Morgunblaðið - 10.09.1939, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 10.09.1939, Qupperneq 7
Sunnudagur 10. sept. 1939. MORGUNBLAÐIÐ 7 Qagbófc I. O. O. F. 3 = 1219118 = Veðurútlit í Rvík í dag: NA- gola. Bjartviðri. Háflóð er í dag kl. 14.50. Helgidagslæknir í dag er Krist- ín Ólafsdóttir, Ingólfsstræti 14, sími 2161. Næturvörður verður þessa viku í Ingólfs Apóteki og Laugavegs Apóteki. Næturlæknir verður í nótt Ey- þór Gunnarsson, Laugaveg 98, sími 2111, og aðra nótt Gísli Pálsson, Laugaveg 15, sími 2474. Hallgrímsdeild, sem f eru þjón- andi prestar Mýra-, Borgarfjarðar- og Snæfellsnesssýslu, heldur aðal- fund sinn á Hvanneyri um þessar mundir. Fundurinn hófst x gær- kvöldi og heldur áfram í dag og á morgun. I dag messa prestarnir í öllum kirkjum nágrennisins og skifta sjer, tveir og tveir, á kirkj- nrnár. Biskupinn mætir á fundin- um og messar í dag að Lundi í Lundareykjadal. * Jarðarför frú Sigurlaugar Páls- dóttur, konu Ásmundar Gestsson- ar kenitara, fór fram í gær. Síra Kristinn • Daníelsson ílutti hús- kveðju, ef síra Árni Sigurðssoii talaði í kirkjunni. M'eti.n xxr stjórn Fríkirkjusafnaðarins báru kistuna í kirkju, vinkonur hinnar látnu út ©g Skaftfellingar inn í kirkjugarð. 6. ferð E.S. Nova fellur niður. , V9, Sinith & Co. Fyrlr börn Sjálfblekungar 1.75 Pennastokkar 0.75 Teiknibækur 0.50 Litakassar 0.45 Blýantsyddarar 1.00 Greiður 0.50 Speglar 0.50 Skæri 0.50 Smíðatól 0.75 Dátamót 225 Hálsfestar 1.00 Töskur 1.00 Saumakassar 1.00 Svippubönd 0.75 K. Einarsson k Björnsson Bankastræti 11. Nýar gámmív5rur: Baðhettur, margar teg. Gúmmíbuxur, margar teg. Gúmmíhanskar, margar teg. Gúmmítúttur og Gúmmísnuð. Kolkrabhi í höfninni. í gær tóku verkamenn í Slippnum eftir því, að einhverjir fiskar óðu þar að landi, og er betur var aðgætt, voru þetta kolkrabbar og voru þeir teknir með höndunum. Mun það sjaldgæft, ef ekki eins dæmi, að smokkfiskur kemur hjer inn í höfn. Sennilega er þá eitthvað af honum\ í Sundunum, og ætti menn að reyna að ná í hann til beitú. Golfklúbbur íslands. Kepni verð ur í dag. Mætið; kl. 2 e. h: í Golf- skálanum. Glímufjelagið Ármann. Drengja- mótið heldur áfram í dag kl. 10 f. h. Kept verður í langstökki, kúluvarpi og 1500 m.\ hlaupi, fyr- ir drengi innan 16 ára, og þrí- stökki, spjótkasti og 400 m. hlaupi,- fyrir drengi 16—19 ára. Aðeins ein bifreiðastöð er nú opin á næturnar eins og vitað er, til þess að koma í veg fyrir óþarfa bensíneyðslu. í nótt verður Bif- reiðastöð Reykjavíkur opin, en aðra nótt Biíreiðastöðin Geysir.. En brýnt skal fyrir fólki að nota ekki bila til aksturs að nauð- synjálausú. Heimilisiðnaðarfjelagið byrjar hin vinsælu handavinnunámskeið ;sín fyrst í næsta mánuði. Kent' iVerður bæði í dag- og kvöldnám- skeiðum, sem héntúg eru fyrir- þngar stúlkur og Jþípnæðuj^ forstöðukonu ’námskeiðanna, ffú Guðrúnu Pjétursd'óttur, Skola- vörðustíg 11A, síöia 3345, er hægt að fá al-lar'nánari upplýsingar frá kl. 10—2 e. h. á daginn. Grænlandsfarið Gustav Holm fór frá ísafirði í gær, áleiðis til Grænlands. Skipið fekk um 320 tonn af kolum á ísafirði, a'ð til- hlutun ríkisstjóniarinnar. Innanfjelagstennismót T. B. R. hjeldu áfram í gær. f tvímennings- kepni kvenna (meistarafl.) fóru leikar þannig, að María Magnúsd. og Júlíana Isebarn unnu Ástu Benjamínsson og Unni Briem og urðu þar með meistarar. Meistará- mót karla (einmennings) hjelt einnig áfram í gær og fara úrslit fram í dag kl, 10 f, h. Sogsvegurinn. Enn vantar nokk- ur hundruð metra af undirbygg- ingu á Sogsvegi til þess að hann sje kominn í samband við akveg- inn hjá Hrafnagjá. Er það í Hrafnagjárhallanum sem þessi spotti er ógerður. En nokkru meiri ofaníburð vantar í veginn. 70 manns hafa unnið þar í sumar. Til nýju kirkjunnar frá H. M. 25 kr., afhent síra F. Hallgríms- syni. Útvarpið í dag : 11.50 Hádegisútvarp. 17.00 Messa í Fríkirkjunni (sjera Árni Sigurðsson). 19.45 Frjettir. 20.20 Hljómplötur; Yalsinn, eftir Ravel. 20.35 Erindi; Bæjarrústirnar í Stöng (Kristján Eldjárn stud- ent). 21.00 Útvarpshljómsveitin leikur (Einsöngur; Jakob Hafstein cand. jur.). 21.35 Kvæði kvöldsins. 21.40 Danslög. Útvarpið á morgun: 12.00 Hádegisútvai’p. 13.05 Sjöundi dráttur í happdrætti Háskólans. 19.00 Síldveiðiskýrsla Fiskifjelags- ins. 20.20 Hljómplötur: Ljett lög. 20.30 Sumarþættir (Guðbr. Magn- ússon forstjóri). 20.50 Hljómplötur: a) íslensk lög. b) 21.20 Kvartett í Es-dixr, eftir Schubert. Unga íólkið, sem fer til Reykjavfkur Avarp til foreldra Jeg sný máli mínu til þeirra foreldra, sem nú fara að senda syni sína og dætur til vetrardvalar í Reykjavík. Eruð þið ekki dálítið hugsjúk út af því, hvaða áhrif borgarlífið muni hafa á sálir barnanna, . á framferði þeirra og framtíð alla? Jeg er viss' um, að mörg móð- irin kveður barnið sitt með kvíða, biður fyrir því og biður það að varast freistingar, glaum og soll bæjárlífsins. Meira þyfeAt hún ekki geta gert, og veit þó hvað loforð unglinga geta verið hald- lítil, þótt af heiluln hug sje gef- in þegar heiman' er farið. Ungling arnir vita ekki þegar þeir leggja á stað hvað það er að vera rót- laús í hinu margbreytta, iðandi biejaríffi. l>ár er það oftast nær jiending ein, hverjir það eru, sem þeir komast í kynni við, og hafa áferif á þá. * Reykjavík er að mínum dómi hvorfei verri nje betri fyrir þá, sem hjer alast upp, heldur en, hxxn hefir verið um mannsaldur. En hún er drjúgum hættulegri núna fyrir óreynda aðkomu unglinga, heldur en hún var fyrir nokkrum árum. Jeg skal ckki fara út í að rekja það. Það yrði of langt mál. En jeg vil spyrja foreldrana: Hefir -yður aldrei komið til hug- ar, að þjer getið trygt börnin yð- ar fyrir vondum solli og óheppi- legum ábrifum. borgarlífsins, án |þess þð að leggja neinar hömlur á frjálsræði'þeirra? Eða er yður elrki kunnugt að þetta er hægt? Þjer getið trygt börnin yðar með því móti að láta þau ganga í stúku þegar hingað kemur. Góð- templarareglan mun gera alt, sem í hennar valdi stendur til þess að forða börnum yðar frá vondum solli, án þess að þau missi nokk- urs í. Reglan setur ekki nein höft á frjálsræði þeirra, heldur kennir hún þeim að velja og hafna, eftir því sem þjer munduð frekast óska fyrir þeirra hönd. Hún er þeim skóli í fjelagslegum störf- um, þar sem þau læra margt, seín komið getur að gagni síðar á lífs- leiðinni, í hvaða stjétt eða stöðu sem þau lenda. Og hún er þeim vörn gegn hættulegasta óvininum, áfengisnautninni, sem býður öll- um yfirsjónum og hrakföllum heim. Hver stúka í Reykjavík' telcur opnum örmum við öllum, og eigi síst æslrufólkinu úr sveitunum, sem hingað kemur öllum ókunn- úgt. Hugleiðið það með yður, for- eldrar, hvort þjer munduð ekki vera ókvíðnari um hag barnanna yðar, ef þau væri í Reglunni. Og ef þjer komist að þeirri niður- stöðu, þá blessuð sjáið þið um að börnin yðar gangi í Regluna undir eins og þau koma til Reykja víkur. Þeirrar ákvörðunar mun hvorkí yður nje þau nokkuru sinni iðra á lífsleiðinni. Á. Ó. ITG A Ð hvíllít Tíj meC (rlerangnm fri * K voldikóli • okkar byrjar 15. sept. — Kent verður: ; íslenska, reikningur, handavinna, danska, enska • og þýska. j St. Jósefssystnr. • HAFNARFIRÐI. Námskeið í kjólasaum hefst 15. þ. m. Þátttakendur gefi sig fram strax. Ilenny OHósson, Kirkjuhvoli, sími 5250. Hinar vínsælu hraðferðir Steindórs til Akureyrar um Akranes eru: FRÁ REYKJAVÍK: Alla mánud., miðvikud., föstud, og sunnud. FRÁ AKUREYRI: Alla mánud., fimtud., laugard. og sunnud. Afgreiðsla okkar á Akureyri er á Bifreiðastöð Oddeyrar. M.s. Fagranes annast sjóleiðina. Nýjar upphitaðar bifreiðar með útvarpi. Allar okkar hraðferðir eru um Akranes. ■ Á ,tff» tta isktoj x\,'r' ޣРER EINS MEÐ Hraðferðir B. S. A. OG MORGUNBLAÐH). Alla daga nema mánudaga Afgreiðsla í Reykjavík á BIFREIÐASTÖÐ ÍSLANDS. — SÍMI 1540. Bifreiðastöff Akureyrar. Hið íslenska Fomritaf jelag. Nýtt bindi er komið út: Vatnsdælasaga Hallfreðar saga, Kormáks saga, Hrómundar þáttr halta, Hrafns þáttr Guðrúnarsonar. EINAR ÖL. SVEINSSON gaf út. Verð kr. 9,00 heft og kr. 16,00 í skinnbandi. Fæst hjá bóksölum. Aðalútsala: Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar Morgunblaðið með morgunkailinu Steindór Sími 1580 Hjartanlega þakka jeg öllum, sem á einn aður annan hátt veittu mjer aðstoð og samúð yið fráfall og greftrun konu minnar, SIGURLAUGAR PÁLSDÓTTUR. Um leið vil jeg sjerstaklega votta þakkir þeim, er ljettu henni sjúkdómsbyrðina með stöðugri hjúkrun eður annari hjálp, sem jeg fæ ekki að verðleikum iretið. í eigin nafni, barna, föður og annara aðstandenda. Ásmundur Gestsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.