Morgunblaðið - 03.07.1937, Side 3
Laugardagur 3. júlí 1937.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Veður hamlar
sfldveiBum.
Mikftl sftld vftð
Langanes.
Sjómenn telja mikla síld
við Langanes ennjaá,
aðallega austan til, en veð-
ur hefir verið svo slæmt und-
anfarinn sólarhring að ilt
var að eiga við veiði.
Mörg skip eru með fnllfermi við
Langanes, en bíða betra veðurs
áður en þau halda til hafnar,
»ema þau skip, sem geta tekið
báta sína. upp.
Stormur og rigning var norðan
lands í gær og kalt í veðri.
Yið bryggjuna á Raufarhöfn
biðu 4000 mál löndunar í gær.
Til Siglufjarðar komu þessi
skip í gær:
Alden með 800 mál, Huginn III.
6—700, Skagfirðingur 650, Hring-
«r 600, Jökull 1000. Öll þessi skip
▼eiddu síldina við Langanes.
Ekkert heyrist um n$ja
stjórnarmyndun.
Þögn ríklr fi sfjórn-
arherbúðunnm.
Landskjörstjórn vantar
enn skýrslui- úr nálega
helming kjördæma á land-
inu, en uppbótarþingsætum
verður ekki úthlutað fyr en
allar skýrslur eru komnar í
hendur landskjörstjórnar.
Strax og lögboðnar skýrslur eru
komnar til landskjörstjórnar, mun
hún koma saman og úthluta upp-
b'ótarþingsætum til flokkanna.
Það er nú liðin vika síðan lokið
var talningu í öllum kjördæmum,
og sýnist það óþarfa seinagangur,
að skýrslurnar skulu ókomnar
ennþá.
Ekki heyrist neitt frá stjórnar-
flokkunum ennþá um það, hvaða
fyrirkomulag þeir hugsa sjer að
hafa á stjórn landsins.
Fyr.st heyrðist því fleygt, að
Alþýðuflokkurinn ætlaði að taka
sinn ráðherra úr st.jórninni, en
úr því hefir ekkert orðið. Har-
aldur situr sem fastast, eins og
ekkert hafi í skorist.
Stjórnarflokkarnir hafa, sem
kunnugt er, nægilegan þingmeiri-
hluta, til þess að fara áfram með
stjórn landsins. En stjórn, studd
af stjórnarílokkunum einum yrði
ekki lýðræðisstjórn.
Ekki er það dregið í efa, bak
við tjöldin hjer í bænum, að
stjórnarflokkarnir muni vinna
saman áfram í stjórn, og að ráð-
herrar verði hinir sömu og nú eru.
En vegna þingrofsins og þess
sem barist var um í kosningun-
um, vei'ða stjórnarflokkarnir að
sjálfsögðu að gera með sjer nýjan
sáttmála um leið og þeir hefja
samstarfið að nýju, sem reyndar
slitnaði aldrei nema á yfirborðinu.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
É
Þessi snekkja tiefir 240 manna áhöfn.
Hitlersnekkjan Aviso „Grille“.
Heimsókn umiborQ
í Hitler-snekkjuna.
Í S
Hitlersnekkjan Aviso „Grille“ lagði af
stað frá herskipahöíninni í Kiel síð-
astl. mánudag. Skipið fór beina leið
til íslands og kom hingað kl. 9 í gærmorgun.
Skipið hefir viðdvöl hjer í og á morgun og fer síðan
um Noreg aftur til Kiel. Þangað verður skipið komið n. k.
laugardag.
Að Eiði
verður flokksfundur Sjálfstæðis-
fjelaganna í Reykjavík og Hafn-
arfirði á morgun, ef veður lieyfir.
Á flokksfimdinum talar Ólafur
Thors form. flokksins og Gunnar
Thoroddsen, ásamt fleirum.
Þá verður ýmislegt til skemt-
unar, svo sem hljóðfærasláttur,
söngur og dans.
Verði veður gott verða vogarnir
án efa fullir af fólki, sem fer 1
sól- og sjóbað.
Þegar skemtanir eru á Eiði
liggur straumm- fólksins þangað.
Iðnþingið
sett fi gær.
I ðnþing, hið fjórða í röð-
1 inni, var sett hjer í bæn-
um kl. 2 í g’ær í Baðstofu
iðnaðarmanna.
Auk fulltrúa úr Reykjavík sitja
þingið fulltrúar frá Akureyri, ísa-
firði, Akranesi, Hafnarfirði, og
Vestmannaeyjum, alls.um 50 full-
trúar.
Forseti þingsins var kosinn
Helgi H. Eiríksson skólastjóri og
varaforseti Emil Jónsson verk-
fræðingur. Ritarar Ársæll Árna-
son bókbindari og Sveinbjörn
Jónsson byggingameistari. I gær
var einnig kosið í fastar nefndir.
Fyrir þinginu liggja fjölmörg
mál og hefir stjórn Landsambands
inðaðarmanna húið þau flest undir
þingið. Á fundinum í gær lagði
forseti Landssambandsins, Helgi
II. Eiríksson, fram fimtán mál, er
hann reifði nokkuð. Var þeim öll-
um vísað til nefnda.
Fiuidir hefjast í dag kl. 9 árd.
Listsýning Bandalags íslenskra
listamanna opnar borgarstjóri
Reykjavíkur í dag kl. 2. Verða
þar aðeins boðsgestir viðstaddir,
en fyrir almenning er sýningin
opnuð kl. 4 og verður framvegis
opin fyrir sýningargesti kl. 10 f.
hád. til 9 eftir hádegi.
Eimskip. Gulifoss kom til
Reykjavíkur í morgun. Goðafoss
er í Hamboi'g. Brúarfoss er á leið
til Leith frá Vestmannaeyjum.
Dettifoss vav á Siglufirði í gær.
Lagarfoss er í Kaupmannahöfn.
Belfoss er á leið til Önundarfjarð-
ar frá Reykjavík.
„Erindi skipsins hingað er
ekki annað en að reyna sjó-
færni bess úti á rúmsjó, og svo
að gefa skipshöfninni kost á að
sjá Island og Noreg“, sagði
Heinz yfirliðsforingi, sem sýndi
blaðamanni frá Morgunblaðinu
skipið í gær.
Engir farþegar eru með skip-
inu, en a því er 240 manna á-
höfn.
Kurteisisheimsókn.
Yfirforingjar skipsins fóru
í kurteisisheimsókn til for-
sætisráðherra í gærmorgun og
síðar í gær fór forsætisráð-
herra um borð.
í dag fara yfirmenn skips-
ins í boði ríkisstjórnarinnar
austur að Gullfossi og Geysi.
Um skipið.
„Skipið ei'kallað , herskip af
því að á því éru fallbyssur“,
sagði yfirliðsforinginn, „en að
öðru leyti er það eins og aðrar
snekkjur“. Þó er það að því
leyti frábrugðið að það er alt
blikkklætt. Viður er hvergi í
því, nema í þiljum.
Adolf Hitler og fylgdarlið
lians, ásamt ráðherrum þýska
ráðuneytisins nota snekkju
þessa við flotaæfingar, hersýn-
ingar, eftirlitsferðir o. fl. Á
miðþiljum er heil álma sem ætl-
uð er Adolf Hitler, von Blom-
herg, hermálaráðherra og von
Raeder aðmírál, foringja
þýska flotans. Hefir hver þess-
ara þriggja manna fyrir sig
setustofu, svefnskála og bað-
herbergi. Herbergin eru smekk-
leg, en íburðarlaus og öll eins,
nema hvað litir á veggjum er
mismunandi. Setustofa Hitlers
er bleikmáluð.
Stór bókahilla er í herbergi
Hitlers. „Þegar foringinn kem-
ur um borð, flytur hann veriju-
lega með sjer tvo til þrjá kassa
af bókum“.
Hitler var síðast um borð í
snekkjunni fyrir þrem vikum,
þegar „Deutschland“ kom til
Wilhelmshafen með lík skip-
verjanna sem fórust í loftárás
rauðliða á orustuskipið við
Spán.
Aviso Grille.
Aviso voru þau skip kölluð
áður fyr, sem höfðu á hendi
hraðboða starf í herskipaflotum
stói'veldanna. Þessi skip eru
óbrynvarin. Þjóðverjar hafa
átt tvö aviso-herskip á undan
þessu, sem bæði voru kölluð
Grille. Orðið Grille þýðir engi-
spretta.
Þessi þriðja Grille er 2600
smál. að stærð og fer 20 sjó-
mílur á klst.
FORNLEIFAFUNDUR
I HÚNAVATNSSÝSLU.
ýlega grófu vegavinnumenn
niður á tvær dysjar skamt
fyi’ir utan Tinda á Ásum í Húna-
vatnssýshi.
Dysjar þessar voru saman —-
hvor við endann á annari að því
er virtist. I annari dysinni var
beinagrind úr hrossi. í hinni dys-
inni voru tveir fótleggir úr manni
og einn lærleggur ásamt einhverju
vopni, sem líkist helst litlu sverði.
Auk þess fanst þar eirnál.
Dysjarnar eru í móafláka, sem
liallar mót suðri. Er grunt niður
á þær. Lögun þeirra er tiltölulega
auðsæ, vegna þess að moldin er
miklu Iausari í dysjunum en um-
hverfis þær. Dysjarnar hafa ekki
verið kannaðar til fullnustu, en
fornminjaverði hefir verið skýrt
frá þeim. (FÚ.).
100 ðra afmæli
búnaðarfjelags-
Hátiðahöld 8. júli.
Þann 8. júlí, fimtudaginn
í næstu viku, eru liðin
100 ár síðan samþykt voru
lög Húss- og bústjórnarfje-
lajís Suðuramtsins, en upp
úr því f jelagj var, sem kunn-
ugt er, stofnað Búnaðarfje-
lag íslands, svo í rauninni
er talið, að þann dag,’ sje sá
fjelagsskapur 100 ára.
Stjórn fjelagsins hefir ákveðið
að minnast þessara tímamóta með
hátíðahöldnm hjer í bænum þann
dag.
Kl. 1 verður minningarathöfn í
Alþingisliúsinu, þar sem formaður
fjelagsins, Magnús Þorláksson á
Blikastöðum, og landbúnaðarráð-
herra, Hermann Jónasson, flytja
ræður.
Þar verða og ávörp flutt.
Fjelagið bauð erlendum búnað-
arfjelögum að senda fulltrúa á
minningarhátíð þessa, frá Dan-
mörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi
og Færeyjum.
Finska fjelagið hefir sent af-
boð, en Svíar ekki svarað. Frá
Noregl ei‘ kominn ritári frá ,,Sel-
skabet for Norges Vel“, og frá
Færeyjum M. Winther Lútzen
ráðunautur. Formaður í „Det
danske Landhusholningsselskab“,
dr. Hasselbach verður og hjer á
landi, en því fjelagi var boðið að
senda fulltrúa. En hátíðisdaginn
verður hann norður í landi í för
með Jóni Krabbe erindreka Is-
lands í utanríkisráðuneyti Dana.
Stjórn fjelagsins hefir boðið
hingað á hátíð þessa öllum bún-
aðarþingsfnlltrúunum, svo og öll-
um stjórnarnefndum búnaðarsam-
bandanna. Verða allir þessir menn
gestir fjelagsins í veislu, er hald-
in verður að Ilótel Borg um kvöld-
ið. Þar verða og fleiri gestir, svo
sem æðstu embættismenn lijer í
bænum og núverandi og fvrver-
andi starfsmenn fjelagsins. Sama
kvöld verða fluttir fyrirlestrar í
xitvarpið um fjelagið og starfsemi
þess.
Daginn eftir býðitr fjelagið inn-
lendum utanbæjargestum í ferð
austur í sveitir. En hinum erlendu
gestum verður boðið í lengra
ferðalag.
í tilefni 100 ára afmælisins verð-
nr gefið út afmælisrit í tveim
bindum, og' ,er Síg- Sigprðsson fyr-
verandi búnaðai'málastjóri böf-
undur að öðru bindi,; er fjalla um
búnað og búnaðai’framfar.ir í land-
inu síðastliðin 100 ár, én dr. Þor-
kell Jóhannesson ritar bitt bindið
nm sögu búnaðarfjelagsskaparins.
Verður hvert bindi 20—25 arkir.
Þau eru ekki fuHprentuð, en koma
út bráðlega.
Ferðafjelag íslands. Vegna veik
indaforfalla ern 2 sæti laus í hring
ferðina 4. júlí. Lagt af stað á
sunnudagsmorgun kl. 11. Smiið
yður strax til favarstjóyans, A. J.
Johnsons, Sólvallagötu 16.