Morgunblaðið - 23.06.1938, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 23. júní 1938.
«
Halldór Jónsson:
Dátíðisdagur
sjómanna
Einhrer nánngi sem nefnir sig
„Graman sailor“ hefir fund-
ið hjá sjer köllun til þess að tendra
aína andlegu grútartýru í Alþýðu
blaðinu síðastliðinn fimtudag til
þess að kasta skugga á einstök
atriði dagskrár sjómannadagsins.
En ekki verður annað sjeð af hug-
leiðingum hans, en að þær sjeu
■prottnar af því einfalda fyrir-
brigði sem almenningur kannast
við að þjáir einstaka menn og
nefnt er geðvonska frá slæmum
maga. Hann gapir þó svo gleitt
um ýmislegt, sem hann ber ekkert
skynhragð á í þessum hnífilyrðum
sínum, að ekki er vert að láta hann
alveg afskiftalausan.
Jeg ætla því með nokkrum lín-
um að gera athugasemd við það
sem hann beinir til loftskeyta-
manna og F. í. L.
Þessi grami náungi vill láta líta
»vo út að loftskeytamaður Titanic
hafi verið einhverskonar viðrini,
aem eingöngu hafi viljað skifta við
stór skip og umgangast „fínt“ fólk
og lætur sem jeg hafi rangfært í
ávarpi mímui f. h. P. í. L. á sjó-
mannadaginn, skýrslur ransóknar-
nefndar U. S. A. til þess að hylja
slíkt. Þar að auki er hann nógu ó-
svífinn, til þess að kasta fram
þeirri spurningu hvort loftskeyta-
maður Titanic „hafi drepið fleiri
eða færri en þá sem hann bjarg-
aði!“.
ir
að væri freistandi að rekja
nákvæmlega atburði hins ör-
lagaríka síðasta sólarhrings sem
Titanic var ofansjávar, en til þess
gefst ekki tækifæri í stuttri blaða-
grein, jeg vil aðeins geta þess
hinum grama sailor til athugunar,
þar sem hann auðsjánlega hefir
farið á hundavaði yfir það, sem
hann hefir kynt sjer úr skýrslum
U. S. A. útaf þessu máli, en sem
hann vitnar þó svo digurbarkalega
í, að þar er því slegið föstu, að
loftskeytamennirnir á Titanic hafi
staðið framúrskarandi vel í stöðu
•sinni og ekki eitt einasta atriði
gefið tilefni til þess að ávæna þá
um skeytingarleysi. Hvorugur
þeirra yfirgaf tælíi sín fyr en skip
stjóri kom og tilkynti þeim að
starfi þeirra væri lokið, annar
þeirra fórst með skipinu, en hinn
bjargaðist fyrir tilviljun.
★
á flettir hinn „grami sailor“
ofan af óvöndun sinni um
málsmeðferð þar sem hann ræðir
um skrif íslenskra loftskeytamanna
gegn þeirri hugmynd og tillögum
skipstjóra þegar hann iitbásúnaði
sem mest ágæti talstöðvanna í
þágu loftkeytaþjónustunnar og að
hægt væri með þem að spara þann
kostnað að hafa loftskeytamenn á
skipum.
íslenskir loftskeytamenn hafa
aldrei og munu aldrei berjast gegn
neinum framförum á starfssviði
sínu og viðurkenna fullkomlega
þægindaauka þá sem talstöðvar
yeita, en þeir hafa altaf og munu
altaf berjast gegn hverju því, sem
á einn eða annan veg gæti orðið
til þes'é að skerða öryggisgildi
þeirra er að hafa engan fastan
loftskeytamann við þau, það var
þetta sem Magnús Magnússon vildi
en það sem loftskeytamenn átöldu
að yrði tekið upp sem ágæti í
sambandi við talstöðvar. Jeg vil
bæta þvú hjer viðr að hinn „grami
sailor“ virðist ekki vita altof vel
það sem hann talar um, að áú hef-
ir Magnús Magnússon fengið full-
komna loftskeytastöð um borð í
skip sitt og hefir loftskeytamann
til að starfrækja hana, en hinn
„grami sailor“ getur sjálfur reikn
að út, hvort M. M. hefir gert slíkt
af ótta við F. í. L. eða af því að
hann hefir sannfærst, af reynslu
sinni um hvort fyrirkomulagið er
heppilegra.
★
eg er því samþykkur og svo
munu fleiri, að það er leitt að
kyndara skyldi hvergi minst í þeim
ávörpum, sem flutt voru þennan
dag, en slíkt er auðvitað ekki gert
með ráðnum hug og ætti hinn
,grami sailor‘ að beina þeim orðum
sínum til fulltrúa þeirra sem töl-
uðu fyrir hönd Sjómahnafjelags
Hafnarfjarðar og Reykjavíkur,
þar sem kyndarar eru meðlimir í
svo slíkt hendi ekki aftur, því
vinna þeirra manna er ekki ómark
verðari en annara sjófarenda.
Hannes á Horninu ætla jeg að
lokum að biðja um, úr því hann
gjarnan vill fá meira um sjómanna
daginn þó það sje gagnrýni, að
koma því á framfæri við stjórn Al-
þýðublaðsins, frá mjer sem einum
íir ráði sjómannadagsins, að næsta
ár verði framkoma hennar snúin á
þann veg gagnvart deginum, að
hún komi ekki með hótanir um að
vinna gegn honum, ef ekki sje
gert alt að hennar vilja. Þetta
getur Hannes endurtekið í dálki
sínum ef hann vill, til annara’þarf
hann ekki að stíla því hvar sem
fnlltrúaráðið þurfti að leita til um
aðstoð eða annað, mætti það hvar
vetna hinni miklu vinsemd og vel
vilja. Innán fulltrúaráðsíns ríkti
órofinn samhugur allra um að gera
þennan dag sem glæsilegastan og
þrátt fyrir að þarna voru saman-
komnir menn með sitthverja stjórn
málaskoðun, var allur rígur og
dægurþras útilokað.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki og Laugavegs Apóteki. r
Landsfundur kvenna.
Rætt um mæðralaun,
atvinnumál og at-
vinnunám kvenna
riðji fundardagur Lands
fundar kvenna í Alþing-
ishúsinu var í gær, 0£ voru
tvö mál tekin til umræðu:
mæðralaun, og atvinnumál
ot? atvinnunám kvenna.
Framsögu fyrir því fyrnefnda
hafði Katrín Pálsdóttir, og var
málinu vísað til sjerstakrar nefnd-
ar. I þeirri nefnd eru fulltrúar
frá fjórum fjelögum: Áuður Auð-
uns cand. jur. (Kvenstúdentafjel.
Islands), Lajufey Yaldimarsdóttir
(Kvenrjettindafjel. Islands), Guð-
rún Lárusdóttir (K. F. U. K.),
Katrín Pálsdóttir (Mæðrafjel.) og
Aðalbjörg Sigurðardóttir (fulltrúi
Landsfundar kvenna).
Hitt málið, atvinnumál og at-
vinnunám kvenna innleiddi Dýr-
leif Árnadóttir með ýtarlegu er-
indi. Urðu síðan umræður um mál
ið, og var þeiip ekki lokið, er
fundi var slitið kl. rúml. 7 síðd.
Um kvöldið kl. 9 flutti Ludvig
Guðmundsson skólastjóri erindi
um skplamál.
f dag hefst fundur kl. 2 e. H.
með því, að Þórir Baldvinsson
byggingafr. flytur erindi um
húsabyggingar í sveitum.
Söngför Karlakórs
Iönaöarmanna
Karlakór Iðnaðarmanna kom
til Akureyrar í fyrradag og
var fagnað með söng! við skips-
hlið af Geysi og Karlakór Akur-
eyrar. Sveinn Bjarman f],utti
ávarp.
Kórinn söng í 'fyrrakvöld við
ágæta aðsókn og viðtökur og end-
urtók mörg lög.
Að loknum söng var kórnum
haldið samsæti af iðnaðarmönn-
um á Akureyri, Geysi og Karla-
kór Akureyrar. (FÚ)
Minningarorð um
Ólaf Kr, Ólafsson
Tuttugasta maí s.l. andaðist
að heimili foreldra sinna
Skólavörðustíg 20 A, hjer í bæ,
Ólafur Kristinn Ólafsson. Hann
var tæplega tuttugu ára gamall,
fæddur 12. júlí 1918. Ólafur
sál. var hugljúfi hverjum manni
er honum kyntust, og er þung-
ur harmur kveðinn foreldrum
hans, systkinum og vinum við
fráfall hans.
Það kom fljótt í Ijós með
hinn unga mann, að kynfylgj-
ur ættar hans, sem eru alkunn-
ar dugnaðar ættir, höfðu ekki
flúið hann. Strax eftir ferm-
ingu rjeðist hann í sjómensku
með föður sínuni og hjelt hann
henni óslitið áfram þangað til
hann veikist á síðastliðnu
hausti af sjúkdómi þeim, ér nú
varð honum að bana, eftir lang-
varandi þjáningar.
1 starfi sínu sýndi Ólafur sál.
dugnað, áhuga og trúmensku.
Og hefði mátt af honum vænta
mikils starfs, ef líf og heilsa
hefðu enst honum lengi.
Þung sorg er það foreldrum
að sjá á bak svo ungum og
efnilegum syni. En Ijúfar minn-
ingar um hann verða ekki frá
þeim teknar nje trúin á það
að gæska guðs vaki yfir hon-
um, annars heims sem hjer.
í guðs friði. N. N.
Sumargistihúsið Reykholt er nú
tekið til starfa.
HRAUN GERÐISMÓTIÐ.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
Fyrirlesarar voru: Síra Bjarni
Jónsson víxlubiskup. Síra Gunn-
ar Jóhannesson, cand. theol.
Gunnar Sigurjónsson, stud.
theol. Ástráður Sigursteindórs-
son og Bjarni Eyjólfsson rit-
stjóri. Auk þeirra flutti síra
Guðmundur Einarsson prjedik-
un í messunni á sunnudaginn
og frú María Skagfjörð ræðu á
mánudaginn.
Á sunnudaginn rigndi enn,
þó ekki látlaust. Erfiðleikarnir,.
sem af rigningunni stöfuðu,
urðu furðu lítið tilfinnanlegir.
Verst var að sjettin milli bæj-
arins og kirkjunnar, sem var
grasi vaxin, óðst upp, svo að
fótabúnaður og gólf urðu mjög
óhrein. Á sunnudaginn var
fjöldi fólks úr nágrenninu þrátfc
fyrir rigninguna. Þá voru sam-
ankomnir á staðnum a. m. k.
400 manns.
Á mánudaginn var veður hií?
besta. Sólskin, hiti og logn. Þá
var haldin sjerstök samkoma
fyrir börn, sem ungfrú Svan-
laug Sigurbjarnardóttir stjórn-
aði af sinni alþektu snild. Þá
samkomu sóttu 70 börn úr ná-
grenninu og jók það ekki lítið-
yndi allra, og þá fegurð sem
hvíldi yfir öllu eftir hina miklú
hreingerningu, sem rigningin
hafði gert í allra óþökk. Nú
urðu allir þakklátir fyrir rign-
inguna, því að slík unaðsfeK-
urð sjest ekki ner.ia eftir ó-
veður.
Lokaþáttur mótsins var alt-
arisganga, sem fram fór í kirkj-
unni. Gengu þar til altaris um
170 manns, auk þess íiam 30 í há-
messu á sunnudag.
Það, sem mest einkendi mót-
ið var þetta þrent: Söngur, alls
staðar var sungið svo ljett og
ljúft, að unaður var á að hlýða,
eining, svo að þar voru allir í
fyllra skilningi en jeg áður hef
vitað, með einum huga og gleði
slík að enginn vissi af regni eða
óþægindum.
Það kom skýrt í ljós, sem
alda reynsla hefir margsannað,
að trú sú, sem hin postullega
trúarjátning túlkar - á meiri
kyngi kraftar glpði og fegurðar
en nokkur kann að gera ráð
fyrir. Óskandi væri, að færri
ljetu sig fara á mis við þau
gæði en raun er á. S. P.
FetðafólK takið nftir!
Ferðafólk, sem kemur í sumar
til Reykjavíkur, getur fengið gott
fæði á matsölurini á Laiugaveg 17.
Kyrlát og góð húsakynni. Sími
2973.
Blmi 1380. LITLA BILSTÖÐIN 3Er nokknS rtér.
Opin allan sólarhrinjrinn.
Rfgreiði 5ykur
á móti Cuba-leyfum.
5ig. E>. Shjalðberg.
(Heildsalan).
Goliat.