Morgunblaðið - 01.09.1937, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudaffur 1. sept, 1937,
Opinber
íhlutun
Frakka í
London í gær, FÚ.
Franska stjórnin hefir
lýst yfir því, að hún
líti svo á, að „að það sje
ekki lengur framkvæm-
anlegt að halda uppi
samningsákvæðum um
að sjálfhoðaliðum skuli
bönnuð þátttaka í Spán-
arstyrjöldinni.
Það er þó erfitt að
átta sig á hve víðtækar
afleiðingar þessi yfirlýs-
ing frönsku stjórnarinn-
ar kann að hafa,
þar sem hún tekur það
fram að þetta sje engan
veginn af því, að hún sje
andvíg hlutleysisstarfinu,
en þett leiði beint af af-
stöðu annara þjóða.
KÆRA FRAKkA
í ^ær. FÚ.
Á ráðtin eytisfundí í dag á-
kvað franska stjörnin að leggja
fram í htatlevsisnefndinni mót-
mæli gegn skeytaskiftum
þeirra Mussolini og FrancOs í
sambandi við fall Santander og
lýsir jafnframt yfir þeim skiln-
ingi sínum að skeyti Mussolini
til Francos, jafngildi yfirlýs-
ingu ítölsktt íStjórraarinnar um
vopnaða íhlut'un um Spánar-
styrjöldina og þó' nánast vopn-
aða innrás.
Segist stjórnin áskilja sjer
rjett til' þess að haga afstöðu
sinni tiL styrjaldarinnar á
Spáni í sambandii við þennan
skilning. cf . ■
MUSSOLINI FER AÐ
HITTA HITLER.
Morgunblaðið skýrði frá
því fyrir nokkru — eitt
allra blaða í Reykjavík — að
Mussolini myndi fara á fund
Hitlers á meðan Niirnberg-
þing nasistaflokksins stæði yf-
ir, eða að því loknnu og myndu
einræðisherrarnir þá hittast 1
Berchtesgaden í lok sept.
I breskum blöðum er skýrt
frá því að Mussolini og Hitler
ætli að ræðast við um afstöðu
Berliii—Róm öxulsins til Kína-
styrjaldarinnar, Spánarstyrjald-
arinnar, til Vestur-Evrópusátt-
mála (Bretar hafa ekki enn
gefið upp vonina um að tak-
ast megi að gera nýjan sátt-
mála milli þjóðanna í Vestur-
Evrópu, sem komið geti í stað
Locarnosáttmálans) og til hins
breytta viðhorfs sem skapast
myndi í Evrópu ef Bretar og
Frakkar viðurkendu yfirráða-
rjett ítala í Abyssiníu.
Binnig er talið að þeir muni
ræða um afstöSu Þýskalands til
páfaríkisins.
Japanir sagðir
tnuni neita að
verða við kröf-
um Breta.
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM.
KHÖFN í GÆR.
U regnir frá Kína-Jap-
an styrjöldinni og
afskiftum annara þjóða
af henni eru helstar:
að alment er búist við
því, að Japanir muni
hafna kröfum Breta, sem
lagðar voru fram í Tokio
í gær,
að Senator Borah öldunga-
deildarþingmaður í
Bandaríkjunum hafi látið
svo um mælt að samúð
Bandaríkjanna með Kín-
verjum hafi minkað við
árásina á „President Hoo-
ver“.
Flotamálaráðherra Japana
hefir í dag látið í ljósi sam-
hrygð sína við Bandaríkja-
sendiherrann í Tokio yfir árás-
inni á „President Hoover“, en
einn maður týndi lífi, sex skips
menn og þrír farþegar særðust
í árásinni.
Lagði japanski flotamálaráð-
herrann áherslu á það hvílík
nauðsyn það væri að Kínverj-
um yrði refsað!
hi .■ * Eftí'rtektarvert er að ut-
anríkismálaráðherra
Bandaríkjanna, Cordell
11 Hull hefir í dag iátið í ljós
ánægju sína yfir því
hvernig Nankingstjórnin
brá við, er hún frjetti um
þessa árás.
KÍNVERJAR
BJÓÐA BÆTUR
London í gær. FU.
í Nanking fara nú fram samn
ingagérðir milli kínverska yf-
irvalda og sendiherra Banda-
ríkjaiina út af árásinni, sem
gerð var á „President Hoover“.
Kínverska stjórnin hefir tek-
ið á sig fulla ábyrgð á árásinni.
Segir hún, að ameríska skipið
hafi verið á siglingu milli
tveggja japanskra herskipa og
hafi kínversku flugmennirnir
því álitið það vera japanskt her
flutningaskip.
Stjórnin í Kína býðst til
þess að greiða hvaða skaða
bætur sem Bandaríkin
kunni að krefjast.
Kínverska stjórnin lýsir yfir
því, að flugmenn hennar muni
aidrei ráðast á erlend skip að
yfirlögðu ráði.
ÓSIGRAR RAUÐLIÐA.
Uppreisnarmenn á Spáni
telja sig í dag hafa knúð her-
sveitir stjórnarinnar í Aragon-
íu (við Saragossa og Huesca)
til þess að hörfa aftur til þeirra
stöðva, er þær hjeldu sig, áður
en þær hófu sóknina og er þetta
játað af stjórninni. (FÚ)
Louis sigraöi: Farr vann
,moralskan‘ sigur
Dómur Dempseys
um liinn kjark-
mikla Englending.
FRÁ FRJETTARITARA VORUM.
KAUPMANNAHÖFN í GÆR.
Jack Dempsey, frægastur allra hnefaleika-
manna, hefir látið svo um mælt, að
Tommy Farr, breski hnefaleikarinn, er
beið ósigur fyrir Joe Louis, svertingjanum í hnefa-
leikakeppni um heimsmeistaratignina í gær-
kvöldi, hafi unnið ,,moralskan“ sigur.
Heimsmeistaratitill Louis var alvarlega í
hættu. íþróttasjerfræðingar höfðu spáð því, að
Louis myndi slá Farr í gólfið í þriðju lotu, en Farr
stóðst allar loturnar, fimtán.
í síðusíu — fimmtándu — lotunni hafði Farr sýni-
Iega yfirhöndina.
Louis vann á stigum (points). Það er talið að Louis hafi haft
yfirhöndina í 8 af 15 lotum.
DÆMDU
FARR SIGUR
London .í gær. FÚ.
Þegar dómurinn var kveð-
inn upp, ljetu áhorfendur
í ljós óánægju sína, á mjög
ótvíræðan hátt, en Bob
Bowmann, sá er sagði frá
leiknum fyrir breska út-
varpið, um leið og leikur-
inn fór fram, ljet þess get-
ið, að hann teldi dóminn
rjettlátann.
Áhorfendur voru 40 til 50
þúsund, en leikurinn fór fram
í útileikvanginum í New York.
Auk þess fylgdust menn um
allan heim með leiknum í gegn
um útvarpið, og í Englandi var
frásögninni um gang leiksins
endurútvarpað.
Á meðal þeirra sem viðstadd-
ir voru, voru ýrnsir þeklustu
hnefaleikameistaru og fyrri
heimsmeistarar, svo sem Shark-
ey, Max Baer, Braddock,
Schmeling, Tunn.ev, Mickey
Walker og Johnny Dundee og
Jack Johnson, svertinginn er
var eitt sinn hnefaleikanieistari
iíeimsins, í þyngsta fhdcki.
Þegar Farr gekk inn á leik-
sviðið mátti heyra á móttpk-
unum, sem hann fekk, að áhorf-
endur höfðu samhygð með hon
um, og var hrópað miklu meira
fyrir honum en fyrir Louis, er
hann kom f.nm i'tundarkorni
síðar.
LEIKURINN
Hjer er lýsing á kepninni í
hinum einstöku lotum:
1) Farr hlaut lítilsháttar á-
verka við hægra augað. Louis
var talinn hafa haft heldur bet-
ur.
2) Louis sótti á til að byrja
með, en Farr sótti sig áður en
henni lauk.
3) Farr sækif undir eins á,
og lýstur svertingjann nokkur
ónotaleg hægri handar högg,
en áhorfendur tóku að hrópa:
„Come on Tomhiy“.
4) Farr meiddist á hsegra
auga, og tók það að blæða all-
mikið, en Louis var ómeiddur.
5) Farr lýstur svertingjann
hægri handar höggi, og Louis
virðist koma það á óv^rt. Tom-
my fær hægri handar högg og
menn búast við að hann yrði
sleginn niður.. Leikur var tal-
inn jafnari í þessari lotu en í
hinum fyrri.
í gegn um 6. og 7. lotur ljetu
þeir höggin dynja hvor á öðr-
um, einkanlega leituðust þeir
við að slá hvorn annan í and-
lfit, og var Farr illa útleikinn í
andliti er 7. lotu lauk, og blóð-
ugur í framan.
FR.AMH. Á SJÖTTU SÍÐTJ
KÍNVERJAR Á
UNDANHALDI.
London í gær F.Ú.
O íðustu fregnir frá Kína
^ herma að Japanir hafi síðd
í dag tekið virkið við Woosung
og Woosungborg og ennfremur
að þeim hafi tekist að flytja
njokkurn hluta hers síns yfir um
Whangpoofljót og koma hon-
um fyrir á syðri fljótsbakkan-
um.
Woosung liggur við mynni
Whangpoofljótsins, þar sem
það rennur í Yangtse-ána.
GRIMMILEG
ÁRÁS
Fjöldi flóttamanna og
særðra hermann, sem biðu
á bifreiðastöð í Woosung
eftir almenningsbifreiðum
til þess að geta flúið til
Shanghai, Ijetu lífið í dag
í loftárás, er japanskar
flugvjelar gerðu á bæinn. '
Á bifreiðastöð þessari voru
staddir um 200 menn, þegar
árásin var gerð.
Verslunarráð Shanghaiborg-
ar hefir þegar krafist þess af
kínversku stjórninni að hún
geri ráðstafanir til þess að
hefna þessa athæfiS annara
slíkra.
— Hvað þeir -—
sögðu eftir leikinn
London í gær. FÚ.
Eftir að Loúis hafði verið
dæmdur sigurinn, fór fram
stutt viðtal við báða hnefa-
leikarana. Var Louis m. a.
spurður að því, hvað hefði
verið versta höggið af hendi
Farrs. „Hægri handar högg
hans“, svaraði Louis hik-
laust.
En er Farr var spurður,
hvaða högg af hendi Louis
honum hefði fundist verst,
svaraði hann: „Jeg veit það
ekki, þau voru svö mörg“.
Degrelle.
Stjórnar-
erf iðleðkar
í Belgíu.
London í gær. FÚ.
greiningur hefir ris-
ið upp í Belgíu um
rekstur belgíska þjóð-
bankans, sem virðist
munu geta haft víðtæk-
ar afleiðingar fyrir van
Zeelandsstjórnina.
Rexistar (fasistar Belga),
undir forystu hins unga
foringja síns, Degrelle, eru
viðriðnir þetta mál.
Frjettir sem af þessu hafa
borist eru mjög ón(ikvspmar og
ekki vitað með vissu hvers eðlis
vandræðin eru, en stjórnin hef-
ir þó lýst yfir því, að hún telji
að stjórn bankans hafi í öllu
farið að lögum.
Degrelle, foringi Rexista,
hefir nýlega ráðist á þjóðbank-
ann og er bankaráðsfundur var
halainn í gær, gerðu Rexistay
háreysti mikið úti fyrir fundar-
húsinu.
Það er á vitorði manna, að á-
greiningur er milli Van Zee-
land forsætisráðherra Belgíu og
fjármálaráðherrans um rekstur
bankans.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.