Morgunblaðið - 05.08.1936, Side 3
Miðvikudaginn 5. ágúst 1936
MORGUNBLAÐIÐ
3
■ —« f.
t
451
fj
f*
f *!
4%M^M%M%M^M%M%M%M%M%M%M^M^M^4%M%M%M^M%M%M^4%M%M%M%M%
Götuvígi i uppreisninni á Spáni.
Hermenn stjórnarinnar verjast uppreisnarmönnum bak við götuvígi í Barcelona.
Tveir Islendingar
náðu íslandsmeti á
Olympíuleikunum.
lanm. m---
Frð múttðkunum I Berlln.
Idag er fimti dagur ólympíuleikanna. ítarlegar fregn-
ir hafa ekki borist af leikunum, þar eð það er ofviða
íslenskum blöðum að kaupa skeyti, er segja frá úrslitum í öll-
um greinum íþróttanna. Frjettastofa útvarpsins, sem ein hefir
aðstöðu til þess að gefa íslendingum kost á að fylgjast með því,
sem er að gerast á þessu merkilegasta alþjóðamóti íþrótta-
manna, befir ekki sjeð ástæðu til að nota þessa aðstöðu.
Mun öllum kunnugt, að ástæðan til þessa sje, að Olym-
píuleikarnir eru haldnir í Þýskalandi, en það land er ekki hjart-
fólgið Sigurði Einarssyni, ómerkilegum manni. En syndir hans
við útvarpið eru svo margar, áð engin ástæða er til að verða
uppnæmur, þó að þessi bætist við.
Frjettaritari Morgunblaðsins í Kaupmannahöfn símar, að
fyrsta daginn, er íþróttasveitir 53 þjóða gengu fylktu liði inn á
íþróttavöllinn, hafi sveit Islendinganna 20, sem gengu undir ís-
lenska fánanum, verið sjerstaklega vel tekið, en best hafi Frökk-
um og Austurríkismönnum verið tekið. Margar sveitirnar, þ. á.
m. Islendingar, Frakkar og Austurríkismenn heilsuðu með nas-
istakveðju, og vakti það mikinn fögnuð.
Iþróttakepnin hófst 2. ágúst
(á sunnudaginn), og hefir hald-
ið áfram síðan frá morgni til
kvölds. Hefir 'verið kept til úr-
slita í mörgum greinum, þá. á.
m. tveim, sem Islendingar taka
þátt í.
í 100 m. hlaupi hljóp Is-
lendingurinn Sveinn Ingvars-
son sprettinn á 11.0 sek. Er
það jafn góður tími og ís-
landsmetið (Garðars S. Gísla
sonar) og hefir Sveinn aldrei
fyr náð jafngóðum tíma.
Varð hann 5. maður af 6 í
undanrás, en komst ekki í úr-
slit, enda var ekki við því búist.
búist.
Fyrstur í 100 metra hlaup-
inu var negrinn Owens (Banda-
lákjam.) ; hann hljóp á 10.3
sek. í úrslitahlaupinu. En í und-
anrásinni hljóp hann á'10.2
sek., og er það nýtt heimsmet.
Annar maður var negrinn Met-
calfe.
I hástökki stökk íslending-
ingurinn Sigurður Sigurðsson
(frá Vestmannaeyjum) 1.80
m., sem einnig er jafngott Is-
landsmetinu. Margir stukku
ekki nema 1.70 m.
Fyrstur í hástökki varð John-
son (Bandar.m.) ; stökk hann
2.03 m.
Fregnir hafa borist af mót-
tökum Islendinganna 50, er þeir
komu til Berlín. Samtímis þeim
í sömu lest, komu íþróttamenn
frá Chile og Brasilíu. Er frá
þessu sagt í þýskum blöðum, að
FRAMH. Á SJÖTTU SfÐU.
10 þús. kinnur af
sfld saltaðar I
Siglufirði igær
Ágætis veiði tvo
síðustu daga.
Afli sildveiðiflofams
í bræðslu og salt.
Geysimikil síld hefir bor-
ist til síldveiðistöðv-
anna undanfarna daga. Síld-
in hefir veiðst fyrir öllu
Norðurlandi frá Langanesi
til Stranda. Mest var veiðin
í fyrradag og fyrrinótt. — f
Siglufirði voru saltaðar um
10 þús. tunnur í gærdag. —
Einnig var mikið af síld sett
í bræðslu. I fyrradag voru
saltaðar 2178 tunnur af
herpinótasíld og 1245 tunn-
ur af reknetasíld.
Alls hafa nú verið saltaðar rúm-
lega 100 þús. tunnur af síld á öllu
landinu. í fyrra um sama leyti var
aðeins búið að salt 19.849 tunnur.
Eftirtöld skip komu flest öll
með fullfermi af síld í gær og í
fyrradag:
Svanur, Ágústa, Jón Þorláksson,
Huginn, H.f. Frygg, Ármann,
BOdud., Rifsnes, Huginn I. II. og
III. Þorgeir goði, Freyja Rv., Von-
in, Fylkir, Garðar, Þorsteinn, Kol-
beinn ungi, Huginn Hf. (aftur),
Eldborg, Garðar Ve., Freyja og
Ófeigur, Svanur, Skúli fógeti,
Fróði og Hilmir, Ólafur Bjaraa-
son, Sfldin, Örn, Alden og Gull-
foss.
Afli alls síldveiðiflotans bæði í
bræðslu og salt var s.l. sunnudags-
kvöld sem hjer segir. Bræðslu-
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
34 tjöld við
Hvitárvatn.
200 manns á ferða-
Iagifí óbvgðum.
perðaf jelagið stóð fyrir
* skemtiför upp á öræf-
in um síðustu helgi, og var
Hvítámes einskonar miðstöð
þess ferðalags, en þar er hið
nafntogaða sæluhús fjelags-
Fjelagið hagaði ferðinni þann-
ig: Farið var upp í Hvítárnes á
laugardagskvöld. En á sunnu-
dagsmorgni dreifðist fólkið. Fór
einn hópurinn jaorður til Hvera-
valla, annar austur í Kerlingar-
fjöll, en sá þriðji fór inn í Karls-
drátt jOg var hann fjölmennastur,
enda vora. þátttakendur þar marg-
ir aðrir en þeir, sem voru á veg-
um fjelagsins. Var sú för göngu-
för, og komið í Hvítáraes að
kvöldi. En hinar ferðirnar vora
farnar ríðandi, og útvegaði fjelag-
ið hesta, Og komið í Hvítárnes á
mánudiag, en þaðan farið seinni-
part mánudags heimleiðis.
BÍLVEGUR í HVÍTÁRNES.
Mönnum þykir næsta ótrúlegt, ;að
hægt sje að fara í bílum alla leið
upp að Hvítárvatni. En svo er
það. Brúin á Hvítá er nú fullgerð.
Er það, sem kunnugt er, gamla
Sogsbrúin, sem þangað er flutt.
Brú er og komin á Svartá, en sú
á hefir verið fær bílum í sumar.
Vegurinn frá Gullfossi upp í
Hvítáraes er talinn 46 km. Bílar
fara þá leið á 2% klst., eins og
færðin er nú. En sje lakari færð,
mun varlegra að áætla til þess
nokkru lengri tíma. Hvergi eru
nú slæmir kaflar á þeim vegi fyr-
ir bíla, sem era sæmilega háir, og
lágir bílar komast hiklaust þá leið.
En víða mun vera iallmikil varúð-
arþörf.
FJÖLMENNI Á ÖRÆFUM.
Hópur Ferðáfjelagsins í öræfg-
ferð þessari var 40—50 manns. En
það var aðeins lítill hluti þess
'mannfjölda, sem þarna kom um
helgina. Hópur kom þahgað af
símafólki —- um 50 manns — ann-
ar úr uppsveitum Árnessýslú og
enn var þar hópur af skátastúlk-
um, auk fjölmargra miúni hóþa.
Var fólk að koma upp í Hvítáraes
fram eftir öllu kvöldi á laugar-
dag og fram á sunnudagsnótt.
En á sunnudagsmorguninn voru
talin þar 34 tjöld, sum í þyrpingu
á Tjaraárbakkanum vestan við ána,
en önnur dreifð um móana aust-
an Tjarnár.
f sæluhúsinu munu hafa sofið
um 30. Giskað var á að alls hefðu
þaraa gist um 160 manns um
nóttina. En á sunnudaginn lcom
margt fólk upp eftir, svo óhikað
má telja að þaraa hafi komið um
200 manns um helgina, og gist
eina eða tvær nætur.
Veður var hið besta á laugar-
dagskvöld og sunnudag allan
fram á nótt, en kólnaði með úrfelli
er leið á mánudagsnótt þar efra.
En yfirleitt munu allir, sem
þaraa komu hafa verið mjög á-
nægðir yfir ferð þessari.
Þess er vert að geta, .að frá 1.
þ. m. var eftirlitsmaður skipaður
með sæluhúsinu, vegna þess, að
full þörf reyndist á því, að líta
eftir umgengni þar. Er þessi eftir-
litsmaður settur af Ferðaf jelaginu,
til þess að .gæta hússins og gefá
gólfi upplýsingar um leiðir. Enn-
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.