Morgunblaðið - 02.10.1936, Síða 2
2
MUKGUNBLAÐltí
Föstudagur 2. október 1936.
^ v ■ 4 i | fl í •
Utgef.: H.f. ArVakur, Reýkjavík.
Ritstjórar: J6n Kjartansson og
Valtýr Stefánsson —
áhyj’g'^armaður.
Ritstjórn og áfgreitSsrá: r,
Austurstræti •$. —-’Sími 1600.
Auglýsingastj<5ri SHt Hafberg.
Auglýsingaskrif stof a:
Austurstræti 17. — Sími 3700.
Heimasímar:
J6n Kjartansson, nr. 3742
yaltýr Stefánsson, nr. 4220.
Árni Óla,,n% 3045.
- E. Hafberg, nr. 3770.
Áskriftagjald: kr, 3.00 á mánuðl.
í lausasölu: 15 aura eintakið.
25 aura með Lesbók.
„Fræðilegur
möguleiki“.
Stjórnarblöðin keppast nú
daglega um að skýra torskilda
ritningarstaði í vasabókarguð-
spjalli Eysteins Jónssonar. —-
Það er einkum orðið „kon-
session", sem vafist hefir fyrir
þessum góðu mönnum. Loks í
gær finnur A^l^^ublaðið skýr-
inguna: Éysteinn var. bara að
benda, h'inúm bféskjU fjármála-
jSi&Máih á f>eésai féfð' „sém
fræðilegan möguleika“. Þar
með! eic það mál klappað og
klárt!i( < '
En —- Tómasareðlið er ríkt
í „íhaldinu", ekki síður en Jón-
, asareðlið í þeim rauðu. Hót-
fyndnir menn og efunargjarnir
eru eftir sem áður að velta
vöngum yfir þessu.
Þessi „fræðilegi möguleiki“
er sem sje ekki spáný söguleg
uppgötvun. Enskir fjármála-
menn ha-fa lengi þekt hann og
Íslendingar hafa frá því
snemma á öldum haft veður af
honum.
Ságari segir að Ólafur Nor-
egskonungur digri hafi eitt sinn
sent mánn nokkurn, Þórarinn
Nefjólfsson að nafni til þess að
í'æða við íslenska höfðingja
þann „fræðilega möguleika“,
að konungur fengi umráð yfir
útskeri einu, er vjer nefnum
Grímséy. En á móti hjet kon-
ungur vináttu sinni og „fje til
nauðsynlegra framkvæmda" —
éins og það nú mundi orðað.
Það var Einar þveræingur,
sem tok skarið af í þessu efni,
svo sém kunnugt er. Síðan hefir
þessi „fræðilegi mögúleiki“, lát-
ið illa í eyruiiTlsIendinga.
En ekki éh'ðtrúiegt, að fylg-
isrrtenn Þórariná’^hafi eftir á
gefið samskonar skýringu og
Alþýðublaðið:
„Allir heilvita menn sjá, að
1 þessu felast engar bollalegg-
irigar um það, að fara konsess-
jórisleiðiná; það er aðeins bent
á hana, sem fræðilegan mögu-
leika“!
Þáð’má vel vera að Eysteini
hafi dottið Þórarinn Nefjólfs-
's’on í hu’é’, þegar hann sat við
„lunchinn“ með Bretanum.
Og Bretinn er furðu naskur,
þegáf sVo 'stendur á. Allir vita
að breska heimsveldið grund-
válíast ekki áð litlu leyti á því,
að meðal ýnísrá þjóða hafa
verið „föðurlandsvinir“, sem
hafa viljað 'ræða hinn „fræði-
lega möguléika" yfir borðum
með breskum fjármálamönnum.
Bretanum er víst alveg sama
hvort ítök hans heita „konsess-
jón“ eða bai'á — „fræðilegur
möguleiki“!
BLUM KNÚÐl FRAM
GEMGISLÆKKUNINA.
Frumvarpið samp eltir tarða rimma milli öldunga- og lullirúadeildar.
Franco
í Madrid
12. okt.
Madrid-stjórnin forð-
ar aurunum íráf
höfuðborginni.
Uppreisnarmenn
boða að Franco
muni halda inn-
reið sína í höfuðborgina
b. 12. október, en þá er
þjóðhátíðardagur Spán-
verja.
I skeyti frá París til
„Politiken“ segir, að
Madridstjórnin sje að
senda 4 þúsund börn til
Valencia áður en um-
sátrin um borgina hefst.
Þá hefir stjórnin flutt all-
ar inneignir í þjóðbankan-
um í Madrid til Cartagena.
í Madrid hefir verið boð-
að til almennrar hervæð-
ingar.
Cortezinn kom saman í dag
og samþykti traustsyfirlýsingu
á stjórnina og samþykti fjárlög-
in, en síðan var þingfundi friest-
að til 1. desember.
Uppreisnarmenn hafá;: skip
sín enn í dag í Gibraltarsundi,
og þeir hafa ennfremur náð
járnbrautinni milli Algeciras
og Ronda, og standa þannig vel
að vígi með að geta flutt herlið
frá Marokkó yfir um sundið og
nokkuð áleiðis inn í landið.
Segja þeir sjer miða vel áfram
í áttina til Madrid. . >i..'
Stjórnin segist aftur' 'á 'móti
ekki einungis veita framsékn
uppreisnarmanna viðnám, held-
ur hafi hún einnig tekið aftur
smáþorp eitt, er uppreisnar-
menn höfðu náð á sitt vald.
Spánverjar ákæra
fasistaríkin.
Utanríkismálaráðherra Spán-
ar hefir lagt fyrir alþjóða-eftir-
litsnefndina, sem stofnuð var í
sambandi við hlutleysissamn-
inginn, kæru á hendur Þýska-
landi, Italiu og Portúgal.
Á portúgölsku stjórnina er
borið, að hún hafi leyft vopna-
og hergagnaflutning um land-
ið til Spánar, og jafnvel leyft
flugvjelum að koma við í Portú
gal, á leið til uppreisnarmanna
á Spáni.
(Samkv. einkask. og FÚ.).
----------Einn------------
kominn að marki aí
nfu i kappfluginu.
Af þátttakendunum í kapp
fluginu England — Suð-
ur-Afríka/ hafa sex helst úr
lestinni, tveir eru ekki enn
komnir að marki (annar í
Grikklandi og hinn í Súdan),
og svo sigurvegarinn C. W.
Scott, sem kom til Johannes-
borgar kl. 10.35 í morgun og
hafði þá verið 53 klukkust. á
leiðinni. Hafði hann farið
6000 mílur með 123 mílna
meðalhraða á klst.
Scott vann einnig Ástralíu-
flugið 1934, ásamt fjelaga
sínum Camphell-Black.
Þegar kappflugið hófst
voru þátttakendur níu. — I
einni flugvjelinni, sem hrap-
aði í Norður-Rhodesíu, fór-
ust tveir af fjórum farþegum.
Hols kapteinn varð að gef-
ast upp, eftir að hafa kom-
ist til Suður-Rhodesíu. Þar
hrapaði flugvjel hans, og
skemdist það mikið, að hann
gat ekki flokið lengra.
(Samkv. FÚ. í gær.)
ÞJóðverjar fá
engar nýlendur!
Ummæli Sir
Samuel Hoare.
Iræðu, sem Sir Sam-
uel Hoare hjelt á árs-
binsri íhaldsmanna. er
hófst í Margate í dag,
lagði Sir Samuel Hoare
aðaláherslu á tvö atriði.
að Bretland myndi ekki undir
neíriþm krjrigumstæðum ganga
að neinum afvopnunartillögum,
fyr en það heíði loUif* vígbún-
aðaráformum sínum, og
að óþarft væri fyrir nokkurn
eða nokkra að gera sjer vonir
um það, að Bretar myndu láta
af heridi eitthvað af þeim ný-
lendum, sem þeir stjórna 'nú í
umbóði Þjóðabandalagsini^. —
Um vígbúnaðarmálin sagði
Sir Samuel, að öryggið yrði
ekki trygt, nema með vopnum
og það nægum vopnum. Hann
sagði að vígbúnaði Breta mið-
aði vel áfram, en þó yrðif lagt
kapp á að hraða honum enn
meir: (Skv. Lundúnafregn FÚ).
r
I gærmorgun
var búist við
að Blum felli.
Stjórnin stendur
á valtari fótum.
; : • |.|; • ; • ... m .
Samkomuíag hefir nú loks náðst um geng-
islækkunarfrumvarp Leon Blums og
hefir það verið samþykt, eftir að um
eitt skeið hafði litið svo út sem ráðuneyti alþýðu-
fylkingarinnar myndi segja af sjer út af þessu
máli.
Hefir stjórnin beðið mikinn álitshnekk í þessu
máli og er nú talin standa valtari fótum en áður.
Gengisleekkunarfrumvarpið var samþykt í öldungadeild-
inni í gærkvöldi með aðeins 10 atkvæða meirihluta, en
frumvarpið um eftirlit með verðhækkun á vörum var felt.
Þannig breytt var frum.varpið sent aftur til fulltrúadeild-
arinnar.
Fulltrúadeildin samþykti í nótt að senda frumvarpið aftur
í sinni upphaflegu mynd til öldungadeildarinnar, þar sem húri
vildi ekki samþykkja þær breytingar, sem öldungadeildin hafði
gert.
Ef öldungadeildin hefði í
dag setið fast við sinn keip
var jafnvel húist við að
Leon Blum myndi kref jast
traustyfirlýsingar á þessu
máli og í París voru menn
farnir að bollaleggja um
nýtt ráðuneyti þar sem
Chautemps myndi verða
stjórnarforseti.
I morgun var ekki um annað
talað í París en hvort öldunga-
deildin treysti sjer til þess að
fella Leon Blum.
En öldungadeildin, gerði miðl
unartillögu í dag sem að lok-
um var samþykt í báðum deild-
um, en þó með aðeins 37 at-
kvæða meirihluta í fulltrúa-
deildinni (354 atkv. gegn 317).
Frumvarpið þannig breytt er
því afgreitt sem lög frá
franska þinginu.
Miðlunartillagan var á þá
leið, að stjórnin skuli ekki
grípa inn í verðlagningu
á vörum fram að nýári, en
ef það sýnir sig, að allverú
leg verðhækkun hafi þá
átt sjer stað, þá má st iórn-
in með samþykki verslun-
ar- og viðskiftaráðsins, á-
kveða verð á nauðsynja-
vörum, og ákveða, að skylt
sje að leggja deilumál út
af launamálum og verð-
lagi í gerðardóm.
Fulltrúadeildin hafði sam-
þykt áður að veita stjórninni
heimild til þess að gefa út
stjórnartilskipun til þess að
koma í veg fyrir verðhækkun.
(Samkv. einlcask. og Fl'j).
Schacht er
reiðubúinn að
fella markið.
Eí Þjóðverjar fá
nýlendur o, fl,
FRÁ FRJETTARITARA VORUM
KBH. I GÆR.
chacht kendi órjetti
þeim, sem Þjóð-
verjar hafa verið
beittir síðan á stríðsár-
um um, að þeir gætu
ekki felt gengi marksins
og tekið þátt í alþjóða-
samvinnu til viðreisnar
heimsviðskiftunum.
I viðtali við erlenda
blaðamenn sagði hann‘4
gær:
Órjettur sá, sem Þjóðverjar
voru beittir með Versalasamn-
ingnum, skuldabyrðarnar, sem
á þá voru lagðar, og skortur
á hráefnum vegna missis ný-
lendnanna hafa neytt Þjóð-
verja til þess að setja á eftirlit
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.