Morgunblaðið - 21.03.1937, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 21.03.1937, Qupperneq 4
4 mORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 21. mars 1937. R Vertíðin 5í%aar ■ * n* eitingsafli hefir verið þessa viku í verstöðvunum við p Faxaflóa, og allsæmilegur hjá |i þeim bátum sem náð hafa í loðnu til beitu. ísfirsku bátarnir hafa einnig aflað vel í Jökuldjúpi þessa Heykjavífuirbrjef - 20. ma ■ S e k ~7W VÍku. Hinsvegar hefir verið sáratregt yfirleitt í Vestmannaeyjum og eins í Hornafirði. Togarar eru nú hættir ísfisks- veiðum, en aðeins fáir enn byrj- aðir að veiða í salt. Afli þeirra, serri fýrstir fóru á saltfisksveiðar, í' hefir verið mjög tregur fram að þessu. Eru allar líkur til að Jökul- djúpið ætli að bregðast togurun- um nú eins og í fyrra. En þá eru sumir fiskimenn þeirrar skoðunar, að Selvogsbanki bregðist einnig. Aflinn. Pann 15. mars nam fiskaflinn 1 á öllu landinu 4.249.880 kg., miðað við fullverkaðan fisk; á sama tíma í fyrra nam aflinn 4.428.600 kg„ en 1935 8.266.650 kg. og 1934 10.272.270 kg. Aflinn í ár er lítið eitt meiri í „ Veflmánnaeyjum en á sama tíma i? , fyrra. A Eyrarbakka og í Þor- lákshöfn er aflinn miklu minni nú, eins í Qrindavík. Aftur á móti er hann meiri í Höfnum, Sand- gerði, Eeflavík og Vatnsleysu- strönd. Á Akranesi er aflinn meiri. 1 Reykjavík og Hafnarfirði er afl- inn mjög lítill. Fisksalan. Af fyrra árs fiski, sem Sölusam- band ísl. fiskframleiðenda héfir söluumboð á eru aðeins ó- seld ca. 1000 tonn af ítalíufiski og ca. 700 tonn af Barcelonafiski. Alt annað er selt. • Verið er nú að afskipa ca. 900 tonn til Portúgals og 850 til Spán- ar (þ. e. 550 til Sevilla og 300 til Frakklands, og þaðan væntanlega til Spánar). Þessi fiskur er fyrir löngu seldur. Inflúensan. Inflúensan er nii mjög í rjenun hjer í bænum, og verður sam- komubanninu, sem sett var 8. þ. m„ ljett af á raorgun. - Ekki hefir með ölht verið laust við fylgikvilla í sambandi við in- flúensuna, og er það aðallega lungnabólga sem hefir orðið vart upp á síðkastið. Þó telja lækuar að lítil brögð sje að þessu, þegar tillit er tekið til þess mikla fjölda sem veikina hefir fengið. |lJu t; í’ : • ' .:«M hveiti í 140 Ibs. og 5 kg. pokum, kemur meö Dettifossi á morgun. Þeír, sem pantað hafa eru vinsarolegast beðnir að tala víð okkur sem fyrst. H. Benediktsson & Co. SlMI 1228 HrísgrjóR og Hrísmjðl. 5ig. Þ. Skjalöberg. (EEILDSALAlí). Hið í«!en»ka fornritaffelag. Grettis saga Eyrbyggja saga Laxdæla saga Ver<5: Mvert bindi: Heft kl. 9,00. Egils saga I skinnbandi kr. 15,00. Kaupið fornritin jafnóðum og bau koma út. Fást hjá bóksölum. Aðalútsala í Bóka versluit $!>áí»á'ús«r Ets**ai*«ii*I**«»4ísaíí j' Qg Bókabúð Austurbæjar B. S. E. Laugaveg 34. Nú má gera ráð fyrir að veikin fari að breiðast ört út um sveitir landsins. Ilætt er við að það verði erfiðleikum bundið á hinum fá- mennu sveitaheimilum, að gæta þeirrar varúðar, sem nauðsynleg er, ef heimilunum verður ekki sjeð fyrir hjálp utan að. Þetta þarf vel að athugast í tæka tíð. Þingið. ðgerðaleysið og lognmollan, sem griifði yfir sölum Al- þingis og stjórnmálunum í vik- unni sem leið urðu aðeins fyrir- hoði stórviðra í þessari viku. Á miðvikudag lögðu sósíalistar, undir forystu olíuöreigans Hjeðins Valdimarssonar, fram í neðri <leild 2 frumvörp, annað um gjaldþrot Kveldúlfs og hitt um breytingar á stjórn Landsbankans. Eins og kunnugt er tóku sósíal- istar á flokksþingi sínu í haust upp stefnuskrá kommúnista og gerðu hana að sinni starfs- og stefnu skrá. Um leið hófst nýr þáttur í ofsóknarherferðinni gegn Kveldúlfi og Landsbankanurn. Kommúnístar. að er nú brátt ár liðið síðan að kommúnistar rituðu Al- þýðuflokknum brjef (1. maí í fyrra), þar sem þeir bnðu upp á samfylkingu, og lögðu þá jafn- framt grundvöllinn að þeim mál- um, sem samfylkingin skyldi berj- asti fyrir. ■ 4 Málin sem þar voru sett á odd- inn voru: 1) Að skift verði um stjórn í Landsbankanum og settir nýir rnenn yfir bankann, sem stjórn- uðu í samræmi við samfylkingar- pólitíkina. 2) Að Kveldúlfur verði gerður gjaldþrota. Lengi vel voru það kommúnist- ar einir sem voru að nndda á þessum inálum. En eftir þing Al- þýðuflokksins í haust, þar sem stefnuskrá kommúnista var upp tekin. bættust sósíalistar einnig í hópinn í rógsherferðinni. Samninga- umleitanir. trax eftir að þing kom saman um miðjan febrúar, hófust samnmgaumJeitanir milli stjórnar- flokkanna um þessi mál og önnur. Samtímis var hafin í Alþýðublað- inu látlaus herferð á hendur Kveld úlfi, og voru árásargreinarnar á hann við og við kryddaðar með allskonar hótunum og svívirðing- um um stjórn Landsbankans. í skrifunum um stjóru þjóð- b: , kans komst Aljiýðublaðið 1; ug: amlega fram úr blaði komm- úrrista í stóryrðum og svívirðing- um. Vrar ekki annað sjáanlegt af Siirifum blaðsins en að þjóðbank- anum væri stjórnað af samsafni glæfra- og glæpamannh. Úrslitakostir. íðastliðið mánudagsk'völd var Hjeðiiin orðinn leiður á samn ingaþófinu við Framsókparflokk- inn. Ilann knúði það því frarn í sínum flokki, að Framsóknar- flokknum skyldi gerðir þeir úr- í slitakostir, að ef hann vildi ekki ganga inn á að leggja Kveldúlf að velli, skykli samvinnunni slitið þegar í stað. Var Framsólcnar- flokknum veittur mjög stuttur frestur til umhugsunar. í þingflokki Framsóknar var til að byrja með mjög illa tekið þess- ari fáheyrðu ósvífni sósíalista. En þá fekk Hjeðinn nýtt æðiskast, og hann ruddi inn á Alþingi frum- vörpunum um gjaldþrot Kveldúlfs og uin breytingar á stjórn Lands- bankans. Þetta gerðist á miðviku- dag. Báðir hræddir. essi frumvörp Hjeðins og hans taglhnýtinga í neðri deild voru af öllum skoðuð sem vottur sjúkleika manns, sem haldinn er taumlausu ofsóknarbrjálæði. Daginn sem frumvörpin komu fram í þinginu var mikið um það taiað, að afieiðing af framkomu sósíalista gæti ekki verið önnur en samvinnuslit, þiugrof og kosn- ingar. Meira að segja Tímamenn fóru ekki dult með þetta. En það var greinilegt af öllu, er fyrsti dagurinn var liðinn hjá, að sósíalistar vorn aftur farnir að smjaðra við Framsókn. Og það er óttinn við kosníngar sem þessu veldur. Það er bitlingahjörðin sem skelfur yfir þeirri tilhugsun. Hvað ofan á verður hjá stjórn- arflokkunum veit enginn ennþá, en ekki kæmi kuniiugum það á óvárt að þeir skriðu safUau aftúr. Mjólkin. jólkurmálið er enn komið á dagskrá. Eyjólfur Jóhanns- son framkvæmdastjóri M. 11. rit- aði nýlega grein hjer í blaðið og kom þar með mjög athyglisverða tillögn í mjólkurmálinu. Eyjólfur sýndi fram á, að innan skamms yrði mjólknrframleiðslan austan fjalls orðin svo mikil, að þurfa myndi 12 aura gjald af hverjum mjólkurlítra sem seldur er í Rvík og Hafnarfirði, til þess að bændur gætu fengið jafnháa uppbót á vinslumjólkina og þeir fengu þegar mjólkurlögin voru sett.. Þessar staðrevndir eru í raun og veru dauðadómar yfir núver- andi skipulagi. Með tillögum Eyjólfs átti að tryggja Yerðjöfnunarsjóði a. m. k. 450 þús. kr. á ári, en sjóðurinn fekk s.J. ár tæpar 180 þús. kr. IJndirtektir. illögur Evjólfs höfðu auk þess þann höfuðkost, að sjeð var jafnt um hagsmuni allra aðila mjólkurmálsins. Neytendur mjólk- urinnar fengu verðY'kk’in, bænd- ur vestan fjalls sjálfstjó:u sinna mála og bændum eystra vav trvgð ur -fastur grundvöllur undir verð- uppbót til þeirra. En hvernig tók stjórnarliðið þessum tillögum? Þannig að fyrst fer síra Svein- björn Högnason af stað, og í-æðst á Eyjólf með persónulegum slíæt- ingi. Það er óttinn við að missa bitlinginn, sem hefir rekið klerk- inn af stað. Landbúnaða**- rá^herra. ?nn fara nú ekki að kippa sjer upp við það, þótt síra Sveinbjörn skræki af ótta við að missa bitling. Hitt er alvarlegra, að landbún- aðarráðherrann skuli enn ekki liafa öðlast neinn skilning á þessu mikla velferðarmáli bændanna. En haim hefir nú látið flytja frumvarp á Alþingi, sem sýiiir glögglega að fyrir honnm vakir ]>að eitt, að reyna að koma af stað illindum og togstreytu milli bænda á fjelagssvæðinu. Ráðherrann heldur að hann geti fengið fylgi bænda austan fjalls með því að ganga svo freklega á rjett bænda í nágrenni Rvíkur, að þeirra búskapur er raunverulegn dauðadæmdur. Skammsýni. En jafnvel þótt bændur austan fjalls vildu aðhyllast lausn ráðherrans á þessu vandamáli, þá er bara sá stóri galli á, að það er engin framtíðarlausn á málinu. Mjólkurframleiðslan eystra vex ört, og hún hlítur að vaxa stór- kostlega á næstu árum, ef ekkert áfall kemur fyrir. En tillögur landbúnaðarráð- herra eru þannig úr garði gerðar, að framleiðslan má ekki vaxa. Hún verður að standa í stað, ef hændur eystra eiga að fá uppbót svo nokkru nemi. Það er áreiðanlega ekki vilji bænda austan fjalls að ganga á rjett sinna starfsbræðra vestan heiðar. Þeir viJja fá mjólkurmálið leyst þannig, að litið sje með sann- girni á málið frá sjónarmiði allra. hlutaðeigenda. Margar húsmæður bæjarins hafa. tjáð okkur, að þær hafi gert til- raunir með okkar „Stjörnu kaffibætir* Reynsla þeirra er sú, að þær fái betra kaffi með því að nota „Stjörnu kaffibætirinn", þó þær minki kaffið og auki kaffi- bætirinn, frá því sem þær hafi áð- ur gert. Þetta ber saman við þá reynslu, sem við höfum. Það er því aug- ljó.st, að þar sem „Stjörnu kaffibætirinn“ er mikið ódýrari heldur en kaffið, verður hjer um verulegan sparnað að ræða. Húsfreyjur! Gjörið svo vel að athuga sjálf- ar, hversu mikið þjer getið spar- að kaffiútgjöld heimilisins og um leið fengið það Jjúffengasta Jcaffi, sem komið hefir inn fyrir ykkar vandlátu varir. Árangurinn verður væntanlega sá, að þið sannfærist um, að það heíir ekki verið út í loftið, hvern- ig dómnefndin veitti 1. verðlaun fyrir best gerð Jjóð um „Stjörnu kaffibætirinn" oltkar, og væntanlega verður ekki langt að bíða, þangað til hverjum einasta vandlátum kaffineytanda finst orð skáldsins töluð eins og út frá sínu.hjarta, þegar það segir: „Fundin er hin stóra stjarna Stjörnu-kaífibætirinn“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.