Morgunblaðið - 14.06.1936, Page 5

Morgunblaðið - 14.06.1936, Page 5
'Sunnudaginn 14. júnx 1936. MORGUNBLAÐIÐ 5 Garðar Gíslason sextugur* Garðar Gíslason er sextugur í dag. Það er ákaflega misjafnt, hvenær á æfinni menn byrja að eldast. Mun skapgerðin valda miklu um það. Þeir sem framtakssamir eru, »djarfhuga og starfsamir áhuga- menn, þeir eru ungir í anda langt fram eftir æfi. Ekki veit jeg hvernig Garð- ar Gíslason var í viðkynningu fyrir 35 árum, er hann hóf sjálfstæða verslun. En mjer er nær að halda, að hann hafi breyst mjög lítið síðan,, nema hvað mikil og margþætt versl- unar- og lífsreynsla hefir kent honum mikið og margt og gert honum marga hluti auð veldari. Þá hóf hann verslun með ríka starfsþrá og alveg ó- venjulega hugkvæmni við að finna og ryðja nýjar viðskifta- leiðir. Þeir sem nú eru að alast upp og ungir eru að árum, •eiga erfitt með að átta sig á því, hve æfintýralegt það þótti um síðustu aldamót, að fjelítill þingeyskur bóndasonur skyldi ávo að segja alt í einu vera -orðinn heildsali í Englandi, nærri því utanvið þann við- skiftaheim, sem við Islendingar þektum, meðan þvínær öll okk- ar verslun var einskorðuð við Danmörku. Höfuðeinkenni í skapgerð 'Garðars kemur einmitt fram í því, að hann ílendist ekki í Danmörku, á þeim slóðum, þar sem íslensk verslun var stað- gróin, heldur byrjar frá upp- hafi á því að reyna nýjar leið- ir. Fyrir núverandi valdhafa á íslandi er Garðar Gíslason of frjálshuga maður. Hann trúir á mátt sjálfsbjargar og hollustu. Þannig er lund hans, og þetta hefir lífið kent honum æ betur. En fjarri fer því, að einstakl- ingshyggja hans sje meiri en góðu hófi gegnir. Garðar er maður þjóðhollur á besta máta, og leggur í hvívetna kapp á að vera þjóðnýtur í starfi sínu. Ungur sá hann og skildi, hvílík nauðsyn okkur væri á frjálsri og framtakssamri versl- unarstjett. Frjáls verslun varð honum hjartans mál, ekki sjálfs hans vegna, heldur vegna þjóðarinnar. Með skapfestu sinni hefir hann hvenær sem er og hvar sem er verið boðinn og búinn til málsvarnar fyrir verslunar- stjett landsins, þegar á hana er ráðist. Eftir 35 ára starf og marg- víslega erfiðleika í viðskiftum landsmanna, stendur verslun hans í blóma. En verslunarsaga Islands mun geyma nafn hans sem eins af þeim fáu fyrstu, er um síð- ustu aldamót lögðu grundvöll að alíslenskri verslun, og stóðu af sjer fyrstu árásirnar, er öf- undsjúkir menn og illa siðaðir gerðu að nýgræðingi þeim í atvinnulífi þjóðarinnar. '‘-V^SúMíulaSi Alla tíð síðan hefir þetta verið höfuðeinkenni á starfi hans. hefir hlotið besfn mefSmæli Askoranir Verslunarþingsins til rikis- stjórnarinnar um innllutn- ings- og gjaldeyrismðl. E FTIRFARANDI ályktanir voru sam- Jjyktar með samhljóða atkvæðum á Verslunarþmginu í gær: Um gjaldeyris- og innflutningsnefnd. Verslunarþingið ályktar að skora á ríkisstjórn ís- lands: 1. Að breyta 3. gr. starfsreglna gjaldeyris- og inn- flutningsnefndar á þann veg, áð efndin hafi ótvíræð fyr- irmæli um að veita öllum verslunarfyrirtækjum innflutn- ingsleyfi eftir föstum kvota, sem miðist eingöngu við inn- flutning þessara fyrirtækja ákveðið ár eða árabil, svo að kaupmenn og kaupfjelög geti útvegað viðskiftamönnum sínum vörur í sama hlutfalli og var áður en innflutnings- höftin voru sett. 2. Að fela gjaldeyris- og innflutningsnefnd að birta þegar í byrjun hvers árs áætlun yfir innflutning þann, sem veita á á árinu, og ennfremur að leggja fyrir gjaldeyris- og innflutningsnefnd að hafa áætlun þessa svo greinilega, að hver innflytjandi geti sjeð sjálfur, hve mikinn inn- flutning hann á að fá á því tímabili, sem áætlunin nær yfir, samkvæmt skýrslu sinni til gjaldeyris- og innflutn- ingsnefndar yfir fyrri innflutning. 3. Að fela gjaldeyris- og innflutningsnefnd, við samn- ingu áætlunarinnar, að taka tillit til vöruflokkaskiftingu innflutningsins undanfarin 10 ár, og ennfremur að leita álits Verslunarráðs íslads á henni áður en hún verður birt og kemur til framkvæmda. 4. Að fallast á skipun sjerstakrar trúnaðarnefndar kaupsýslumanna, sem hafi það verksvið að taka við og athuga kærur innflytjenda yfir úthlutun innflutningsleyfa og að tryggja þessari nefnd aðgang að öllum gögnum og upplýsingum gjaldeyris- og innflutningsnefndar, varðandi úthlutunina. 5. Að leggja fyrir gjaldeyris- og innflutningsnefnd að fella niður leyfisveitingar til einstaklinga, sem ekki hafa verslun að atvinnu og ekki eiga heimtingu á inn- flutningi samkv. reglum gjaldeyrisnefndar. Um stefnuleysi bankanna. Verslunarþingið lýsir óánægju sinni yfir því stefnu- leysi, sem bankarnir hafa sýnt um afgreiðslu og meðferð gjaldeyrisleyfa, þar sem fulltrúar þeirra afgreiða daglega í nefndinni gjaldeyrisleyfi, sem svo er synjað um yfir- færslu fyrir. Virðist og engri ákveðinni reglu fylgt um það, hvaða Ieyfi hljóta afgreiðslu í bönkunum og hver ekki, og að leyfum er haldið hjá þeim mánuðum saman, án þess að nokkurt svar fáist. Fyrir því skorar Verslunarþingið á bankana, að öll gjaldeyrisleyfi, sem út eru gefin, fái afgreiðslu hjá þeim, nema ófyrirsjáanlegir erfiðleikar valdi hindrun yfirfæ*"slu, en ef svo atvikast, verður gjaldeyrisafgreiðsla bankanna að framkvæmast eftir föstum reglum og með fullri sam- kvæmni, þannig að jafnt gangi yfir þá innflytjendur, sem leyfi hafa fengið. Kaldársel. Tekið verður á móti drengjum til lengri eða skemri dvalar í Kaidárseli. Nánari upplýsingar gefur Jóel Ingvarsson, Strandgötu 21. — Sími 9095. LeiðsSgnfólk f erðanaanna. Þeir, sem óska að láta skrásetja sig sem leiðsögumenn erlendra ferðamanna í sumar, geta fengið eyðublöð til útfyllingar, og nánari upplýsingar hjá !Ferðfl»krtfs(ofa ríkisins. Trýggvagötu 28. Ódýrar vörur: Matskeiðar, ialum. 0,25 Do. krómað 0,75 Matgafflar, ,alum. 0,25 Do. krómað 0,75 Teskeiðar, alum. 0,15 Do. krómað 0,40 Vatnsglös, þykk 0,30 Do. slípuð 0,50 Vínglös 0,50 Desertdiskar, postulín 0,35 Undirskálar, postulín 0,15 Tannburstar í liulstri 0,50 Höfuðkambar frá 0,35 Hárgreiður 0,75 Flugnaveið ar ar 0,15 Skálasett, 5 st. 4,25 Blómavasar frá 1,00 Kúlukassar fyrir börn 0,25 K. Einarsson & Björnsson. Bankastræti 11. 1ÍÁLAFLUTNINGSSKRÍFST0FA Pjetur Magnússon Einar B. Gnðmnndsson Gnðlangnr Þorláksson Fímar 3602, 3202, 2002 Ansturstræti 7. Skri'fstofutími kl. 10—12 og 1—6. Nýr lax Nýtt bögglasmjör. Kjðtbúðin Herðobreið. Tafnarstræti 18. Sími 1575.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.