Morgunblaðið - 11.08.1939, Qupperneq 3
Föstudagur 11. ágúst 1939.
MORGUImBLAÐIÐ
3
Ibúar á landinu 118.888
l«/o aukning: I sveitunum
hefir oiðið [fækkun um 1 »/o
IBÚAR á öllu landinu voru í árslok 1938 118.888.
Mannfjöldinn óx á árinu 1938 úr 117.692,
eða um 1196 manns (1/7). Er það meiri fjölgun
heldur en næsta ár á undan, er fjölgunin var 812. eða 0.7%.
Árið 1936 var fjölgunin skv. manntali rúml. 1010 manns
eða-0,9/1, áríð 1935 um 1100 manns eða 1'/ og 1934 um 1400
eða 1,2%.
Yið talningu er farið eftir marni-
tali prestanna, nema í Reykjavík,
Hafnarfirði og Yestmannaeyjum,
Þar er fa’ríð efti:- bæjarmanntöl-
uni. sem tekin eru af bæjarstjór-
unum í október- eða nóvember-
mánuði.
Mannfjöldinn í kaupstöðunum
var í árslok 1938, sem lijer segir
(í svigum inannfjöldinu í árslok
1937)*:
Reykjavík (36103) 37366. Ilafn-
arfjörður (3673) 3652. ísafjörður
(2651) 2666. Sigiufjörður (2700)
2828. Akureyri (4674) 4940. Seyð-
isfjörður (939) 961. Neskaupstað-
ur (1150) 1130. Vestmannaeyjar
(3480) 3506. Samtals (55370)
57049.
FÆKKAÐ í SÝSLUM.
1 kaupstöðum hefir fólkinu
þannig fjölgað um 1679 menn
eða 3,1%. í Reykjavík hefir
fólkinu fjölgað um 1263 manns
eða 3l,5%. I sumum öðrum
kaupstöðum hefir fjölgunin
einnig orðið mikil, t. d. á Ak-
ureyri 5,7%, Siglufirði 4,7%.
En í Hafnarfirði og Neskaup-
stað hefir íbúum fækkað lítils-
háttar.
I sýslunum hefir fólkinu
aftur á móti fækkað um
483 manns eða 0,7%.
Hefir fólkinu fækkað í öll-
um sýslum nema fjórum, Borg-
arfjarðarsýslu, 'Mýrasýslu,
Barðastrandasýslu og Stranda-
sýslu. I þessum sýslum hefir
orðið lítilsháttar fjölgun.
1 flestum sýslum hefir fækk-
unin orðið lítil, frá 7 (í Austur-
Skaftafellssýslu) upp í 111 (í
Húnavatnssýslu) og 124 (í ísa-
fjarðarsýslu). í nokkrum sýsl-
um hefir fækkunin verið um 30.
Samtals búa í sýslum á land-
inp 61.839 manns (í fyrra
62.322).
24 KAUPTÚN MEÐ
YFIR 300 ÍBÚA.
Áuk kaupstaðanna hafa 24
kauptún haft meira en 300 íbúa,
og er það einu fleira en árið
áður, því að Dalvík hefir á ár-
inu komist upp úr 300. Hefir
fólkinu í rúmlega helmingnum
(14) af þessum kauptúnum
fækkað alls um 198 manns.
Hinsvegar hefir orðið mikil
fjölgun í sumum hinna, og í 2
þeirra hefir hún verið tiltölu-
lega meiri heldur en í Reykja-
vík (Borgarnes 8,6%, Dalvík
4,1%).
Þegar íbúatalan í kauptúnum
með meira en 300 manns er
dregin frá mannfjöldahum 1
sýslunum, þá kemur fram íbúa-
íala sveitanna að meðtöldum
kaúptúhúm innan við 300
ma'nns.
Þessi íbúatala var (þegar
Ðalvík er talin með kauptúnum
æði árin) 47 988 í árslok 1937,
en 47 512 í árslok 1938.
Árið 1938 hefir því orðið
fækkun um 476 manns eða um
1,0%.
Af öllum mannfjöldanum á
landinu í árslok 1938 voru. k^rl-
ar 58 809 en konur 60 079.
• Koma þá 1 022 konur á móts
við hvert þúsund karla.
Enskt herskip
á Kollafirði
Er hjer á togara-
eftirliti
Enskt herskip, „Pelican", 1200
smálestir að stærð, kom
hingað í gærmorgun og vakti á
sjer athygli fyrir að sigla "upp-
undir Kjalarnesstanga.
Vom menn með bollaleggingar
um hvaða skip þetta væri og
hvérra erinda. Fullyi’tú súmir að
skijvið liefði verið að mælingum í
Kollafirði.
Breska aðalkonsúlatið upplýsir
hinsvegar, að þetva skip sje á tog-
araeftirlitsferð og hafi ekki vérið
að neinum mælingum hjer, heldur.
hafi verið á leið til liafnar og
verið að rjetta áttavita sína hjer
fyrir utan höfn.
Þetta er eitt af nýjustu íier-
skipum Breta, hljóp af. stokkun-
um í janúar-mámiði 's.l.
Skipið mun liggja hjer í viku.
Það legst ekki upp að bryggju,
þar sem það ristir svo djápt, að
hætta er á að það mundi -standa
botn með fjöru
★
Almenningi verður gefinn kost-
ur á að skoða skipið í dag kl.
16.30—18.30 og á Toorgmi-kl. 14 00
—18.30, en þeir sejn hug hafa á
að skoða skipið, verða sjálfir að
sjá sjer fyrir bátum’ á milli.
Verslunarjöfnuðurinn var óhag-
stæður um 11% miljón krónur í
lok júlímánaðar. Innflutningurinn
nanx þá 36.644 þús. ^rónum, en
útflutningurinn 25.077 þxis. krón-
tim. I fyrra á sama tíma var versl-
unarjöfnúðurinn óhagstæður um
8.2 rnilj. krónur. (Innflutt kr. 30.-
913 þiis., útflutt kr. 22.720 þús.).
Islenskur fiðluleikari
í heimskunna þýska
hljómsveit
Björn Ólafs-
son, fiðlu-
leikari (sonur Ó1
afs heit. Björns-
sonar ritstjóra),
er nýkominn heim
eftir 5 ára nám
við Tónlistaskól-
ann í Vínarborg,
Tók Bjöm þar
burtfararpróf 15.
júní s.l. Hann
hlaut ágætiseink
unn og var auk
þess sá , einí af
fimm fiðlunem-
endum, sem próf tóku, er f jekk
viðurkenningarskjal háskólans
(dipíöm).
Birni hefir boðist einn mesti
heiður, sem íslenskum fiðluleik-
ara hefir hlotnast, en það er, að
vera ráðinn í eina af fræg-
ustu hljómsveitum heimsins.
Er Björn hafði lokið prófi á
Tónlistaháskólanum var honum
boðið úð leika sem fastráðinn
maður í Wiener Philharmonikef
hljómsveitinni. Aðalstjórnandi
þessarar hljómsveitar er nú
Wilhelm Furtwángler. En
margir af frægustu hljómsveit-
arstjórum heimsins stjórna þess-
ari hljómsveit, eins og t. d.
Knappertsbuséh, og fyrif eina
tíð var Toscanini stjórnandi
hennar.
Björn hefir tekið þessu boði
og fer til Vínarborgar aftur
í lok septembermánaðar.
Bj’örn Ólafsson er aðeins 22
ára aðj aldri, en hefir þó þegar
vakið á sjer eftirtekt í hljóm-
listarheiminum þýska fyrir
leikni sína óg kunnáttu. Getum
við landar hans veríð hreyknir
af frammistöðu hans Og það
mun síst ofspáð, að hann eigi
eftir a$ verða landi sínu til
sóma.
Björn byrjaði að leika á fiðlu
er hann- var 7j—;8 ára. Hann er
fyrsti fiðlunemandinn sem út-
skrifaðist úr Tónlistarskólanum
hjer í Reykjavík. Var það árið
1934. Hafði hann þá stundað
•nám einn vetur (1931—1932) í
Vínarborg hjá hinum fræga
fiðlukennara Mairecker.
Er Björn hafði útskrifast úr
Tónlistarskóla’nuih hjer í bæ,
fór hann til Vínarborgar og
stundaði nám hjá einum besta
fiðlukennara í Þýskalandi, pró-
íessor Moravec við Tón-
listarháskólann í Vínarborg.
Blaðamaður frá Morgunblað-
inu hefir hitt Björn Ólafsson
að máli og spurt hann hvort
hann ætli ekki að gefa Reyk-
víkingum kost á að heyra til
sín á konsert áður en hann fer.
Björn Ólafsson.
— Jú, segir Björn, Tónlistar-
fjelagið hefir beðið mig að
halda konsert á þess vegum
(fyrir fjelagsmenn) í síðari
hluta þessa mánaðar og hefi jeg
lofað því.
— Hafið þjer ákveðið, hvað
þjer spiíið?
— Nei, ekki endanlega, nema
að jeg mun spila Beethoven-kon
sertinn. En eins og þjer munuð
vita, bætir Björn við, þá er það
einasti fiðlukon^ert Beethovens
og einn af stærstu fiðíukonsert-
"um sem til eru.
í Vínarborg hefir BjÖrn Ól-
afsson leikið nokkrum sinnum
opinberlega, bæði á nemenda-
konsertum, með Karlakór
Reykjavíkur á sínum tíma og
sjálfstæðan konsert hjelt hann
með hljómsveit í fyrra vetur.
í Vínarborg. Hlaut hann
áValt hin bestu ummæli hljóm-
listargagnrýnenda. Skulu hjer
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU
Valur vann
K. R. 6 :0
Kappleiknum milli Vals og K.
R, í meistaraflokki í gær-
kvöldi lauk með sigri Vals, sem
s'etti 6 mörk. K. R.-ingar settu
eRkert mark.
Yalsmenn settu 1 íxiark í fyrri
hálfleiknum, en hin 5 í þeim seinni.
Valsungar ljeku miþið. betur en
K. R.-ingar og áttu ijdlilega þenna
markafjölda skilið,
ÍJngur knattspýrnumaðiu’, í liði
Vals, sem ekki hefir leikið í meist-
araflokki áður, vakti á sjer athygli
fyrir góðan leik. Hann heitir
Brynjólfur Ólafsson. Aðrír ágætir
menn í liði Vals voru Guðmund-
Ur Sigurðsson, Hrólfur Benedikts-
son og Björgólfur Baldursson.
í liði K. R. voru margir ungir
og óreyndir knattspyrnumenn úr
I. fl., enda var liðið alt í molum.
Vívax.
---------- 300 -------------
manns settir í bát-
ana - yiirgefnir
á rúmsjó
London í gær F.Ú.
Strandgæslulið í Palestínu
stöðvaði í dag fimm björgun-
arbáta við strendur landsins.
í bátunum voru samtals um
300 Gyðingar og voru þeir
flestir illa á sig komnir.
Flóttamenn þessir munu
hafa komið á leiguskipi upp
undir strendur Paiestínu og
verið settir í bátana, er þang-
að kom, en skipið því næst
siglt á brott.
Um 70 börn I
sumardvöi á
vegum „Vor-
boöans"
Vorboðinn“ hauð í gær bæj-
arfulltrúum og blaða-
mönnum að skoða barnaheimili, er
fjelagið starfrækir í sumar í
heimavistarskólunum að Iríúðum í
Ytri-Hrepp og Brautarholti á
Skeiðum. Á heimilunum dvelja 68
börn í sumar, á aldrinum frá 6—
12 ára.
, Að „Vorboðanum“ standa þrjú
fjelög, Verkakvénnafjelagið Fram-
sókn, Þvottakvennafjelagið Frevja
og A. S. V., en konur ilr þessum
fjelögum hafa framkvæmdastjóm
„Voi’boðans“ á hendi.
Markmið fjelagsins er að hjálpa.
fátækum börnum að komast til
sumardvalar í sveit. Og það liefir
nú starfað á fimta ár. Fyrstu
fjögur árin var starfrækt eitt
barnaheimili, að Brautarholti, en
fyrir brýna þörf var í sumar horf-
ið að því að fá einnig heiniavist-
arskólann að Flúðum í Hreppum
fvrir harnaheimiji. Starfa heimil-
in tvo mánuði á sumrin, frá 1.
jx'dí til 1. sepember.
Nokkurn styrk hefir „Vorboð-
inn“ fengið til starfsemi sinnar,
úr ríkissjóði og frá bænum, en að
öðru, leyti aflað fjár með -skenxti-
samkomum, frjálsum samskofum
og gjöfum góðra manna.
Að Flúðum dvelja 32 börn í
sumar. Þangað var ekið fyrst. Og
er gestir höfðu notið miðdegis-
verðar og verið boðnir velkomnir
af Jóhönnu Egilsdóttur, sem er í
framkvæmdanefnd Vorboðans, var
húsið skoðað. Var þar alt með
hremlætisblæ, og gaman að sjá,
hve böi’nin voru vellíðunarleg og
fi’jálsleg. Sungu þau og dönsuðu
fyrir gestina og voru hin ánægð-
ustu.
Ráðskona að Flúðum er María
Einarsdóttir, en kennari Stefán
Jónsson. Auk þess starfa við heim-
ilið; 3 starfsstúlkur.
FRAMH. Á 8JÖTTU SÍÐU.