Morgunblaðið - 18.01.1939, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.01.1939, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Miftvikudagur 18. jan, 1939, —--------;------------Tv" 'I f?r Franco í Barcelona innan mánaðar Sókn hans heidur viðstöðulaust áfram í Kataloníu r Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. RANCO heldur stöðugt áfram sókn sinni í Kataloníu í áttina til Barcelona. Er sókn hans svo hröð, að hersveitir Barcelonastjórnarinn- ar hafa ekkert svigrúm til að búa um sig í nýjum varnaf- línum. Telja hernaðarsjerfræðingar Francos, að Barce- lona muni óhjákvæmilega falla innan eins mánaðar hjer frá. — h Hersveitir Barcelonastjórnarinnar hafa gert gagn- sókn á vígstöðvunum við Madrid og orðið nokkuð ágengt, Segir Barcelonastjórnin, að hersveitir hennar hafi brot- ist í gegnum varnarlínur Francos á Granadavígstöðvun- um og hafi sótt fram í áttina til borgarinnar Granada. Tilgangur Barcelonastjórnarinnar með gagnsóknum er að neyða Franco til að draga úr sókn sinni í Kataloníu, en ekki virðist það hafa borið neinn árangur, enn sem komið er. Francoherinn tók í gær tvær mikilvægar borgir frá hernað- arlegu sjónarmiði. . Cervera, sem er 75 km. frá Barcelorta og Igualada, sem er 50 km. frá Barcelona. Hefir her Francos þar með brotist í gegn um aðra víglínu Barcelonahersins á Kataloníuvígstöðvunum. Ennþá eiga herir Francos eftir að brjótast í gegnum eina víggirta herlínu Barcelonahers- ins áður en þeir komast til Barcelona. ALVARLEGT ÁSTAND I BARCELONA Ástandið í Barcelona er nú orðið mjög alvarlegt vegna mat vælaskorts. Flóttamenn streyma stöðugt til borgarinnar úr nær- liggjandi heruðum. Barcelona- stjórnin hefir gefið út tilkynn- ingar um að borgin skuli varin á meðan nokkur vopnfær mað- ur standi uppi. Verið er að búa alla íbúa Barcelona undir vörn- ina. Konur hafa tekið við venju legum störfum karla. 1 MILJÓN MANNA FALLNIR Flugmenn Francos gerðu í dag loftárás á her Barcelona- stjórnarinnar, sem hörfaði und- an og varð mikið mannfall. í dag hefst 31. mánuður borgarastyrjaldarinnar. Talið er, að í borgarastyrj- öldinni hafi fallið ein miljón Spánverja og að 10% þjóðar- innar hafi- beðið banað eða særst í styrjöldinni. SÓKNIN TIL BARCELONA í Lundúnaútvarpinu segir svo um sókn Francos til Barce- lona (skv. FÚ) : Þeir sækja til borgarinnar að norðvestan, frá Lerida og Mont blanch, sem tekin var síðastlið- inn miðvikudag. I tilkynningum frá Barcelona segir, að stjórn- arhersveitirnar hafi tekið aftur .stað, þar sem þjóðvegir mætast skamt frá Cervera. GAGNSÓKN RAUÐLIÐA Barcelonastjórnin segir, að her hennar sæki fram á Gran- adavígstöðvunum, þar sem ný- hafin er sókn í þeim tilgangi, að draga úr sókn uppreisnar- manna í Kataloníu. — Segir stjórnin hersveitir sínar hafa brotist í gegnum varnarlínur uppreisnarmanna fyrir norð- vestan Granada og sjeu þær nú aðeins 12 mílur enskar frá borg inni sjálfri og 6 mílur frá járn- brautinni til Granada. Frumsýning á nýju leikriti eftir Kamban Khöfn í gær. FÚ. ið nýja leikrit Guðmundar Kamban verður sýnt í fyrsta sinni á Konunglega leik- húsinu í Kaupmannahöfn á þriðjudaginn kemur. Er það gamanleikur í þremur þáttum og heitir ,,Derfor skilles vi“. Kamban hefir sjálfur leikstjórn á hendi. í leiknum eru 13 persónur og hafa ýmsir af færustu leik- urum leikhússins aðalhlutverkin á hendi t. d. frú Anna Borg, Thorkild Roose, Holger Gabi'i- elsen, Klara Pontopidan, Karin Nellemose og Sigrid Neiendam. Er leikritsins beðið með all- mikilli eftirvæntningu í Kaup- mannahöfn. Uppboð var haldið í Kaup- mannahöfn í fyrradag á 362 dönskum silfurrefaskinnum. — Meðal verð þeirra var 133 kr. fyrir skinn. (FÚ). C-listinn er listi Sjálfstæðis- manna við Dagsbrúnarkosning- arnar. Si; Atvjnnnleysingjar í... Lon^on siifimðust á döglinum sainan nokkuð margir í Oxfb'W *Sftí<bet og lögðust ;í götuna, eins og mvndin hjér sýnir. —- Stöðvaðist ö.ll urnferð• á götúnbi uiíi tíina! Á stórum auglýsingaspjöldum sem aTvinnuleysingjarnir breiddu 'ofan á sig, v’oru börhar frám kröfur um brauð, vinnu og sjerstáka vetrarhjálp. Kröfur afvinnuleysÍDgja i London Hermdarverk írskra óaldar manna í Engiandi Sprengingar í raforkuverum og vatnsveitum valda tjóni Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. HERMDARVERK, sem unnin hafa verið víðs- vegar í Englandi undanfarna daga, hafa slegið óhug á íbúa ýmsra hinna stærri borga í landinu. Hermdarverk þessi hafa aðallega verið unnin í raforkuverum og vatnsveitum og er talið, að hinn svo- nefndi írski lýðveldsher standi að hermdarverkunum. Lögregluvörður hefir verið settur við öll helstu raforkuver og vatnsleiðslur landsins og sjerstakur lögregluvörður við allar stjórnarbyggingar og bústaði ensku ráðherranna. Iiafa verið gerðar sjerstakar ráðstafanir til að hafa hendur í hári óaldarmannanna, sem að þessum hermdarverkum standa. — Fyrsta — verkfallið í Sovjet- Rússlandi Frá frjettaritara voruni. Khöfn í gær. skeyti frá Varsjá til Poli- tiken er sagt frá verk- falli, sem 15 þúsund verka- menn við skipasmíðastöð í Leningrad hafa gert. Er þetta í fyrsta skifti í sögu Sovjet-Rússland, sem verkamenn gera verkfall, enda eru verkföll ólögleg í Rússlandi. Verkamennirnir settust að í skipasmíðastöðinni og neit- uðu að vinna vegna nýrrar verkalýðsmálalöggjafar, sem hefir í för með sjer 15% launalækkun fyrir verka- menn. Þessi nýju lög eru allvíð- tæk og jafnframt launalækk- un gera þau ráð fyrir því að framleiðslan verði aukin um 25 af hundraði frá því, sem hún nú er. Tvö þúsund vopnaðir lög- reglumenn úr hinni pólitísku lögreglu Stalins, ráku verka- mennina úr skipasmíðastöð- inni. Sex þúsund verkamenn voru handteknir og fluttir í fangelsi. Kosningaskrifstofa Sjálfstæðis- manna í Dagsbrún er í Hljóm- skálanum. Sími 5035. Þeir sem •vilja vinna að kosningunum, snúi sjer þangað. Sjálfstæðismenn, kjósið snemma. Ykkar listi er C-LISTI. B.v, Júpíter koiii fil Hafnar- fjarðar frá Englandi í gærnrorg- un. Víða í London voru hengd upp auglýsingaspjöld í gær, þar sem tilkynt var að enski herinn í Ulster í Norður-írlandi, hafi neyðst til að hörfa út úr borg- inni. FÚ-frjettir segja eftirfar- andi um hermdarverkin: Ýmsar ráðstafanir sem breska lögreglan hefir gert í skyndi í sambandi við sprengjuárásir þær, sem orðið hafa víðsvegar í Bretlandi, styðja þann al- menna grun, að þessi hermdar- verk sjeu unnin af mönnum, sem standa í sambandi við hinn ólöglega írska lýðveldisher. Skemdarverkum þessum virð- ist enn sem komið er aðallega b’ejnt gegn r,a|'‘ m a g n sst'ö ð\T u m og vatnsveitum. I dag fanst sprengja sem ekki hafði sprung- ið við rafmagnsstöð eina í Birm ingham. Var henni þannig kom- ið fyrir, að ef hún hefði sprung- ið hlýti hún að hafa gereyði- lagt rafmagnsstöðina og stórir hlutar borgarinnar hefðu orðið í myrkri. 100 þús. Gyðing- ar velkomnir London í gær. FÚ. ominican lýðveldið á Haiti hefir ákveðið að veita við- töku 100.000 Gyðingum. í tilkynningu aðalræðismanns Haiti í London segir, að stjórn lýðveldisins geri sjer vonir um að flóttamennirnir geti unnið mikilvægt starf þar í landi með því að stofna þar nýjar iðn- greinir. ,,Aftenposten“ í Oslo flytur í gær grein í tilefni af hinum væntanlegu umræðum á þingi urn togaraveiðar Norðmanna. Leggur blaðið til, að togara- veiðar verði algerlega frjálsar og segir að ísland hafi þrefald- að fiskafla sinn á síðustu 20 árum á meðan fiskveiðar Norð- manna hafi verið í afturför. (F. Ú.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.