Morgunblaðið - 01.09.1937, Page 8
B
MORliUNBLAEuö
Miðvikudagrur 1. sept. 1937..
Jfaujts&apus:
Smálúða, Rauðspetta, Ýsa,
Þyrsklingur, beinlaus og roð-
laus fiskur. Daglega nýtt. Fisk
& Farsbúðin, sími 47-81.
Kaupi flöskur, flestar teg-
undir, Soyuglös og Whiskypela
frá kl. 3—6 daglega. Gunnar
Eysteinsson, Ásvallagötu 27. —
Sími 1821.
Nýr silungur og lax ódýrast-
ur og bestur í Fiskbúðinni —
Frakkastíg 13. Sími 2651.
Lítið timburhús til sölu. —
Sími 2684.
Kartöflur 0.40 kg. Gulrófur
0.30 kg. Rúgmjöl (Álaborgar)
0.40 kg. Blóðmörsgarn 0.35. —
Brekka, Bergstaðastræti 35 og
Njálsgötu 40. Sími 2148.
Mjólkurbússmjör og ostar í
heildsölu hjá Símoni Jónssyni,
Laugaveg 33. Sími 3221.
Vjelareimar fást bestar hjá
Poulsen, Klapparstíg 29.
Kaupi gamlan kopar. Vald.
Poulsen, Klapparstíg 29.
Rúgbrauð framleidd úr besta
'danska rúgmjöli (ekki hinu
BÖnduga, pólska rúgmjöli).
Kaupfj elagsbrauðgerðin.
Kjötfars og fiskfars, heima-
tilbúið, fæst daglega á Frí-
kirkjuvegi 3. Sími 3227. Sent
heim.
Ef L O F T U R getur það
ekki — þá hver?
nnrwS vrb&ícjumkGýpsnju.
J
Elettra, dóttir Marconi, sem
hann hafði afar miklar mæt-
ur á og gerði að aðalerfingja sín-
uin, varð 7 ára gömul dagiun, sem
faðir hennar dó. Hálfri stundu áð-
ur 'en vísindamaðurinn andaðist,
sendi hann Elettru símskeyti, þar
sem hann óskaði henni til ham-
ingju með afmælið.
*
Bresku konungshjónin efndu
um daginn til „garden party“, en
3000 gestir sendu afboð. En það
skifti litíu máli, því að als höfðu
13.000 gestir verið boðnir.
*
Við rjettarhöld í máli einu hef-
ir komið í Ijós, að Shirley Temple,
litla „stjarnan“, sem öll hörn
dást að, er ekki 8 ára, heldur 13
ára. Hún er fædd 24. apríl 1924.
*
Það hefir vakið mikla eftirtekt
meðal flugmálavina, að flugmað-
urinn frægi, Jim Mollison, ætlar
nú að hætta að fljúga og gerast
verslunarmaður. Hann á að taka
við stjórn vefnaðarvöruverslunar,
sem móðir hans á í Skotlandi.
*
IHollywood gengur sá orðróm-
ur, að iGreta Garbo ætli að
fara þaðan. Kveður svo ramt að
þessu, að þýska kvikmyndaleik-
konan Vera Liessen hefir verið
kjörin „stjarna" í stað Gretu.
Sjálf neitar Garbo algerlega að
segja, hvað satt sje í fregninni.
*
Kaffi- og tóbakssmyglarar hafa
verið teknir fastir við landamæri
Frakklands og Þýskalands. Er
sagt, að þeir hafi verið dæmdir
fyrir þýskum rjetti í samtals 30
milj. króna sekt.
*
Á stóru refabúi í Noregi
hurfu 128 yrSlingar á einni
nóttu nú fyrir skömmu. Þótti
eigandum súrt í broti, þareð
hann misti við það alt að 20
þúsund króna virði. En hann
þykist viss um, að þarna hafi
tvífættir refir verið að verki.
*
Fyrir nokkru var frumútgáfa
af kvæðum Keats, hins merka
skálds Englendinga, seld í Lon-
don. Bókin var frá 1817, og
seldist fyrir 20 þúsund kr.
*
— Hvers vegna kendir þú kon-
unni hridge?
— Til þess að geta unnið aftur
eitthvað af fæðispeningunum, sem
jeg læt hana hafa.
*
— Það er bannað að reykja við
vinnuna!
— Veit jeg vel. Þess vegna
hætti jeg að vinna á meðan jeg
reyki.
*
Japanir eru orðnir Ieiðir á
gamla nafninu á föðurlandi sínu.
Þeir vilja nefna það Dai Nippon,
Stóra-Japan.
*
— Afsakið, herra minn. Hafið
þjer týnt peningapyngjunni yðar ?
— Nei.
— Þá gætuð þjer kannske hjálp-
að mjer um fáeina skildinga fyrir
næturgistíngu ?
Og svo er sagan um skoska
hestinn í Aberdeen. Hann stöðvaði
alla umferð í aðalgötu hæjarins,
fekst ekki til þess að færa sig
fótmál. Ilann hafði stigið ofan á
eitt penny.
TOILET SOfiP
Ef þjer hafið ekki reynt
hessa handsápu, þá fáið
yður eitt stykki og
dæmið sjálf um gæðin.
Fæst víða.
Heildsölubirgðir
Heildverslunin Hekla
ÍHCÍíyiinvruftw
Friggbónið fína, er bæjarin®
besta bón.
Slysavarnafjelagið, skrifstofa
Hafnarhúsinu við Geirsgötu.
Seld minningarkort, tekið mótii
gjöfum, áheitum, árstillögumti
m. m.
^CiíSTLœí
2—3 herbergi íbúð, með Öll—
um þægindum, óskast 1. okt.*-
helst í miðbænum. — Tvent íi
heimili. Sími 3147.
Nýja dilkakjðtið
og aðrar matvörur er heppilegast
að kaupa í
BÚRFELL,
Laugaveg 48. Sími 1505.
Nýtt dilkakiöt.
Lækkað verð.
Lítil stofa til leigu á Sól-
vallagötu 20. Sími 2251.
Herbergi óskast 1, okt. Til-
boð ásamt upplýsingum um
þægindi og leiguskilmála send-
ist afgreiðslu Morgunblaðsins
fyrir 6. sept. merkt ,,Rólegt“_
3 stofur og eldhús ásamt öðr-
um þægindum óskast 1. októ-
ber, 4 fullorðnir í heimili. Til-
boð merkt „Rólegt“, leggist inn
á afgreiðslu Morgunblaðsins
fyrir kl. 12 næstkomandi laug—
ardag.
KLEIN,
Baldursgötu 14. Sími 3073.
íslenskar
kartðflur.
Versl. Visir.
w*
NILS NILSSON:
FÓLKIÐ Á MYRI
tölulaust. Þetta kvöld var Óli Iengi fram eftir hjá móð-
ur sinni. Og næsta dag sendi liann peningana í pósti
til kaupstaðarins.
VIII.
AMýri var verið að taka saman heyið, og fólkið
vann, svo að svitinn bogaði af því. Það var
brennandi sólskin og hiti og svo kyrt, að ekki blakti
hár á höfði.
Heima í bænum lá Knútur Björk og barðist við
dauðann. Elín var með tárvot augu. Hún átti bágt
með að hafa hugann við vinnuna, hefði miklu heldur
kosið að vera hjá föður sínum. En móður hennar faust
það ástæðulaust, þar sem nauðsynlegt var að nota góða
veðrið og ná sem mestu heyi inn. Þeim kom saman
um, að ef einhver breyting yrði, kæmi hún út í hæjar-
dyrnar og veifaði til þeirra. Þá áttu þau að koma heim.
Elín leit hvað eftir annað heim að bænum. Hún
skildi ekki í því, hvað systkini hennar gátu verið ró-
leg við vinnu sína. En hefði hún getað lesið hugsanir
þeirra, hefði hún ef til vill orðið enn meira hissa. Oll
voru þau að hugsa um dauða föður síns, sem gat borið
að höndum á hverri stundu, én með nokkuð öðru móti
en hún.
Fritz hugsaði um það, að nú gæti hann komist hurt.
Ida var að hugsa um unnustann, og hvernig þeirra
hagur yrði í framtíðinni. Og Anton keptist við að
vinna, til þess að sefa þá óþreyju sem hafði gripið
hann. Fengi hann að húa á jörðinni eftir að faðir hans
var dáinn? Eða myndi Hugo gera tilkall til hennar.
Myndi móðir hans fást til þess að láta af bústjórninni?
Hann gaut augunum til Hugos, sem var að þurka
svitann framan úr sjer. Hann fyltist gremju af því
að hafa hann fyrir augunum og óskaði þess að hann
væri kominn veg allrar veraldar. Hann hrylti við sín-
um eigin hugsunum. Yar hann orðinn svo langt leidd-
ur að vilja Hugo feigan, til þess að geta sjálfur feugið
jörðina? Nei. Þetta myndi alt fara vel. Hann þurfti
ekki að fara frá Mýri. Hann herti sig enn meira að
vinna og reyndi að vera rólegnr. En hugsanirnar
hjeldu áfram að ásækja hann. Hann fann til djúps
sársanka fyrir brjóstinn. Nei, hann vildi Hngo ekki
ilt. Þá vildi hann heldur ganga að eiga Selmu og taka
við jörðinni af foreldrum hennar. En hann fann engan
frið við þá tilhugsun. Aldrei gat hann slitið sig frá
Mýri. Það var jörðin, sem hann var borinn og barn-
fæddur á. Þar átti hann heima og þar var hanu bund-
inn með hverri taug líkama og sálar.
Óli gaf systkinunum gætur. Það kom sjaldan fyrir,
áð þau yrtu á hann af fyrra bragði, og honum varð
það æ ljósara, að þeim var ekki vel við hann. En hon-
um stóð á sama um það. Hann hataði þau öll. En
hvers vegna var hann kyr hjerna, þar sem hver dagur
var honum kvöl í návist Elínar ?
Hann gat ekki farið frá Mýri. Það var eitthvað,
sterkara en hann sjálfur, sem helt honum kyrrum.
Hann hafði það á tilfinningunni, að eitthvað myndi
ske. Eitthvað varð að ske, áður en hann færi. Hann
varð að hefna sín á Elínu, sem hafði gert honum svona
rangt til og valdið honum allrar þessarar kvalar. Og
hann ætlaði líka að hefna sín á elskhuga hennar. Það
var hefndarhugurinn, sem helt Óla á Mýri.
Þau heldu áfram að vinna þögul og alvörugefin. En
alt í einu sá Elín, að móðir þeirra stóð í bæjardyrun-
um og veifaði til þeirra. Þau hrugðo öll við, lögðu frá
sjer hrífurnar og gengu heím að bænum. Óli helt
áfram vinnu sinni.
Knútur Björk var að skilja við. Börnin læddust
hljóðlega inn að rúmi hans. Hann átti erfitt um and-
ardrátt. Hann var orðinn grágulur í andliti og svit-
inn spratt fram á andliti hans og kinn’um. Augun
gljáðu með hitasóttargljáa, en hann var ekk alveg
rænulaus. Fluga flögraði í kringum hann og settist á
hökuna á honum. En Elín flýtti sjer að reka hana burt.
Tárin streymdu niður kinnar hennar.
Lena horfði stillilega á mann sinn. Hún var fyrir
löngu búin að sætti sig við það að hann ætti að deyja.
Að vísu vöknuðu hjá henni ýmsar endurminningar un&
samveru hennar með honum, en hún fann enga löng—
un hjá sjer, til þess að lifa þær upp aftur. Þetta vorui
liðnir tímar gleði og sorgar og vinnu. Leua gat ekki.
lifað í endurminningum. Hún leit frain á við, til liins-.
ókomna. Framtíðin hertók huga hennar allan, og óbil-
andi lífslöngun og kjarkur.
Bræðurair stóðu þegjandi við sjúkrabeð föður síns
og biðu eftir því, að hami raukaði það við sjer, svo>
að þeir gætu kvatt hann. Sólskiuið og liið innibvrgða
loft í herberginu gerði það að verkum, að svitinni
spratt fram á andlitum þeirra. Þögnin í herberginu,
sem aðeins var rofin af suðinu í flugunum, var þeim.,
nær óbærileg, og hitinn var alveg að gera út af við þá.
Loks fóru þeir inn í baðstofu og settust þar; þeir
voru innilega hryggir í bragði, þó að þeir hefðu dög-
um og vikum saman verið við því búnir, að svona
myndi fara.
Lena kom inn til þeirra og hað Fritz um að sækja
prestinn.
Knútur hafði sjálfur beðið um það fyrir nokkrum
dögum. En þá hafði hún ekki sint því. Hún hafði ekki
haldið, að hann myndi fara svona fljótt.
Meðan Fritz fór og sótti prestinn, sagði Lena hinum
hörnunum að fara út að mjólka. Kýrnar gátu ekki
heðið. Og þetta myndi dragast eitthvað. Hún talaði í!
myndugum róm og ekkert þeirra hreyfði mótmælum.
Lena tók á móti prestinum í haðstofunni.
— Er Knútur Björk nú að fá hvíldina?, sagði hanii!
í mildum róm.
— Já, það lítur út fyrir, að guð ætli að kalla hann
til sín í dag, sagði Lena og andvarpaði.
Hún fylgdi honnm inn í lierbergið, þar sem Knútur
lá, hreyfingarlaus eins og hann væri dáinn.
— Knútur, kallaði Lena lágt.
En hann bærði ekki á sjer.
— Hann er alveg rænulaus, sagði presturinn. — Við
fáum hann ekki til meðvitundar. En var það óslc hans
að fá sakramentið ?, sagði presturinn, um leið og hann.
tók vínið og obláturnar upp úr tösku sinni.