Morgunblaðið - 19.03.1937, Blaðsíða 3
Föstudagur 19. mars 1937
MORGUNBLAÐIÐ
3
Það eru kommúnistar sem
segja fyrir verkum!
I Þar sem óeirðirnar urðu í París.
Kauphöllin í París þar s em óeir'ðirnar urðu í gær.
Madrid: Látlaus
fallbvssuskot-
hríð í háskóla-
hverfinu.
(FRÁ FRJETTARITARA VORUM:
KHÖFN 1 GÆK.
Iskeyti frá Madrid segir, að látiaus fail-
byssuskothríð hafi heyrst í stefnu frá
háskólahverfinu og Casa del Campo
síðan í morgun.
Skothvinurinn er svo mikill að rúður í Madrid
nötra.
Einnig heyrist látlaua vjetbyssuskothríð. Stór fallbyssu-
skot hafa fallið niður í Madrid. en ókunnugt er hve margir
hafa látið lífið.
í frjett frá rauðliðum segir
um þetta (skv. Lundúnafregn).
ORUSTUM HÆTT
Á GUADALJARA ?
London- í gær. FtJ.
í háskólahverfinu og við Casa
del Campo hafa staðið yfir harð
vítugar orustur, að því er
stjómin hermir.
1 háskólahverfinu segir hún
að enn hafi verið sprengdar
upp nokkrar byggingar, og upp
reisnarmenn á þann hátt hrakt-
ir þar á bak aftur. Við Casa
del Campo hafi hersveitir
stjórnarinnar sótt fram.
Franco hefir heimsótt víg-
stöðvarnar við Guadaljara.
Að lokinni herskoðun á
fjesum stöðvum hefir hann
tiíkynt, að frekari aðgerð-
um á þessum stöðvum verði
frestað fyrst um sinn,
vegna þeirra örðugleika,
sem illviðrí síðastliðinna
daga.
Lund ofursji, danskur maður, sem
Ihefir umsjón landamæra Frakk-
lands og Spáns.
Spánska stjórnin tilkynnir, að
1 þrátt fyrir illviðrið, hafi her-
! sveitir hennar enn sótt fram á
| þesum stöðvum, og hafi upp-
! reisnarmenn verið hraktir út úr
! Prihuega áður en tó* 1' að snjóa,
en síðan ha.fi stjórnarhersveit-
‘ FRAMII Á SJöfTIJ SÍÐU.
Auðsöfnun
olíukongsins
undir verncl
xt
kommúnista.
Hin ofstækisfullu og brjálæðiskendu frumvörp
Hjeðins Valdimarssonar og taglhnýtinga
hans, um gjaldþrot Kveldúlfs og um breyt-
ingar á stjórn Landsbankans, eru runnin beint undan rifj-
um kommúnista.
Það voru fyrst og fremst þessi mál, sem kommún-
istar settu á oddinn í samfylkingartilboðum sínum í fyrra,
og er því síst að undra þótt blað kommunista fagni nú yfir
þeim árangri sem fengist hefir.
í brjefi, sem kommúnista-
flokkurinn skrifaði Alþýðu-
flokknum 1. maí í fyrra, þar
sem boðin var samfylking, var
höfuðáherslan lögð á þetta:
„Vald núverandi Lands-
bankastjórnar og Kveld-
úlfs sje brotið á bak aft-
ur.“
Þetta var svo nánar orðað
þannig í brjefi kommúnista:
a) Skift verði um stjórn í
Landsbankanum og settir nýir
bankastjórar, er starfi í sam-
rœmi við samfylkingarpólitík
vinstri flokkanna.
b) Valdi Kveldúlfs yfir fisk-
sölunni sje hnekt og fjelagið
gert upp.
Þannig er nú bráðum heilt
ár liðið síðan kommúnistar
settu fram þær kröfur, sem
Hjeðinn Valdimarsson er nú að
reyna að koma í framkvæmd.
HVAÐ VAKTI
FYRIR
KOMMÚNISTUM?
Þeir verða vist fáir, sem trúa
því, að það hafi verið umhyggja
fyrir velferð þjóðbankans eða
þjóðarheildarinnar. sem knúði
kommúnistá til að setja fram
þessar kröfur. Ekki munu þeir
heldur vera margir verka-
mennirnir sem trúa því, að það
hafi verið þeirra hagsmunir og
velferð, sem rjeði gerðum kom-
múnista.
Kommúnistar hjer eru \ilja-
laust verkfæri í höndum ein-
ræðisherranna í Moskva. Þeim
er uppálagt að grafa — alls
staðar og hvar sem þeir geta
komið því við — undan þeim
stoðum, sem núverandi þjóð-
skipulag okkar er reist á.
Það er því ekkert undarlegt
þótt kommúnistar reyni að ná
til stofnana eins og bankanna,
sem stutt hafa einstakinga og
fjelög til atvinnurekstrar í
landinu, sem bygður er upp á
einstaklingsframtakinu. Því síð-
ur er hitt undarlegt,
stærsta einkafyrirtækið í land-
inu sje þyrnir í augu Moskva-
erindrekanna, og að þeir sæki
það þessvegna fast, að fá Kveld-
úlf lagðan í rústir.
HRÆÐSLA
HJEÐINS
En þótt framkoma kommún-
ista sje öllum skiljanleg, kynni
einhver að eiga erfitt með að
skiija afstöðu Hjeðins Valdi-
marssonar.
Hjqðinn fylgir kommúnistum
í þessum málum út í æsar, og
hann hefir með sjer hina þrótt-
minstu úr þingflokki sósíalista.
alista.
Hjeðinn er auðugur maður
og valdamikill. Völd sín á hann
eingöngu verkalýðnum að
þakka.
FRAMH. AF SJÖUNDU SÍÐU
# ^ ♦ ■ —
*
Tveir
innbrotsþjófar
handteknir.
INNBROT var framið í Liverpool
útbú á Hverfisgötu 59 aðfara-
nótt miðvikudags s. 1. og stolið um
80 krónum í peningum.
Lögreglan hefir handsamað þjóf-
ana, tvo pilta, sem áður hafa ver-
ið dæmdir fyrir þjófnað.
Þjófarnir fóru inu á bakhlið
hússins og notuðu st.iga við inn-
brotið, því húsið stendur á háum
kjallara, og eru um þrjár mann-
hæðir upp í gluggana.
Koinust þjófarnir inn í bakher-
bergi frá búðinni, og þar sem hurð
in milli búðarinnar og baklierberg-
þótt 'isins var læst, hrutu þeir hana upp.
Neville Chamberlain.
Breska út-
varpið skýrir
frá því að
Baldwin
muni fara,
London, 18. mars. FÚ.
BA L D W I N fdrsætisráðherra
Breta hefir keypt sjer hús í
Eton Square í London. Þykir þetta
beiida til þess, að eitthvað kunni
að vera hæft í þeim orðrómi, að
Baldwin muni ætla að segja af
sjer, er krýningunni er lokið, og
yfirgefa þá að sjálfsögðu nr. 10.
Downing Street.
Altalað er, að eftirmaðúr hans
sem forsætisráðherra verði Neville
Chamberlain núverandi fjármála-
ráðherra.
Miólkurmálið.
Ný ránslier-
ferð á hendur
bændum.
Landbúnaðarráðherr-
ann hefir fengið þá
Jörund Brynjólfssön,
Bjama Ásgeirsson og
Bjarna Bjarnason til
þess að flytja frumvarp
á Alþingi um breytingar
á mjólkurlögunum, sem,
ef að lögum yrði, myndi
leggja í auðn búskap
bænda í nágrenni Rvík-
ur. — . .. mí.
Aðalefni fruinvarpsins eru þessi:
1. Afnumið er hámark það á
verðjöfnunargjaldinu (8i%), sem
nú er í mj ólkurlöguiium. Eru því
engin takmörk fyrir því, hve gjald
þetta megi vera hátt:
2. Eitt og sama verð skal vera
til allra hænda, utan Reykjavík-
ur og Háfnarf'arðar.
Það barf cl: i að lýsa því hjer,
hverjar afleiðingar það hefði fyr-
ir bændur í nágrenni Reykjavík-
ur, ef þetta frumvarp yrði að lög-
um. Engin takmörk eru fyrir því,
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.