Morgunblaðið - 06.03.1937, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 06.03.1937, Blaðsíða 7
Laugardagur 6. mars 1937. MORQUNBLAÐIÐ >7i Borgarstjórinn INewYork móðgar Hitler. FRÁ FRJETTARITARA VORUM. KHÖFN I GÆR. Stjórnin í Washington hefir j beðiö opinberlega afsök- unar á ummælum sem borgar- stjórinn í New York, La Guard- ia, ljet falla um Adolf HitlerJ Kallaði La Guardia hann „brún- klæddan æsingamann, sem frið- inum í heiminum stafaði hætta af“. Baðst Bandaríkjastjórn af- eökunar á þessum ummælum, akv. kröfu þýsku stjómarinnar. f afsökun sinni vekur stjórnin í Washington at- hygli á því, að málfrelsi ríki í Bandarikjunum. Þýsk blöð halda áfram bitur- yrtum árásum á La Guardia og einnig á Bandaríkin, þrátt fyrir þessa afsökun. Talið er, að sendiherra Bandaríkjanna í Berlín hafi símað ummæli blaðanna til Washington. (Skv. Lundúnafregn FÚ. sagði La Guardia m. a. að líkani af Hitler ætti að koma fyrir í „hryll- ingasal" New York sýningarina- ar.) B.v. Karlsefni kom frá Englandi í fyrrinótt. Dagbók □ Edda 5937397 — 1. Veðrið í gær (föstud. kl. 17): Háþrýtsisvæðið helst ennþá yfir Islandi og Grænlandi. Hæg NA- átt um alt land og veður bjart víð ast hvar. Frost er 4—8 stig norðan lands og í innsveitum sunnan lands, en um 0 st. við suðurströnd ina. Veðnrútlit í Reykjavík í dag: NA-gola. Ljettskýjað. Messað í fríkirkjunni á morg- un kl. 2, sr. Árni Sigurðsson. Að lokinni messu hefst aðalsafnaðar- fundur. Barnaguðsþjónusta í fríkirkj- unni í Hafnarfirði á morgun kl. 2. Messa í fríkirkjunni í Hafnar- firði á morgun kl. 5. Sr. Jón Auð- uns. Bamagnðsþjónusta í Mýrarhúsa skóla á morgun kl. 2 Bamaguðsþjónusta í Laugar- nesskóla á morgun kl. 10,30. Messað í Laugarnesskóla á morgun kl. 2. Sr. Garðar Svav- arsson. Messur í Dómkirkjunni á morg- un: Kl. 11 sjera Bjarni Jónsson. Kl. 2 Barnaguðsþjónusta, sjera Fr. Hallgr. Kl. 5 sjera Friðrik Hallgrímsson. B.v. Snorri goði kom af veið- um í gærmorgun með fullfermi og talsvert af fiski á dekki. Skipið fór í gær áleiðis til Englands með aflann. Eimskip. Gullfoss kom frá út- löndum í gærmorgun. Goðafoss kom til ísafjarðar kl. 11 í gær- morgun. Brúarfoss var á Vopna- firði í gærmorgun. Dettifoss er á leið til Hull frá Vestm. Lagarfoss kom til Djúpavogs um hádegi í gær. Selfoss kom frá útlöndum í gærmorgun. K. R, efnir til skíðaferðar á morgun. Fjelagar eru beðnir að tilkynna þátttöku sína á skrif- stofu K. R., sími 2130 milli 5—7. Ekíðaferð Ármanns. Farið verð- ur frá íþróttahúsinu og lagt af stað kl. 8V2. Athygli skal vakin á því, að tala farmiða fer aðeins fram í kvöld kl. 5—9 á skrifstof- unni, sími 3356), og eru menn á- mintir um að leysa út miðana á þeim tíma, þar sem ekki verður selt við bílana að morgni. Samkepnisprófið. í gær fluttu keppendur fyrra erindi sitt, eins og til stóð, er fjallaði um afstöðu kristins manns til „adiafora“. í dag flytja þeir hið síðara erindi, | er fjallar um einkaskriftir sam-! kvæmt evangelisk-lúterskum skiln ingi. Fyrstur talar sr. Benjamín '• Kristjánsson, þá Sigurður Einars- son og þá sr. Björn Magnússon. Búist er við dómsniðurstöðu dóm- riefndar mjög bráðlega. Er ekki útilokað, að dómur nefndarinnar verði kveðinn upp í kvöld. Hjónadag. I dag verða gefin saman í hjónaband ungfrú Lovísa Helgadóttir, Árnasonar fyrv, dyravarðar, og Magnús Pálsson verslunarm. Heimili brúðhjónanna verður á Njálsgötu 10. Dansleikur verður haldinn í K. R. húsinu í kvöld. Hin góðkunna hljómsveit K. R. hússins spilar. Gömlu og nýju dansarnir verða dansaðir. Steppdansari sýnir þarna listir sínar. Allur ágóði rennur til Vetrarhjálparinnar. — Skemtisamkomur Vetrarhjálpar- innar hafa ávalt verið vel sóttar, og svo mun einnig væntanlega verða að þessu sinni. Sigurður Björnsson, útgerðar- maður á Akureyri, fjekk heila- blóðfall aðfaranótt fimtudags og liggur þungt haldinn á sjúkra- húsinu á Akureyri. Hrísgrjón og haframjðl hefir hækkað í verði á heimsmarkaðinum. Ennþá er sama lága verðið hjá mjer. 5ig. (?. 5kjalöberg, {Heildsalan). Kjúpur í sunnudagsmatinn. PÖNTUNARFJELAG VERKAMANNA Kjötdeildin. Sími 2108. Ódýra Sándgerðisýsan fæst altaf glæný á Norðnrstíg 4, sími 3657, og á Baldursgötu 39, sími 2307.--Aðeins 10 aurar pnndið — 12 aurar heimsent. Aðrar fisk- tegundir hlutfallslega jafn ódýrar. Sigurður og Þorgrímur fisksalar. Útvarpið: Laugardagur 6. mars. 10.00 (—12) Fyrirlcstrar kepp- enda um dósentsembættið í guðfræðideild. 12.00 Hádegisútvarp. 14.00 Fyrirlestrar keppenda um dósentsembættið í guðfræði- deild. 19.20 Hljómplötur: Ljett lög. 19.30 Þingfrjettir. 20.00 Frjettir. 20.30 Leikrit: „Þjóðníðingurinn*1, eftir Ibsen (Þorst. Ö. Stephen- sen, Alfreð Andrjesson, Bryn- jólfur Jóhannesson, Emilía Borg, Friðfinnur Guðjónsson, Gestur Pálsson, Ragnar E. Kvaran, Tómas Hallgrímsson, Þóra Borg). HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA (SLAHDS §ðlus(aóir: Austurstræti 12. Sími 3582. Laufásvegur 61. Sími 3484. Laugavegur 66. Sími 4010. Reykjavíkurv. 5. Sími 4970. Túngata 3. Sími 4380. Varðarhúsið. Sími 3244. Týsgata 1. Sími 3586. Vesturgata 42. Sími 2814. I Hafnarfirði: V. Long og Versl. Þorvalds Bjarnasonar I Allir (rúa áThamingjuna. Enginn veit hvenær gæfan bros- ir við honum og færir lnoniiin stóran^vinning. _ .... ðsT-v.-rud, • ■ ■■ 1 tááÁ&aíw. F|órðungsmi5i kostar mánað* arlega fafnt og rindlingapakki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.