Morgunblaðið - 10.09.1939, Side 3
Sunnudagur 10. sept. 1939.
MORGU'NBLAÐIÐ
Vjelarnar keypt-
ar I Raufarhafn-
arverksmlðjuna
Sú fregn barst hingað í gær; að
sendimenn ríkisstjórnarinnar,
Ásgeir Ásgeirsson bankastjóri og
Jón Gunnarsson verksmiðjustjóri.
haf'i nú fest kaup á öllum vjelum
í bina fyrirhuguðu síldarverk-
smiðju á Baufarhöfn. Hún á að
geta unnið iir 5000 málum á sól-
arhring.
Yjelar þessar eru keyptar í Nor-
egi, Svíþjóð og Danmörku, og er
rerð þeirra ekkert hærra en verð-
lagið var áður en styrjöldin braust
út. —
Gjaldeyrisnefnd qerir
rfkisstjórninni
skráveifu
Fyfir 2—3 mánuðum samþykti
ríkisstjórnin vátryggingartil-
boð í nýju Esju. En þegar átti að
greiða vátryggingargjaldið neitaði
Gjaldeyrisnefnd Skipaútgerð rík-
ieins um gjaldeyri til þess.
í gær ónýtti Lloyds, er tilboðið
hafði gefið, þetta tilboð sitt, þar
eð greiðsla hafði ekki farið fram,
og heimtar nú miklu hærri ið-
gjöild. I>etta er almenn vátrygg-
ing, en ekki stríðstrygging. En
vátryggjendur segja sem svo, að
akip geti farist, t. d. á tundur-
dufli án þess það sannist að sú
sje orsökin. Og því er heimtað
hærra gjald.
Það er óneitanlega dálítið ein-
kennilegt af Gjaldeyrisnefnd, að
neita ríkisstjórnínni um gjaldeyri
í 2—3 mánuði, til þess að fá skipið
vátrygt, því þó vera kunni að vafi
geti leikið á því, hvort rjett var
að byggja skip þetta, þá er eitt,
TÍst, að íir því það var bygt þurfti
líka að vátryggja það.
í Siegfried-varnarlinu Þjóðverfa
Vjelbyssa tekin út úr neðanjarðar víggirðingu Þjóðverja við vesturlandamærin.
Eimskipafjelags-
skipin sigla
Samnmgsgrundvöllur um tryggingar
og striðsliættu[)óknun skipverja
---!-- * I W W ><■ ■
ÐUR en skip Eimdkipafjelagsins ljetu úr höfn
hjer heima vildu jf jelög skipverja að fenginn
væri einhver samningsgrundvöirnr eðasam-
komulag milli Eimskipafjelagsstjórnarinnár og fjelags-
stjórna skipverja um það hvernig stríðstryggingar skip-
verja yrðu og stríðsáhættuþóknun. En slíka viðbót á kaupi
hafa sjómenn annarsstaðar farið fram á að fá.
Nú vita menn ekki svo gjörla hvernig þessu hefir verið komið
fyrir me.ðal nágrannaþjóða yorra. En sanjjkomplag;.komst á í gær-
kvöldi milli fjólagsstjórnarinnar og sjómanna, þess efnis. að hvorki
stríðstryggingarnar nje kaupuppbótin yrði lægri en hún verður lijá
þeirri Norðurlandaþjóð annari, þar sem hún verður lægst.
Ensku gaskolin
koma
Skeyti kom frá Englandi í
gær til O. J. Johnson &
Kaaber, þar sem sagt er frá því,
að nú losni um gaskolafarm-
inn, en það var þetta firma, sem
seldi Gasstöðinni.
Ferming var þó ekki byrjuð
í gær, að því er gasstöðvar-
stjóri skýrði blaðinu frá. En
væntanlega verður nú ekki
fyrirstaða lengur um að kolin
fáist hingað.
Heyrst hafði í bænum að
þýska kolaskipið Bianca, sem er
meðal flóttaskipanna, hafi gas-
kol innanborðs. En svo er ekki,
þó nota mætti þau kol sem gas-
kol. Kol þessi voru ætluð járn-
brautum í Portúgal og eru mjög
sterk „steam“-kol.
Fimtugur verður í .dag Bjarni
Brandsson afgrm. hjá Alliance.
Eimskipaf jelagístjórnin var dá->
lítið hikandi í því, að gera svo óá-
kveðið samkomulag, þar sem hún
er með því að fallast á hlut, sem
hún enn veit ekki með vissu hvern-
ig er.
En á hinn bóginn eðlilegt, að
sjómenn, sem leggja út á hafið
undir núverandi kringtimstæðum,
vilji fá sömu kjör og stjettar-
hræður þeirra meðal annara þjóða.
Nokkurt umtat varð um það í
gær hvort hægt væri að fallast á
kaupuppbótina, vegna þess að hún
kynní að brjóta í bág við vinnu-
launaákvæði gengislaganna frá í
vor. En ef svo reyndist vera,1 mun
það liafa komið til orða, undir
þessum alveg einstæðu kringum-
stæðum, að fá nauðsynlega breyt-
ingu á þeimí lögum.
Gullfoss og Lagarfoss, er hjer
voru, fóru í gærkvöldi. Brúarfoss
lagði af stað í gærkvöldi frá Höfn.
Selfoss er væntanlega farinn frá
Leith. En Dettifoss liggur enn í
Hull og var ekki nema sáralítið
komið af vörum í hann er síðast
frjettist, vegna þess að ekki hafði
fengist útflutningsleyfi fyrir vör-
una. Hann á aðallega að taka syk-
ur, hveiti og aðra nauðsynlega
matvöru.
35 þús. fisk-
pakkar til Itallu
Ný sala S. í. F.
Sölusamband ísl. fiskfram-
leiðenda gekk í gær frá
samningum á nýrri, stórri
fisksölu, að þessu sinni til
Italíu.
Þessl nýja sala nemur 35 þús-
und pökkum og er verðið mjög
viðunanlegt, að 'því er tíðinda-
manni Morgunblaðsins var skýrt
frá af nákunnugum.
En hjer er það eins og með
Portúgalssölurnar, að það vantar
að fá skip, til þess að flytja fisk-
inn, en vonandi rætist úr þessu
bráðlega.
jTvö skip
fengu góð
köst
Aföstudagskvöld nam
heildarsöltunin á öllu
landinu 232.401 tn., en. 309.-
387 tn. á sama tíma í fyrra.
Bræðslusíldarmagn ríkisverk-
smiðjanna var í gær um 333.500
mál, en 414.789 mál á sama tíma
í fyrra.
Saltaðar voru á Siglufirði síð-
asta sólarhringinn 1448 tn., þar
af 264 tn. af herpinótasíld.
I gær barst engin síld á land,
enda var óhagstætt veiðiveður.
Seint í gærkvöldi bárnst
þær fregnir frá Raufarhöfn,
að tvö skip hefðu fengið sæmí-
lög köst í Þistilfirði.
Annað skipið var Dagný; fekk
um 300 mál. Hitt var Hnginn frá
Rvík; fekk svip&ð kast.
Kirkjuvígsla. Þann 17. þ. m.
verður vígð Núpskirkja í Dýra-
firði, sem hefir verið í smíðum
undanfarið. Biskup landsins fram-
kvæmir vígsluna
Emil Telmányi.
Viðfðrull
fifilusnillingur
Telmányi fiðluleikari leit
inn á skrifstofu Morg-
unblaðsins rjett sem snöggvast
í gær, er hann var að koma af
æfingu með Páli ísólfssyni, en
þeir ætla að halda sameiginlega
tónleika í dómkirkjunni á
þriðjudaginn kemujr.
— Jeg hefi komið til íslands
áður, sagði Telmányi, hinn
ungverski fiðlusnillingur, sem
kvaðst jafnvel skilja íslensku,
ef hún væri töluð hægt. — Það
yar fyrir 14 árum. Þá hjelt jeg
7 tónleika á 16 dögum — í
Nýja Bíó — og altaf fyrir
fullu húsi. Nú kom jeg hingað
á vegum Tónlistarfjelagsins og
ljek í Gamla Bíó. Þykir mjer
það góður tónleikasalur, og gott
að leika fyrir íslenska áheyr-
endur, þó að þeir sýni ekki góð-
an tónlistaráhuga sinn með eins
eldheitu lófataki og fótastappi
og suðrænar þjóðir.
— Nú er líka komið nýtt
orgel í dómkirkjuna, síðan jeg
var hjer síðast, segir Telmányi
ennfremur, — og hlakka jeg
til að leika í kirkjunni með
undirleik míns góða vinar, Páls
ísólfssonar. M. a. mun jeg leika
eitt af þeim lögum, sem jeg
ljek, þegar jeg var hjer áður
fyr — La Folia eftir Corelli.
Hert á bensfnbanninu
ð Norðurlöndum
FRAMH. Á SJÖTTU SÖ)U.
Fyrirspurn var gerð í gær til
Sveins Björnssonar sendi-
herra og hann beðinn að skýra
frá ráðstöfunum Norðurlanda-
þjóða viðvíkjandi bensínsparn-'
aði.
1 Öllum löndunum, sagði hanstí
er akstur einkabíla báhhaðút‘.' ’ ’
En stjórnirnar hafa ekki
látið sjer það nægja. Því dág-
lega að kalla er hert á ákvæð-1
unum sem miðá að bensín
sparnaði, með því að takmark'a1
notkun áætlunarbíla, mótor-
Iesta, flutningabíla og flugn
vjela.
★
Það er mjög erfitt að gera
sjer grein fyrir, hve míkill'
sparnaður verður að aksturs-
banni einkabíla hjer. En þar eð
bílarnir sem stöðvaðir eru eru
500 og hver þeirra notar að'
meðaltali 18 lítra fyrir hverja
100 km. sem þeir aka, þá er
það augljóst, að fyrir hvem
mánuð sem þeir eru úr notkun
sparast mjög mikið bensín.
KINDUR BITNAR
AF HUNDUM
í fyrradag fundust í Geldinga-
nesi fjórar kindur rifnar og
bitnar af hnndum. Var ein þeirra
danð, en þrjár með lífsmarki.
Þorgeir bóndi í Gufunesi segir
að hnndarnir hafi verið tveir, sem
rifu fjeð, annar frá Grafarholti,.
hinn frá Engi, og hefir sá hnnd-
ur áðnr. verið staðinn að því að
rífa fje. r
Kindurnar áttu þeir Þorgeir í
Gufunesi og Engilbert Hafberg í
Viðey. .
M.s. Dronning Alexandrine er
væntanleg frá Vestur- og Nörður-
landi á miðnætti í nótt. Skipið fer
til Kaupmannahafnar á morgun
kl. 6 síðd.