill í dag.
Dómuririn fellir úrskurð um
það, hvort Roosevelt forseti
hafi haft heimíld fjl þess í
stjórnarskrá landsins að leysa
skuldunaúta frá þeirri skyldu,
JV 1 'XÍFJ78 ’
að greiðá skuldbindirigar sínar
í gulli.
Ef þessi fyrirmæli forsetans
verða úr gildi numin, þá segja
f jármálamenn, að fullkominn MUUHtKnKW**
glundroði komist í alt viðskifta Roosevelt.
og fjármálalíf þjóðarinnar, því
eftir núverandi gengi dollars skal skuldir samkvæmt gull-
nemur það 70% hvort greiða gengi eða eigi. Páll.
Verslunarsamningar væntan-
legir milli Dana og íslendinga.
Kalundborg, 8. febr. FÚ.
Ráðuneyti danska forsætisráð-
herrans tilkynti í dag, að sam-
komulag hefði orðið um það, að
■ npp umræður um nýja versl-
unarsamninga, milli Dana og ís-
iendinga.
Umræður þessar eiga að fara
frnrn í Reykjavík innan skams,
milli fulltrúa frá íslensku ríkis-
stjórninni annarsvegar og nokk-
urra manna úr dönsku sambands-
nefndinni og danska sendiherrans
í Reykjavík hinsvegar, en hann
hefir nú um skeið verið í Kaup-
mánnahöfn.
Þetta er gert í samráði við for-
sætisráðherra íslands, sem nú er
einnig staddur í Kaupmannahöfn.
Væntanlegir samningar.
Síðan viðskiftaþjóðir ókkar Is-
lendinga hafa tekið upp þá stefnu,
að miða kaup sín í íslenskum vör-
um' við það sem við kaupum af
þeim, hefir mikið um það verið
rætt, hve inikið misræmi er í milli
innflutnings okkar frá Danmörku
og útflutnings þangað.
Hefir verið rætt um þettað bæði
í ráðgjarnefndinni og eins mun
málið hafa verið tekið til með-
ferðar í utanríkismálanefnd.
Samkvæmt ofangreindri útvarps
frjett frá Kallundborg, virðist
vera kominn skriður á þetta mál.
Er vonandi, að væntanlegir samn-
ingar verði til þses, að á þessu
fáist nokkur lagfæring, frá því
sem verið hefir.
Því eins og kunnugt er, kaupum
við af engri þjóð meira en Dönum,
en til þess að gera lítið, sem þeir
kaupa af íslenskum afurðum.
Piparspekúlantar
fara á höfuðið.
Misheppnuð spá-
kaupmenska. .
KAUPMANNAHÖFN 1 GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS.
Stórtíðindl eru að gerast um
þessar mundir á piparmarkaði
heimsins.
Spákaupmenn hafa keypt upp
allar piparbirgðir sem til hefir
náðst um allan heim, m. a.
birgðirnar í London, sem nema
20 miljónum kílóa.
Hafa kaup þessi verið gerð
í þeim tilgangi að hafa áhrif
á verðlagið og hækka verðið.
I gær átti greiðsla að fara
fram á miklum piparbirgðum,
og var það piparkóngurinn
Bishirgian, sem átti að greiða
fjeð.
En bankar neituðu að styðja
kaupin, og var firma pipar-
kóngsins auglýst gjaldþrota. —
Hlutafje firmans skiftir milj-
ónum.
Er búist við að fleiri pipar-
kaupmenn fari á höfuðið.
Páll.
Samsæri gegn
stfórninni
i Mexico.
Berlín 8. febr. FÚ
I Mexico hefir komist upp
um tvö samsæri, sem miðuðu
að því, að steypa stjórninni af
stóli.
I öðru samsærinu voru ýmsir
háttsettir foringjar í hernum,
en þátttakendur í hinu voru
menn sem voru óánægðir með
gerðir stjórnarinnar gagnvart
kaþólsku kirkjunni.
Óstaðfest fregn frá Washing-
ton segir, að forsprakkar í sam-
særum þessum hafi verið tekni-
ir af lífi.
Tueir unglingar
18 og 19 ára hafa játaS
á sig 1Z innbrot.
Ótta innbrot frömðu þeir í fyrrinótt,
hin nú fyrir skömmu.
Átta innbrot voru framin hjer
í bænum í fyrrinótt. Lögregl-
ucni Vár tHkynt innbrotin kl.
6V2 í gærmorgun. Hún hefir
haft upp á innbrotsmönnunum,
sem eru tveir unglingar, Þor-
valdur Pálmar Valdimarslson,
19 ára, og Friðmar Sædal
Markússon 18 ára aS' aldri.
Innbrot á Þórsgötu
8.
Rjett fyrir kl. 7 í iyrrákvöld
brutust piltarnir int» í mann-
lausa íbúð á,:Þórsgötu =8, en þar
býr Einar ]j|agn.ússon. Sprengdu
þeir upp íbúðina og stálu 25
krónum í , peningum, sem vinnu
stúlka átti. Einnig stálu þeir
skríni, sem í voru hringar,
perlufestar og annað stáss. —
Þaðan fóru þeir í Áfengisversl-
un ríkisins og keyptu sjer eina
flösku af brennivípi. Munu þeir
hafa verið að drekka hana
fram eftir kvöldinu.
Innbrot í bensin-
sölu Zimsens.
Þarna notuðu þjófarnir sömu
aðferð og áður, að sprengja
upp hurð og brutu síðan rúðu,
fóru síðan inn í skrifstofuher-
bergi, brutu upp allar hirslur,
en fúndú ekkert verðmætt,
sem þeir gátu tekið með
sjer.
Innbrot í VarSar-
húsið.
Þá brutust þjófarnir inn í
Várðarhúsið. Byrjuðu þeir með
að brjóta upp aðaldyr að happ
drættisskrifstofu Stefáns Páls-
sonar og Sigbjörns Ármans.
Stefán Pálsson hefir gefið blað-
inu eftirfarandi upplýsingar. —
Kl. tæpl. 9 í gærmorgun var
hringt til mín og jeg beðinn
að koma tafarlaust niður á
skrifstofu okkar í Varðarhús-
inu. Þegar þangað kom var öllu
umrótað á skrifstofunni. Það
fyrsta sem jeg aðgætti, sagði
Stefán var náttúrlega hvort
nokkru hefði verið stolið af
happdrættismiðum eða pening-
um. Var í rauninni ástæðulaust
að óttast slíkt, því alt verðmæti
er geymt í eldtraustum og þjóf-
heldum peningaskáp. Þess ber
líka að geta, að lítil not hefðu
þjófarnir haft af happdrættis-
miðum þó þeir hefðu náð í þá,
því þeir koma ekki að notum
nema þeir sjeu bókfærðir og
stimplaðir. Eins og áður er sagt
var öllu umrótað og traust eik-
arskrifborð var brotið upp og
þar á meðal ein skúffa,
sem ekki hefir verið
opnuð í mörg ár. Auðsjeð er
líka að þjófarnir hafa farið sjer
rólega, kveikt ljós og dregið
niður gluggatjöld. Engu verð-l
mætu munu þeir hafa stolið
á happdrættisskrifstofunni.
Þaðan brutust þeir inn á skrif
stofu miðstjómar Sjálfstæðis-
flokksins með þeim hætti, að
þeir; “sþrengdu upp dyrakarm-
inn og hefir hann klofnað al-
v^gj ofan frá og niður úr. í
fnlðstjórnarherberginu brutu
þjófarnir upp skrifborðsskúffu
og fundu frímerki fyrir um 100
krónur, sem þeir höfðu á brott
með sjer. Ekki bar þarna efns
mikið á skemdum eins og ann-
arstaðar, en því ver gengu þeir
um skrifstofu Heimdallar, sem
er uppi á lofti. Sömu aðferð
notuðu þeir þar við að brjótast
inn í herbergið, spörkuðu í hurð
ina þangað til karmurinn ljet
eftir. I herberginu er skápur
með 8 hólfum, brutu þeir þau
öll upp, rifu myndir niður af
veggjum og rótuðu öllu til.
Innbrot í söluskúr
„Shell“ við Vestur-
götu.
Úr Varðarhúsinu fóru þjóf-
arnir í bensínsöluskúr ,,Shell“
við Vesturgötu, brutu rúðu í
hurðinni og opnuðu smekklás.
Brutu þeir þar upp hirslur all-
ar en fundu ekkert fjemætt.
Innbrot á ,Billia.rcí-
inn‘ á Vesturgqtu.
Síðan hjeldu þeir á ,billiard‘-
stofuna á Vesurgötu 3. Skriðu
þeir þar inn um glugga, en
fundu ekkert fjemætt.
Innbrotstilraun
í „Geysi“.
Þá gerðu þeir tilraun til að
brjótast inn í Veiðarfæraversl-
unina ,Geysir‘. Brutu þeir rúðu
og ætluðu að opna smekklás,
en fundu þá að hurðin var bet-
ur læst og hættu því við það
innbrot.
Innbrot í Hressing-
arskálann.
Úr versl. *Geysi hjeldu pilt-
arnir í Hressingarskálann. Fóru
þeir fyrst inn í garðinn á bak
við húsið, brutu glugga og
skriðu inn. 1 Hressingarskálan-
um er stór ,,National“ peninga-
kassi, sem stimplaðar eru inn
á vörur þær, sem gestirnir
kaupa, en aldrei geymdir í pen
ingar að næturlagi. Brutu þeir
upp kassann og eyðilögðu mik-
ið. Þá stálu þeir tóbaksvörum
úr hillu, eins mikið og þeir gátu
borið og fóru með það í kjall-
ara á gömlu geymsluhúsi, sem
er á bak við Pósthússtræti 15
og földu þar.
í þessari sömu hillu voru um
30 kr. í peningum, sem ein
stúlkan hafði geymt þar frá
kvöldinu áður, voru þeir í um-
slagi, en þjófamir fundu ekki
umslagið.
Síðan hjeldu þeir aftur í
Hressingarskálann, en stálu
engu í það sinn.
Innbrot í skóbúð
Gunnars Jónssonar
í sama húsi og Hressingar-
skálinn er í, er skóbúð Gunn-
ars Jónssonar. Brutust þjófarn-
ir inn þar og tókst að stela smá
peningum úr skúffu, sem var
opin.
Innbrot í „Nora
Magasin“.
Þá fóru þeir í portið við Hótel
Borg og tóku stiga, sem þar
var, reistu hann upp við húsið,
sem Nora Magasin er í og fóru
upp á þakið. Á þakinu er smá-
turn, brutu þeir ’rúðu í honum
og settu síðan stigann niður á
búðarborðið, hæðin frá turain-
um og niður á borðið er fjórir
metrar. Stigu þeir nú niður í
búðina og stálu ýmsu smávegis,
sem þeir síðan földu í porti þar
nálægt, ásamt 5 krónurn í pen-
ingum.
Tvö innbrot í
Briemsf jós.
í yfirheyrslunum í gær ját-
aði Freiðmar að hafa brotist inn
í Briemsfjós þ. 19. janúar og
stolið um 30 krónum í pening-
um. Einnig kvaðst hann fyrir
tveim dögum hafa brotist inn
aftur í Briemsfjós og stolið þá
um 4—5 krónum og hafi þá
Þorvaldur verið með sjer.
Innbrot á íþrótta-
vellinum.
Þá játuðu þeir fjelagar að
hafa fyrir nokkru brotist inn í
áhaldaskúr íþróttavallarins, en
ekki stolið þar neinu. Þetta inn-
brot hefir ekki verið kært til
lögreglunnar.
Lögreglan tók í gær fastan
pilt, sem hún grunar um að
vera í vitorði ’með þessum tveim
piltum og situr hann nú 1 gæslu;
varðhaldi.
Þýfinu náð.
Lögreglan náði mest öllu því,
sem þjófarnir höfðu stolið um
nóttina og var það ekkert smáræði
samanlagt. Mestu munu þeir hafa
stolið í Nóra-Magasín. Frímerku-
um sem stolið var í Varðarhúsinu
varð ekki náð. í gærmorgun þeg-
ar lögreg-lan sótti annan piltinnr
var hann hjá vinstúlku smni og
hafði hvílst þar, sem eftir var
nætur. Eftir að hann hafði með-
gengið, var farið heim til stúlk-
unnar, en hún hafði á meðan brent
öllum frímerkjunum.
---------------
ítalir andvígir
Lundúnatillögunum.
London 7. febr. FÚ.
Frjett frá Berlín hermir,
að ítalska stjórnin hafi í und-
irbúningi mót-tillögur við bresk
frönsku tillögunum. Einkanlega
sje það ákvæðið um það, að
þjóðir þær sem að samningum
standa skuldbindi sig til að
korha með sameiginlegan loft-
flota sinn til aðstoðar þeim
samningsaðila sem kunni að
verða ráðist á, sem ítalir ekki
felli sig við. Aftur á móti vilji
þeir samkomulag um takmörk-
un flughers.