Morgunblaðið - 01.09.1937, Síða 3
Miðvikudagur 1. sept. 1937.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Skipstjðrinn
á „Drangey“
kærir „Ægir“
Skipherrann
gefur skýringu.
Ienska blaðinu „Grimsby
Evening Telagraph"
frá 20. ágúst birtist grein
með risafyrirsögn á forsíðu,
bar sem skýrt er frá bví, að
íslenska varðskipið Ægir
kafi einnig skotið á Grimsby
togarann Drangey, sem
staddur hafi verið utan
landhelgi.
Segir ennfremur í greininni, að
Sir 'Walter Womersley, þingmað-
«r kafi verið beðinn að leggja
þetta mál fyrir breska utanríkis-
málaráðuneytið á sama hátt og
mál Bdwards Little, skipstjóra á
tegaranum Scottish.
Hjer fer á eftir greinin í
„Grimsby Evening Telegrapb“ í
íslenskri þýðingu:
„Annar Grimsbytogari hefir
•rðið fyrir skotárás frá íslenska
varðskipinu Ægir. sama skipinu,
sem sagt var að hefði skotið á
Grimsbvtogarann Seottish.
Skipstjóri Grimsbytogarans
Drangeý segir frá því, að þegar
hann Jiafði verið staddur utan
þriggja mílna landhelginnar, hafi
Ægir gefið sjer merki um að
stöðva skipið og síðan skotið
tveimur skotum.
Skipstjórinn á Drangey hlýddi
ekki skipuninni, þar sem honum
var ljóst, að liann var staddur
utan landhelgi. Skipherrann mun
augsýnilega hafa sjeð. að honum
hafði skjátlást, því íiann hetti
eftirförinni og skaut ekki fleiri
skotum.
Drangey var að veiðum út af
Skálavík við norðurströnd ís-
lands. þegar varðskipið Ægir birt
ist.
Ægir dró upp stöðvunarmerki,
en þar sem skipstjórinn á Drang-
ey var fyrir utan landhelgi, virti
hann það vettugi.
Drangey hjelt áfram ferð sinni
í sömu stefnu og áður og’ skip-
herra varðskipsins, sem sá að
hann hafði hlaupið á sig, dró
stöðvunarmerkið niður og’ hætti
við að elta togarann.
Þingmaður BoröttgÍi-kjördæmis
(Sir Walter Womersley) hefir
verið beðinn að leggja þetta mál
fyrir utanríkismálaráðuneytið.
Hann tók nýlega að sjer mál
skipstjórans á Scottish, sem helt
því fram, að Ægir hefði skotið
á sbip sitt, kúluskotum.
Samtal við skipherr-
ann á Ægi.
Morgunblaðið náði í gærkvöldi
símtali við Einar Einarsson skip
hei’ra á Ægi, skýrði honum frá
þessari grein í „Grimsby Even-
ing Telagraph“ og spurði skip-
herrann, hvað hann vildi um
þetta segja.
— Þetta getur passað, segir
Fálkaorðuriddarinn
Edward Little.
Enska blaðið „Grimsby Even-
ing Telegraph“ frá 18. ágúst skýr
ir í forsíðugrein frá viðureign
Edwards Little skipstjóra á
Grimsbvtogaranum Scottish og
skipherrans á Ægi, sem áður hef-
ir verið getið hj'er í blaðinu. Með
greininni fvlgir mynd sú, sem hjer
birtist. Er þess getið í greininni,
að fyrir fjórum árum hafi Ed-
ward Little af Danakonungi verið
sæmdur heiðursmerki fyrir björg-
un danskra sjómanna við íslands-
strendur. Hann hafi verið gerð-
ur riddari af Pálkaorðunni, og
megi sjá heiðursmerkið í horni
myndarinnar af Mr. Little.
Manni bjargað
frá drukuun.
ÞÓRSHÖFN í gær.
jelbáturinn Erna frá Akur-
eyri kom til Þórshafnar í
gær með jnann, er fjell útbyrðis
af bátnum um hádegi sama dag,
en var bjargað frá druknun.
Vav báturinn þá staddur aust-
ur af Rauðamip, er maðurinn
Friðgeir Sigurðsson matsveinn,
fjell útbyrðis.
Hefir honum að líkindum orðið
fótaskortur, eða hann fengið að-
svif. Bátverjar nrðu þess: þegar
varir.
Var báturinn stöðvaður og hon-
um snúið í áttina til Friðgeirs.
Lá hann þá á grúfu í sjónum,
hreyfingarlaus. Agnar Guðmunds-
son háseti kastaði sjer fyrir Tiorð
og náði Friðgeiri og hjelt honum
1 uppi, þar til bátverjar náðu þeim
báðum. Var Friðgeir þá meðvit-
undarlaus.
Hann liggur nú í s’júkrahúsinu
á, Þórshöfn og líðnr vel eftir at-
vikum. (FÚ)
Eimskip, Gullfoss er í Reykja-
vík. Goðafoss er í Hamborg, Brú-
arfoss kom til iGrimsby um hádegi
í gær. Dettit'oss var á Siglufirði
í gær. Lagarfoss var á Ingólfs-
firði í gærmorgun. Selfoss fór
vestur og norður utn land til út-
landa í gær kl. 4.
VERKALÝÐURINN EBA PÓLLANDS
ERINDREKINN . I Norsk ber til rækt-
Ný fyrirskipan: Oll
herpinótasíld bann-
færð til söltunar!
unar á Islandi.
Þrjár berjategund*
ir reyndar hfer
í snmar.
SÍLDIN og síldarafurðir er nálega eina fram-
leiðsla sjávarútvegsins nú, sem eitthvað svig-
rúm er til að selja á erlendum markaði, og er
vissulega hart, að við skulum ekki geta notfært okkur þá
aðstöðu betur en gert er.
Frá Þrændalögum hafa ver-
ið fluttar hingað til lands
þrjár tegundir bérjaplántna í
sumar, til gróðursetningar og
tilrauna í íslenskri jörð, að því
er segir í norska blaðinu „Nið-
arós“ frá 5. ágúst.
Síldarútvegsnefncl, með
Finn Jónsson í farai'broddi,
hefir alveg gefist upp með
sölu meiri saltsíldar og fyr-
irskipað söltunarbann, nema
um vísar fyrirframsölur sje
að ræða.
í gær kom ný fyrirskipan frá
nefndinni, þar sem bannað var
með öllu frekari söltun herpinóta-
síldar, frá kl. 12 í nótt sem leið.
Hinsvegar liefir síldarvitvegs-
nefnd ekki enn fengist til að upp
lýsa neitt um það, hvernig hún
hefir notað þá bestu markaði,
sem fvrir bendi eru.
... r ■ • v,,
Vitað er að síldarútvegsnefnd
hefirtfalið Fritz Kjartanssyni að
selja eitthvað af síld til Póllands,
en þi^ð er sáralítið (aðeins 20—
30 þús. tn.), samanborið við það
feikna magn, sem það land kaup-
ir árlega af síld.
Sterkur grunur leikur á því, að
sala Fritz til Póllands hafi verið
bundin því skilyrði, að ekki yrði
seld þangað meiri síld frá ís-
landi.
Sje þetta rjett, þá er hjer um
að ræða slíkt reginhneyksli, að
menn, sem þessu hafa ráðið,
mega ekki koma nálægt síldar-
verslun framar.
Verkamenn eða Fritz?
Alþýðublaðið llefir ’fekið að sjer
að verja þá ráðstöfun Finns Jóns-
sonar, að banna nú síldarsöltun,
enda þótt blaðinu hljóti að vera
það Ijóst, að söltunarbanninu
fylgir atvinnusvifting mörg hundr
uð verkafólks.
Síldarútvegur okkar íslendinga
á vissulega ekki að vera rekinn
með það eitt fyrir augum, að
Fritz Kjartansson og aðrir vildar-
vinir Finns Jónssonar geti lifað
eins og’ greifar á dýrustu bað-
stöðum erlendis.
A’erkafólkið í landinu, sem hef
ir borið sáralítið úr býtum síð-
ustu árin, á vissulega meira til-
kall til síldarinnar, en Fritz
Kjartansson.
En það er gamla sagan, sem
hjer endurtekur sig: Þegar hátt-
séttir pólitískir „leiðtogar“ Al-
þýðuflokksius vinna níðingsverk
á verkalýðmnn, þá er alt gott og
blessað. Þá á verkið að vera unn
ið til heilla alþjóðar! Verkafólk-
ið, sem rekið er burtu frá ágætri
atvinnu, er þá ekki meira virði en
skarnið á götunni.
Síldveiðln.
Tregari veiði
en ðður.
LÍTIL síldveiði var í gæv
or’ í fvrradap’, brátt fyr
ir sæmilegt veður á síldar-
miðum. í gær voru skip enn
þá að koma til hafnar með
síld. sem veiðst hafði á
sunnudag austur á Þistil-
firði.
I Siglufirði biðu í gær um 40
skip með 18—20 þúsund mál síld
ar.
E.s. Katla hleður nú á Siglu-
firði 1200 smálestir af síldarmjöli
frá Ríkisverksmiðjunum, sem eiga
að fara til Þýskalands.
Lítið frjettist, af togurum
Kveldúlfs í gær. Skallagrímur var
eina skipið, sem var í höfn.
Þessir togarar voru á Djúpa-
vík í ,gær með síld: Garðar með
ca. 1300 mál, Surprise 1000, Bragi
1300 og Baldur 1200 mál. Togar-
inn Ólafur fór til Hríseyjar, í
gær með um 200 tunnur í salt og
Hilmir á sama stað með 150 tunn-
ur.
Vín og vörusmygl
í „Selfossi“.
Tollþjónar hafa komist að
vín- og vörusmygli í Sel-
fossi, eftir að skipið kom frá út-
löndum síðast.
I kolarúmum skipsins fundust
10 lítrar af spiritus og genever.
Einnig 3000 sigarettur. „Dunk-
er“ maður skipsins segist eiga
smyglvörurnar og var hann
dæmdur í 710 króna sekt.
Hjá 2. vjelstjóra fundu toll-
þjónar silfur og plettmuni, á-
samt töluverðu af andlitspúðri
og öðrum fegurðarvörum. —
Kvaðst vjelstjórinn hafa keypt
þessar vörur á uppboði í Am-
sterdam, en ekki verið búinn
að afla sjer innflutningsleyfis
fyrir þeim.
Segir í blaðinu að Norðmað-
ur einn, sem hjer var á ferð í
fyrrasumar hafi furðað sig á
því, að tegundir þessar, sem
injög eru algengar um allan
Noreg, milli f jalls og fjöru,
skuli ekki vaxa hjer. Það geti
ekki verið loftslagi um að
ke*na, því veðrátta geti ekki
verið óhagstæðari hjer um slóð-
ir, en víða þar sem ber þessi
vaxa.
Þessar þrjár tegundir, sem
hingað voru fluttar að sögn
blaðsins voru „Bringebær",
„Moltebær“ og „Tyttebær“.
„Bringebær“ og „Moltebær“
eru skyld hrútaberjum, og hafa
þessar tegundir aldrei fundist
hjer á landi. En ,,Tyttebær“,
„Vaccinus vitis idæa“ hefir
f ndist norðu í Núpasveit.
Eftir upplýsingum, sem Morg
unblaðið hefir aflað sjer um
þetta mál, var það norski verk-
fræðingurinn Chr. Gjerlöff, sem
sendi Geir Zoega vegamála-
stjóra berjaplöntur. Geir Zoéga
var ekki sjálfur hjer í bænum
er berjaplönturnar komu, en
frú hans setti plönturnar nið-
ur í samráði við þá Óskar B.
Vilhjálmsson og Jón Gíslason
garðyrkjufræðinga.
Berjaplönturnar voru settar
niður í Þrastalundi og í Foss-
vogi. Ekki er enn hægt að segja
hvernig tilraunir þessar hafa
tekist, en tíðarfar hefir verið ó-
hagstætt fyrir berjaplönturnar.
Eftir því sem Geir Zoéga
hefir sagt blaðinu, hefir Gjer-
löff í huga að senda hingað
meira af þessum berjaplöntum.
Hergagnasendingar
H Rússum ?
London í gær. FÚ.
Franska blaðið „Le Jour“
birtir í dag leynisamninga, sem
það heldur fram að Kínverjar
og Rússar hafi gert með sjer
þar sem Rú ar lofi Kínverjum
hund flugvjela og skrið-
dreka ef íil ófriðar komi, auk
annara hergagna í staðinn fyr-
ir fúlgu af guili sem kínverska
stjórnin á í bönkum í Rúss-
lanui.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.