Morgunblaðið - 23.06.1938, Page 3
Fimtudagur 23. júní 1938.
MORGUNBLATMÐ
3
Vöotun á raf-
suðurjelum
; r j i ■ ■ ’ ■
Óþolandi ásland
IReykjavík eru nú um 8000 eldhús, að sögn raf-
magnsstjóra, þar af hafa um 2000 fengið raf-
magnseldavjelar.
Bftirspurnin eftir rafmagnseldavjelum hefir aukist talsvert
»pp á síðkastið og nú um nokkurt skeið hefir ekki verið liægt að
^nllnægja eftirspurninni, og svo er enn þann dag í dag.
Ástæðan er sú, að Gjaldeyris- og innftutningsnefnd hefir ým-
»t stöðvað með öllu eða takmarkað mjög innflutning rafmagnselda-
rjela eða efni til þeirra.
Morgunblaðið skýrði nýlega
frá því, að 100 þýskar rafmagns
▼jelar hefðu legið hjer á hafn-
arbakkanum, en ekki fengist
innleystar. Höfðu vjelarnar leg-
ið þarna 4-—5 mánuði. Loks
fengust vjelarnar innleystar nú
fyrir hvítasunnu og þær seld-
ust allar á fáum klukkustund-
um, og ekki nálægt því hægt
að fullnægja eftirspurninni.
Og nú segja fróðir menn, að
meira fáist ekki innflutt af
þýskum rafmagnsvjelum og
verði menn því hjer eftir að
kaupa norsk-ísl. vjelarnar, sem
settar eru saman í verk-
smiðjunni í Hafnarfirði.
Þessi ráðsmenska sýnist harla
einkennileg, hvernig svo sem
á málið er litið.
Fyrst er á það að líta, að
þýsku vjelarnar voru talsvert ó-
dýrtari (verðmunurinn var 40
krónur og var þó álagning einka
sölunnar að sögn kunnugra ó-
hæfilega mikil). Ýmsir vildu af
öðium ástæðum heldur þýsku
vj elamar, enda nauðsynlegt,
að kaupendur geti hjer valið
um.
Nú skilst manni hinsvegar, að
stjómarvöldin ætli með öllu að
banna innflutning þýskra vjela.
En þau láta sjer ekki þetta
nægja, heldur takmarka þau
mjög innflutning á efni til
norsk-íslensku vjelanna. Afleið-
ingin verður svo sú, að ekki
er nálægt því hægt að fullnægja
eftirspurninni.
Hvaða vit er í svona ráðs-
mensku? Hvaða vit er í því,
að kasta út 7—8 milj. króna í
virkjun Ljósafoss, ef ekki jafn-
framt er sjeð fyrir því, að not-
iað verði til fulls hið mikla raf-
magn, sem stöðin getur fram-
leitt?
Ef ekki verður hið skjótasta
bætt úr því ófremdarástandi,
sem nú ríkir í þessum málum,
er hætt við, að seint gangi að
fá Sogsvirkjunina ti'l lað bera
sig fjárhagslega. Nú ætti stjórn-
arvöldunum ekki síður en öðr-
um, að verai það ljóst, að með
því að taka rafmagnið til notk-
unar við suðu, sparast erlendur
gjaldeyrir og ekkert smáræði.
Ættu því stjórnarvöldin bein-
línis að stuðla að því, að notk-
un rafmlaigns til suðu aukist
sem mest og sem fyrst.
Eigi þýðir að fara að ræða
þau feilspor, sem stigin hafa
FRAMH. Á SJÖUHDU Sfi)U.
Maður druknar
af sildveiðiskipi
EINN af hásetunum á vjel-
bátnum „Hvíting“ frá
Siglufirði, fjell fyrir borð í fyrri
nótt og druknaði.
Maðurinn hjet Þórarinn Hall-
dórsson frá Siglufirði, ungur
maður, ókvæntur,_en var fyrir-
vinna aldraðra foreldra sinna.
Þegar frjettaritari vor á
Siglufirði sendi frjettina í gær-
kvöldi, var „Hvítingur" ókom-
inn til hafnar og ekkert hafði
frjest um tildrög slyssins.
Ágætt síldveiði-
veður í gær
AGÆTT síldveiðiveður var
fyrir öllu Norðurlandi í
gærdag og símar frjettaritari
vor á Siglufirði, að frjest hefði
um mörg skip, sem hafi fengið
síld á Grímseyjarsundi, og vest->
ur með landinu.
Var búist við skipunum í
nótt. Þessi skip komu í gær:
Kári, 400 mál; Unnur, 250 mál;
Haraldur 450 og Eggert 280.
Prestastefnan
hefst I dag
Prestastefnan hefst lijer í bæn-
um í dag kl. 1 með guðs-
þjónustu í dómkirkjunni. Síra
Halldór Kolbeins frá Stað í Súg-
andafirði prjedikar.
Á eftir verðiur altarisganga fyr-
ir presta og verður Friðrik Rafn-
ar vígslubiskup fyrir altari.
Kl. 8V2 síðdegis flytur síra Ás-
mundru prófessor Guðmundsson
erindi í dómkirkjunni, er hann
nefnir „Næsti áfanginn".
Knattspyrnukepni bankanna
um „silfurvíxilinn“ fór fram í
gær. Keptu Landsbankinn og TJt-
vegsbankinn. Sá íymefndi vann
með 1 marki gegn 0. Landsbank-
inn var handhafi „silfurvíxilsins“
frá í fyrra.
Hramigerðiskirkja prýdd flöggum; að neðan tjaldbúðimar. T. h.
prestamir Friðrik Friðriksson ogiSigurður Pálsson í Hraungerði.
Kristilegt mót
í Hraungerði
Uidirbúningur mótsins hefir staðið marga
mánuði. Var þar margs að gæta og
þeim mun erfiðara, sem ekki var neitt
við að miða. Við undubúninginn þurfti bæði
smiði, málara, skraddará, skáld og tónlistamenn
auk margra fleiri.
Og alla þessa menn var hægt að finna, sem áhuga höfðu
fyrir mótinu. Auk þess var æfður fjörutíu manna blandaður kór
og tvöfaldur kvartett karla.
Undirbúningur á staðnum
hófst með því, að viku fyrir
mótið voru reist tvö tjöld, ann-
að 300 manna og hitt 50 manna.
Á fimtudagskvöld kom austur
hópur manna til að reisa tjald-.
borgina, prýða kirkjuna, reisa
flaggstengur og koma fyrir öðr-
um útbúnaði, sem nauðsynleg-
ur var á staðnum. En þá kom
líka annar gestur, og sá var ó-
velkominn, það var rigningin.
Allan föstudaginn stórrigndi og
var veður svo vont að ekki varð
unt að vinna alt, sem til stóð.
En mennirnir voru hraustir og
hugrakkir í besta lagi og vant-
aði því ekki mikið á áð þeir
lykju störfum. Snemma á laug-
ardag var vinna aftur tekin
upp. Þó stórrigndi enn, en
vegna þess að logn var, tókst
að ljúka störfum í tæka tíð. Þá
um daginn var símað úr Reykja
vík og spurt um veður. Ungur
maður úr Hafnarfirði varð fyr-
ir svörum og sagði: „Það er
ágætisveður, rignir bara, en
presturinn segir, að það muni
ljetta til“. Sá var ekki banginn.
Fólkið kom úr öllum áttum
og fekk sín tjöld. Flest kom þó
frá Reykjavík. Ekki leist öllum
sem best á veðrið, og voru sum-
ir nokkuð áhyggjufullir.
Klukkan sex um kvöldið var
mótið sett með messugjörð í
kirkjunni. Þar prjedikaði síra
Friðrik Friðriksson út af bæn-
inni: „Tilkomi þitt ríki“. Hjelt
hann veglega ræðu eins og
vænta mátti af slíkum kirkju-
höfðingja. Um kvöldið kom í
Ijós að ýmsir höfðu gleymt hinu
og öðru og naumast gert ráð
fyrir þessu veðri, en allir voru
þar fúsir til hjálpar og miðl-
uðu hin forsjálli þeim, er vant-
aði svo að ekki er vitað annað
en að öllum liði vel þrátt fyrir
hina miklu rigningu.
Dagskrá mótsins var hin post-
!ullega trúarjátning. Var efni
allra fyrirlestra og biblíulesara
tekið úr henni, nema eitt er-
indi eftir Ólaf Ólafsson kristni-
boða um kristniboð, sem lesið
var upp fyrir hann af því að
hann gat ekki mætt sjálfur. —
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
Stórstúku-
þingi slitið
Stórstúkuþinginu, sem staðið
hefir síðan á laugardag, var
slitið í gærkvöldi.
í gær voru aðallega rædd inn-
anreglumál og ýmsar tillögur, sem
komu fram í sambandi við þau.
f fundarlok þakkaði Stórtempl-
ar Fr. Á. Brekkan fulltrúunum
fvrir góða fundarsókn og prúð-
mannlega framkomu á þinginu.
Árnaði hann öllum fulltrúnm ut-
an af landi góðrar heimferðar, og
Reglunni allrar giftu á þessu ári.
Aðalfundur
Útvegsbankans
Aðalfundur Útvegsbanka
fsfands h.f. var haldinn
í gær í Kaupþingssalnum.
Fyrst var gefin skýrsla um
starfsemi bankans árið sem leið.
Hagur bankans batnaði stórum á
árinu. Sparisjóðsfjeð hafði vaxið
um 1.2 milj. kr. og skuldir, inn-
lendar og erlendar lækkað all-
verulega.
Tvo menn skyldi kjósa í full-
trúaráð bankans og voru endur-
kosnir þeir Lán.us Fjeldsted lirm.
og Stefán Jóh. Stefánsson hrm.
Endurskoðendur voru sömuleið-
is endurkosnir, þeir Björn Steff-
ensen og Ásgeir Ásgeirsson.
Múskatið op anisinn
i Lyfjabúð Seyðis-
fjarðar
Hæstirjettur kvað þann
13. þ. m. upp dóm í
máli valdstjórnarinnar gegn
J. O. G. Ellerup lyfsala á
Seyðisfirði, sem kærður var
fyrir að hafa á boðstólúm
kryddvörur, er ekki full-
næg:ðu skilyrðum reglugerð-
ar þar að lútandi.
Hæstirjettur sýknaði lyf-
salann af öllum kærum vald-
stjómarinnar í málinu.
Málavextir eru,-
Lyfsalanum var gefið að sök, að
hafa liaft á boðstólum í lyfjabúð
sinni mulið ínúskat og mulinn
anis, sem fullnaigði ekki að efna-
samsetningu skilyrðum reglugerð-
ar nr. 129, 1936 um krydd- og
kryddvörur.
Lyfsalinn taldi, að aðferðinni
við töku sýnishornanna hafi verið
mjög ábótavant og vjefengdi af
þeirri ástæðu niðurstöðu efnarann-
sóknar Matvælaeftirlits ríkisins.
I forsendum dóms Hæstarjettar
segir, að af prófum málsins megi
sjá, að sýnishornin hafi verið tek-
in 24. júlí f.á., þau afhent í venju-
legum pappírspokum, og ekki inn-
sigluð. Tvöföld sýnishorn hafi ekki
verið tekin, sem þó hefði verið
unt og sjálfsagt að gera og geyma
annað sýnishornið til afnota, ef
rannsókn yrði vjefengd. Ekkert
sje upplýst um geymslu og me.ð-
ferð sýnishornanna, eftir að þau
voru tekin og þar til Matvælaeft-
irlitið tilkynti að rannsókn væri
lokið, en það var 24. sept. f. á,
Síðan segir í forsendutn dóms
Hæstarjettar: . ■ , UOl
„Samkvæmt lögum nr. 24 1936
um eftirlit með matvælum og öðr-
um neysluvörum og naúðsynjavör-
um getur brot gegn ákvæðum
fyrnefndrar reglugerðar nr. 129
1936 varðað refsingu og upptöku
vörubirgða, og ítrekað brot eða
mikilvægt ennfremur sviptingu at-
vinnuleyfis um stundarsakir eða
fyrir fult og alt. Þess verður þýí
að krefjast, að ýtrustu nákvæmni
sje gætt í sambandi við rannsókn
vörunnar, sem slík niðurstaða á
að byggjast á, en fer fram, áður
en rjettarpróf hefjast, og að eig-
anda vörunnar sje gefinn kostur
á að staðreyna, eftir því sem föng
eru á, livort kæran á hendum
honum, sem bygð er á slíkri rann-
sókn, liafi við rök að styðjast. í
máli því, sem hjer liggur. fyrir,
verður ekki talið, að taka sýnis-
hornanna og meðferð þeirra hafi
farið fram á nægilega tryggan
hátt, 0g getur því niðurstaða rann-
sóknarinnar ekki orðið grundvöll-
ur að áfellisdómi í refsimáli Og
þarf þá ekki að athuga aðrar
framkomnar sýknuástæðúr. Ber
því að sýkna kærða af kröftím
valdstjórnarinnar í máli þessu“.
Sækjandi máls þessa í Hæsta-
rjetti var Stefán Jóh. Stéfánsson
hrm., en verjandi Lárus Jóhann-
esson hrm.
í undirrjetti (bæjarfógetinn á
Seyðisfirði) var lyfsalinn dæmd-
ur í 100 kr. sekt, auk málskostn-
aðar.