Morgunblaðið - 20.06.1939, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 20. júní 1938.
BrjóstsykursverKsmiðjan NOI h.f.
Barónsstíg 2. Reykjavik.
Framleiðir
flestar
tegundir
sætinda
Biðjið kaupmann yðar um
Nóa-vðrur
þá fáið þjer það besta.
Hraðferðir Steindórs:
Allar okkar hraðferðir til Akureyrar eru um Akranes.
IRÁ REYKJAVÍK: alla mánudaga, miðvikudaga, föstudaga. — —
FRÁ AKUREYRI: mánudaga, fimtudaga, laugardaga.--
M.s. Fagranes annast sjóleiðina.-Nýjar upphitaðar bifreiðar
með útvarpi.
Sfeindór Sími 1580, 1581, 1582, 1583, 1584.
I A N
margar teg., Bindigarn, Saumgarn, Merkiblek, Salt-
pokar, Ullarballar, Kjötpokar, Presenningar, Fiskmott-
ur o. fí. fyrirliggjahdi.
L. ANDERSEN
Hafnarhúsinu. Sími 3642.
HES
ÞAÐ ER EINS MEÐ
IlraðferHir B. S. A.
og MORGUNBLAÐIÐ.
Alla daga nema mánndaga
Afgreiðsla í Reykjavík á
BIFREIÐASTÖÐ fSLANDS. — Sími 1540.
Bifreftðastöð Akureyrar.
___________ ? •• ___________
Sfmi 1380. ILITLA BILSTOÐIN Er nokkuð stór.
Uuphitaðir bflar. Opin allan sólarhringinn.
Frú Sigríður Eiríksdóttir skýrir frá
Starfsemi hjúkrunarfjelagsins
Likn árið 1938
Arið 1938 hafði hjúkrunar-
fjelagið „Líkn“ 6 hjúkr-
unarkonur 1 fastri þjónustu
sinni. Tvær hjúkrunarkonur
störfuðu við Berklavarna-
stöðina, 1 við Ungbarna-
vemd fjelagsins og 3 við
heimilisvitjanahjúkrun.
Hjúkrunarkonurnar fóru alls í
12117 sjúkravitjanir, þar af voru
9966 sjúkrasamlagsvitjanir. Þær
vöktu í 6 nætur og höfðu heilar
dagvaktir í 7% daga.
Berklavarnarstöðin.
Alls komu 2412 sjúklingar í
fyrsta sinn. Af þeim voru 640
karlar, 918 konur og 794 börn.
570 sjúklingar voru röntgen-
myndaðir, 7177 gegnlýstir, 12 var
■vísað í ljóslækningar og 83 út-
veguð spitala- eða heilsuhælisvist.
ISjeð var um sóttlireinsun á heim-
ilum 37 smitandi sjúklinga.
Gerðar voru 1430 loftbrjóstað-
gerðir, 530 hrákarannsóknir og
535 berklaprófanir. Alls voru gerð-
ar 7282 læknisskoðanir á stöðinni.
Af hinum nýkomnu sjúklingum
voru 158 eða 6.7% með virka
lungnaberkla. • Smitandi voru 38
eða 1.6%. Auk þess fundust greini-
legar berklabreytingar (óvirkar
eða sem eftirstöðvar eftir berkla-
veiki) hjá 425 eða 17.7%.
Meðal þeirra 1167 sjriklinga sem
komu á árinu, en stöðinni voru
kunnir áður, fundnst einkenni nm
virka berklaveiki hjá 100 eða
8.6%, þar af voru smitandi 22
eða 1.9%. Stór hluti hinna eða
um 33% höfðu óvirkar berkla-
breytingar eða eftirstöðvar eftir
berklaveiki. ,
Auk þess að skoða sjúklinga,
sem vísað var til stöðvarinnar frá
læknum, hefir stöðin starfað að
hóprannsóknum. Hafa þannig ver-
ið skoðuð öll skólabörn, sem
berklapróf kom út á, auk þess
kennarar og starfsfólk ýmsra
stofnana. Alls hafa á þennan hátt
verið rannsakaðir 950 manns.
Hjúkrunarkonurnar fóru í 2080
heimsóknir á heimilin. Ank þess
fóru þær í 300 sjúkravitjanir fyr-
ir bæjarhjúkrun Línkar og vöktu
í 4 nætur. Þessi hjúkrun er talin
nieð skýrslu bæjarhjúkrunarinnar
að framan.
Gjafir til stöðvarinnar voru
metnar til peninga, er nema kr.
2000.00 og er það fært á reksturs-
reikning stöðvarinnar.
Heimsóknadagar með læknum
voru 4 sinnum í viku. Læknar
stöðvarinnar voru auk Sigurðar
Sigurðssonar, berklayfirlæknis,
Magnús Pjetursson, hjeraðslæknir,
Helgi Ingvarsson, aðstoðarlælmir
á Vífilsstöðum, og Priðrik G. Pet-
ersen, röntgenlæknir á Landsspít-
alanum.
Ungbarnavernd Líknar.
Hjúkrunarkonan þar fór í 3191
heimsóknir á heimilin. Stöðin tók
á móti 406 nýjum heimsóknum
og 2062 endurteknum heimsókn-
um. 24 mæður leituðu ráða hjá
stöðinni og voru því allá 2492
heimsóknir þangað. 42 barnshaf-
andi konur leituðu ráða til stöðv-
arinnar, þar af komu 25 í fyrsta
sinn. 83 börn fengu ljósböð á ár-
inu.
Stöðinni voru gefnar kr. 200.00
í peningum. Bnnfremur ungbarna
föt, bleyjur, svif, buxur og treyj-
ur. Allar gjafir til stöðvarinnai;
hafa verið metnar til peninga, er
nema kr. 500.00 og það fært á
rekstursreikning stöðvarinnar. —
.Stöðin lánar síðan ungbarnafatn-
að, barnsvöggur og belti handa
barnshafandi konum, en gefur
mjólk, lýsi, notaðan fatnað, barna
púður, svampa, sápu, pela og tútt-
ur, þegar sjerstok þörf er fyrir.
Hjúkrunarkonan hefir auk
stöðvarvitjana, sem að framan
eru skráðar, afleýst í sumarfrí-
um og veikindaforföllum við bæj-
arhjúkrun Líknar. Ennfrémnr hef
ir hún farið í 191 eftirlitsferðir
fyrir Sjúkrasamlag Reykjavíkur.
Heimsóknadagar með lækni á|
stöðinni voru tvisvar í viku og 1
Rabarbari
35 au. Vi kg.
Laugraveg: 1.
Útbú Fjölnisvegi 2.
dag í mánuði fyrir barnshafandi
konur. Læknir stöðvarinnar er
Katrín Thoroddsen.
Starfsemi h.pikranarf jelagsins
„Líkn“ var eins og undanfarið ár
haldið uppi af fjárframlögum frá
ríki, bæjarfjelagi Reykjavíkur,
Sjiikrasamlagi Reykjavíkur. Enn-
frernur frá bæjarfjelagi Hafnar-
fjarðár og sjúkrasamlagi Hafnar-
fjarðar, og hafa Hafnfirðingar því
sama rjett til skoðunar og eftir-
lits' frá stöðvunum og fólk úr
Reykjavík og nágrenni. Auk þess
meðlimagjöldum, gjöfum og áheit
um frá fjelögum og einstakling-
um. Stjórnin þakkar öllum þeim,
•er styðja starfsemi fjelagsins og
hjálpar því til þess að víkka út
'starfssviðið.
P. li. Hjúkrunarfjelagsins Líkn,
Sigríður Eiríksdóttir,
formaður.
Viltíelm Bernhöft
fannlæknir.
Vil kaupa
lítinn bíl strax, helst 4-manna.
Greiðsla út í hönd. — Upplýsing-
ar í síma 3455, frá kl. 6—8 síðd.
Jónsmessufagn-
aður Árnesinga
að Þingvölium
Arnesingafjelagið í Reykjavík
gengst fyrir Jónsmessufagn-
aði Árnesinga á Þingvöllum um
næstu helgi, þann 24—25. júní
næstk., og eru allir Árnesingar
austan fjalls og sunnan velkomnir.
Á Iaugardagskvöldið verður kynn-
ingarkvöld og dans í Yalhöll fram
eftir nóttu, en kl. 10 á sunnudags-
morguninn verður samkoman sett,
og fara þar fram ræðuhöld, en
lúðrasveit úr Reykjavík skemtir
þess á milli með því að leika ís-
lensk lög. Klukkan 12 verður sam-
eiginlegt borðhald í Valhöll, og
verða þar ræður fluttar. Klukkan
3 fer fram gnðsþjónusta í Þing-
vallakirkju eða úti undir berum
himni, ef veður leyfir. Loks verð-
ur dansað í Valhöll á sunnudags-
kvöld um liríð.
Þeir, sem ætla sjer að taka þátt
í borðhaldinu í Valhöll, eru vin-
samlega beðnir að tilkynna það
sem fyrst til Guðjóns Jónssonar
kaupmanns, Hverfisgötu 50 í
Reykjavík. Þess skal og getið, að
Bifreiðastöð 'Steindórs hefir lofað
að sjá Árnesingum í Reykjavík,
Hafnarfirði og nágrenni, fyrir far-
kosti til Þingvalla og heim aftur.
Efalaust munu Árnesingar fjöl-
menna á hjeraðssamkomu þessa.
Uppsögn Gagnfræða*
skóla Reykvíkinga
Gagnfræðaskóla Reykvíkinga
var sagt upp 15. júní kl.
2*4 í Baðstofit iðnaðarmanna.
Utskrifaði hann að þessu sinni
52 gagjrfræðinga, 20 með gagn-
fræðaprófi hinu meira úr III.
bekk, en 32 með gagnfræðaprófi
hinu_minna úr II. bekk. 1 fjell
við gagnfræðapróf III. bekkjar, en
5 við gagnfræðapróf II. bekkjar.
Hæstu einkunn í gagnfræðaprófi
hlaut Sveinn Pálsson, sonur Páls
Sveinssonar yfirkennara, 8.17.
Hæstu prófseinkunn við skólanu
lilaut Gunnar Blöndal 8.72, en
hæsta próf og árseinkunn saman-
lagt Hafsteinn Bjargmundsson
8.51, báðir úr I. bekk A.
Ur undirbúningsdeild gengu 20
undir próf. Hafði þar verið kent
að mestu hið sama og í I. bekk.
Hæsta einkunn þar 7.87, lægst
5.23. 5 nemendur náðu ekki prófi.
Svo mikil aðsókn var að skól-
anum í haust, er var, að horfur
eru á að skifta verði II. bekk í
þrent að vetri.
Þeir, sem ætla sjer að setjast í
skólann næsta vetur, verða að gefa
sig fram sem fyrst.
Súðin kom til Reykjavíkur í
gær.
Verð fjarverandi til
júlímánaðarloka