Morgunblaðið - 16.12.1937, Síða 6

Morgunblaðið - 16.12.1937, Síða 6
6 t MORGUNBLAÐIÐ Fimtudapiir 16. des. 1937. Alþýðublaðið og hitaveitan Minningarorð um Hólmfríði Þórarinsdóttur PRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU. meirihluta bæjaratjórnar, er sú ákvörðun var tekin, að hefjast nú framkvæmda í hitaveitunni frá Reykjum, enda þótt ekki sje enn fengið það vatnsmagn sem þarf, til þess að hita allan bæinn. I fyrsta lagi var talið óráð hið mesta, að láta ónotað það vatn, sem þegar er fengið á Reykjum. Og þar sem fengið er nægilegt vatn, til þess að hita hálfan bæinn og verkfræðing- arnir töldu hagkvæmast, að virkja í tvennu lagi, og þar sem þqssi hálfa hitaveita myndi gefa góðan arð, var talið sjálf- sagt, að hef jast handa um fram kvæmdir nú þegar. í öðru lagi var það sýnt, að framkvæmd hitaveitunnar myndi færa verkalýð Reykja- víkurbæjar þegar á næsta ári stórfeldustu atvinnu, sem Reykjavíkurbær hefir nokkru sinni í tje látið. Talið er, að ai láni því, sem ráðgert er nú að taka til þess að virkja 150— 175 sekúndu^ítra að Reykjum fari hátt upþ í 2 miljónir í verkalaun. Snk atvinnubót myndi vera hvalreki fyrir vérkamenn Reykjavíkurbæjar. Vissulega er það hart, að mennirnir, sem telja sig sjálf- kjörna fulltrúa verkalýðsins, skuli gera alt, ,se;m í þeirra valdi stendur til að eyðileggja þenna stórkostlega atvinnu- möguleika. Verkfræðingar bæjarins hafa reiknað út, hver útkoman verð- ur á rekstri hitaveitú-ffífc. Reykjum með 150, 1Ý5, 28S, 300 og 350 sekúndu-lítrum. tJt- koman er þessi: Virkjun 150 sekúndulítra, miðað við 40 kr. kolaverð gef- ur árlega um 360 þús. kr. í reksthurshagnað. Reiknað með 50 kr. kolaverði yrði hagnað- urinn 492 þús. kr. Virkjun 175 sek.-l., miðað við 40 kr. kolaverð, gæfi 432 þús kr. hagnað, en 590 bús. sje mið- að við 50 kr. kolaverð. Virkjun , 283 sek.-l., sem nægði til að hita upp alla Reykjavík, miðað við 40 kr. kolaverð, gæfi 700 þús. kr. hagnað. Virkjun 300 sek.-l., miðað við 40 kr. kolaverð gæfi 752 þús. kr. hagnað. Virkjun 350 sek.-l., miðað við 40 kr. kolaverð gæfi 906 þús. kr. hagnað. I þessum áætlunum verk- fræðinganna er ekkert tillit tek ið til afrenslisvatnsins, sem þó vitað er að gefur ótal mögu- leika til framkvæmda á ýmsum sviðum. Ef menn trúa áætlunum verkfræðinganna, og engin á- stæða er til annars, þar sem þær hafa gengið í gegn um „yfirmat" færustu erlendra sjerfræðinga á þessu sviði og staðist fyllilega þá prófraun, þá sjá væntanlega allir, að ekk- ert vit er í því fyrir Reykjavík- /urbæ að hefjast ekki handa nú þegar. Verkfræðingarnir, bæði þeir innlendu og erlendu eru ekki í vafa um, að nægilegt vatn muni fást á Reykjum til þess að hita upp allan bæinn. Þess- vegna er það skoðun verkfræð- inganna, að ef nú verði byrj- að á virkjun fyrri helmings hitaveitunnar, tn þeirri virkjun verði lokið eftir 1—1 Ví ár, þá megi að þeim tíma loknum hefjast handa um framkvæmd síðari helmings virkjunarinnar. Þá verði fengið nægilegt vatn til þess að hita upp allan bæinn. Yrði þá fullnaðar- virkjun lokið efÉr 3—4 ár. Reykjavíkurbær þarf form- legt samþykki ríkistjórnarinnar til lántöku fyrir hitaveitu. Enn hefir ekki verið leitað þessa samþykkis, en vafalaust hafa allir gengið út frá, að það yrði auðfengið, þar sem engar skuld bindingar fylgja því að öðru leyti. Þefcta er íiðeins form. En megi ráða það af skrif- um Alþýðublaðsins í gær, að ríkisstjórnin muni neita að samþykkja lántökuna, þýðir það, að verkalýðurinn í Reykja- vík verður á nœsta 1 Vt ári svift- ur um 2 miljónum króna vinnulaunum. Og verði virkjunin á Reykj- um nú stöðvuð, undir því yfir- skyni, að framkvæma eigi rannsóknir í Hengli og Krýsu- vík, þá þýðir það, að Reykja- víkurbær fær ekki hitaveitu næstu 10—20 árin, og Reykja- víkurbær og íbúar bæjarins verða sviftir margra miljóna króna beinum gróða, auk þæg- indanna af hitaveitunni. Er hugsanlegt, að þeir menn sifja í ábyrgðarmestu stöðum þjóðarinnar, sem svo gegnsýrð- ir eru af hatri og illvilja til Reykjavíkur, að slíkt eigi eftir að ske? Er hugsanlegt, að nokkur ríkisstjóm ÞORI að taka á sig þá ábyrgð, að stöðva hitaveit- una, enda þótt ástandið sje nú þannig í heiminum, að styrjöld ge.tur brotist út á hvaða augna- bliki sem er og kolaverðið komist upp í 150—200 eða jafnvel 300 krónur, ef þá nokkurt kolablað verður fáan- legt? Nei, þetta ER óhugsanlegt. Greinin í Alþýðublaðinu get- ur ekki verið rödd frá hærri stöðum, heldur hlýtur hún að velra runnin undan rif jum þeirra manna, sem altaf telja það skyldu sína, að vera á móti velferðarmálum Reykjavíkur- bæjar. Happdrætti Templara. Dregið var í gær hjá lögmanni í happ- drætti húsbyggingarsjóðs Good- templara, og komu upp eftirfar- andi númer og vinningar: Nr. 5251 peningar 500 kr., 1949 mál- verk eftir Asgrím Jónsson, 1822 skíði og skíðabúningur, 6059 fata- efni, 656 ljósmynd af Súlum, 1225 tauvinda, 873 rafmagns-kaffivjel, 3906 rafsuðuvjel, 2697 gullúr með festi, 325 Grundtvigs samlede Værker, 2995 rafmagns-ljósa- króna, 4736 tjald, 4869 ljóðasafn Guðm. Guðmundssonar, 4198 sorpkassi. Yinninganna sje vitj- að til Hjartar Hanssonar, Aðal- stræti 18 (Uppsölum). Frú Hólmfríður Þórarinsdóttir verður til grafar borin í dag í Vestmannaeyjum. Hún Ijest þar 6. þ. m. á heimili barna sinna, Sigurðar og Kristjönu. Hólmfríður var fædd á Grásíðu í Kelduhverfi. Voru foreldrar hennar merkishjónin Þórarinn bóndi Þórarinsson og Guðbjörg Guðmundsdóttir, er þar bjuggu með sæmd vel og lengi. — Þórar- inn faðir hennar var albróðir Sveins amtskrifara foður Jóns prests ins kaþólska, sem víðkunn- ur er orðinn. Faðir þeirra bræðra var Þórarinn bóndi á Méiðavöll- um í Kelduhverfi og síðar í Kíla- koti, Þórarinsson bónda að Vík- ingavatni, Pálssonar bónda á Vík- ingavatni, er fyrstur staðfestist þar sinna ættmanna og er margt manna af honum kómið. Hann var sonur Arngríms sýslumanns að Laugum af Ilrólfs-ætt og Skarðverjum inum fornu að lang- feðgatali. í móðurkyn átti Páll skamt að telja til Guðbrands biskups Þorlákssonar ög margra nafnkunnra manna á 16. og 17. öld. — Móðir Þórarins 'a Jérásíðu ; ■ j ; . var Björg skáldkona Svemsdottir, yfirsetukona, vitur og vel að sjer; Sveinn faðir hennar bjó á Hall- bjarnarstöðum á Tjörnesi, kyn- sæll maður og að góðu kendur, Guðmundsson bónda á Sandhól- um, er var „dugandis maður, vel kunnandi“, Guðmundssonar smiðs í Keldunesi (er átti Ingunni elstu dóttnr Páls Arngrímssonar), Guð- mundsson prests á Þönglabakka í Fjörðum, Þorlákssonar prófasts á Auðkúlu (dáinn 1690), Halldórs- sonar prests á Þingeyrum, Þor- steinssonar. Voru klerkar þessir allir kvæntir konum af þjóðkunn- um ættum. — Kona Guðmundar prests á Þönglabakka var Guðrún dóttir Jóns prests í Stiprr^-Ár- skógi, er var fjölhæfur Tis'tamaður og mörg skáldmenni eru af kom- in, Guðmundssonar ins sterka lög- rjettumanns Arasonar af Flata- tungu-ætt í Skagafirði. — Kona Þórarins Pálssonar að Víkinga- vatni var /Ölöf Grímsdóttir frá Fjöllum í Kelduhverfi, hefðar- kona, er langan aldur bjó rausn- arbúi að Víkingavatni eftir lát bónda síns og ljest þar 1819. En foreldrar hennar voru Grímur smiður á Fjöllum, Stefánsson s. st., Ásmundssonar smiðs ins gamla á Hóli í Kelduhverfi (um 1700), Ásmundssonar, er allir voru at- kvæðabændur, smiðir góðir og hreppstjórar þar í sveit, — og (kona Gríms) Guðleif Þorsteins- dóttir lögrjettumanns ins gamla á Fornastöðum í Fnjóskadal, Bergþórssonar bónda á Höskulds- stöðum í Reykjadal, Þórarinsson- ar. Kona Þorsteins lögrjettumanns var Ólöf Indriðadóttir frá Drafla- stöðum í Fnjóskadal (um 1700), þess, sem Draflastaða-ætt er af komin. Hefir hjer verið drepið á ættir þessar af því að ekki er góð vísa of oft kveðin og Hlóinfríður heitin vissi sjálf góða grein á ætt sinni og kipti í kyn sitt. Hólmfríður var glæsikona á blómaárum sínum, fríð og sköru- leg, mætavel vitiborin og fróðhug- uð. Ilún mannaðist og vel í æsku, því að hvorttveggja var, að hún var upp fædd á prýðilegu heimili og sótti Kvennaskólann á Lauga- landi í Eyjafirði undir stjórn og handarjaðri frú Valgerðar Þor- steinsdóttur frá Ilálsi. Varð því Hólmfríður snemma betur kunn- andi til munns og handa, en flest- ar konur á hennar reki norður þar. Var hún og bæði námfús, greind og minnug, kunni gnótt ljóða og þjóðsagna og fór vel með aílskonar fróðleik til skemtunar mönnum. Var hún einkar barngóð og greiðasöm eftir mætti. Uún giftist sumarið 1887 Óla Kristjánssyni að Víkingavatni, Árnasonar umboðsmanns í Árna- nesi í Kelduhverfi, Þórðarsonar á Kjarna í Eyjafirði, Pálssonar. Voru þau hjónin þrímenningar að frændsemi. Bjuggu þau síðan á ýmsum stöðum í Kelduhverfi, lengst á Ytri-Bakka ög Kílakoti. Þau eignuðust sex börn og komu vel upp, þótt fátæk væri að eign- um frá upphafi. Óli var fjölhæf- ur prýðimaður og stundaði löng- um smíðar samfara búskapnum, enda var hann hagleiksmaður mik- ili, skáldmæltur vel og vinsæll, en nokkuð heilsutæpur. Þessi eru börn þeirra: Árni blaðamaður í Reykjavík, Krist- jana skrifari í Vestnlannaeyjum, Þórarinn smiður í Vestmanna- eyjum, Kristján verslunarmaður í Húsavík, Guðbjörg húsfreyja í Húsavík og Sigurður framkvæmda stjóri í Vestmannaeyjum. Öll eru börn þeirra vel mönnuð og kippir í kyn sitt. Voru þau Óli og löngum á efri árum sínum hjá ýmsum barna sinna, enda var heilsa þeirra beggja nokkuð ó- traust. ÓIi ljest 31. jan. 1929. Mörg síðustu árin var Hólm- fríður í Vestmannaeyjum og hafði gott athvarf hjá börnum sínum. Þingeyingur. Sjötug: Frú Margrjet Jónasdóttir Frú Margrjet Jónasdóttir frá Stað í Steingrímsfirði, ekkja síra Guðlaugs Guðmundssonar, nú til heimilis á Fréyjugötu 37 hjer í bænum, á sjötugsafmæli í dag, og vegna þess, ‘ áð frú Margrjét er merkasta kona, og á svo lang- an og merkilegan starfsdag að baki, vil jeg með örfáum orðum minnast herinar hjer. Hún er mjög mikilhæf og vel gefin kona, og þáði í vöggugjöf inikla hæfi- leika, bæði andlega og líkamlega, og hún hefir sannarlega ávaxtað þá í góðu og gagnlegu starfi í lífinu. Eins og annara kvenna vorra hefir það orðið hlutverk fru Margrjetar að vinna lífsstarf sitt aðallega innan heimilisveggjanna í hinum ýmsu og oft erfiðu og vandasömu verka, sem húsmóðir- in verður sem kona, móðir og húsfreyja að vinna fyrir heimil- ið sitt, og þó það verk, sem aila jafnast er, sje unnið hávaðalaust og yfirlætislaust hið ytra, þá er það þó yfirleitt mjög svo þýð- ingarmikið fyrir alla þjóðarheild- ina, og starfi góðrar lconu fylgir ætíð mikil blessun. Svo er og méð starf frú Margrjetar. Hún var og er hin góða kona, hin góða eig- I inkona, hin umhyggjusama og elskuríka móðir hinna mörgu barna og hin forsjála og atorku- sama húsmóðir. í erfiði lífskjar- anna og á sorgarstundum lífsins hefir frú Margrjet sýnt framúr- skarandi þrek, og altaf haldið jafnaðargeði sínu og lífsgleði, og í öllu er hún hin merkasta kona. Og um leið og vjer vinir henn- ar færum henni nú á þessum merkisdegi lífs hennar vorar hug heilustu óskir og þökkum henni fyrir unnið starf og fjölmargar ánægjulegar samverustundir, ósk um vjer líka og vonum, að enn um mörg ár megi hún lifa glöð og hress á meðal vor, og að æfi- kvöldið verði henni bæði hlýtt og bjart. Sv. G.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.