Morgunblaðið - 18.02.1937, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐÍÐ
Fimtudaginn 18. febr. 19:17.
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk.
Rltatjðrar: Jðn Kjartansson og
Valtýr Stefánsson —•
ábyrgBarmatSnr.
Rltstjörn og afgreitSsla:
Auaturstrætl 8. — Slml 1600.
Helmaslmar:
Jön KJartansson, nr. 8742
, Valtýr Stefánsson, nr. 4220.
Árnl óla, nr. 8046.
Áskrlftagjald: kr. 8.00 á mánutSl.
í lausaaöiu: 16 aura elntaklts.
26 aura »etS Lesbök.
Krafan.
Þeir komast jafnan í illt skap
ritstjórar Alþýðublaðsins, þeg-
ar eitthvað glæðist með atvinnu
verkafólksins hjer í bænum.
Þeim tókst ekki að hindi'a
það, að togarar yrðu gerðir út
á upsaveiðar nú í byrjun ver-
tíðar. Landkrabbarnir, sem
mestu ráða í Sjómannafjelagi
Reykjavíkur gerðu alt sem þeir
gátu til þess að kyrkja þenna
atvinnuveg í fæðingunni, og um
leið að svifta hundruð sjómanna
og verkamanna hjer í bænum
góðri atvinnu.
Meðan þessu fór fram voru
ritstjórar Aiþýðublaðsins í
ágætu skapi, því að þá gátu
þeir gert kröfur til bæjarstjórn-
ar Reykjavíkur, og bölvað „í-
haldinu“ sem enga hjálp vildi
veita.
En svo komu sjómennirnir
sjálfir fram og gerðu sínar
kröfur. En þær voru mðð öðrum
hætti en kröfur Alþýðublaðsins
og Jjpns^ Axels Pjetjjrssonar.
Kröfur 'sjómarinánna voru um
það, að gengið yrði að fcauptil-
boði Skúla Thorarensen, sem
vildi gera út togara á upsaveið-
ar. Verkamennirnir í landi
studdu kröfur sjómannahna.
Þannig risu sjómenriimir
gegn landkröbbunum, og riú
eru þeir komnir út! á sjð og
farnir að veiða upsa. Húndruð
sjómanna og verkamanna íbæn-
um fá góða atvinnu.
Þetta hefir komið ritstjórum
Alþýðublaðsins í illt skap.
Og nú vilja landkrabbarnir
koma fram hefndum gegn sjó-
mönnum og verkamönnum. —
Þessvegna gerist Alþýðublaðið
nú stóiyrt mjög, er það krefst
þess að Kveldúlfur verði lagð-
ur í rústir. „Geri bankarnir
ekki skyldu sína gagnvart
Kveldúlfi nú allra næstu daga,
verður óhjákvæmilegt að taka
alt þeirra starf í þágu þjóðar-
innar til rækilegrar meðferðar“,
segir Alþýðublaðið í gær. Hjer
er bein hótun á ferðinni. Jón
Baldvinsson bankastjóri veit á
hverju hann á von!
Það myndi þýða atyinnusvift-
ing þúsunda verkamanna og
sjómanna hjer í bænum, ef
Kveldúlfur yrði lagður í rústir.
Ef Jón Baldvinson og aðrir
ráðamenn í bönkunum yrðu við
kröfu Alþýðublaðsins, myndu
sjómenn og verkamenn áreiðan-
lega rísa upp og gera sínar
kröfur. Þeir myndu krefjast
þess, að starf bankastjóranna „í
þágu þjóðarinnar“ yrði tekið
til „rækilegrar meðferðar“. —
Undir þá kröfu myndi allur al-
menningur taka.
AÐUH EH SJALFBOÐflLlflABAHHIÐ GEHGURICILDI.
Hergögn og sjálfboðaliðar
slreyma ðil Spánar.
Frakkar loka spánsk-frönsku
landamærunum.
Vigslððvarnar við Madrid.
Umræður um gull
Spánverja.
FRÁ FRJETTARITARA VORUM.
KAUPMANNAHÖFN I GÆR.
Hergagnasendingar og sjálfboðaiiða-
flutningur til Spánar hafa aldrei ver-
ið meiri en nú síðustu þrjá dagana
áður en bann hlutleysisnefndarinnar gengur
gildi. Fregnir um flutninga þessa berast frá
Frakklandi, Belgíu, Rússlandi, Ítalíu og Þýska-
landi.
í skeyti til „The Times“ segir, að fjögur þúsund
ítalir sjeu á leiðinni til Spánar.
Nokkurrar varúðar verður að gæta við fregn, sem kemur
frá Berlín, og segir, að tíu spÖnsk, skip og fimtán rússnesk hlað-
in hergögnum og hermönnum hafi farið fram hjá Istambul á
leiðinni frá Rússlandi til Spánar síðastliðna tíu daga.
Frá London kemur fregn um að stjórnin í Valencia hafi
pantað þrjú hundruð stóra flutningabíla frá Belgíu.
Frá Marseilles lagði af stað nýlega hollenskt skip, áleiðis
til Alicante með mikið af hergögnum þ. á. m. 350 vjelbyssur.
Flutningi sjáffboðaliða, sem ekki áttu að fara til
Spánar fyr en eftir 20. þ. m., er nú hraðað eftir mætti, svo
að þeir komist þangað áður en bannið skellur á.
Sáttmálinn um sjálfboðaliðabannið og gæslu spánskra
stranda til þess að sáttmálanum verði framfylgt, var samþykt á
fundi allsherjarhlutleysisnefndarinnar í gærkvöldi.
Var
hún rússnesk?
KHÖFN 1 GÆR.
FRÁ FRJETTARITARA
VORIJM.
Skeyti frá Oslo hermir:
Menn á fiskibáti, sem voru
í róðri undan Sunnmæri
veittu athygli stórri, dular-
fullri flugvjel, sem settist á
sjóinn skamt undan strönd-
inni.
Eftir að flugvjelin var sest,
slökti flugmaðurinn öll ljós í
flugvjelinni og fleygði síðan
reyksprengju útbyrðis.
Báturinn færði sig nú nær
flugvjelinni, en áður en hann
komst alla leið, setti flugmað-
urinn vjelina af stað í skyndi
og flaug burtu.
ENGIN ALÞJÓÐA-
RÁÐSTEFNA.
Oslo í gær. FB.
Baldwin forsætisráðherra
Breta, var í dag spurður að
því í breska þinginu, hvað liði
hugmyndinni, um alheims við-
skifta-ráðstefnu. Baldwin svar-
aði því, að það mál voeri með
öllu ótímabært nú,
Frakkar eru nú í óða
önh að undirbúa lokun
spansk-frönsku landamær-
anna. '
Lokunin verður almenn,
þannig, að engir fá að fara yfir
landamærin frá Frakklandi til
Spánar, nema með sjerstöku
leyfi. Lokuriin gengur í gildi á
laugardaginn.
— Landamæravörðum verður
margfalt fjölgað.
GULL
SPÁNVERJA
Á fundi hlutleysisnefndarinn-
ar í gærkvöldi spurði von Ribb-
entrop fulltrúi Þjóðverja, hvort
ekki ætti að gera kröfu til að
lagt yrði hald á gullforða Spán-
arbanka og honum komið fyrir
í alþjóðlegri vörslu til þess að
koma í veg fyrir að stjómin í
Valericia notaði þetta fje.
Valenciastjómin kom
gullforða Spánarbanka und
an til Fraklands og
hefir komið honum fyrir
víðsvegar í Evrópu.
Tók Valenciastjórnin gullið
þrátt fyrir að meirihluti banka-
stjórnar Spánarbanka (sem er
óháður ríkinu) hafi mótmælt
því.
Enskur togari kom hingað í
gærmorgun til viðgerðar. Var
hann með lítilsháttar bilaða vjel.
Svarta strikið sýnir herlínu Francos umhVerfis Madrid. Hann
hefir nú allar höfuðleiðir til Madrid á sínu valdi, og stöðvist
umferð um Valenciaveginn (sem Franco segist hafa 4 sínu
valdi) er aðeiná ein leið frá Madrid til Valencia opin um
Guadaljara (til norðausturs) og þaðan um Cuenca til Valen-
cia. En það er dregið í efa að sá vegur þoli hina miklu flutn-
inga sem hingað til hafa farið fram um Madrid-Valenciaveg-
inn. Vígstöðvamar við Arganda og Vaciamadrid sjást á kort-
inu. Ennfremur Jaramafljót.
50 flugvjelar börðust
f 40 jnínútur.
Stærsta loftorusta
Spánarstríðsins.
FRÁ FRJETTARITARA VORUM.
KAUPMANNAHÖFN í GÆR.
Stærsta loftorusta borgarastyrjaldarinnar
á Spáni var báð yfir Tarancon, 70 km.
fyrir suðaustan Madrid í gær.
I loftorustunni tóku þátt fimtíu flugvjelar.
Flugvjelar uppreisnarmanna gerðu loftárás á Tarancon, sem
liggur við Valencia—Madridveginn, og lögðu helming borgar-
innar í rústir. Níu manns ljetu lífið.
Er sprengjuregnið hafði staðið í 10 mínútur, lækkuðu flug-
vjelarnar flugið og ætluðu að hefja vjelbyssuskothríð á borgina.
Skyndilega komu tuttugw
flugvjelar stjórnarliða á
vettvang og gerðu atlögu
að flugvjelum uppreisnar-
manna ofan frá.
Aðstaða uppreisnarmanna var
þessvegna verri. í 40 mínútur
stóð látlaus orusta.
Fjórar flugvjelar uppreisn-
armanna hröpuðu í einu
eldhafi til jarðar, en flug-
mennirnir björguðust í fall
hlífum.
Að lokum flugu flugvjelar
uppreisnarmanna í burtu.
ÍSLENSKUR LEIKARI Á
LEIKSVIÐI í HÖFN.
Khöfn í gær. FÚ.
Aföstudaginn kemur verður
á Konunglega leikhúsinu
í Khöfn frumsýning á leikritinu
„Dauðadansinn“ eftir sænska
skáldið Ágúst Strindberg. Paul
Reumert leikur aðalhlutverkið.
íslenski leikarinn Lárus Páls-
son leikur hlutverk hins þögla
varðmanns. Er það mjög vanda-
vsamt hlutverk og jafnan leikið
af frægum og vel metnum leik-
urum, eins og t. d. Eyvind Johan
Svendsens.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU